Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1997, Page 41
Ferðalögin um páskana:
Páskamir eru að verða einn aðal-
ferðamannatími landans erlendis,
enda færist það í aukana að fólk fari
í utanlandsferðimar utan sumar-
tímans og njóti þá frekar hins stutta
sumars hér á landi. Bókanir í ferðir
eru fleiri í ár en í fyrra, enda bjart-
sýni ríkjandi í efnahagsmálunum.
Ferðamenn sækja flestir á sólar-
staði en helgarpakkar í borgarferðir
njóta einnig töluverðra vinsælda.
„Það er sólin sem er vinsælust
um páskana og einnig mikill
straumur fólks til Dublin. Þessar
ferðir eru langleiðina með að verða
fullbókaðar hjá okkur. Vinsælustu
sólarferðir okkar eru til Kanaríeyja,
þar er orðið fullbókað og á
Benidorm en þar em eftir ein 5
sæti. Á Benidorm bjóðum við upp á
nýjan stað, Albir, og hann er að selj-
ast upp. Ferðir til Flórída eru
einnig langleiðina að seljast upp.
Það eru ennþá örfá sæti laus í
Dublinarferðirnar okkar en það
selst sennilega upp á næstu dög-
um,“ sagði Auður Björnsdóttir,
deildarstjóri hjá Sam-
vinnuferðum Landsýn.
Flórída vinsæít
„Leið fólks um páskana
liggur fyrst og fremst í
sólina og það er náttúr-
lega Flórída sem er vin-
sælast hjá okkur. Ferðir
til Flórida vora flestallar
meira og minna uppseld-
ar fyrir jólin. Hins vegar
er það alltaf þannig hjá
okkur þegar nær dregur
páskum að fólk kaupir
helgarpakkana hjá okkur,
borgarpakka til staða eins
og London, Kaupmanna-
hafnar og fleiri staða. Við
erum með mikið framboð
þangað.
Annars höfum við tekið
eftir því hjá Flugleiðum
að það ætla ótrúlega
margir í fjölskylduheim-
sóknir til Skandinavíu.
Bókanir eru miklu fleiri
Strendurnar í Albufeira t Portúgal eru æði fagrar.
Kaupmannahöfn heldur alltaf vinsældum sínum í augum Islendinga og margir ætla
þangað um páskana.
en í fyrra, það virðist sem rýmri
fjárráð séu hjá fólki núna, sagði
Símon Pálsson hjá Flugleiðum.
„Salan á ferðum um páskana er
jöfn og góð, ósköp svipuð og um síð-
ustu páska. Við erum með ferðir í
beinu leiguflugi til þriggja staða:
Mallorca, Portúgals og Kanaríeyja.
Við eigum til örfá sæti á Portúgal og
Mallorca en Kanaríeyjar eru löngu
uppseldar. Einnig er töluvert um
fólk sem vill fara til Flórída og í
skemmtisiglingar um Karíbahaflð
en eftirspurn eftir þannig ferðum er
stigvaxandi.
Fólk er einnig að skreppa í styttri
borgarferðir en þær dreifast á marg-
ar borgir, Kaupmannahöfn, London,
Amsterdam og fleiri borgir.
Páskamir era óvanalega snemma í
ár og því vilja menn fara í heitari
staðina í Evrópu ef á annað borð er
verið að leita eftir sólinni,“ sagði
Goði Sveinsson, sölu- og markaðs-
stjóri hjá Úrval Útsýn.
-ÍS
53
Aukið öryggi
Tveimur mánuðum eftir að 4
manns létu lifið í járnbrautar-
lest í sprengjuárás öfgasinn-
aðra múslíma í París hafa emb-
ættismenn tilkynnt að gripið
hafi verið til aðgerða til að
| auka öryggi lestarfarþega. Ráð-
inn hefur verið fjöldi nýrra
| starfsmanna eða öryggisvarða
sem eiga að koma í veg fyrir að
farþegar skilji eftir grunsam-
: lega pakka undir sætum eða í
farangursgeymslum.
Flugfreyjur
Flugfreyjur hjá Middle East
Airlines, opinbera flugfélaginu
í Libanon, ætla í sólarhrings-
verkfall á morgun til að þrýsta
á um hærri laun.
Breytingar
Eitthvert elsta neðanjarðar-
lestarkerfi heims mun fá upp-
lyftingu á næstu 5 árum. Neð-
anjarðarlestarkerfi ungversku
borgarinnar Búdapest var lagt
árið 1896 en til stendur að bæta
við leiðum sem tengja saman
borgarhlutana Búda og Pest.
Árangur kvartana
Eftir endalausar kvartanir
flugfarþega í millilandaflugi á
alþjóðlegu flugvöllunum við
New York þá hafa flugmálayfir-
völd loks tekiö sig til og lánað
vagna undir farangur án endur-
gjalds. Fram að þessu hafa þeir
verið leigðir fyrir sem svarar
100 krónum og það hefur far-
þegum ekki líkað. Eftir sem
áöur munu farþegar í innan-
landsflugi þurfa að borga þetta
gjald.
Nýr alþjóðaflugvöllur
Ein flugbrautanna á nýjum
I alþjóðaflugvelli við Hong Kong
var prufukeyrð með lendingu
| farþegaþotu í vikunni. Flugvöll-
1 urinn, Chek Lap Kok, er óheyri-
lega dýi- og áformað er að hann
veröi tekinn í notkun í april á
is næsta ári.
Sitthvort númerið
Nokkur ár era liðin síðan
Tékkóslóvakía liðaöist í tvennt,
rikin Tékkland og Slóvakiu, en
fram að þessu hafa þau notast
við sama símakvótann (42). í
dag verða tekin upp ný númer,
420 fyrir Tékkland og 421 fyrir
Slóvakíu.
LÍF- 0G SÚFNUNARTRYGGINGAR
Löggilt vátryggingamiðlun
Guðjón Styrkársson hrl.
Aðalstræti 9 - Reykjavík
Sími 551 8354
Fullgiltur söluaðili
SUN LIFE
LÍF- OG SÖFNUNARTRYGGINGAR
Ert þú í
St. Petersburg Beach, Flórída
Heppinri áskrifandi DV
hlýtur vinning á miðvikudag
potti °9 Flugleiða?
FLUGLEIDIR
Traustur tslenskur ferðafélagi