Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Page 12
•#
12
LAUGARDAGUR 11. JANUAR 1997
'h
Ingvar Sigurðsson leikari kveður kjaftasögur í kútinn:
Ekki að fara að
„meika það"
í Hollywood
- á leið í þriggja vikna menningarferð um Evrópu
Sú saga hefur gengið fjöllunum
hærra að Ingvar Sigurðsson leikari
sé að flytja til útlanda og ein sagan
segir að hann sé að fara að „meika
það“ í Hollywood. DV sló á þráðinn
til Ingvars og spurði hvað væri hið
rétta í málinu. Ingvar sagði að hann
væri ekki að flytja eitt eða neitt,
hvað þá að fara til Hollywood. Sann-
leikurinn væri sá að hann væri að
fara í þriggja vikna ferðalag um
Norðurlönd og fleiri staði í Evrópu.
Ferðalagið hefst í byrjun febrúar nk.
Ingvar sagðist hafa fyrir löngu
ákveðið að drífa sig út, álagið væri
búið að vera mikið í vetur og sið-
ustu miesseri. Frítími væri því vel
þeginn. Þá fannst honum kominn
tími til að nýta sér styrk sem hann
hlaut frá Norrænu ráðherranefnd-
erlend bóksjá
inni til menningarferðar.
„Ég fer til Stokkhólms og
Helsinki, hugsanlega til Litháen og
síðan til Berlinar. Ég ætla að hitta
fólk sem ég þekki þama og kynna
mér leikhúslífið. Ef ég sé eitthvað
fróðlegt og skemmtilegt þá gæti það
komið sér vel í starfinu síðar meir,“
sagði Ingvar sem fer einn í ferðina.
Stone Free hættir
Ljóst þykir að með ferð Ingvars
lýkur sýningum á hinum sivinsæla
söngleik, Stone Free, en Ingvar leik-
ur þar aðalhlutverkið. Síðustu sýn-
ingar verða í lok janúar. Ingvar
sagði að Stone Free hætti ekki bara
vegna hans heldur væru fleiri leik-
arar að fara að gera aðra hluti. Þá
væru samningar við leikara ekki i
gildi nema til 15. janúar.
Ingvar leikur aðalhlutverkið í
Svaninum á litla sviði Borgarleik-
hússins, sem gengið hefur fyrir
fullu húsi frá því í haust. Hlé verð-
ur gert á sýningum í febrúar og þær
teknar upp aftur að lokinni reisu
Ingvars.
Ingvar er fastráðinn leikari hjá
Þjóðleikhúsinu og sagðist hann fyrir
löngu hafa fengið frí frá störfum. Æf-
ingar eru hafnar á franska leikritinu
Listaverkið sem frumsýna á í vor.
Þar leikur Ingvar ásamt Hilmi Snæ
Guðnasyni og Baltasar Kormáki,
undir leikstjórn Guðjóns Pedersen.
Ingvar sagðist í ferðinni m.a. ætla að
kíkja á uppfærslu á Listaverkinu
sem sýnt er núna í Berlín. -bjb
Ingvar Sigurösson leikari er á leiöinni í þriggja vikna menningarferö um
Noröurlönd og fleiri Evrópulönd í febrúar. Á meöan veröur gert hlé á æfing-
um og sýningum á þeim verkum sem hann tekur þátt í. Sýningum á Stone
Free lýkur í lok janúar. DV-mynd BG
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Dlck Francls:
Come to Grlef.
2. John Grlsham:
The Runaway Jury.
3. Danlelle Steel:
Flve Days In Parls.
4. Rob Grant:
Backwards.
5. Nlcholas Evans:
The Horse Whlsperer.
6. Nlck Hornby:
Hlgh Fldellty.
7. Terry Pratchett:
Maskerade.
8. Catherlne Cookson:
The Obsesslon.
9. Robert Goddard:
Out of the Sun.
10. Josteln Gaarder:
Sophle's World.
Rit almenns eölls:
1. Blll Bryson:
Notes from a Small Island.
2. Andy McNab:
Immedlate Actlon.
3. Fergal Keane:
Letter to Danlel.
4. Gary Larson:
Last Chapter and Worse.
5. S. Nye & P. Dornan:
A-Z of Bahaving Badly.
6. Carl Glles:
Glles 50th.
7. B. Watterson:
There’s Treasure Everywhere.
8. S. Coogan & H. Normal:
The Paul and Paullne Calf Book.
9. Private Eye:
Colemanballs 8.
10. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
Innbundnar skáldsögur:
1. Maeve Blnchy:
Evenlng Class.
2. Terry Pratchett:
Hogfather.
3. Tom Clancy:
Executlve Orders.
4. John le Carré:
The Tallor of Panama.
5. Mlchael Crlchton:
Alrframe.
Innbundln rit almenns eðlls:
1. V. Reeves & B. Mortlmer:
Shootlng Stars.
2. Jlmmy Mulvllle og flelrl:
Have I got 1997 for You.
3. Dava Sobel:
Longltute.
4. Damon Hlll:
My Champlonship Year.
5. R. Harris, M. Lelgh & M. Leplne:
True Anlmal Tales.
(Byggt é The Sunday Tlmes)
Ofbeldið er orðið
að verslunarvöru
Edward Bond.
Leikskáldið Edward
Bond hefur ávallt verið
beinskeyttur og undan-
bragðalaus í ádeilu sinni,
en verk hans hafa gjarnan
fjallað um ýmsar hliðar
þess ofbeldis sem virðist
fastur þáttur í hegðun
mannskepnunnar. Að þessu
leyti hefur hann ekkert
breyst; í nýjasta leikriti
sínu, In the Company of
Men, sem frumsýnt var í
Bretlandi fyrr í vetur, tekur
hann fyrir ofbeldi í við-
skiptaheiminum.
í verkinu er lýst átökum
innan og milli fyrirtækja,
og baráttunni um yfirtöku
fyrirtækja með góðu eða
illu. Þykja aðfarir sumra þar heldur
villimannlegar, auk þess sem deilt
er hart um hvort vænlegra sé að
græða á matvælum eða vopnum.
Völd og gróði
Þótt leikritið sé sýnt núna var
það skrifað þegar Margrét Thatcher
var við völd í Bretlandi og það á að
gerast eftir nokkra áratugi. Bond
kveöst hafa lesið ævisögiu- margra
forystumanna í viðskiptalífinu til
að kynnast nánar veröld þeirra
manna sem hann skrifar um í leik-
riti sinu. Það hafi hins vegar verið
mikið álag að lesa sumar bókanna
því sjálfsævisögur fjármálamanna
séu „sérstök tegund bókmennta ætl-
uð fólki sem vill drepa sig úr leið-
indum,“ eins og hann orðar það í
viðtali nýlega.
„Ég komst að þeirri niðurstöðu
að fjármálamönnum nægir alls ekki
að græða peninga," heldur hann
áfram. „Þeir sækjast eftir völdum.
Þjóöfélag okkar er fullt af fólki sem
hefur mikil völd og álit og hatar
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
okkur. Það er mjög hættulegt. Við
verðum að læra að átta okkur á
þessu hatri.“
Bond neitar því að hann sé að
predika yfír fólki í leikritum sínum.
Hann sé aðeins að lýsa veruleikan-
um eins og hann blasi við sér. „Það
er ekki mitt að dæma fólk,“ segir
hann. „Nýja leikritið gerir einungis
þá kröfu til fólks að það horfist í
augu við sjálft sig. En það
kunna auðvitað að vera
slæm tíðindi fyrir suma.“
Hann er afar ósáttur við
ástand þjóðfélagsmála um
þessar mundir. „Markaðs-
hyggjan hefur gert ofbeld-
ið að verslunarvöru," seg-
ir hann. „Hið hræðilega
núna er að við erum í
senn ofbeldisfyllri og til-
finningasamari. Af því
stafar mikil hætta. Ég hef
enga hugmynd um hvar
næst verður efnt til
Auschwitz eða Hiroshima.
Ég veit það eitt að það
mun gerast."
Verður að skrifa
Bond hefur lengi verið afar
andsnúinn trúarbrögðum og það
hefur ekkert breyst. „Að sjálfsögðu
er ég ekki trúaður,“ segir hann í
áðumefndu viðtali. „Sú hugmynd er
ógeðsleg. Ógeðsleg. Böm eru skotin
til bana í Dunblane og daginn eftir
segir einhver prestur í dómkirkju
að guð hafi elskað þau. Það er næst-
um því verra en að skjóta þau.“
Spumingunni um hvers vegna
hann skrifi leikrit svarar Bond m.a.
með þessum orðum: „Ég skrifa af
því að ég verð að gera það. Það sem
fólk krafsaði á veggi gasklefanna
með nöglunum em bókmenntir."
Og hann bætir við: „Allar sögur rísa
af sársauka. Að vera lifandi er sár
reynsla. Síðasta orðið í fyrsta leik-
riti mínu, The Pope’s Wedding frá
árinu 1962, var einfaldlega: hjálp."
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Mlchael Ondaatje:
The Engllsh Patlent.
2. Jane Hamllton:
The Book of Ruth.
3. Nlcholas Evans:
The Horse Whlsperer.
4. Tonl Morrlson:
Song of Solomon.
5. Nora Roberts:
Holdlng the Dream.
6. Irls Johansen:
The Ugly Duckllng.
7. Robert Ludlum:
The Cry of the Halldon.
8. Rlchard North Patterson:
The Rnal Judgment.
9. Davld Guterson:
Snow Falllng on Cedars.
10. Cllve Cussler:
Shock Wave.
11. Mary Hlgglns Clark:
Sllent Nlght.
12. Mlchael Crlchton:
The Lost World.
13. Amy Tan:
The Hundred Secret Senses.
14. James Patterson:
Hlde and Seek.
15. Mlchael P. Kube-McDowelll:
Tyrant's Test.
Rit almenns eðlis:
1. Jonathan Harr:
A Clvll Action.
2. Dava Sobel:
Longltude.
3. Thomas Cahlll:
How the Irlsh Saved Clvlllzatlon.
4. MTV/Melcher Media:
The Real World Dlarles.
5. Mary Plpher:
Revivlng Ophelia.
6. B. Gates, Myhrvold & Rinearson:
The Road Ahead.
7. Al Franken:
Rush Llmbaugh Is a Blg Fat Idlot.
8. Barbara Klngsolver:
Hlgh Tlde In Tucson.
9. Andrew Well:
Spontaneous Healing.
10. Clarissa Pinkola Estés:
Women Who Run Wlth the Wolves.
11. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
12. Howard Stern:
Miss Amerlca.
13. John Felnstelny:
A Good Walk Spolled.
14. Mary Karr:
The Llar's Club.
15. Betty J. Eadle & Curtls Taylor:
Embraced by the Ught.
(Byggt á New York Tlmes Book Revlew)
m
X!
•d
£
U
fd
%
I
I
<
<