Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1997, Qupperneq 21
MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 1997
29
^ Ríki og sveitarfélög aðstoða slökkviliðin:
Anægjuleg niðurstaða
- segir Kristján Einarsson, formaður nefndar slökkviðliðsstjóra
„Eg er mjög ánægður með þær
niðurstöður sem komu út úr
þessari vinnu og slökkviliðin fá
endurgreiddan virðisaukaskatt,
allt að 20 milljónum kr. á ári.
Hér er ekki um beina niðurfell-
ingu að ræða. Þessi beiðni okkar
kom inn í verkaskiptavinnu rík-
is og sveitarfélaga fyrir síðustu
áramót og báðir aðilar færðu til
fjármuni til að þessi niðurstaða
fengist," segir Kristján Einars-
son, slökkviliðsstjóri hjá Bruna-
vömum Ámessýslu, en hann er
formaður nefndar slökkviliðs-
stjóra.
Töluverð umræða hefur verið
í gangi undanfarið í sambandi
við gamla slökkvibíla og búnað
slökkviliða almennt. Á aðalfundi
félags slökkviliðsstjóra í Varma-
hlíð fyrir rúmu ári var stofnuð
sérstök nefnd á vegum félagsins
sem skyldi freista þess að fá
virðisaukaskatt felldan niður
kaupum slökkviliða á tækjum
Kristján Einarsson, slökkviliösstjóri hjá
Brunavörnum Árnessýslu, er formaöur
nefndar á vegum slökkviliösstjóra sem fékk
því áorkaö aö rtki og sveitarfélög aöstoöa þá
verulega í sambandi viö reksturinn.
af
og
búnaði. Vinna þessarar nefndar var
á dögunum að skila jákvæðum ár-
angri fyrir slökkviliðin.
Gott átak var gert fyrir allmörg-
um ámm við eflingu slökkviliða en
þá vora bílar keyptir til landsins,
m.a. fjölmargir Redmond-slökkvi-
bílar frá Bretlandi. Þessir bílar,
sem sumir hverjir eru nú um
og yfir 35 ára gamlir, þurfa að
fá kærkomna hvíld og nýir að
taka við.
„Það hefur farið fram tölu-
verð vinna í sambandi við þetta
mál allt sl. ár. Allir alþingis-
menn landsins fengu send bréf
frá sínum heima- slökkviliðs-
stjóra þar sem þeim var kynnt
málið. Einnig fengu allar
stjórnir landshlutasamtaka
sveitarfélaga sams konar bréf.
Fjölmargir fundir hafa verið
haldnir og mörg viðtöl farið
fram. Það voru síðan formaður
Sambands íslenskra sveitarfé-
laga og fjármálaráðherra og
þeirra fólk sem komu þessu í
nánast endanlega höfh. Það á
aðeins eftir að útfæra hvemig
endurgreiðslur fara fram.
Ég vil þakka fyrir það að all-
ir þessir aðilar sýndu málefn-
inu skilning og vildu leggja sitt af
mörkum. Þessi velvilji sem starf-
seminni er sýnd nú fyllir okkur
bjartsýni á að byggja megi upp öfl-
ugri slökkvilið,“ segir Kristján. -RR
Fréttir
Rútuferðir Guðmundar Jónassonar hf. á Strandir í 41 ár:
Fjallabílstjórinn á stærstan
þátt í bættri stöðu íbúanna
- viljum ekki hlaupa burt þó farþegum fækki, segir Gunnar Guðmundsson forstjóri
Allt upppantað.
Janúar tilboðið verður því
framlengt fram í febrúar.
fyrir aðeins
kr. 5.000,oo
Bamamyndataka, innifalið ein
stækkun 30 x 40 cm innrömmuð.
Að auki færðu kost á að velja
úr 10 - 20 öðrum myndum af
bömunum, og þær færðu
með 50 % afslætti frá gildandi
verðskrá ef þú pantar þær strax.
Sýnishom af verði með afslætti:
13 x 18 cm í möppu kr. 1.100,00
20 x 25 cm í möppu kr. 1.550,00
30 x 40 cm í ramma kr. 2.300,00
Hringdu og láttu senda þér frekari
upplýsingar, en bíddu ekki of lengi,
tilboðið gildir aðeins ákveðinn tíma.
Ljósmyndastofan Mynd
sími: 565 4207
Ljósmyndstofa Kópavogs
sími: 554 3020
3 Ódýrari
DV, Hólmavik:
Seint munu Strandamenn geta
fullþakkað það brautryðjendastarf
sem hófst fyrir rúmlega 41 ári og
alla tíð síðan hefur verið sinnt með
miklum sóma. Það var þegar Guð-
mundur Jónasson, sem ekki að
ástæðulausu var oft nefndur fjalla-
bílstjóri, hóf fastar áætlunarferðir
með farþega, póst og vaming margs
konar frá Reykjavík um Strandir til
Hólmavíkur árið um kring. Fram að
þeim tíma hafði aðeins verið um að
ræða ferðir yfir sumartímann sem
lengi voru í höndum Ingva Guð-
mundssonar frá Bæ á Selströnd.
Fyrsta ferð
Guðmundur
Jónassonar var
farin í desem-
ber 1955. Þá
þekktist ekkert
sem hét snjó-
mokstur Vega-
gerðarinnar og
þurfti því, þeg-
ar snjór hafði
fyllt allar lægð-
ir og skjól, að
þræða holt og
hæðir, freðnar
mýrar og fjörur
til að komast
framhjá snjó-
hindrununum.
Núverandi
forstjóri fyrir-
tækisins, Gunnar Guðmundsson -
sonur stofnandans - rifjar upp að þá
hafi bílstjórar víða brugðið á það
ráð að taka i sundur símastaura og
festa þá í jörð áður en frost gerði -
oftast á hæðarbrúnum og nota svo
spil bílanna til að draga þá upp fyr-
ir snjóbreiðumar. Á öðrum stöðum
þegar ekki var komist fram hjá
snjóhindrunum með framangreind-
um ráðum tóku farþegarnir einfald-
lega málin í sínar hendur og með
skóflur að vopni opnuðu þeir hrein-
lega leiðina.
Þetta viðgekkst í fjölda ára og
enginn taldi það eftir sér á þessum
tíma og lítillega hefur það borið við
á síðustu árum þó nú séu breyttir
tímar. Margar vetrarferðirnar tóku
langan tíma á þessum árum til
Hólmavíkur - jafnvel sólarhring -
og aðeins gafst tími til að skipta um
Guömundur Jónasson.
farþega og aka síðan strax til baka
leiðina suður. Ekki síst er veðurspá
var óhagstæð til að komast sem
lengst áður en fennti í slóðina.
Stundum var lest bíla, misjafnlega
útbúinna, á ferð samtímis og hafði
þá rútan forystu.
Á fyrstu ámnum var ein ferð í
viku á veturna en tvær á sumrin.
Oft vom bílarnir troðfullir af far-
þegum og varningi og um stórhátíð-
ir, jól og páska, dugði ekki minna
en tvær rútur til að koma öllum á
áfangastað. Margt hefur verið að
breytast á síðari árum - farþegum
fækkað og póstflutningar um svæð-
ið nýverið færst til annarra aðila.
„Nú er hún
Snorrabúð stekk-
ur“ var einu sinni
kveðið. „Það vora
aðeins 2 farþegar
með bílnum um
jólin,“ sagði Gunn-
ar. Þrátt fyrir þá
staðreynd sem
blasir við segist
hann vel greina
þörf Stranda-
manna fyrir þessa
þjónustu næstu
árin þó líklegt sé
að veita verði
hana í eitthvað
breyttu formi.
Nú era tvær
ferðir i viku hverri
yfir vetrartímann
baka samdægurs á
Sumarferðimar em
þrjár í viku og á síðustu ámm hef-
ur náðst tenging við Isaijarðarsvæð-
ið sem gefur fóiki möguleika á að
fara hringferð um Vestfírði. Hefur
allnokkur hópur fólks nýtt sér það
upp á síðkastið, einkum erlendir
ferðamenn.
Öll sérleyfi á landinu verða laus í
byijun mars nk. „Ég á nú frekar
von á því að við höldum þessu
áfram. Má segja af gömlum vana en
rétt er að við viljum ekki alveg
hlaupa frá ykkur en það er ekki
dýrt tæki keypt fyrir hagnaðinn af
þessari þjónustu nú orðið. Ef til vill
má þó vænta að átak í ferðaþjón-
ustu í Strandasýslu og Vestfjörðum
kunni að skila eitthvað fleiri farþeg-
um,“ segir Gunnar forstjóri.
Með tilkomu reglulegra áætlunar-
og farið til
þriðjudögum.
Ásgeir Ragnar Ásgeirsson bílstjóri viö rútubíl frá Guömundi Jónassyni á
Hólmavík 10. janúar sl. DV-mynd Guöfinnur
ferða Guðmundar Jónassonar fyrir
41 ári var rofin samgönguleg ein-
angran þessa svæðis og Stranda-
menn tengdust í fyrsta sinn sam-
göngukerfi landsins. í kjölfar þeirra
hófst hröð og gagnsöm uppbygging
alls vegakerfis sýslunnar sem um og
upp úr 1950 var nánast slóðar þar
sem aldagamlir hestavegir höfðu á
stöku stað verið breikkaðir lítillega.
Með bættum samgöngum hófust
vöruflutningar á landi sem jukust
hratt næstu árin til mikils hagræð-
is fyrir íbúana. Við það opnuðust
ótal möguleikar fyrir fólkið á svæð-
inu sem var ekkert annað en frelsi
til nýs og betra lífs. Enginn einn að-
ili á meiri þátt í þessari bættu stöðu
íbúa þessarar byggðar en Guðmund-
ur Jónasson og hans mörgu, dug-
legu starfsmenn gegnum árin.
-GF
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings, er óskað eftir
tilboðum t að hanna, smföa, setja upp, prófa og stilla
hreinsikerfi, tilheyrandi hitakerfi og sótthreinsibúnaö
fyrir nýja sundlaug og potta í Grafarvogi í Reykjavík.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri. Hægt er að fá gögnin
á ensku.
Opnun tilboða: þriöjud. 25. febrúar 1997, kl. 11.00 á
sama stað.
bgd 11/7
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. sjálfseignarstofn-
unarinnar Skógarbæjar óskar eftir tilboðum í dúkalögn
fyrir hjúkrunarheimiliö Skógarbæ að Árskógum 2 í
Reykjavík.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri gegn 10.000 kr. skila-
tryggingu.
Opnun tilboða: miövikud. 5 febrúar 1997, kl. 15.00 á
sama stað.
bgd 12/7
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar f.h. sjálfseignarstofn-
unarinnar Skógarbæjar óskar eftir tilboðum vegna kaupa
á húsgögnum fyrir hjúkrunarheimiliö Skógarbæ að
Árskógum 2 í Reykjavík.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá og meö þriðud.
28. jan. n.k. gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboöa. fimmtud. 6. febrúar 1997, kl. 14.00 á
sama stað.
bgd 13/7
INNKA UPASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Frfkirkjuvegi 3 - Sfmi 552 58 00 - Fax 562 26 16
ðmoaugiysingar
iDV
M0I000