Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1997, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1997
9
Utlönd
Serbíuþing staöfestir tilslökun Milosevics:
Leysir aðeins eitt
vandamál af mörgum
Vesna Pesic, sem tilnefnd hefur veriö til friðarverðlauna Nóbels, og Zoran Djindjic.
Símamynd Reuter
Komið upp um
barnaníðinga
Hollenska lögreglan hefur
handtekið sjö menn sem grunaðir
eru um kynferðislega misnotkun
bama og framleiðslu á klám-
myndum með bömum. Fimm
drengir á aldrinum 13-26 ára hafa
þegar kært misnotkun til lögregl-
unnar en mál þeirra ná allt að 12
ár aftur í tímann. Drengimir
voru allir undh' 16 ára aldri þegar
afbrotin vora íramin.
Lögreglan fór inn á heimili 51
árs gamals manns sem talinn er
forsprakki hópsins. Þar fundust
upptökutæki og um 350 klám-
myndir með körlum í öllum hlut-
verkum, þar af tólf myndir með
drengjum. Drengimir segja að
maðurinn hafi lokkað þá heim til
sín í kúluspil og tölvuleiki. Þegar
hann hafi náð trausti þeirra hafi
hann og sex aðrir karlmenn beitt
þá kynferðislegu ofbeldi og tekið
ósköpin upp á myndbönd.
Alarcon forseti
Ekvadors
Fabian Alarcon, þingforseti í
Ekvador, var í nótt kjörinn forseti
landsins a sérstökum þingfundi.
Hlaut hann yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða. Með kjöri hans
ætti sérkennilegri kreppu um
æðsta embætti landsins að vera
lokið en hún hófst í síðustu viku
þegar fyrrum forseti, Abdala
Bucaram, var settur af. Alarcon
var strax útnefndur forseti en þar
sem lög Ekvadors inn arftaka for-
seta undir slíkum kringumstæð-
um vora afar óljós gerðu þrír að-
ilar tilkall til forsetaembættisins.
Eftir samningaþóf með þátttöku
hersins var Rosalita Arteaga
varaforseti útnefnd forseti um
stundarsakir en sté af stalli í sitt
fyrra embætti í nótt, eftir að ný
lög vora samþykkt. Reuter
Stjórnarandstaðan í Serbíu er tor-
tryggin þrátt fyrir að þingið hafi í
gær samþykkt sérstök lög sem stað-
festa sigra hennar í sveitarstjórna-
kosningunum 17. nóvember síðast-
liðinn. „Lagasamþykktin hefur
leyst eitt vandamál, stuldinn á kosn-
ingaúrslitunum. Þessir 85 dagar
hafa sýnt að enn eru mörg vanda-
mál óleyst," sagði Zoran Djindjic,
einn þriggja leiðtoga stjómarand-
stöðunnar, í gær.
„Borgaramir eru óánægðir með
margt, efnahagsmálin, lélega fjöl-
miðla, slæma stefnu og hroka yfir-
valda. Þessi vandamál er aðeins
hægt að leysa með grundvallar-
breytingum. Ef umbætumar verða
ekki skjótt, og þá er ég að tala um
daga, halda mótmælin ekki aðeins
áfram heldur munu þau jafnvel
aukast," sagði Djindjic.
Serbneska þingið samþykkti
einnig í gær uppstokkun í ríkis-
stjórninni sem átti að vera liður í
umbótum Slobodans Milosevics for-
seta. Helstu breytingamar felast í
því að sett er á laggirnar sérstakt
einkavæðingarráðuneyti sem á að
sjá um sölu á ríkisfyrirtækjum.
Stjórnarandstæðingar segja
breytingamar á ríkisstjórninni
gerðar til að villa um fyrir þeim.
„Sósíalistar eru aðeins að kaupa sér
tíma þar til þing- og forsetakosning-
ar fara fram,“ sagði Belgradbúinn
Ranko Funjga í gær.
Vesna Pesic, einn leiðtoga stjórn-
arandstöðunnar, sagði að enn væri
löng barátta framundan. Hún lýsti í
gær yfir ánægju sinni yfir því að
hafa verið einn þriggja friðarleið-
toga frá fyrram Júgóslavíu sem til-
nefndir hafa verið af Alþjóðlegu
friðarskrifstofunni til friðarverð-
launa Nóbels. Hinir tveir eru Selim
Beslagic, formaður Sambands bosn-
ískra sósíaldemókrata og borgar-
stjóri í Tuzla i stríðinu, og Vesna
Terselic í Zagreb í Króatíu en hún
berst fyrir friði, bættum umhverfis-
málum og kvenréttindum.
Reuter
Madonna ekki tilnefnd til óskarsverðlauna:
Enski sjúklingurinn
hlaut tólf tilnefningar
Kvikmyndin Enski sjúklingurinn
eða The English Patient hlaut flest-
ar tilnefiiingar, samtals tólf, þegar
tilnefningar til óskarsverðlaunanna
í ár vora kynntar í gær. Söngva-
myndin Evita, þar sem söngkonan
Madonna leikur aðalhlutverkið, var
hundsuð að mestu leyti i tilnefning-
unmn. Mætti halda að síendurtekn-
ar yfirlýsingar söngkonunnar um
að hún mundi hampa óskarsverð-
laununum hafi farið fyrir hjartað á
dómnefhdinni.
Enski sjúklingurinn var tilnefnd
sem besta kvikmyndin, leikstjóri
hennar, Anthony Minghella, sem
besti leikstjórinn, Ralph Fiennes
sem besti karlleikarinn og Kristin
Scott Thomas sem besta leikkonan.
Helstu keppinautar Enska sjúk-
lingsins, Fargo og Shine, fengu sjö
tilnefningar hvor en myndimar
Jerry McGuire og Secret & Lies
fimm hvor.
Útnefhingamar þóttu sigur fyrir
Kristin Scott Thomas hlaut tilnefn-
ingu sem besta leikkonan.
Símamynd Reuter
„litlar“ myndir, myndir sem fram-
leiddar vora fyrir lítiö fé. Jerry
McGuire var eina myndin frá stóra
kvikmyndarisunum sem tilnefnd
var sem besta mynd.
Sem bestu karlleikarar voru til-
nefhdir þeir Tom Cruise í Jerry
McGuire, Ralph Fiennes í The Engl-
ish Patient, Woody Harrelsson í The
People vs. Larry Flint, Geoffrey
Rush i Shine og Billy Bob Thornton
í Sling Blade. Sem bestu leikkonur
vora tilnefndar þær Brenda Blethyn
í Secret & Lies, Diane Keaton í Mar-
vin’s Room, Frances McDormand í
Fargo, Kristin Scott Thomas í The
English Patient og Emily Watson í
Breaking the Waves.
Sem bestu kvikmyndimar vora
tilnefndar The English Patient,
Secret & Lies, Fargo, Shine og Jerry
McGuire.
í flokknum erlendar myndir var
norska myndin Sundagsengler til-
nefnd en annars Kolya frá Tékkl-
andi, Prisoner of the Mountains frá
Rússlandi, Ridicule frá Frakklandi
og A Chef in Love frá Georgíu.
Óskarsverðlaunin verða afhent
24. mars. Reuter
Framleiöum brettakanta, sólskyggni og boddýhluti á flestar
gerðir jeppa, einnig boddýhluti í vörubíla og vanbíla.
Sérsmíöi og viðgerðir.
ALLT PLAST
Kænuvogi 17 • Sími 588 6740
Morgunverðarfundur verður haldinn
á Hótel SÖGU.Skála, ll.hæð,
fimmtudaginn 13. febrúar kl. 8:30.
Framsöguerindi:
Wilhelm Norðfjörð, sálfræðingur.
Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um
uppeldi og unglinga. Frjálsar umræður.
Fundarstjóri: Sæmundur Hafsteinsson,
sálfræðingur og formaðurVímulausrar æsku.
Wilhelm Sæmundur
Norðfjörð, Hafstein$son,
sálfræðingur sálfræðingur
fJUto
Handhöfum Eurocard og Visa
býðst nú að greiða fyrir öll
flugfargjöldog pakkaferðir
með raðgreiðslum til allt að
24 mánaða.
Leiðin
út í heim
Flugleiða
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi