Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1997, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 1997
9
i>v Stuttar fréttir
Mótmælt í Sofíu
Þúsundir mótmælenda gengu
um götur Sofíu í Búlgaríu og
kröfðust þingkosninga. En sósí-
alistaflokkurinn ætlar að halda í
þau áform sín að mynda nýja
stjórn.
Hindruðu mótmæli
Alsírskar öryggissveitir
hindruöu mótmælaaðgerðir á
vegum leiðtoga stjómarandstöð-
unnar sem krefst viðræðna við
múslíma og loka blóðsúthellinga.
Nasistagull
Sænska rík-
issljómin hef-
ur ákveðið að
koma á fót
nefnd sem
rannsaka á
nasistagull
sem Svíar
keyptu í
seinni heimsstyijöldinni.
Sækja fram
Talebanar í Afganistan sögö-
ust hafa sótt í átt að Panjsher-
dal, sem stjómarandstæðingar
ráða yfir.
Fórust í hvirfilbyl
Yfir 100 manns fómst í hvirfil-
byl sem fór um suðvesturhluta
Madagaskar.
látin
Stjömuspá-
konan Jeane
Dixon lést úr
hjartaáfalli á
sjúkrahúsi í
Washington-
borg í gær, 79
ára að aldri.
Gengu um götur
Þúsundir fóra um götur Hong
Kong til aö mótmæla fyrirhug-
uðu afnámi lýðréttinda þegar
Kínverjar taka við stjórnar-
taumunum 1. júlí.
Réðust á skæruliða
Stjómvöld í Súdan sögðu að
ráðist hefði verið á búðir skæra-
liða nærri landamærum Úganda
en skæraliðar vilja steypa stjóm
múslíma.
Slepptu lögreglumanni
Skæruliðar, sem hafast við í
sendiráði Japans í Líma í Perú,
létu veikan lögregluþjón lausan
úr gíslingu. Lausn hans gerði þó
lítið til að slaka á spennunni
vegna gíslamálsins.
Herða tökin
Kínverjar hertu tökin á fjöl-
miðlum með því að gefa út reglu-
gerðir um hvemig skrifa eigi
fréttir. Er blaðamönnum upp-
álagt aö forðast umræðu mn
kynlíf, ofbeldi og hjátrú en fyfla
fréttir sínar af ættjarðarást og
sósíalisma.
Bjóðafó
BKaliforníuríki
bjóða um 3,5
mifljónir ís-
lenskra króna
fyrir upplýs-
ingar sem
leitt geta til
handtöku
morðingja Ennis Cosbys, sonar
leikarans Bills Cosbys.
Óttast flóð
íbúar Kalifomíu hlóðu sand-
pokum um hús sín en flóö af
völdum mikilla rigninga
skemmdu hús og vegi í
norðurhluta rfkisins.
Brátt frjáls
Brasilíska sápuóperustjaman,
sem myrti kærastu sína í þátt-
unum og hefur setið bak við lás
og slá í fjögur ár, gæti losnað úr
fangelsi eftir tvö ár.
Skæð flensa
Inflúensufaraldur, sem herjað
hefur á japönsk elliheimili, hef-
ur þegar orðið 249 manns að
bana. Reuter
Dixon
Útlönd
Sjö mánaða gömul ríkisstjórn Netanyahus í hættu:
Lögregla rannsakar
meinta spillingu
Lögreglan í ísrael hóf í gær rann-
sókn á meintri spillingu innan ríkis-
stjómar Benjamins Netanyahus for-
sætisráðherra. ísraelskir stjómmála-
menn fúllyrða að rannsóknin geti
leitt til falls stjómarinnar en hún var
mynduð eftir kosningasigur Netanya-
hus síðastliðið vor.
Ríkissaksóknari fyrirskipaði að
rannsókn skyldi hafin á skipun um-
deilds lögmanns í embætti saksókn-
ara. Sjónvarpsstöðin Rás 1 i ísrael
gaf í skyn í fréttum sínum í fyrri
viku að skipun lögmannsins væri
hluti af samkomulagi til að semja um
lyktir mála fyrir Aryeh Deri, leiðtoga
Shas, oddaflokks í rikisstjóm Net-
anyahus, en hann er ákærður í röð
spillingarmála sem ná aftur til 1993.
Ríkissaksóknari sagði að þrátt fyr-
ir að málið væri afar viðkvæmt væri
ísraelsku lögeglunni treystandi til að
framkvæma rannsókn fljótt og örugg-
lega. Hefúr sjö manna sveit lögreglu-
manna heimild til að kalla Netanya-
hu og fleiri ráðherra til yfirheyrslna
vegna málsins.
Fullyrt er að skipun í saksóknara-
embættið tengist samkomulagi Net-
anyahus við Palestínumenn um borg-
ina Hebron á Vesturbakkanum. Sjö
ráðherrar í 18 manna ríkisstjóm Net-
anyahus greiddu atkvæði gegn sam-
komulaginu en tveir ráðherrar Shas
greiddu atkvæði með því. Fullyrt var
í fréttum sjónvarpsstöðvarinnar að
atkvæði Shas hefðu verið tryggð með
því að skipa leiðitaman saksóknara
og tryggja þannig að Deri fengi blíð-
ari meðferð vegna spiflingarákær-
anna.
Natan Sharansky, ráðherra í ríkis-
stjóminni, sagði að ef um baktjald-
amakk hefði verið að ræða yrðu þeir
sem hlut áttu að máli að segja af sér.
Aavigdor Kahalani öryggismálaráð-
herra sagði aðspurður að ef ásakanir
um spillingu í málinu ættu við rök
að styðjast væri enginn vafi um aö
dagar ríkisstjómarinnar væru taldir.
Umræddur saksóknari sagði af sér
12 tímum eftir að hann var skipaður
en hann er ekki hátt skrifaður sem
lögmaður. Netanyahu segir ásakanir
í málinu rakalausar og hvatti til lög-
reglurannsóknar.
Reuter
Lögreglumaöur stendur hér vörö um rústir fólksbíls sem sprengdur var f tætlur í Ulster á Noröur-írlandi f fyrrinótt.
Þrír breskir hermenn í frfi voru á bflnum og höföu lagt honum fyrir utan diskótek. Þegar þeir komu út og ætluöu aö
leita aö ummerkjum um sprengju sprakk bíllinn. Einn mannanna særöist Iftillega og þykir mildi aö ekki fór verr. í gær
sögöu embættismenn aö viöræöum um friö á Noröur-lrlandi yröi frestaö fram yfir bresku þingkosningarnar. Lítiö hef-
ur þokast í samkomulagsátt og orörómur er um aö viöræöurnar séu aö fara út um þúfur. Sfmamynd Reuter
Jeltsín hvílist
Borís Jeltsín, forseti Rúss-
lands, hefur hvílst í bústað í
nágrenni Moskvu frá því hann
var útskrifaður af spítala á
mánudag. Þar hafði hann legið
í 12 daga vegna skæðrar
lungnabólgu. Jeltsin hefur
einu sinni mætt á skrifstofu
sína í Kreml frá því hann út-
skrifaðist af spítalanum. Veik-
indi Jeltsíns hafa kallað fram
háværar kröfur um að hann
viki úr embætti vegna heilsu-
brests.
Jeltsín, sem verður 66 ára 1.
febrúar, mun hitta Jacques
Chirac 2. febrúar og fara til
Haag í Hollandi þann þriðja til
viðræðna við Wim Kok forsæt-
isráðherra, en Hollendingar
fara með formennsku í ESB.
Madeleine Albright, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna,
sagði í gær að sambandið við
Rússa væri á engan hátt háð
Borís Jeltsín. Jeltsín mun hitta
Bill Clinton Bandaríkjaforseta
í mars.
Boðorðin tíu
Breskir klerkar virðast eiga
í erfiðleikum með að muna
boðorðin tíu ef marka má
könnun breska blaðsins
Sunday Times. Einungis 34
prósent presta sem blaðið
spurði gátu farið með boðorðin
tiu hjálparlaust. í könnuninni
kom fl-am að flestir klerkanna
mrnidu að menn ættu ekki að
drýgja ekki hór eða ágirnast
konu nágrannans. Talsmenn
kirkjunnar reyndu að bera í
bætifláka fyrir klerkana og
sögðu að það væri innihaldið
en ekki orðin sem skiptu máli.
Geitinni kastað
íbúar í smáþorpi á Norður-
Spáni létu dýravemdunar-
sinna ekki rugla sig í ríminu
við árleg hátíðahöld þar sem
venja er að kasta lifandi geit
niður úr kirkjuturni bæjarins.
En til að friða dýraverndunar-
sinna var lífi skepnunnar
þyrmt og féll hún á dúk sem
strengdur hafði verið fyrir neð-
an tuminn. Reuter
Kanadískir dorgveiðimenn í hættu:
Urðu innlyksa þegar
sprunga kom í ísinn
Um 700 kanadískir dorgveiði- og
vélsleöamenn urðu innlyksa á ísnum
á Simoce-vatni norður af Toronto í
gær þegar um 11 km löng og allt að
100 metra breið sprunga myndaðist í
ísnum. Fólkið var að taka þátt í dorg-
veiðikeppni þegar sprungan opnað-
ist. Lögreglu og björgunarsveitum
var þegar gert viðvart og var hafist
handa við að flytja fólk i land með
þyrlum. Þar sem vatnið í sprungunni
lagði fljótt var ekki hægt að nota báta
til flutninganna. Mjög hvasst var á
þessum slóðum og gekk á með éljum
svo hætta varð aðgerðum þegar um
200 manns vora eftir á ísnum. Varð
fólkið að hafast við í litlum veiðikof-
um sem dregnir era út á vatniö og
mun engum hafa orðið meint af þó
kalt væri í veöri. Áttu yfirvöld von á
að hægt yrði að bjarga öllu fólkinu
um leið og aðstæður leyfðu.
Sumir veiðimannanna höfðu enga
hugmynd um að þeir væru í hættu
staddir fyrr en þyrlur birtust yfir
höfðum þeirra. ísinn var víðast um
20 sm þykkur og talinn öraggur. En
sterkir straumar og mikill vindur
varð til þess að risastór fleki rofnaöi
frá landföstum meginísnum með
fyrrgreindum afleiöingum.
Reuter
Fjölmennur mótmælafundur í Seoul:
Hótað að flýta verkfalli
Kwon Yong-kil, leiðtogi ólög-
legra verkalýössamtaka Suður-
Kóreu, hótaði á yfir 100 þúsund
manna mótmælafúndi í Seoul að
flýta allsheijarverkfalli sem ráð-
gert var 18. febrúar ef umdeildri
vinnulöggjöf yrði ekki kastaö fyrir
róða. Þetta var í fyrsta skipti sem
Kwon kom fram opinberlega eftir
að hafa fariö huldu höfði í kaþ-
ólskri kirkju ásamt sex félögum
sinum. Kwon kom fram í dagsljós-
ið á fostudag en þá tóku stjómvöld
aftur hótanir um aö handtaka
hann fyrir að skipuleggja nærri
fjögurra vikna verkfóll sem lamað
hafa Suður-Kóreu.
Kim Young-sam, forseti Suður-
Kóreu, lét undan miklum þrýstingi
innanlands sem utan ög sendi lög-
in á ný til umfjöllunar í þinginu.
Hann fullyrti þó að lögin yrðu ekki
gerð ógild. Lögin umdeildu voru
samþykkt á aukafundi í þinginu
sem haldinn var í skjóli nætur, án
vitundar stjórnarandstöðimnar.
Verkalýðssamtökin munu halda
uppi þrýstingi á stjórnvöld vegna
laganna og halda fast í ákvöröun
sína um verkföll hvem miðviku-
dag næstu vikumar.
Reuter
Einkaþjálfun!
Því ekki áb fá Íslandsmeistarann
í vaxtarækt til a& hjálpa þér að
komast i gott form?
Hafið samband í s. 555-4356
á milli kl. 20 og 22 á kvöldin.
Nína Óskarsdóttir.
Hágöngumi&lun
Landsvirkjun óskar hér meö eftir tilboöum i gerð Hágöngumiðlunar i samræmi við
útboðsgögn HÁG-01.
Verkið felur í sér aö stlfla Köldukvisl austan Syðri-Hágöngu með jarðstlflu, gera
botnrás með tilheyrandi búnaði i stífluna, grafa yfirfallsrennu viö enda stiflunnar og
steypa f hana yfirfallsþröskuld, hlaða jaröstlflu norðan Syðri-Hágöngu, leggja veg og
byggja brú yfir aðrennslisskurö Kvíslavatns (Eyvindarskurö). Helsu magntölur em
áaetlaöar:
Fylllngar 370.000 rúmmetrar
Steypa 2.000
Gröftur lausra Jar&laga 190.000
Sprengiflötur 35.000
Verktaki skal Ijúka verkinu eigi siöar en 1. desember 1998.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68,103 Reykja-
vík, frá og meö mánudeginum 27. Janúar 1997 gegn óafturkræfu gjaldi aö upp-
hæð kr. 10.000 með VSK fyrir hvert eintak. Tilbo&um skal sklla á sama staö fyrlr
kl. 12:00 þri&judaglnn 25. febrúar 1997.
Tilboðin veröa opnuð í stjómstöö Landsvirkjunar aö Bústaöavegi 7, Reykjavík sama
dag, 25. febrúar 1997, kl. 14:00. Fulltrúum bjóðenda er heimilit að vera viöstaddir
opnunina.
L
LANDSVIRKJUN