Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997
5
Fréttir
Ferðalög íslendinga til útlanda:
Búast má við 200 þúsund
heimkomum íslendinga á árinu
- stöðnunartímabili áranna 1987-1994 virðist lokið
Fólk flykktist tugþúsundum sam-
an á kynningar ferðaskrifstofanna
um land allt sl. sunnudag og þeir
ferðaskrifstofumenn sem DV ræddi
við telja að fólk hafi fullan hug á að
njóta vel sumarfrísins á sumri kom-
anda og sé mun bjartsýnna í ferða-
málum en undanfarin ár.
Miðbær Reykjavíkur, þar sem
margar ferðaskrifstofur hafa höfuð-
stöðvar sínar, var troðfullur af fólki
meðan ferðaskrifstofumar þar
kynntu sumaráætlanir sínar. Þá var
einnig mikil örtröð hjá þeim ferða-
skrifstofum sem hafa höfuðstöðvar
sínar utan miðborgarinnar, svo sem
Úrvali-Útsýn við Lágmúla, Plúsferð-
um í Faxafeni og fleiri ferðaskrif-
stofum.
Þegar rýnt er í tölur yfir ferðalög
Islendinga til útlanda sést að stöðn-
un hefur ríkt í utanlandsferðum frá
1987 fram til ársins 1995 þegar utan-
landsferðum fjölgar talsvert, eða um
rúmlega 20 þúsund ferðir milli ára.
Milli áranna 1995 og 1996 fjölgar enn
verulega, eða um rúmlega 23 þús-
und ferðir, en þá komu alis 189.618
íslendingar heim úr utanlandsferð-
um. Af viðbrögðunum við tilboðum
ferðaskrifstofanna á sunnudag
mætti draga þá ályktun að yfir 200
þúsund manns verði á faraldsfæti á
yfirstandandi ári.
Allan sjötta áratuginn ferðuð-
ust íslendingar sáralítið til út-
landa og sem dæmi má nefna að
árið 1950 komu 4.312 íslendingar
heim úr utanlandsferðum. Sú tala
átti eftir að hækka um helming á
5 árum því árið 1956 var hún orð-
in 8.751.
Um þetta leyti fer velmegun
vaxandi í Evrópu og áhugi al-
mennings á ferðalögum vex hröð-
um skrefum og ferðalög aukast
mjög. Samhliða þessu efldust mjög
tvær stórar ferðaskrifstofur i Dan-
mörku, annars vegar ferðaskrif-
stofan Tjæreborg Rejser í eigu
séra Eilif Krogager og ferðaskrif-
stofa Simon Spies, Spies Rejser, en
tvær ferðaskrifstofur hér heima,
sem áttu eftir að bera höfuð og
herðar yfir aðrar íslenskar ferða-
skrifstofur um langt árabil, skiptu
talsvert við þessar dönsku ferða-
skrifstofur. Þessar tvær islensku
ferðaskrifstofur voru Sunna og Út-
sýn og skýrist aukning í utan-
landsferðalögum íslendinga á
þessum tíma nokkuð i ljósi ofan-
nefnds.
Ferðalögum til útlanda fækkaði
á atvinnuleysisárunum frá 1967 en
tók aftur að fjölga jafnt og þétt eft-
ir 1970 og fram til 1978, en þá
komu 80.273 manns heim úr ferða-
lögum til útlanda. Um þetta leyti
voru blikur á lofti í olíuviðskipt-
um, fargjöld hækkuðu talsvert og
úr ferðalögum dró, en svo byrjar
aftur að fiölga eftir 1980.
Nokkrar sveiflur urðu á næstu
árum á eftir en heildarsveiflan var
þó heldur upp á við fram til 1985,
en frá og með árinu 1988 varð mjög
veruleg fiölgun í utanlandsferðum.
Það stóð þó ekki lengi því að
áhrifa mikils samdráttar í
þorskafla tekur að gæta verulega í
efnahagslífinu og kemur m.a. fram
í stöðnun í ferðalögum til útlanda,
eins og sést á meðfylgjandi grafi,
en því stöðnunartímabili virðist
ljúka árið 1995. -SÁ
200.000 manns
180.000
160.000
140.000
120.000
100.000
80.000
60.000 i Ú.'l
40.000
20.000
0
189.618
- komur fslendinga frá ötlöndum frá 1956 til 1996 -
23.147
8.751
'jiJSI
'56
'66
“E 142.054 «« MWB
95.662
80.273 ■■
"1 59.270
}
í
mSÉMié
'78 '80 '85
Ijfvi
SÆVARHÖFÐA 2 ^ 525 8020
IHUSIINGVARS HELGASONAR
GIFURLEGT URVAL GOÐRA BILA A STAÐNUM
Ath.! Skuldabréf til allt að 60 mánaða. Jafnvel engin útborgun.
Visa/Euro
raðgreiöslur
Toyota Hilux 2,4 turbo ‘88,
ek. 170 þús. km.
Verð 900.000.
Chevrolet Blazer 4,3 ‘89, ek.
106 þús. km. Verð 1.190.000.
Útsöluverð 890.000.
isuzu sport cab 2,3, bensín,‘91,
ek. 106 þús. km. Verð 890.000.
Útsöluverð 600.000.
Isuzu Trooper, langur, ‘91, ek.
140 þús. km. Verð 1.390.000.
Útsöluverð 990.000.
Cherokee Limited 4,0 ‘90,
ek. 130 þús. km. Verð 1.800.000.
Útsöluverð 1.600.000.
Isuzu Trooper ‘90, ek. 96 þús.
km. Verð 1.470.000.
Útsöluverð 1.090.000.
Isuzu Trooper 2,6 ‘91, ek. 120
þús. km. Verð 1.850.000.
Útsöluverð 1.500.000.
Cherokee Chief ‘88, ek. 197 þús.
km. Verð 880.000.
Útsöluverð 700.000. - Seldur.
Isuzu Trooper, stuttur, ‘90, ek.
140 þús. km. Verö 900.000.
Útsöluverö 680.000.
Isuzu crew cab ‘92, ek. 89 þús.
km. Verð 1.490.000.
Útsöluverð 1.100.000.
Lada Sport 1,6 ‘94, ek. 29 þús.
km. Verð 590.000.
Útsöluverö 450.000.
Nissan king cab ‘93, ek. 58 þús.
km. Verö 1.380.000.
Útsöluverð 1.000.000.
Cherokee Limited ‘90, ek. 100
þús. km. Verð 1.750.000.
Útsöluverð 1.390.000.
Isuzu crew cab ‘92,
ek. 78 þús. km. Verð 1.450.000.
Útsöluverð 990.000.
Isuzu Trooper 2,6i ‘92, ek. 86
þús. km. Verð 1.950.000.
Útsöluverð 1.550.000.