Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Qupperneq 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997
Fólk í fréttum
Össur Skarphéðinsson
Össur Skarphéðinsson, þingmað-
ur og fyrrverandi ráðherra, er nýr
ritstjóri hins gamalgróna dagblaðs
Alþýðublaðsins.
Starfsferill
Össur er fæddur í Reykjavík.
Hann tók landspróf frá Hlíðardals-
skóla í Ölfusi 1968. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MR 1973. Næsta ár á
eftir stundaði hann kennslu við
Gagnfræðaskólann á ísafirði en hóf
síðan nám í líffræði við HÍ og lauk
B.Sc. prófi í greininni 1978. 1979
hélt Össur til Bretlands til náms í
fiskilífeðlisfræði og lauk doktors-
verkefni sínu 1983 en það var unn-
ið hjá Hafrannsóknastöð breska
fiskimálaráðuneytisins. Hann var
styrkþegi sömu stofnunar 1984 og
starfaði þá m.a. við háskólann í
Sherfield og háskólann i Austur-
Angliu. Þegar Össur kom heim,
1984, hóf hann störf sem blaðamað-
ur á Þjóðviljanum og varð ritstjóri
blaðsins sama ár og til ársins 1987.
Hann var aðstoðarforstjóri Reyk-
vískrar endurtryggingar 1989-91.
Þingmaður Alþýðuflokksins frá
1991. Össur var umhverfisráðherra
Fréttir
1993-95. Hann hefur nú
verið ráðinn sem ritstjóri
Alþýðublaðsins.
Össur var forseti Lista-
félags MR 1972-73. Vara-
formaður Stúdentaráðs
1975-76 og formaður ári
seinna.
Össur átti sæti f mið-
stjóm Alþýðubandalagsins
1985- 87 og framkvæmda-
stjórn 1985-86. Hann var
varaborgarfúlltrúi Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík
1986- 90. í umhverfismála-
ráði 1986-88 og atvinnumálanefnd
1986-88. Hann var annar varaforseti
neðri deildar á sumarþingi 1991.
Formaður iðnaðarmálanefndar AI-
þingis frá 1991 og i þingmannanefhd
EFTA frá 1991. Þá hefur Össur ver-
ið formaður þingflokks Alþýðu-
flokksins um skeið.
Össur hefur ritað doktorsrit um
fiskeldi og fræðigreinar um sama
efni svo og fiskilífeðlisfræði í al-
þjóðlegum fræðiritum.
Fjölskylda
Kona Össurar er Ámý Erla,
doktor í jarðeðlisfræði
frá háskólanum í Aust-
ur-Anglíu, Sveinbjöms-
dóttir, kennara í Rvík,
Einarssonar. Bróðir Ár-
nýjar er Hjörleifur, rit-
stjóri BSRB-blaðsins,
maður Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur borg-
arstjóra.
Össur og Ámý Erla
eiga dótturina Birtu
Marsilíu, f. 18.9. 1994.
Systkini Össurar era
Magnús Hall, hvalavin-
ur og fv. vagnstjóri hjá SVR, Sig-
urður rafvirki, Halldóra og Jófríð-
ur.
Foreldrar þeirra eru Skarphéð-
inn Össurarson framkvæmdastjóri,
m.a. fiðurbóndi og kennari á
Hvanneyri, fv. stjómarformaður ís-
fugls, fv. framkvæmdastjóri íseggs
og framkvæmdastjóri ísunga, fv.
kvikmyndaleikari og frambjóðandi
Borgaraflokksins, og kona hans,
Valgerður Magnúsdóttir, húsmóðir
og fv. kvenskátahöfðingi.
Skarphéðinn, faðir Össurar, er
sonur Össurar, búfræðings á Hóli í
Bolungarvík, KristjánssonEU-, versl-
unarstjóra á Flateyri í Önundar-
firði, Ásgeirssonar. Bróðir Össurar
var Guðmundur, skipamiðlari í
Rvík. Móðir Skarphéðins var Jó-
fríður Ágústa Gestsdóttir, b. á
Skálará í Keldudal í Dýrafirði,
Jónssonar, föðurbróður Friðjóns
Skarphéðinssonar, fv. dómsmála-
ráðherra og afabróður Guðmundar
Pálmasonar jarðeðlisfræðings.
Valgerður, móðir Össurar, er
dóttir Kristins Magnúsar, bifreið-
arstjóra í Rvík, Halldórssonar, tré-
smiðs í Rvík, Þorsteinssonar, b. á
Austurvelli á Kjalarnesi, Kaprasí-
ussonar.
Móðir Magnúsar, afa Össurar,
var Gíslína Pétursdóttir, b. á Bala á
Kjalarnesi, Kristjánssonar, af
Fremra- Hálsætt, meðal frændfólks
Össurar af þeirri ætt era Styrmir
Gunnarsson ritstjóri, Valur Vals-
son bankastjóri, Guðrún Helgadótt-
ir alþingismaður, Magnús Hregg-
viðsson, framkvæmdastjóri Frjáls
framtaks, Jóhanna Kristjónsdóttir
blaðamaður og móðir rithöfund-
anna Illuga, Hrafns og Elísabetar
Jökulsbama og Þorbjöm dósent og
Broddi, fréttamaður RÚV, Brodda-
synir.
Össur
Skarphéðinsson.
íslendingafagnaður í Stokkhólmi
DV, Suðurlandi:
Sjötíu manns úr íslendingafélag-
inu í Stokkhólmi komu í þrettánda-
fagnað hjá Sigrúnu Jónsdóttur
kirkjulistakonu sem þar er búsett.
íslendingafélagið í Stokkhólmi gat
ekki haldið sína árlegu jólagleði,
m.a. vegna húsnæðisleysis, og leysti
þvi Sigrún málið, enda býr hún í
mjög stóra húsi og er alvön að
standa fyrir stórum samkomum.
Þegar Svíamir syngja um jólin
segja þeir að þau eigi að halda há-
tíðleg allt fram til páska. Því til
sanninda eru víða jólatré í görðum
Glatt á hjalla hjá íslendingum í Stokkhólmi.
enn og skrautið glitrar fagurlega í aði í Svíþjóð þótt Frónbúanum sé
vorsólinni. Það er því enn við hæfi þorrinn ofarlega í huga nú.
að birta myndir frá þrettándafagn- -jþ
Jón Ragnarsson, tæknifræðingur hjá Ericsson, í skrýtnu gervi og Helga
Brekkan með dóttur sína.
Sólarkaffi
Leiknis
Leiknismenn héldu sitt árlega sól-
arkaffi nýlega i Skrúð. Margt var
um manninn og þar er venjan að út-
nefna íþróttamenn ársins í yngri og
eldri flokkum unglinga. Að þessu
sinni hlutu hnossið Margrét Óðins-
dóttir í yngri flokki fyrir fijálsar
íþróttir og sund og Páll Jónsson í
eldri flokki fyrir knattspymu. Alls
fengu 60 börn viðurkenningu að
þessu sinni.
Páll Jónsson.
Margrét Óöinsdóttir meö systur sinni, Brynju,
DV-myndir Ægir, Fáskrúösfiröi
DV
Til hamingju
með afmælið
18. febrúar
80 ára
Haukur Ólafsson,
Mýrargötu 2, Neskaupstað.
75 ára
Guðrún Eggertsdóttir,
Gnoöarvogi 32, Reykjavík.
Lilja Valdlmarsdóttir,
Rjúpufelli 23, Reykjavík.
Stefán Benediktsson,
Sjávargrund 42, Garðabæ.
Ottó Geir Þorvaldsson,
Viðvík, Viðvíkurhreppi.
70 ára
Guðmundur M. Klemens-
son,
Bólstaðarhlíð 1, Bólstaðarhlíð-
arhreppi.
Ólafur Einar Jónsson,
Rauðagerði 18, Reykjavík.
Kristín Guðmundsdóttir,
Stórólfshvoli II, Hvolsvelli.
Aðalbjörg Sigurvaldadóttir,
Orrastööum, Torfalækjar-
hreppi.
Jónas Kristjánsson,
Byggöavegi 125, Akureyri.
Sigrún Lovísa Grímsdóttir,
Þórunnarstræti 121, Akureyri.
60 ára
Þórarinn Bjarnason,
Stekkjarhvammi 46, Hafnar-
firði.
Halldór Haraldsson,
Kópavogsbraut 113, Kópavogi.
Aðalheiður Vagnsdóttir,
Tröllagili 5, Akureyri.
50 ára
Elsa Eyþórsdóttir,
Heiðmörk 12, Hveragerði.
Guðmundur Ásgeirsson,
Stekkjarhvammi 30, Hafnar-
firði.
40 ára
Stefán Guðmundsson,
Hömrum 6, Djúpavogshreppi.
Þrúður Ólöf Gunnlaugsdótt-
ir,
Háaleitisbraut 117, Reykjavik.
Brynjar Þórarinsson,
Fífumóa 12, Reykjanesbæ.
Ásgeir Björgvin Einarsson,
Raftahlíð 76, Sauðárkróki.
Gunnar Már Þórðarson,
Undralandi 10, Reykjavík.
Breki Karlsson,
Dalhúsum 53, Reykjavík.
Hafsteinn Rúnar Hjaltason,
Lambhaga 4, Selfossi.
Rúnar Smári Fjalarr,
Fífubarði 7, Eskifirði.
Guðmundur Smári Guð-
mundsson,
Grandargötu 86, Grundarfirði.
Sigurður Valdimarsson,
Seljabraut 24, Reykjavík.
Guðrún Drööi Marinósdótt-
ir,
Nökkvavogi 20, Reykjavík.
Anna Hulda Friðriksdóttir,
Austurgötu 4, Vogum.
PáH Grétar Hansen,
Bergsmára 6, Kópavogi.
o\U mil/f hirrijnf
Or> ■
%
Smáauglýsingar
550 5000