Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Page 11
JLjV ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 Sönglög Þórarins Guðmundssonar Niðjar Þórarins Guðmundssonar tónskálds, vinir þeirra og velunnar- ar hafa gefið út sönglög Þórarins á bók í tilefni af því að hundrað ár eru liðin frá fæðingu hans. Allir kannast við lög Þór- arins við kvæði eins og „Þú ert yndið mitt yngsta og besta“, „Manstu er saman við sátum“, „Þér kæra sendir kveðju“ og „Land mins fóður, landið mitt“ og munu gleðjast við að fá þau á einn stað auk ijölmargra annarra minna þekktra. Þórarinn var fæddur á Akranesi 1896 og alinn upp i Keflavik og Reykjavík. Hann byijaði að læra á píanó átta ára en tók svo fiðluna fram yfir píanóið og lauk prófi I fiðluleik frá Tón- listarháskólanum í Kaupmannahöfn átján ára gamall, fyrstur íslendinga. Hann starfaði öt- ullega að íslensku tónlistarlífi, var meðal annars fyrsti sfjómandi Hljómsveitar Reykjavíkur 1921 og fyrsti formaður Félags íslenskra tón- listarmanna 1940. Þórarinn lést 1979. Bókaútgáfan IÐNÚ gefur Sönglög út. Viltu læra að yrkja? Annað kvöld hefst tveggja mán- aða námskeið í listinni að yrkja á vegum Endurmenntimarstofhunar Háskóla íslands. Kennari er Þórður Helgason lektor sem sjálfur er rithöfundur og skáld, hlaut meðal ann- ars önnur verðlaun í ljóðasamkeppni Listahá- tíðar í fyrra. Á námskeiðinu verða flestar tegundir ljóða kynntar, farið yfir bókmenntahugtök sem tengjast ljóðlist og þau æfð. Aðaltilgangur námskeiðsins er þó að fara yfir ljóð sem nemendur yrkja sjálfir og ræða þau í tímum. Upplýsingar og skráning er i sima 525 4923. Eða langar þig meira til Kína? Endurmenntunarstofnunin stendur líka fyrir kynningu á kín- versku og kínverskri frásagnarlist og hófst síðamefnda námskeiðið í gær. Byrjendanámskeið í kín- versku hefst á mánudaginn kemur, 26. febrúar. Kennari á báðum nám- skeiðum er Hjörleifur Sveinbjöms- son sem var við nám í Peking frá 1976-1981 en leiðbeinandi á fram- haldsnámskeiði í kínversku verður Edda Kristjánsdóttir, BA í kín- : versku og heimspeki frá Pekinghá- skóla. Upplýsingar og skráning í síma i525 4923. Góðir gestir Áhugamenn um bókmenntir þurfa að merkja við komandi laug- ardaga í dagbókum sínum því þá verða - og reyndar á einum sunnu- degi lika - góðir gestir í Norræna húsinu að kynna norrænar bók- menntir frá 1996. Eins og áður hef- ur verið getið á þesari síðu kemur Göran Tunström fyrstur á vett- vang. Hann heldur fyrirlestur á laugardaginn kemur, 22. febrúar, kl. 16. Samtímis heimsókn hans kemur nýjasta skáldsaga hans út í íslenskri þýðingu Þórarins Eld- járns. Finnski rithöfundurinn Olli Jalonen er næstur, 1. mars, Leo Löthman, rithöfundur frá Álandseyjum, verður sunnudaginn 2. mars, Norðmaðurinn Kjell Askildsen, sem hlaut bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs 1992, kemur 8. mars og verðlaunahafinn í ár, Dorrit Willumsen, laugardag- inn 15. mars. Allir fyrirlestrarnir hefjast kl. 16. Loks verða nýjar íslenskar bók- menntir kynntar 22. mars. Það ger- ir nýbakaður doktor, Dagný Krist- jánsdóttir, og mun tala á norsku. (menning „ * 'ár ^ Þórir í Múlanum Julia Ormond er ekki Smilla. endur minnast reynist sagan snú- ast um forsögulegan, bráðdrep- andi orm sem Kim Skotte segir að eigi sér hliðstæðu í tungumáli Íkvikmyndarinnar. Hið alþjóðlega sviplausa tungutak hennar verði eins og bráðdrepandi iðraormur sem ræni hana hjartanu. Spumingin er hvort Danir eru ekki gagnrýnni á myndina vegna bókarinnar og sýni verki Bille August ósanngirni. Annað eins hefur nú gerst. Það verður spenn- andi að sjá hvernig dómar verða annars staðar og hvort aðsóknin í Bandaríkjunum borgar brúsann. Snjórinn varð að krapi Danskir gagnrýnendur hafa þjófstartað og eru margir hverjir búnir að fjalla um kvikmynd Bille Augusts um Smillu þó að hún verði ekki frumsýnd í Dan- mörku fyrr en 28. þessa mánaðar. Þeir sáu hana auðvitað í Berlín og gátu ekki hamið sig. IBókin heitir á frummálinu Froken Smillas fomemmelse for sne og Kim Skotte lætur dóm sinn í Politiken heita „Hr. Billes fomemmelse for slud“ sem þýðir nokkurn veginn Tilfinning herra Billes fyrir krapi! Honum finnst „snjór“ Peters Hoeg vera farinn að bráfina í myndinni. Flestir dönsku gagnrýnendurnir kvarta undan hinni undurfríðu Juliu Ormond í aðalhlutverkinu, fmnst hún missa allt sem gerfr Smillu bókarinnar svo ómótstæðilega, bæði tvöföld skilaboö útlitsins og innri klofhing hennar milli tveggja heima sem gerir bókina að magnaðri ádeilu á vestrænan Shugsunarhátt. í stað þess að ögra vanahugsun okkar eins og sagan segir Kim Skotte fullum fetum að Bille hafi skorið burt alla samfé- j lagsgagnrýni í dýru kvikmynd- inni sinni. Eftir standi bara reyfari. En menn eru ekki sammála um hvort myndin sé spennandi. Politiken segir nei, Berlingske Tidende segir jú víst. Jyllands- Posten segir að það vanti góðan skúrk. Annar sé litlaus, hinn sé fýlupoki. En stök atriði í mynd- inni eru stórkostleg, að allra mati, einkum leikur Grænland vel - ekki síður en granninn ís- land. Smilla er fjölþjóðleg fram- leiðsla með leikurum hvaðanæva að og hún er á ensku. Eins og les- Nýlega hóf starfsemi sína í Reykjavík djass- klúbbur sem ber nafnið Múlinn í höfuðið á landsþekktum lagasmið og útvarpsmanni. Klúbburinn hefúr aðsetur á smurbrauðsstofunni Jómfrúnni i Lækjargötu og verða haldnir tón- leikar þar hvert föstudagskvöld fram á vor. Síðastliðið föstudagskvöld var þcir mættur Þórir Baldursson með Hammond-orgelið sitt og aðra félaga, saxafónleikarann Jóel Pálsson, gít- arleikarann Eðvarð Lárusson, Róbert Þór- hallsson bassaleikara og Jóhann Hjörleifsson trommuleikara. Efnisskráin saman- stóð annars vegar af blúsnúmerum af ýmsu tagi, sem þykja hæfa þeg- ar Hammond er með í för, og hins vegar þekkt- um djassperlum. Blúsarnir eru ekki endilega hreinræktaðir tólftaktablúsar heldur lög þar sem blúsinn er nálægur - eins og í harðbopplagi Horace Silvers, „Sister Sadie“, og „Unchain My Heart“ úr prógrammi Ray Charles. Það er með svolítið aldurhnignum rokktakti en upp á hann var lífgað með nútímalegra taktinnskoti í miðju verki. Nýrra af nálinni er „Cantaloupe Island" og „So What“ hljómar eins og spánnýtt sé eftir að Ronnie Jordan kom því á kortið. í þessum lögum fóru Þórir og kompaní á kostum og reyndar í fjölda annarra laga sem ekki virðast eins Hammondvæn, til dæmis „St. Thomas", „Body and Soul“ og „Giant Steps“. Manni detta í hug ýmsar orgelhetjur þegar Þórir hefur sig til flugs á Hammondinn. Jim- my Smith kemur auð- vitað fyrstur allra upp í hugann, en ekki síð- ur Jack McDuff og Bri- an Auger. En við höf- um okkar íslenska Baldursson sem oft er imun að hlýða á, ekki bara í sólóköflum heldur líka í blæbrigðaríkum undirleik. Róbert spilaði með þannig tóni á bassann að svipaði til orgelbassa sem var vissulega smekklegt. Jóel og Eðvarð áttu verulega góða spretti í lögunum sem nefnd hafa verið og fleirum, enn fremur var Jóel með fínt sóló í „All the Things You Are“ og Eðvarð var alveg frábær í „Georgia on My Mind“. Jói Hjöll trommari var líka í talsverðum ham og naut sín vel. Dálítill djammsvipur var á konsertinum, enda eitthvað verið skipt um mannskap miðað við það sem auglýst hafði verið. „Like Someone in Love“ virtist alls ekki henta hljómsveitinni og þótt góður ásetningur væri merkjanlegur í út- setningu á „Sveitin milli sanda“ náði það sér ekki almennilega á strik. Þetta ásamt smáójöfn- um öðru hverju sló þó hvorki spilara né áheyr- endur út af laginu. Þetta var kvöld góðra ein- leikskafla og oft skemmti- legs sam- spils. Hressi- leiki í fyr- irrúmi en margt fal- legt fékk að fljóta með. Djass Ingvi Þór Kormáksson Þórir Baldursson við félaga Hammond. Aörir félagar í baksýn. DV-mynd HARI Allt í standi Mánudagur þessarar nýju viku rann upp bjartur og fagur og umræðan í morgunútvarpinu snerist þó nokk- uð um hvalveiðar. Þar kom að íslendingar þykja ein- angraðir frá umheiminum í þessari urnræðu, sem og ýmsum öðrum umræðum. Skátamontsframganga fram- sóknarmanna er hætt að vera fyndin, hún er orðin óþol- andi. Daman sem stýrir heilbrigðismálum ætlar með dugn- aði sínum og mannlegu innsæi að gera ísland að vímu- lausu landi og líklega allan heiminn í framhaldi af þvi vímulausan á örfáum árum. Ef hún heldur að sér takist það, er þá ekki hægt að leigja hana þangað sem ekki hef- ur verið við neitt ráðið og hún látin lækna hin og þessi jjóðfélagsmein, svo sem fátækt, kynþáttahatur og hvað IsSÉS þetta heitir allt saman sem við erum blessunarlega laus við? Jæja, á meðan hún er að leika frelsisherinn og flokks- systir hennar með henni, sú sem er að gera skurk i tó- baksreykingum, þá ætla karlamir að bretta upp ermar og rótast um á láði og legi í harðari framfaramálum. Sumir eiga eftir að hlæja dátt þegar stór og sterk um- hverfissamtök sýna okkur mátt sinn og megin um það leyti sem við verðum önnum kafin við að gera að fyrstu hvölunum. Þá verður nú fjör í kringum fóninn, eins og karlinn sagði þegar hann fór á Framsóknarbingóið. Dagblöðin vöktu á sér athygli í vikunni, ekki beint fyrir það sem í þau var skrifað heldur hver ætti hvaða blað og með hverjum. Hárbeitti ritstjórinn sem stýrði Alþýðublaðinu fór yfir á tísku- og sloppablað, þingmaðurinn fór yfir á hins fyrrverandi, og varð mikil um- ræða um þetta allt, þó að fæstir hafi beinlínis verið að lesa blöðin. Manni skilst að sami eigandinn sé að þeim flestum. Það er aldrei gott ef eitt fyr- irtæki er að framleiða alls kyns Eru íslendingar orönir utanveltu í umræöum um hvalveiöar? Fjölmiðlar Sigríður Halldórsdóttir vaming, maður vill t.d. ekki kaupa sokkabuxur frá Kelloggs eða sjampó frá Sláturfélagi Suðurlands. Þeir sem sérhæfa sig í góðum pulsum eru ekki endilega spennandi í sápum og öfugt. Á sunnudagskvöldið þurfti Gísli Rúnar ekki að leita út fyrir stofnun- ina að skemmtikröftum og viðmæl- endum, það var bara hóað í strákana sem vinna á stöðinni. Hemmi getur næst hóað í Helga E. Helgason, Pál Benediktsson og Sigurð Valgeirsson, ftnt mál.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.