Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Blaðsíða 16
Góð ráð fyrir blómaunnendur:
- hjálpar allt til við næringu
Flest viljum við fegra heimili okkar og garða
með fallegum blómum og plöntum. En oft á tíð-
um nægir viljinn einn og sér engan veginn, af
einhverjum ástæðum vilja jurtirnar ekki lifa
og við andvörpun og hugsum með okkur að
okkur vanti hina frægu „grænu fingur“. En
allir eiga að geta fengið plöntur til að njóta sín,
oft vantar einungis réttu þekkinguna sem yfir-
leitt kemur með árunum.
Hér fyrir neðan er að Fmna fjölda góðra ráða
fyrir þá sem vilja stytta sér leið og fá blómin á
heimilinu til að njóta sín til hins ýtrasta.
Vökvun og pottaval
pússa þau með helmingsblöndu af vatni og
mjólk.
Eftir að blómið hefur blómstrað skyldi alltaf
umpotta það áður en næsta timabil tekur við.
Þegar umpottað er skal alltaf velja pott held-
ur stærri en þann sem síðast var notaður.
Það er gott fyrir pelagóniur að fá svolítinn
kafFikorg í moldina. Áður en blóm er sett í leir-
pott skal fylla hann af vatni í nokkar mínútur.
Það kemur í veg fyrir að leirinn sogi í sig rak-
ann frá moldinni.
Afskorin blóm
Skerið alltaf skáhallt af endunum á stilknum
með beittum hníf eða klippið snöggt með skær-
um.
Hafið vatnið sem vökvað er með við stofu-
hita. Rótin bregst mun betur við.
Ekki henda vatninu sem egg hefur verið soð-
ið í. Það er fullt af steinefnum sem koma
blómunum vel.
Sömuleiðis er hægt að setja eggjaskurn í
vatn og láta standa yfir nótt. Það gefur sama
árangur.
Notið gamlan prjón til að athuga hvort blóm-
ið þarfnast vatns. Stingið honum í moldina,
komi hann upp þurr þarf að vökva en festist
moldin við hann má bíða með
það.
Vatn úr fiskabúri eða kælt
soð af fiski er fullt af
næringarefnum
fyrir blóm.
Til að fá
plöntu til að
glansa er ráð
að vökva
m e ð
gömlu og
goslausu
sódavatni.
Á veturna
er þjóðráð að
bræða snjó til
vökvunar. Hann
er nefhilega full-
ur af steinefnum.
Snúið pottablómum reglulega svo þau fái
sólarbirtu á allar hliðar. Þá vex blómið
beint upp í stað þess að teygja sig eftir birt-
unni.
Til að fá laufblöðin til að glansa er gott að
Séu stilkarnir breiðir er gott að kljúfa end-
ann til að næringarinnsog sé betra.
Skerið stilkana undir rennandi vatni til að
koma í veg fyrir að loftbólur komist inn í þá.
Slíkar loftbólur koma auðveldlega og hindra
flæði næringar úr vatninu.
Fjarlægið öll laufblöð sem koma til með að
verða fyrir neðan vatnsyflrborð. Þau rotna og
eitra vatnið.
Ef blóm eru höfð í kulda á nætm-nar, t.d. úti
á svölum, standa þau tvöfalt lengur. Þó mega
þau ekki vera í frosti.
Aspirín, ísmolar eða krónupeningar í vatnið
auka einnig endingu
afskorinna
blóma.
Nellikur lifa
lengur ef ör-
litlu magni
af bór er hellt
út í vatnið.
Túlípanar
halda áfram
að vaxa eftir að
þeir eru klippt-
ir. Þess vegna
getur þurft að skipta
þeim yfir I stærri vasa
eftir einn til tvo daga.
Túlípanar opna sig síð-
ur og standa mun beinni
ef sett er króna í vatnið.
Efni úr málminum á sér-
lega vel við túlípana.
-ggá
Til að láta afskorin blóm halda sér lengur er tilvaliö aö setja aspirín, krónupeninga, ísmola
eöa bráöinn snjó í vatniö. Þar má nefnilega finna fullt af efnum sem lengja líf blómanna.
DV-mynd Hilmar Þór.
lilpM' iW-
Hagstœð kjör
-rs
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
dag er
afsláttur
af annarri auglýsingunni
o\\t mil/i hirr)in<!
Smáauglýsingar
550 5000
Hollt og gott
fyrir börnin
Bananabátar
Einn banani á mann
vínber
niðurskorinn ostur í tening-
um
rauð paprika
jarðarber
mandarínu- eða appelsínu-
bátar eða hvaða ávextir sem er.
Stórar ostsneiðar eru settar á
stóra kokkteilpinna sem nota má
fyrir segl, árar eða skrautfána.
Skerið hýðið langsum öðrum meg-
in á banananum en látið það halda
sér hinum megin. Smyrjið yfir-
borðið á banananum með appel-
sínusafa svo hann dökkni ekki.
Lína langsokkur
Litlar grófar brauðbollur
agúrka skorin langsum í
fætur
gulrætur skomar langsum
fyrir hendur
vinber og tómatar skomir í
tvennt fyrir liðamót
hálft hvítkálshöfuð fyrir
höfuð
vínber fyrir augu
gúrkuendi fyrir nef
eplabátar fyrir munn
Raðið saman á hreina, slétta
tréplötu eða á borð með t.d.
smjörpappír undir.
Fengið frá Tannverndarráði -ggá
Hollir spari-
drykkir
Ekki þarf ailtaf að bera fram
sykraða gosdi-ykki fyrir bömin.
Hér eru uppskriftir að nokkrum
gómsætum sparidrykkjum. All-
ar uppskriftirnar eru fyrir tvo.
Athugið að nauðsynlegt er að
Íhræra þá alla í blandara.
Bananadrykkur
1 banani
3 dl mjólk
3 tsk. kókómalt
Má bera fram með klaka.
Appelsínudrykkur
3 dl mjólk
3 ískúlur
2 msk. appelsínuþykkni
Berjadrykkur
3 dl mjólk
3 ískúlur
2-3 msk. af t.d. krækiberja-,
rifsberja- eða blábeijasaft eða
köldum ávaxtagraut, t.d. jarðar-
berja- eða bláberjagraut.
MS-bíómjólk
1/4 1 MS-bíómjólk
2 ískúlur
Ananasdrykkur
3 dl mjólk
3 msk. ananaskurl
2 vanilluískúlur
Fengið frá Tannverndarráði
-ggá