Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Side 22
30 MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1996 Fréttir \ \ DV Raðgert að opna nyjan baðstað við Bláa lónið Grímur Sæmundsen, framkvæmdastjóri Bláa lónsins hf. Flutningar á sláturlömbum DV, Hólmavík: Nýlega hófust flutningar á slát- urlömbum til Hvammstanga af fé- lagssvæði Kaupfélags Steingríms- Qarðar jafnhliða flutningi til slát- urhúss félagsins á Hólmavík. Að sögn Jóns E. Alfreðssonar kaupfé- lagsstjóra er fyrirhugað að senda þangað a.m.k. 3.000 dilka. þetta er gert vegna þess að sláturhúsið þar hefur ESB- leyfi og þar með er hægt að senda kjöt þaðan á flesta markaði. Nú hefur opnast tiltölu- lega góður markaður fyrir lamba- kjöt til Noregs en kröfur Norð- manna eru meðal annars þær að kjötið sé af lömbum af þeim svæð- um landsins sem líflambasala hef- ur verið heimil frá undanfarin ár. Hún hefur verið heimil af veruleg- um hluta félagssvæðis Kaupfélags Steingrímsfjarðar í fjöldamörg ár og veriö mörgum fjárbóndanum drjúg búbót í hinum mikla sam- drætti undanfarin ár. GF ovl Tilveran: Skemmtileg og öðruvísi neytendaumfjöllun er alla þriðjudaga í DV. Umfjöllunin er á fjórum samliggjandi síðum og fjallar um allt sem viðkemur fjölskyldunni, heimilinu, vinnunni og áhugamálum fólks. Ipv) i ^yi Tippfréttir: Tippfréttir er lifandi íþróttaumfjöllun þar sem er að finna allt sem viðemur enska og ítalska boltanum og lengjunni. Menning: Fjölbreytt og skemmtileg menningarumfjöllun í umsjón Silju Aðalsteinsdóttur er alla Þriðjudaga í DV. DV, Suðurnesjum: „Við erum að kanna möguleika á því aö fá fjármagn í framkvæmdina. Við höfum verið að kynna verkefn- ið völdum aðilum og það er til skoð- unar hjá þeim. Ef okkur tekst að afla fjár i framkvæmdina höfum við verið að gæla við að geta opnað nýja baðstaðinn árið 1998,“ sagði Grímur Sæmundsen, framkvæmdastjóri Bláa lónsins hf. Búið er að leggja nýjan veg frá Grindavíkurvegi og að þeim stað sem fyrirhugað er að nýja lónið verði. Hann er um 750 metra frá nú- verandi lóni en stærð hins nýja lóns verður svipuð. Mannvirki við lónið verða felld að umhverfinu þannig að fólk fær að upplifa þá stórkostlega náttúru sem þama er til staðar. Þá verður hægt að stilla hitastigið í lóninu, sem er ekki hægt í dag. Menn telja kostina við að færa lónið margfalt fleiri en gallana. Að sögn Gríms er verið að tala um að í fyrsta áfanga yrði byggð fullkomin búningsaðstaða með öllu tilheyrandi og veitinga- og fundar- aðstöðu. Hann sagði áætlanir gera ráð fyrir því að kostnaðurinn á fyrsta áfanga væri á milli 800-900 milljónir króna ef skynsamlega væri að farið. Annar áfangi er gisti- aðstaða fyrir allt að 200 gesti sem væntanlega yrði reist um og eftir aldamót. „Búningsaðstaðan verður mjög stór. Við höfum tekið á móti tvö þúsund gestum á dag á stærstu dög- unum en á nýja baðstaðnum erum við að tala um tvöfaldan þann fjölda,“ sagði Grímur Sæmundsen. -ÆMK Tuttugu og tveggja punda lax úr Flókadalsá DV, Fljótnm „Þetta er stærsti lax sem ég hef veitt á stöng á þessu vatnasvæði og er ég þó búinn að stunda hér stanga- veiði í liðlega 60 ár,“ sagði Níels Hermannsson frá Ysta-Mói þegar hann hafði landað 22 punda hæng úr Flókadalsá i síðustu viku. Níels ólst upp á Ysta-Mói en hefur búið mörg ár í Reykjavík. Hann hefur stundað veiðiskap í Flókadalsá og Hópsvatni frá bamæsku. Hann eignaðist veiðistöng um tvítugsald- ur og hefur veitt þar fleiri laxa á stöng en nokkur annar. Niels fékk þann stóra í svokölluðum Grafar- hyl. Það tók hann 35 mínútur að landa laxinum. „Miðað við hvað veiðin í ánni hef- ur verið treg í sumar er ég nokkuð ánægður með þessa þrjá daga sem ég hef verið hér í veiði. Dagana á undan fékk ég væna urriða, 4-5 punda fiska, og síöasta daginn fékk ég þann stóra þannig að maður get- ur sæmilega við unað. Þetta hefði hins vegar ekki þótt mikið i gamla daga. Þá fékk ég oft 3-4 laxa á dag. En þessi á hefur átt sín slöku veiði- ár eins og flestar aðrar ár í landinu. Það gengur enginn að vísri veiði, Níels Hermannsson með 22 punda laxinn úr Flókadalsá. DV-mynd ÖÞ hvorki hér né annars staðar, en það þetta,“ sagði Níels Hermannsson að er líka hluti af ánægjunni við lokum. -öþ Borgarhólsskóli Húsavík: Nýtt öflugt tölvu- kerfi á afmælisári Borgarhólsskóli var settur síðast- liðinn þriðjudag og eru nemendur í vetur um 430 talsins, sem er svipað- ur fjöldi og var síðasta skólaár. Kennarar og aðrir starfsmenn skól- ans eru um 55 þannig að heildar- fjöldinn á þessum vinnustað er hátt í 500 manns. Nú í haust verður tekin í notkun efsta hæðin í öðmm áfanga nýrrar viðbyggingar við skólann og verða 8.-10. bekkur með aðstöðu þar. Einnig verður tekið í notkun nýtt og öflugt tölvukerfi sem sam- anstendur af 14 útstöðvum sem tengdar era við eina móðurstöð. Á dögunum var haldið hér í Ólafs- firði námskeið í bílamálun sem lauk með sveinsprófi. Námskeiðið var haldið á bílaverkstæðinu Múlatindi. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt nám- skeið er haldið utan Reykjavíkur. Prófað var í górum þáttum: 1) bif- reiðahlutur með smáskemmd sem þurfti að laga og bletta. Hluturinn siðan bronslitaður. 2) Litalögun. 3) Plasthlutur málaður. 4) Verklýsing Að sögn Halldórs Valdimarsson- ar, skólastjóra Borgarhólsskóla, er það mikil búbót fyrir nemendur að fá þessar tölvur og bætir úr brýnni þörf. Halldór sagði að þessi tölvu- kaup hefðu verið mikO fjárfesting fyrir skólann, en verið möguleg meðal annars vegna gjafa sem skól- inn hefði fengið í tdefni þess að nú í ár era eitt hundrað ár frá því fyrsta skólahúsið var reist hér á Húsavík og verður þeirra tímamóta minnst sérstaklega síðar. Það var Tölvuþjónusta Húsavíkur sem sá um uppsetningu og samhæf- ingu á tölvukerfinu. -AGA og tUlitsemi á vinnustað, efhi og efni- snotkun. Þátttakendur komu viða að: Andr- és Leifsson, Blönduósi, Aðalgeir Grétarsson, Húsavík, Stefán Bjarn- héðinsson, Akureyri, Hreinn Sig- tryggsson, Reykjavík, Sigurjón Magnússon, Ólafsfirði, Sveinn Magn- ússon, Neskaupstað. Prófdómarar voru Erlendur Traustason og Einar Guðmundsson en formaður prófa- nefndar var Hermann Jóhannesson. -HJ Breytt kennslu- form í gagn- fræðaskólanum DV, Ólafsfiröi: Gagnfræðaskólinn á Ólafsfirði hóf starfsemina í byrjun sept- ember en nú er kennsluform í 9. og 10. bekk mikið breytt. Þessum tveimur bekkjum hefur verið skipt í hraðferð, miðferð og hægferð. Betri nemendum í 9. bekk gefst kostur á að fara í hraðferð, þ.e. sitja í tímum með 10. bekk. Hér er eingöngu um að ræða grunnfógin fjögur, ensku, íslensku, dönsku og stærðfræði. Þá eru nokkrir nem- endur settir í hægferð. Nemendur í 8. bekk fara ekki í þetta ferðakerfi. Að sögn Óskars Þórs Sigur- björnssonar skólastjóra verður flæði á milli hópanna sem byggist á mati og vali þannig að nemendur geta ýmist farið hratt yfir eða hæg- ar eftir því hvemig námið gengur. Nú er búið að kenna með þessu fyrirkomulagi í tvær vikur og hef- ur það mælst vel fyrir enda allir, bæði kennarar og nemendur, já- kvæðir í garð þessa fyrirkomulags. Auk þessara grunnskólabekkja er framhaldsdeild við gagnfræða- skólann á Ólafsfirði, deild sem hef- ur verið starfrækt undanfarin 20 ár. Núna eru 19 nemendur skráðir i deildina. -HJ Sveinspróf í bílamálun DV, Ólafsfirði:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.