Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1997, Qupperneq 64
LAUGARDAGUR 1. MARS 1997 I 'lV
76 kvikmyndir
Sýnd ki.5, 7, 9 og 11. Bönnuö innan 16 ára.
Thx
DIGITAL
Sýnd
kl.
4.45,
6.50,
9 og
11.15.
B.i.
14 ára.
Sýnd
kl.
4.45,
6.50,9
og
11.15.
B.i. 16
Sýnd laugard. kl. 4,30, 6.45, 9 og 10.40.
Sýnd sunnud. kl. 4,30, 6.45, 9 og 11.30. B.i. 16 ára.
Töfrandi
nútímaævintýri
byggt á hinu
sígilda ævintýri
um Gullbrá og
birnina þrjá.
Sýnd kl. 2.45 og 5.
TVÖ ANDLIT
SPEGILS
(THE MIRROR HAS
TWO FACES)
Sýnd kl. lau. kl. 7.
Sun. kl. 7 og 9.15.
DJÖFLAEYJAN
Sýnd sunnudag
kl. 11.30.
She*s the One
Stmi 551 9000
THE
E N G L I S H
P A T I E N T
★★★ 112 H.K. DV
★★★ 112 A.l. Mbl.
★★★ Dagsljós
★★★ Rás 2
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11.
Sýnd kl. 3 og 5.
kl. 5, 9 og 11.20.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Englendingurinn ***★
Stórbrotin epísk kvikmynd sem minnir um margt á best heppn-
uðu stórmyndir fyrri tíma. Anthony Mingella á hrós skilið, bæði
fyrir innihaldsmikið handrit og leikstjórn þar sem skiptingar í
tíma eru mjög vel útfærðar. -HK
Undrið ★★★★
Frábær áströlsk kvikmynd sem lýsir á áhrifamikinn hátt faili og
endurkomu píanósnillings sem brotnar undan álaginu og eyðir
mörgum árum á geösjúkrahúsi. Leikur er mjög góður en enginn
er betri en Geofrey Rush sem er einkar sannfærandi í túlkun
sinni á manni sem er algjört flak tilfinningalega séð. -HK
Leyndarmál og lygar ★★★★
Mike Leigh hefur með Leyndarmálum og lygum skapað sína
bestu kvikmynd og er þá af góðu að taka, kvikmynd sem fyrst og
fremst er um persónur og tilfmningar, ákaflega lifandi og skýrar
persónur sem eru túlkaöar af frábærum leikhópi. -HK
Djöflaeyjan ★★★★
Nýjasta kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar er mikið og
skemmtilegt sjónarspil sem sveiflast á milli gamans og alvöru.
Gísli Halldórsson og Baltasar Kormákur eru bestir í sterkum
hópi leikara og margar persónur verða minnisstæðar. -HK
The People vs. Larry Flynt ★★★
Myndin segir frá klámkónginum Larry Flynt og baráttu hans fyr-
ir réttinum til að klæmast. Woody Harrelson leikur kónginn sjálf-
an og Courtney Love Altheu konu hans og eru bæði frábær. Það
sem upp úr stendur er lokasenan þar sem allar fegurstu og hátíö-
legustu hugmyndir Bandaríkjamanna um frelsi og réttlæti eru
dregnar niður á plan klámsins. -ÚD
Koss dauðans ★★★
Finnski leikstjórinn Renny Harlin er réttur maður á réttrnn stað
í Kossi dauðans, hraðri spennumynd sem fjallar um konu sem
hefur án sinnar vitundar lifað tvöföldu lífi. Sérlega vel gerð og
klippt átakaatriði. -HK
Lausnargjaldið ★★★
Sérlega vel gerð og spennandi sakamálamynd um barnsrán. Mel
Gibson er öryggið uppmálað í aðalhlutverkinu og Gary Sinese
ekki síðri í hlutverki ræningjans. Góð skemmtun. -HK
Múgsefjun ★★★
Meitlaður texti í einu þekktasta leikriti á þessari öld, 1 deiglunni,
nýtur sín vel í öruggri leikstjóm Nicholas Hytner. Hann fer
aldrei út í nein ævintýri í kvikmyndatöku til að dreifa athyglinni
frá textanum heldur sníður á skynsaman hátt stakk utan um dra-
mað sem mest er í töluðu máli. Leikmyndin er drungaleg eins og
tilefni er til og lýsing í takt við efnið. -HK
Að lifa Picasso ★★★
Nýjasta mynd James Ivory nær ekki gæðum Howard’s End eða
Remains of the Day en er samt yflr meðallagi. Anthony Hopkins
er misgóöur í hlutverki Picasso en á mjög góða spretti. Vel gerð
og forvitnileg mynd um einn mesta listmálara sem uppi hefur
verið. -HK
Þrumugnýrvjr*
Mikil keyrsla frá upphafi til enda og tæknilega séð geysivel gerð.
Handritið er ágætlega skrifað þótt ekki sé það hrein listasmíð en
er vitrænna en í mörgum stórslysamyndum. -HK
Hringjarinn frá Notre Dame ★★★
Nýjasta Disney-myndin hefur klassíkina sem fyrirmynd. Nokkuð
skortir á léttleika sem er að finna í meistaraverkum Disneys á
sviði teiknimynda en er samt góð, alhliða skemmtun fyrir alla
flölskylduna. Oft hefur þó tónlistin verið skemmtilegri. -HK
Banvæn bráðavakt ★★★
Ágætur spennutryllir sem er nokkuð vel uppbyggður og hefur
góða stígandi þrátt fyrir að í sögunni sé mjög fátt sem kemur á
óvart. Hugh Grant sýnir betri leik en hann hefur gert í síðustu
myndum sínum. -HK
■ iprr ,_lj j
í Bandaríkjunum
- aösókn dagana 21.-23. febrúar.
Tekjur í milljónum dollara og heildartekjur.
Tvöfalt hjá
George Lucas
Vinsældir Star Wars-seríunnar halda
áfram að koma á óvart og nú er svo
komið að í efstu tveimur sætum eru
tvær af þremur í seriunni. Um síðustu
helgi var The Empire Strikes Baok sett
í dreifingu og var hún vinsælasta kvik-
mynd um síðustu helgi og í öðru sæti
er Star Wars. Eftir tvær vikur verður
siðan síðasta myndin i þessari fyrstu
Star Wars seríu, Return of the Jedi,
sett í dreifingu og þá má örugglega
gera ráð fyrir að allar þrjár myndirnar
verði ofan við tíunda sætið á listan-
um. George Lucas getur því farið að
byrja á seríu númer tvö án þess að
hafa peningaáhyggjur því dollararnir
streyma til hans þessa dagana.
Ofarlega á lista er ný mynd Rosewood
sem er nýjasta kvikmynd Johns
Singletons. Þetta er sakamálamynd
sem gerist í Florida fyrr á öldinni og
segir frá sakamáii sem vakti óhugn-
að á sínum tíma. Aöalhlutverkið leik-
ur Jon Voight. í fimmta sæti listans er
Vegas Vacation en þaö er nýjasta kvik-
myndin I vinsælum kvikmyndaflokki
sem kenndur hefur verið við National
.ampoon Vacation. Hefur Chevy Chase
leikið aðalhlutverkið í þeim öllum.
Þær kvikmyndir sem fengu tilnefning-
ar til óskarsverölauna sem besta kvik-
mynd gera það gott; allar eru inni á
listanum aö undanskilinni Fargo sem
hefur að mestu verið tekin úr dreif-
Nýjar persónur koma tii sögunnar í Empire Strikes Back. ingu. Hún er búin aö renna sitt skeiö,
alla vega í bili. -HK
Tekjur Heildartekjur
1- (-) Empire Strikes Back 21.975 244.650
2. (1) Star Wars 11.031 438.692
3. (2) Absolute Power 9.014 28.700
4. (3) Dante’s Peak 7.137 45.453
5. (4) Vegas Vacation 6.549 21.279
6. (5) Fools Rush In 5.511 16.557
7. (6) That Darn Cat 3.625 11.178
8. (-) Rosewood 3.154 3.154
9. (7) Jerry Maguire 3.080 131.653
10. (8) The English Patient 2.823 51.532
11. (9) Shine 2.282 23.063
12. (10) Scream 1.827 81.534
13. (13) Evlta 1.128 46.266
14. (11) The Beautican and the Beast 1.104 9.956
15. (16) Michaei 1.065 86.062
16. (12) Dangerous Ground 1.057 4.451
17. (-) Sling Blade 0.752 2.020
18. (18) Ransom 0.634 134.324
19. (14) Mother 0.628 17.714
20. (-) Secret and Lies 0.610 8.930
HVERNIG VAR
MYNDIN?
Space Jam
Björn Þói-sson: Hún var skemmti-
leg og maður lærði körfubolta.
Ingvar Bjöm Guðlaugsson: Hún
var bara góð.
Arnar Bjamason: Mér fann^t hún
mjög góð.
Kristján Bjarnason: Hún var
skemmtileg.