Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1996, Side 30
38
MÁNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1996
Fréttir
Gífurleg framleiðsluaukn
ing flugeldhúss Flugleiða
DV, Suðurnesjum:
„Þetta er stærsta ár sem við höf-
um nokkurn tímann upplifað og
framleiðslan stefnir í að verða um
1,2 milljón máltíðir á árinu sem er
175 þúsund fleiri máltíðir en í
fyrra. Þetta er aukning sem við
gerðum ekki ráð fyrir fyrr en um
aldamót," sagði Jón Sigurðsson,
rekstrarstjóri flugeldhúss- og veit-
ingarekstrar Flugleiða á Keflavík-
urflugvelli.
Jón segir þróunina hafa staðið
síðan 1990 og framleiðslan í eldhús-
inu hafi tvöfaldast siðan. Hann seg-
ir þetta tilkomið vegna þess að
Flugleiðir fóru að taka meira af
mat af eldhúsinu í báðar ferðirnar
til og frá Evrópu til að styrkja eld-
húsið og atvinnulífið á Suðumesj-
um. í flugeldhúsinu starfa yfir
sumarmánuðina 120 manns og í
kringum 65 manns á vetuma. Til
að mæta þessari gifurlegu aukn-
ingu er gert ráð fyrir að stækka
flugeldhúsið á Keflavíkurflugvelli.
„Fyrir utan þann mikla fjölda
sem vinnur hjá okkur sköpum við
mikla vinnu vítt og breitt um land-
ið. Við búum til og hönnum réttina
hér og fáum síðan fyrirtæki til að
framleiða þá eins og við viijum
hafa þá. Síðan er rétturinn settrn-
saman hér áður en hann fer í flug-
vélamar.
Okkar erlendu viðskiptavinir
hafa stóraukið flug til Keflavíkur
og þá aðallega Canada 3000. Þeir
byrjuðu fyrir 4 árum með eina ferð
á viku sem þýddi tvær lendingar
en em koinnir í 16 lendingar á viku
■
I
Jón Sigurösson, rekstrarstjóri flugeldhúss- og veitingarekstrar Flugleiöa á
Keflavíkurflugvelli, aö skýra frá þeirri gifurlegu aukningu sem á sér staö í
flugeldhúsi Flugleiöa. DV-mynd ÆMK
í sumar. Það þýðir að við komum
til með að selja þeim í sumar 130
þúsund máltíðir. Þeir eru mjög
ánægðir með matinn og aUa þjón-
ustu á flugvellinum og þá ekki bara
flugeldhúsið heldur alla þjónustu.
Þeir nota sömu vélar og við, Boeing
757-200, sem þýðir að varahlutir
em til staðar og tækniþekking og
minnsti möguleiki á seinkunum.
„Samkvæmt verð- og gæðakönn-
unum í Evrópu vorum við með
besta verðið og mestu gæðin að
þeirra mati. Einnig var hagstæðara
að kaupa alla þjónustu hér en að
kaupa hluta af henni í Evrópu,"
sagði Jón Sigurðsson en flugeld-
húsið selur einnig mat í flugvélar
SAS og Lufthansa. Af framleiðslu
flugeldhússins eru Flugleiðir með
um 85% á þessu ári. -ÆMK
Leiðarlýsing fjall-
vega á Austur-
landi á bók
DV, Egilsstööum:
„Tilgangurinn er að ná saman á
einn stað fróðleik um foma fjallvegi
á Austurlandi og þær fomminjar
sem þar er að fmna, s.s. vörður og
veghleðslur, m.a. frá eldra fólki áður
en meira af því efhi glatast," sagöi
Guðrún Kristinsdóttir minjavörður,
þegar áhugahópur um þetta efni
kynnti ritið Fomir fjallvegir á Aust-
urlandi, sem nýlega er komið út.
í riti þessu er að finna lýsingu á
rúmlega 200 fjallvegum á svæðinu
frá Gunnólfsvíkurfjalli til Skafta-
fells. Þá fylgja kort þar sem nær all-
ar leiðirnar eru teiknaöar inn.
Einnig em í ritinu erindi sem flutt
vom á málþingi sem efnt var til á
Egilsstöðum í mai 1995 um efnið
Vörður og fjallvegir.
Magnús Hjálmarsson og Bragi
Björgvinsson á Egilsstöðum unnu
að leiðarlýsingu á gönguleiðunum
og byggðu þar á ýmsum ritum
ásamt viðtölum við fróða menn og
kunnuga á hverjum stað. Hópurinn
telur æskilegt að áfram verði unnið
að þessari samantekt um fornar
leiðir og fjallvegi með ítarlegri lýs-
ingu, gleggri kortum og leiðamerk-
ingum þar sem fram kæmi hversu
erfiöa göngu er um að ræða í hverju
tilfeUi.
Kaupfélag Héraðsbúa styrkti
verkefnið með 100 þúsund króna
framlagi úr menningarsjóði og Úti-
leikhúsið „Hér fyrir austan“ hefur
lagt hópnum Uð. Ritið hefúr verið
sent aðilum í ferðaþjónustu á Aust-
urlandi og verður einnig til sölu í
bókabúðum. -SB
Slalld mahðlubýk
0q mi llko
' afbragtii I
ra'fndbuftd Irí
Jun ■ Á ’
HROLLVEKJANDl
D KA U GASA <3 A
BÆKUR
-S%/M fltéiStíhjbífk
Vmr jaifiís 'rlWMfi
ftfoÍIVétijWiifi ílfaú§j?ÍsaL)a
- awm&sjrrm
-saiia.
imr þifSsffli £)í>k rfafitk
mti Mhmfféum
nmrími sm w %
mfríúbmtétéigúm.
Asokn
a fiWsta sútúsfaf)
kos iar aöéirís Wi kfóriúr
=• oy Mnþá rriinna í iiskrifi.
UaMBÆKUR
Gunnar Sigurösson, forseti Bæjarstjórnar Akraness, og Gísli Gíslason bæj-
arstjóri undirrita vinabæjarskjaliö ásamt forráöamönnum Sörvágar. DVÓ
Sörvágur í Fær-
eyjum vinabær
Akraness
DV, Akranesi:
Þann 1. september sl. var undir-
ritað í Sörvogi í Færeyjum skjal til
staðfestingar því að Akranes og
Sörvágur hefðu tekið upp vinabæj-
arscimstarf. Aðdragandi málsins er
sá að á Akranesi hefur um langt
skeiö verið áhugi á að efla sam-
skipti við Færeyjar. í ]jós kom að
gagnkvæmur áhugi var á Akranesi
og Sörvági að taka upp vinabæjar-
samstarf og komu fulltrúar frá
Sörvági í heimsókn á vordögum til
að kynna sér aðstæður og ræða um
hið fyrirhugaða samstarf. Ákveðið
var þá að undirrita formlegt vina-
bæjarskjal í ágúst eða september og
var það gert þann 1. september sl.
Sörvágur er um 800 manna bær á
Vogey. Flugvöllur Færeyja er í jaðri
bæjarins og er hann, auk útgerðar
og fiskvinnslu, meginuppistaöan í
atvinnulífi bæjarins. -DVÓ
Hnífsdælingar fá ómengað jarðgangavatn:
Laust við
kólígerla og
óhreinindi
Undanfamar vikur hafa staðið
yfir framkvæmdir við lagningu 9
km vatnsleiðslu úr jai'ðgöngunum í
Tungudal við Skutulsfjörð og út í
Hnífsdal. Mun þessi nýja vatns-
leiðsla leysa af hólmi vatnsveitu í
Hnífsdal sem fengið hefur yfirborðs-
vatn úr Langá í Fremri- Hnífsdal.
Það er Einar Halldórsson sem er
verktaki við lagningu leiðslunnar
ásamt undirverktökum, en sam-
kvæmt kostnaðaráætlun var ráð-
gert að verkið kostaði tæplega 40
milljónir króna. Samkvæmt samn-
ingi eru verklok ákveðin 15. nóvem-
ber nk. Fá þá íbúar og atvinnufyrir-
tæki í Hnífsdal loks hreint vatn úr
krönum sínum en vatnið hefur fram
að þessu oft verið mjög óhreint,
mengað kólígerlum og jafnvel óhæft
til að baða sig úr því.
-HK