Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1997, Page 14
14
LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1997 I iV
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjóm, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111,
blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: httpV/www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Nokkrir fátæktarhópar
Þótt fátæktarkönnun Félagsvísindastofnunar veiti
ekki gagnlegt svar við því, hvort fátækt sé að aukast eða
minnka hér á landi, sýnir hún glöggt, hvaða þjóðfélags-
hópum er hættast við fátækt. Þannig getur hún orðið til
leiðbeiningar við tiiraunir til úrbóta.
í þremur hópum er fátækt fjórum sinnum útbreiddari
en að meðaltali. Þessa þrjá hópa mynda atvinnuleysingj-
ar, námsmenn og bændur. í tveimur hópum til viðbótar
er fátækt nærri tvöfalt útbreiddari en að meðaltali, hjá
ungu fólki innan við þrítugt og einstæðum foreldrum.
Staða atvinnuleysingja á þessum mælikvarða kemur
ekki á óvart. Hún endurspeglar þá ríkjandi skoðun í
þjóðfélaginu, að bæta beri atvinnulausu fólki tekjuleysið
án þess að ganga svo langt í samhjálpinni, að það fæli
fólk frá því að halda áfram að reyna að útvega sér vinnu.
Breytingar verða ekki á þessu á næstu árum. Viðhorf-
in til atvinnuleysis eru blendin. Ólíklegt er, að pólitísk
samstaða náist um að bæta stöðu atvinnulausra, því að
margir telja of lítinn mun og raunar vinnuletjandi mun
vera á tekjum láglaunafólks og atvinnuleysisbótum.
Um námsmenn ríkir líka pólitískur ágreiningur. Sjálf-
stæðisflokkurinn er valdamesta stjómmálaaflið og hefur
beitt sér fyrir skertum hlut námsmanna. í umræðunni
um þetta hafa fulltrúar flokksins eindregið lagzt gegn til-
lögum til að rétta stöðu námsmanna á nýjan leik.
Námslán em nú torsóttari en áður var, einkum þeim,
sem lenda í veikindum eða öðrum vandræðum og geta
ekki sótt nám af fullum þunga. Vextir og endurgreiðslur
eru harðari en áður og framlengja fátækt námsmanna
eftir að námi er lokið. Þetta má öllum ljóst vera.
Til að bæta stöðu atvinnuleysingja og námsmanna
þarf annað hvort að verða breyting á viðhorfum öflugra
stjórnmálaafla eða þá að mynduð verði valdablokk án
aðildar þessara stjórnmálaafla. Á hvorugu eru líkur um
þessar mundir og alls ekki á kjörtímabilinu.
Ekkert er hins vegar því til fyrirstöðu, að umræða
haldi áfram um breytt viðhorf þjóðfélagsins til atvinnu-
lausra og námsmanna og að pólitísk samstaða náist síð-
ar um að bæta stöðu þeirra. En það verður á kostnað
einhverra annarra, því að þjóðartekjur vaxa ekki á móti.
Fátækt bænda er af öðrum toga. Ríkisstyrkurinn til
þeirra nemur svo háum fjárhæðum, að hann einn er
langt yfir fátæktarmörkum. Hann nýtist hins vegar ekki
bændum til viðurværis, af því að hann fer í rekstur, sem
ekki er bara arðlaus, heldur brennir beinlínis verðmæt-
um.
Með skipulagsbreytingum, sem stefna að samdrætti í
framleiðslu landbúnaðarafurða og minni hömlum á inn-
flutningi ódýrrar búvöru verður hægt að nýta betur
bændastyrkinn þeim til viðurværis. Ekki þarf annað en
að viðurkenna vonlausa samkeppnisstöðu landbúnaðar.
Um ungt fólk og einstæða foreldra ríkir ekki skarpur
stjórnmálaágreiningur, svo að svigrúm ætti að vera þar
til aðgerða til að bæta stöðuna. Almennt er viðurkennt,
að ungu fólki er íþyngt á ýmsan hátt, til dæmis í jaðar-
sköttum og aukinni greiðslubyrði húsnæðislána.
Einnig virðist svo sem, að ekki sé sterk hugmynda-
fræðileg andstaða gegn því að aukin sé velferð einstæðra
foreldra í þjóðfélagi, sem er þannig rekið, að tvær fyrir-
vinnur þarf til að skapa hverri fjölskyldu mannsæmandi
lífskjör. Til dæmis má auka bamabætur og meðlög.
Mikilvægast er, að vel stæður meirihluti þjóðarinnar
missi ekki sjónar af fátæktinni og komi í veg fyrir, að
þjóðin klofni varanlega í tvær aðskildar þjóðir.
Jónas Kristjánsson
Gingrich hált embætti
en stendur höllum fæti
Nýkjörið Bandaríkjaþing kom
saman í vikunni og fyrsta verk
fulltrúadeildarmanna var að velja
sér forseta. Repúblikaninn Newt
Gingrich náði endurkjöri en ellefu
af 227 flokksbræðrum neituðu
honum um stuðning svo að at-
kvæðatalan varð 216 af 435 deild-
armönnum. Er það i fyrsta skipti i
manna minnum sem forseti Full-
trúadeildar er kjörinn án þess að
ná hreinum meirihluta þing-
heims.
Um tíma í síðustu viku var jafn-
vel talið að fráhvarfið frá
Gingrich meðal flokkssystkina
hans yrði slíkt að hann neyddist
til að draga sig í hlé en með harð-
fylgi tókst þingflokksforustunni
að afstýra slíkum óvinafagnaði.
Málinu er þó ekki að fúllu lokið.
Síðar í mánuðinum, líklega
þann 21., kveður siðanefnd Full-
trúadeildar nefnilega upp lokaúr-
skurð um hverjum viðurlögum
Gingrich skuli sæta fyrir að vera
sannur að sök um margföld brot á
siðareglum sem deildarmönnum
eru settar. Sá úrskurður kemur
síðan til atkvæða í deildinni
sjálfri.
Björgunarhringurinn sem
fleytti Gingrich í gegnum forseta-
kjörið var að fulltrúar repúblik-
ana í siðanefndinni létu orð berast
um að forsetaefnið myndi sleppa
með áminningu af nefndarinnar
hálfu. Næsta þrep viðurlaga þar
fyrir ofan, vítur, hefði gert forset-
ann ókjörgengan í trúnaðarstöður
deildarinnar.
Brot Gingrichs eru í stórum
dráttum tvenns konar. Annars
vegar liggin' fyrir að hann safnaði
fé með skattaundanþágum í stofn-
anir sem höfðu á sér yfirskin
fræðslustarfsemi en veitti það svo
eftir krókaleiðum í sjóði sem
standa straum af kosningabaráttu
hans og annarra repúblikana sem
hann vill styrkja. Framlög til
slíkrar starfsemi njóta ekki skat-
taundanþágu.
í öðru lagi, og það er mun alvar-
legra í augum þingmanna, hafði
Gingrich í frammi ósannindi og
blekkingar þegar hann var kallað-
ur fyrir siðanefndina til að standa
fyrir máli sínu vegna þessara
ólöglegu ráðstafana á skattfrjálsu
fé.
Það ljær svo málinu aukinn al-
vöruþunga að forseti Fulltrúa-
deHdar Bandaríkjaþings er annar
í röðinni að taka við embætti
Bandaríkjaforseta, faHi bæði sá
sem th þess er kjörinn og varafor-
setinn frá eða verði af öðrum sök-
um ófærir um að hafa landstjóm-
ina með höndum.
Demókratar lögðu á síðustu
dögum síður en svo stein í götu
Gingrichs og virðast láta sér end-
urkjör hans vel líka. Ástæðan er
öðrum þræði að forseti FuUtrúa-
Eriend tíðindi
Magnús Toifi Ólafsson
deHdarinnar er eftir því sem
kannanir segja óvinsælasti stjóm-
málamaður Bandaríkjanna um
þessar mundir, eftir oflátungslega
og hvatskeytslega framgöngu sína
í sama starfi á síðasta kjörtímabUi
eftir mikinn kosningasigur repú-
blikana. Er demókrötum ósárt um
að foringi andstöðuflokksins varpi
með persónu sinni rýrð á málstað
hans.
Þar að auki hefur það lengi ver-
ið helsta áróðursvopn repúblik-
ana gegn BiU Clinton forseta og
merkisbera demókrata að hann sé
haldinn siðferðUegum annmörk-
um sem einkum sjái stað í fjár-
málum. Hafa formenn þingnefnda
úr röðum repúblikana lagt forset-
ann í einelti fyrir meint fjármála-
misferli á fylkisstjórnarárunum í
Akransas og eru þau mál nú í
höndum sérstaks saksóknara með
náin tengsl við andstæðinga for-
setans.
Nú boða repúblikanaþingmenn
í viðbót að þeir muni láta þing-
nefndir taka tU rannsóknar fjár-
öflun Clintons á siðasta kjörtíma-
bUi í helstu kosningasjóði
demókrata. Er einkum deUt á þátt-
töku kaupsýslumanna með tengsl
við Austur-Asíulönd, fyrst og
fremst Kína og Indónesíu, í þeirri
fjáröflun. Fyrir liggur að gefend-
um reyndist einatt greið leið tU
funda við Clinton og trúnaðar-
menn hans í Hvíta húsinu og
ráðuneytum.
AUur þessi málatUbúnaður er
fyrst og fremst ætiaður tU að hafa
áhrif á bandarískt almenningsálit
og snúa því gegn forsetanum. Það
gæti reynst torveldara með kunn-
asta leiðtoga repúblikana sannan
að sök um fjármálamisferli, enda
bannaði Clinton starfsliði sínu að
æmta eða skræmta um mál for-
seta FuUtrúadeUdar meðan það
var efst á baugi f bandarískum
stjómmálafréttum.
Newt Gingrich sver embættiseið í forsetastói Fulltrúadeildar Bandaríkja-
þings. Símamynd Reuter
skoðanir annarra________________________
Svik í þinginu
„Þegar Newt Gingrich hafði verið endurkjörinn
| forseti fuUtrúadeildarinnar var hann fuUur iðrunar
{ og lofaði að starfa í anda samvinnu við andstæð-
1 inga sína á þingi. En hann og félagar hans í
repúblikanaflokknum sviku þann anda sem hann
{ sagðist mundu reyna að skapa á þinginu með því að
keyra þegar í stað í gegn tiUögu sem bindur enda á
| störf siðanefndar fulltrúadeildarinnar áður en
‘ henni tekst að ljúka rannsókn sinni (á máli
í> Gingrich)"
Úr forustugrein New York Times 9. janúar.
Um öryggi í flugi
„Tvö sérstaklega hræðileg flugslys í Bandaríkjun-
| um á árinu 1996, sem rannsókn er enn ekki lokið á,
1 urðu tU þess að auka á ný áhyggjur almennings af
| flugöryggismálum. Alríkisstjórnin hefur orðið að
I endurskoða stefnu sína, herða eftirlit og lögleiða ný
tæki sem hefði aUtaf átt að gera að skyldubúnaði í
öUum farþegaflugvélum. Spumingin er bara hvort
loftferðaeftirlitið, sem lýtur stjórn nýrra manna,
geti haldið uppi dampinum."
Úr forustugrein Washington Post 9. janúar.
Stöðvum pyntingar í Tyrklandi
„Pyntingarnar í tyrkneskum fangelsum verður
að stöðva. Við neitum að trúa því að stjómvöld í
Tyrklandi, dyggum samstarfsaðUa í NATO og að
mörgu leyti framfarasinnuðu ríki, séu ekki í stakk
búin til að þvinga einnig fram þá nútímavæðingu.
Það mundi spara rfkinu málaferli fyrir mannrétt-
indadómstólnum í Strasbourg. Og spara Tyrklandi
fyrirhöfhina við að setja saman neyðarlega „svarta
lista" tU að hindra að félagar þeirra í Evrópu geti
notfært sér gagnkvæm viðurkennd réttindi. Tyrk-
lands sjálfs vegna.“
Úr forustugrein Politiken 6. janúar.