Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1997, Blaðsíða 34
42
MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 1997
Fólk í fréttum
Karl
Nafn Karls Sigurbjömssonar
sóknarprests í Hallgrímsprestakalli
hefur verið nefnt alloft þegar tal hef-
ur borist að næsta biskupsefni.
Karl Sigurbjömsson er fæddur
5.2. 1947 í Reykjavík. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR árið 1967 og
varð cand.theol. frá Háskóla íslands
árið 1973. Karl stundaði nám í sál-
gæslu við St. Joseph’s Hospital í
Tacoma í Bandaríkjunum 1988 og
var við nám í siðfræöi og pastoral-
guðfræði við Northwest Theological
Union í Seattle 1989. Ennfremur
dvaldi Karl við nám í Svíþjóð á ár-
unum 1977-78.
Karl var sóknarprestur í Vest-
mannaeyjaprestakalli árin 1973-74
og hefur verið sóknarprestur í Hall-
Sigurbjörnsson
grímsprestakalli frá 1975.
Af öðram störfum má
nefna að Karl var í stjóm
Prestafélags íslands
tímabilið 1978 til 1984; á
Kirkjuþingi frá 1990; í
nefnd um safnaðarupp-
byggingu frá 1990 og
stundakennari í siðfræði
og sálgæslu við Hjúkrun-
arskóla íslands tímabilið
1979-1983.
Karl samdi bækumar
„Hvað á barnið að
heita?“, 1984, og „Til þín
sem átt sárt um að
binda“ 1990. Karl hefur einnig þýtt
bækumar „Líf með Jesú“ (ásamt
Einari Sigurbjömssyni); fermingar-
kver, 1976; „Bamabiblí-
una“,1982 og „Jesús, mað-
urinn sem breytti sög-
unni“,1990. Karl hefur
einnig skrifað greinar í
blöðum og tímaritum.
Fjölskylda
Eiginkona Karls er Krist-
ín Þórdis Guðjónsdóttir, f.
16.3. 1946, bankaritari.
Foreldrar hennar voru
þau Guðjón Jónsson, 14.9.
1905, verkamaður og Ing-
veldur Jónsdóttir, f. 13.8.
1902, d. 11.3. 1968, húsmóðir. Böm
Karls og Kristínar: Inga Rut, f. 3.2.
1971; Rannveig Eva, f. 23.12. 1975 og
Guðjón Davíð, f. 8.4. 1980.
Karl er einn átta systkina. Þau
era: Gíslrún, f. 23.9. 1934, handa-
vinnukennari; Rannveig, f. 28.2.
1936, hjúkrunarfræðingur; Þorkell,
f. 16.7. 1938, tónskáld; Ámi Bergur,
f. 24.1. 1941, sóknarprestur; Einar, f.
6.5. 1944, prófessor; Björn, f. 27.6.
1949, sóknarprestur og Gunnar, f.
3.8. 1951, viðskiptafræðingur.
Foreldrar Karls: Sigurbjörn Ein-
arsson, f. 30.6. 1911 á Efri-Steins-
mýri í Meðallandi, V-Skaftafells-
sýslu , biskup og Magnea Þorkels-
dóttir, f. 1.3. 1911 í Reykjavík, hús-
móðir.
Karl Sigurbjörnsson.
Fréttir
Innbrot á nokkrum stööum í Reykjavík:
Víxlar og vídeó í
þjófa höndum
Síðdegis í gær höfðu borist
nokkrar tilkynningar til lögreglunn-
ar I Reykjavík um innbrot á hennar
umráðasvæði um helgina. Ekkert af
þessum innbrotum höfðu verið upp-
lýst í gær og fer RLR með rannsókn
þeirra.
Brotist var inn í íbúð í Stigahlíð
með þvi að fara þar inn um glugga.
Öllu var snúið á hvolf og þjófamir,
eða þjófurinn, höfðu á brott með sér
myndbandstæki, farsíma og íleiri
heimilistæki.
Þá var brotist inn í íbúð í Unu-
felli í Breiðholti. Húsráðendur
sakna myndbandstækis, geislaspil-
ara og leikjatölvu.
I Ármúla 36 var farið inn í veit-
ingastaðinn Með kaffinu. Þjófamir
ætluðu greinilega að hafa eitthvað
að reykja með kafiinu því þeir tóku
22 karton af sígarettum auk lítils-
háttar skiptimyntar og sælgætis.
Brotist var inn í fyrirtæki að Við-
arhöföa 2. Útfylltum víxli var stolið
sem og tölvu og fleiri innanstokks-
munum.
-bjb
Garöabær:
Tólf bíla árekstur
Tólf bíla árekstur varð í hríðar-
kófi á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ
um miðjan dag í gær. Bílamir lentu
hver aftan á öðram. Flytja þurfti
þrjá bíla með kranabíl af vettvangi
en vitað var um meiðsl hjá aðeins
einum ökumanni. Þau vora þó lítils
háttar.
í umdæmi lögreglunnar í Hafnar-
firði uröu sjö önnur umferðaróhöpp
sem rekja mátti til vetrarríkisins. í
einu þeirra tilvika þurfti að flytja
konu á slysadeild sem hafnaði á
ljósastaur á bíl sínum á Reykjavík-
urvegi við Kaplakrika.
-bjb
Slæmt skyggni og ófærð varö þess valdandi að tveir bílar skullu saman á
mótum Bústaðavegar og Háaleitisbrautar á laugardagskvöldiö. Tækjabíil
slökkviliðsins var fenginn til að klippa annan bílinn í sundur svo koma mætti
ökumanni og tveimur farþegum til aðhlynningar á slysadeild, sem var
skammt undan að þessu sinni. Meiösl þeirra reyndust óveruleg en bílarnir
eru mikið skemmdir. DV-mynd S
Guðmundur J. Guðmundsson, fyrrverandi formaöur Dagsbrúnar, hélt upp á
sjötugsafmæli sitt á föstudaginn. Fjölmenni heiðraði afmælisbarniö. Hér tek-
ur Guðmundur á móti forsetahjónunum, Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur
og Ólafi Ragnari Grímssyni. DV-mynd Hilmar Þór
Óveður á Stöðvarfirði
Aftakaveður var í fyrrinótt á
Stöðvarfírði. Verst var veðrið fyrir
botni fjarðarins þar sem bærinn Ós-
eyri stendur. Fuku að minnsta kosti
átta þakplötur og margar rúður
brotnuðu áveðurs. Höfðu starfs-
menn Stöðvarhrepps, björgunar-
sveitin Björgólfur og fleiri í nógu að
snúast við að setja á nýjar þakplöt-
ur og negla fyrir glugga. Mikill sjó-
gangur var einnig, enda hásjávað og
gekk grjót upp á bryggju og einnig
losnaði grjót út úr vamargarði. Þá
þurfti og að aðstoða báta og rúss-
neskt flutningaskip sem átti í erfið-
leikum vegna veðursins og gat af
þeim sökum ekki lagst að bryggju
fyrr en veður lægði.
Ekki er vitað um kostnað af völd-
um veðursins en hann mun tölu-
verður.
-GH
Til hamingju
með afmælið
27. janúar
80 ára_______________________
Rebekka Lúthersdóttir,
Eiðismýri 30, Seltjamarnesi.
70 ára
Kristvin Guðmundsson,
Valsholti, Borgarbyggð.
Sigriður Pálsdóttir,
Urðarbraut 2, Blönduósi.
Baldur G. Bjamasen,
Lundarbrekku 8, Kópavogi.
60 ára
Bára H. Bjarnadóttir,
Hátúni 6, Reykjavík.
Agla Tulinius,
Skothúsvegi 15, Reykjavík.
Eggert Magnússon,
Furugrand 56, Kópavogi.
Jón Guðbjömsson,
Seljavegi 18, Selfossi.
Einar Kristinn Helgason,
Hliðarstræti 4, Bolungarvík.
50 ára
Björn Sævar Baldursson,
Réttarholtsvegi 47, Reykjavík.
Abraham Antan Shahin,
Hverfisgötu 74, Reykjavík.
40 ára
Oddgeir Björnsson,
Hjöllum 20, Vesturbyggð.
Sigurjón L. Kjartansson,
Kvíholti 1, Hafnarfirði.
Sólrún María
Gunnarsdóttir,
Múlasíðu 22, Akureyri.
Sigríður Einarsdóttir,
Álfheimum 44, Reykjavík.
Bruni í Heiðmörk:
Gaskútur
lak í skáta-
skála
Níu skátar úr Garöabæ sluppu
með skrekkinn á fostudagskvöld
þegar þeim tókst að koma sér út
úr skála sínum í Heiðmörk áður
en hann fuöraði upp í eldi.
Slökkvilið úr Reykjavík og Hafn-
arfirði komu á vettvang en gátu
lítið að gert.
Upptök eldsins er rakin til
þess að annar tveggja skátafor-
ingja var aö laga tengingu á
gaskút þegar leki kom að kútn-
um. Fylltist skálinn af gasi og
hafði foringinn snör handtök í
koma undirmönnum sínum út.
Skömmu síðar komst gasið í eld
sem breiddist út á örskots-
stundu.
-bjb
Þrjú flóö
féllu á Ós-
hlíðarveg
Þrjú lítil snjóflóð féllu á Ós-
hlíðarveg milli Bolungarvíkur
og ísafjaröar i gærmorgun. Eng-
ir voru á ferli þegar þetta geröist
en Vegagerðin lokaði veginum í
gær, bæði vegna flóðanna og að
ruðningstæki komust ekki að
vegna veðurs fyrr en síðdegis.
Til stóð að opna veginn á ný í
gærkvöldi.
-bjb