Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1997, Qupperneq 32
36 ÞRJÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 Gegn sameinuðum atvinnurekendum og ríkisvaldi „Við sáum það á ferlinu sem verið hefur að við urðum að sameina kraftana gegn samein- uðum atvinnurekendum og rík- isvaldi sem virðast vera að mynda blokk í samningamálun- um.“ Björn Grétar Sveinsson, for- maöur verkamannasambands- ins, í DV. Búmmerang Össurar „Ég verð einfaldlega að senda Össuri þetta skeyti hans til baka og ég held að þetta sé „búmmer- ang“ að flytja svona frétt." Hjörleifur Guttormsson alþing- ismaður, í Degi-Tímanum, um frétt í Alþýðublaðinu um að hann sé að stofna fiokk. Ummæli Með hor í nefinu „Það er frábært að koma hing- að með hóp af ísfirðingum sem eru enn með hor í nefinu vegna þess hversu ungir þeir eru og sigra.“ Guðjón Þorsteinsson, liðsstjóri KFÍ, eftir sigur gegn Njarðvík- ingum, í DV. Bankastjórar „Hér á landi þykir það sér- stökum tíðindum sæta, ef banka- stjórastaða er veitt sérfróðum, framtakssömum og reyndum bankamanni." Sigurður A. Magnússon alþing- ismaður, í DV. Krílið sem breytti öllu „Þetta litla kríli breytti öllu, ekki síst fyrir harðvítugan stjómmálamann sem skyndilega sér að lífið snýst um allt annað en að standa á þingi og rífa kjaft.“ Ossur Skarphéðinsson alþingis- maður, um barnauppeldi, i DV. íslenskur hestur væri sjálfsagt eins og lítið kríli viö hliöina á þessum risa. Stórir og gamlir hestar Eins og flestir vita þá eru hestar mjög misstórir, stærsti hestur sem mældur hefur verið var belgískur stóðhestur, nefndur Brooklyn Supreme, og var hann í eigu bónda í Iowa í Bandaríkjunum. Þyngstm- var hesturinn 1451 kg árið 1938 og hæðin var 198 cm, brjóstmál hans var 259 cm. Breidd skeifna hans, sem hver um sig var 3,4 kg að þyngd, var 35 cm. Hæsti hestur sem vitað er um með vissu, var Samson, geldingur af ensku drátt- arhestakyni. Hestur þessi fæddist 1846 og var hæð hans mest 2,19 m. Sagt er að hann hafi vegið 1520 kg. Blessuð veröldin Langlífastir hesta Elsti hestur sem vitað er um var Old Billy, sem fæddist árið 1760. í fjörutíu og níu ár var hann notað- ur sem dráttarklár en fékk lausn frá störfum hjá Mersey og Irwell- fljótabátagerðinni. Hann átti róleg síðustu ár sín á búgarði nálægt Warrington á Englandi og lést þar 27. nóvember 1822, þá 62 vetra gam- all. Hauskúpa Billys gamla er varð- veitt á safni í Manchester og upp- stoppað höfuð hans er á safni í Bedford. Elsti íslenski hesturinn sem vitað er um er hryssan Lotta, en hún var 41 vetra þegar hún gaf upp öndina árið 1946 á býlinu Eijby við Koge í Danmörku. Veður fer kólnandi Skammt vestan af Reykjanesi er 943 mb lægð sem hreyfist noröur. Um 300 km austnorðaustur af land- inu er önnur álíka lægð sem hreyf- ist norðvestur í fyrstu en síðan vest- ur. Veðrið í dag í dag verður norðaustan gola eða kaldi og víða snjókoma á Vestfjörö- um fram eftir morgni. Annars vax- andi suðvestan átt. Undir hádegi jSöJE 2° verður suðvestlæg átt um allt land, stinningskaldi eða allhvasst með hvössum éljum sunnan og vestan tO en hægari og léttskýjað um landið norðaustanvert. Veður fer hægt kólnandi og síðdegis verður komið vægt frost víðast hvar. Á höfuðborgarsvæðinu fer veður kólnandi og síðdegis verður komið vægt frost. Sólarlag í Reykjavík: 16.30 Sólarupprás á morgun: 10.44 Veðrið kl. 6 í morgun Síðdegisflóð í Reykjavlk: 14.40 Árdegisflóð á morgun: 03.20 Veörió kl. 6 í morgun: Akureyri skýjað 1 Akurnes léttskýjað -1 Bergstaðir skýjað 1 Bolungarvík léttskýjað -2 Egilsstaðir skýjað 1 Keflavíkurflugv. skúr á síð. kls. 1 Kirkjubkl. slydduél 1 Raufarhöfn alskýjað 0 Reykjavík slydduél 2 Stórhöfði úrkoma í grennd 3 Helsinki léttskýjaö -17 Kaupmannah. slydda 0 Ósló snjókoma -3 Stokkhólmur skýjað -2 Þórshöfn léttskýjaó 6 Amsterdam rign. á síð. kls. 9 Barcelona þokumóöa 8 Chicago skýjað 6 Frankfurt rigning 6 Glasgow haglél á síó. kls. 3 Hamborg rigning 6 London skýjað 10 Lúxemborg rigning 6 Malaga léttskýjað 7 Mallorca skýjaó 3 Miami Paris rigning 10 Róm heiöskírt 0 New York skýjað 2 Orlando léttskýjað 12 Nuuk alskýjaó -17 Vín alskýjaö -2 Winnipeg heiöskírt -8 Pétur Ottesen, forsvarsmaður undirskriftasöfnunarinnar Álver, já takk: Öruggt að fjölgun verður með tilkomu álvers DV, Akranesi: „Ástæða þess að við hófum und- irskriftasöfnunina var fyrst og fremst sú að okkur þótti rétt að báðir hópamir fengju að tjá sig, sama hvort menn væru með eða á móti álveri, og til að fá það fram sem viö töldum að væri rétt; að mikill meirihluti íbúa hérna í kring vildi fá álver Columbia á Grundartanga," sagði Pétur Ottesen, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins á Akranesi, formaður sorpnefndar sveitarfélaga á Vest- urlandi og einn af forsvarsmönn- Maður dagsins um undirskriftasöfnunarinnar Ál- ver, já takk, sem hefur staðið yfir að undanförnu á Akranesi og í Borgarnesi. Pétur á ekki langt að sækja áhugann fyrir pólitíkinni því að afi hans, Pétur Ottesen, sat á Alþingi íslendinga fyrir Borg- firðinga lengur en nokkur annar þingmaður hefur setið þar. „Nú þegar hafa um 2.000 manns Pétur Ottesen. skrifað undir og við búumst við því að um þrjú þúsund manns muni styðja þannig það að álver verði reist á Grundartanga. Siðar í vikunni munum við afhenda iðn- aðarráðherra undirskriftirnar. Við viljum að sjálfsögðu gera mjög strangar kröfur um mengun þannig að þetta verði okkur til hagsbóta. Ef þetta er mengandi fyrirtæki þá er atvinnuávinning- urinn vissulega sá sami en við megum ekki fóma öllu fyrir at- vinnuna, við verðum að halda landinu í eins góðu standi og hægt er. Vestlendingum hefur fækkað mjög á undanförnum árum og með tilkomu álvers ætti sú þróun að verða stöðvuð. Best væri að henni yrði snúið við og það er næstum því öruggt að fólksfjölgun verður í fyrsta skipti í langan tíma ef þetta álver kemur. Akumesingum hefur fækkað mikið á undanfómum árum. Málflutningur álversandstæð- inga hefur verið misjafn eins og þeir eru margir. En mér sýnist að flestir þeirra sem em að mæla á móti álveri geri það á málefnaleg- um grundvelli og ég hef í rauninni ekkert við það að athuga." Áhugamál Péturs eru fyrst og fremst knattspyrna og pólitík Pétur er giftur Þóm Jónsdóttur og eiga þau tvær dætur, Bryndísi, sem er 8 ára, og Emilíu sem er 10 ára. -DVÓ Tvær af konunum fjórum, sem rifja upp liöna tfö. Ástandið Leikfélag eldri borgara, Snúð- ur og Snælda, hefur hafið sýn- ingar á leikritinu Ástandið eftir Bryndísi Olgeirsdóttur og Sig- rúnu Valbergsdóttur og er næsta sýning í dag í Risinu. Leikritið segir frá fjórum kon- um sem hverfa til baka til her- námsáranna og segja hver annarri ýmislegt sem þá gerðist og þær hafa aldrei sagt nokkmm manni. Þær urðu á sínum tíma allar ástfangnar af hermönnum sem hingað komu og það mótaði allt þeirra lífshlaup. í leikritinu koma ýmsir við sögu sem settu svip sinn á borgarbraginn á stríðsárunum, svo sem hermenn, sjoppueigendur, ástandsnefndar- menn, betri borgarar og bílstjór- ar. Leikhús Það eru tíu leikarar Snúðs og Snældu sem koma fram í þessu leikriti. Að auki em nokkrir úr hópnum sem sjá um ýmislegt á bak við tjöldin. Auk leikaranna tekur þátt í sýningunni Magnús Randmp sem leikur á harmon- iku á sýningunni. Bridge Hjördis Eyþórsdóttir og eigin- maður hennar, Curtis Cheek, eru meðal gesta á Bridgehátíð Flugleiða en Hjördís er nú búsett í Bandaríkj- unum og hefur spilamennsku að at- vinnu. Hjördís er vel þekkt í bridgeheiminum vestra og eftirsótt- ur spilafélagi. Einhver frægasti spil- ari heims, Bandaríkjamaðurinn Bob Hamman, bað Hjördísi nýverið að verða spilafélagi sinn á heims- meistaramótinu í parakeppni sem fram undan er á árinu. Að sjálf- sögðu tók Hjördis því boði og gam- an verður að fylgjast með árangri þeirra. Hjördis og Curtis stóðu sig ágætlega í tvímenningskeppni Flug- leiða sem lauk í gær, enduðu þar í 11. sæti af 132 keppendum. Hér er spil úr 6. umferð mótsins. Sagnir gengu þannig, norður gjafari og NS á hættu: * Á98 •» Á62 ♦ D986 4 KD7 * 105 V KG7 ♦ K103 4 Á10964 ♦ K32 * D1053 ÁG52 4 G3 Norður Austur Suður Vestur Hjördís Ragnar Curtis Páll V. 1 grand pass 2 4 dobl 2 ♦ pass 3 4 pass 3 grönd p/h Páll Valdimarsson doblaði Stay- man-spurningu suðurs til að benda á útspil og Ragnar Magnússon spil- aði út lauftvisti í upphafi. Hjördís drap fyrsta slaginn á drottningu og svínaði tíguldrottningunni. Páll drap á kóng og spilaði lágu laufi sem Hjördís átti á gosann í blind- um. Hjördís tók nú slagina þrjá í tígli, Ragnar henti tveimur spöðum og Páll hjarta. Hjördís var komin með góða mynd af spilunum, tók ÁK í spaða og spilaði sig út á laufi. Páll gat tekið þrjá slagi á lauf, en varð síðan að spila frá KG í hjarta. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.