Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 1997 Útlönd Sali Berisha Albaníuforseti skammar stjórnarandstæðinga: Hafnar öllum kröfum um samsteypustjórn Sali Berisha, forseti Albaníu, hefur hafnað kröfum stjórnarandstöð- unnar um myndun sam- steypustjórnar og segist staðráðinn í að brjóta á bak aftur ólguna í landinu sem hefiu- leitt til dauða að minnsta kosti tuttugu manna. Á sama tíma og þjóðir heims velta fyrir sér leið- um til að binda enda á ófremdarástandið, viður- kenndu albönsk stjórn- völd að þau hefðu misst tökin á nokkrum bæjum í suðurhluta landsins. Vopnaðir hópar hafa náð þeim á sitt vald, þrátt fyr- ir að lýst hafi verið yfir neyðarástandi um helg- ina. Tritan Shehu, utanrík- isráðherra Albaníu, varði setningu neyðarlaganna í Sali Berisha Albaníuforseti. Simamynd Reuter viðtali við ítalska dagblað- ið L’Unita og sagði að með þeim hefði verið komið í veg fyrir borgarastyrjöld í landinu. „Hættan á borgarastyrj- öld hefur minnkað til muna vegna þessara að- gerða. Veistu hvað hefði gerst ef við hefðum ekki gripið til þeirra? Uppreisn- armenn hefðu ráðist á Tirana," sagði ráðherrann í blaðaviðtalinu. Almenningur hefur efnt til mótmælaaðgerða svo vikum skiptir vegna vafa- samra fjárfestingarsjóða sem fóru á hausinn. Þús- undir Albana glötuðu við það öllu sparifé sínu sem þeir höfðu fjárfest í sjóð- um þessum. Her og lög- regla hafa fengið fyrirskip- anir um að skjóta vopnaða mótmælendur, útgöngu- bann er í gildi frá sólsetri til sólar- upprásar og settar hafa verið höml- ur á fréttaflutning fjölmiðla. Hans Van Mierlo, utanríkisráð- herra Hollands og fulltrúi Evrópu- sambandsins, ráðgerir að fara til Albaníu á fóstudag. Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) hefur skipað Franz Vranitsky, fyrr- um kanslara Austurríkis, sem sendimann sinn og fer hann til Al- baníu við fyrstu hentugleika til að meta stöðuna. Javier Solana, aðalframkvæmda- stjóri NATO, útilokaði að gripið yrði til hernaðaraðgerða. í yfirlýsingu, sem lesin var upp í ríkissjónvarpinu, sakaði Berisha forseti leiðtoga sósíalista, sem eru í stjómarandstöðu, um að grípa til ofbeldisverka og um að virða ekki viðleitni hans til að koma aftur á lögiun og reglu, meðal annars með því að bjóðast til að flýta kosning- um í landinu. Reuter BLAÐBURÐARFÓLK Á ÖLLUM ALDRI óskast í eftirtaldar götur. Blikanes - Haukanes Mávanes - Þrastarnes Nauöungarsala á lausafjármunum Eftirtaldar bifreiðar og annað lausafé verður boðið upp við lögreglu- stöðina á Blönduósi, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, fimmtudaginn _________________13. mars nk., kl. 17.00.___________ GL-817 GÞ-156 HK-294 GÞ- 368 0-44 HS-031 HD-044 JC-191 KS-295 DG-893 IÞ- 860 KP-193 dráttarvél ZA-565 dráttarvél XY-545 dráttarvél ZK-745 dráttarvél TU-989 hestakerra. Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg. SÝSLUMAÐURINN Á BLÖNDUÓSI Menntamálaráðuneytið Auglýsing um styrki úr þróunarsjóði grunnskóla Samkvæmt 1. gr. reglna um Þróunarsjóð grunnskóla (Stjtíð. B, nr. 657/1996) eru árlega veittir styrkir úr sjóðnum til þróunarverkefna í grunnskólum lands- ins. Starfsmenn grunnskóla geta sótt um auglýst verkefni en aðrir aðilar geta einnig sótt um. Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um þátttöku í þróunarverk- efnum skólaárið 1997-98 á eftirtöldum sviðum. A. Sjálfsmat skóla - mat á skólastarfi Auglýst er eftir skólum/aðilum til að þróa aðferðir við mat á skólastarfi, þar á meðal kennsluháttum, samskiptum innan skólans, stjómunarháttum og tengslum við aðila utan skólans. B. Stæröfræöi - náttúrufræöi Auglýst er eftir skólum/aðilum til að þróa efni, aðferðir, skipulag í kennslu stærðfræði eða náttúrufræðigreina í grunnskólum. Æskilegt er að verkefnin feli í sér notkun tölvu- og upplýsingatækni, svo og að þau snúist um stærri heildir en einstakar bekkjardeildir. Bent skal á að verkefni á báðum ofangreindum sviðum geta verið kjörin samvinnuverkefni skóla. Nánari upplýsingar eru gefnar í menntamálaráðuneytinu. Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu á sérstökum umsóknareyðu- blöðum sem liggja frammi í ráðuneytinu og á skólaskrifstofum. Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 4. aprfl 1997. Menntamálráðuneytið, 4. mars 1997 Kaþólskur maöur í Bosníu hreinsar til í kirkju heilags Jósefs í Sarajevo sem skemmdist lítillega í sprengjutilræöi í gærmorgun. Nokkuö hefur verið um árásir á kaþólskar kirkjur í Bosníu aö undanförnu. Símamynd Reuter Arafat ræðir við Oryggisráð SÞ Yasser Arafat, forseti Palestínu, mun i dag ræða við fuiltrúa í Ör- yggisráði Sameinuðu þjóðanna áður en þeir funda um þá ákvörðun ísraels að byggja nýjar íbúðir fyrir gyðinga í arabíska hluta Jerúsal- em. Fundi ráðsins var frestað um einn dag að beiðni Bandaríkjanna til að Arafat gæti fyrst lokið viðræðum sínum við ráðamenn í Was- hington. í gærkvöld sótti Ara- fat þúsund manna veislu hjá Samein- uðu þjóðunum sem kostuð var af Palestínumönnum í New York. Fjöldi embættismanna Sameinuðu þjóðanna var í veislunni auk stjórn- arerindreka, þar á meðal írá ísrael. Gert er ráð fyrir að Ara- fat hitti Kofi Annan, fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, að máli áður en hann heldur til Houston í Texas þar sem hann mun eiga viðræður við George Bush, fyrrum Bandarikja- forseta, og James Baker, fyrrum utanríkisráðherra. Arafat lét þau orð falla á fundi með fréttamönnum í gær að hann ætti einskis annars úrkosti en að halda áfram friðarviðræðum við ísraela. Hann kvaðst enn líta á Net- anyahu sem félaga þrátt fyrir bygg- ingaráform hans. Arafat harmaði hins vegar ákvörðunina og sagði hana ólöglega. Reuter Yasser Arafat segir eina kostinn vera aö halda áfram friöarviö- ræöum. Sfmamynd Reuter Stuttar fréttir i>v Undirbýr tíllögu Alberto Fujimori Perúforseti segir stjóm sína vera að undir- búa tillögu að samkomulagi við skæruliða. Þeir hafa hafnað boði um hæli á Kúbu gegn því að þeir láti gísla sína lausa. Hætta á flóðum Hætta er talin á að Ohiofljót í Kentucky í Bandaríkjunum fljóti yfir bakka sína og hefur fólki verið skipað að yfirgefa heimili sín. Lokanir i Jerúsalem Netanyahu, forsætisráðherra ísraels, skip- aði lögreglu að loka í]ór- um skrifstof- um Palest- ínumanna í arabíska hlutanum í Jerúsalem i morgun, sól- arhring áður en hann heldur tO Kaíró. Reka hjálparstarfsmenn Yflrvöld í Saír hafa rekið 40 hjálparstarfsmenn, sem héldu úr borginni Kisangani um helg- ina, úr landi. Segja yfirvöld brottför þeirra hafa leitt til manndrápa á hútúum. Ferðamenn myrtir Kólumbískir skæruliðar myrtu tvo ferðamenn frá Þýskalandi og Austurríki er hermenn gerðu innrás í búðir skæruliða. Tveimur öðrum ferðamönnum tókst að bjarga. Tyrklandi hafnað Mið- og hægriflokkar á Evr- ópuþinginu lýstu í gær yfir andstöðu sinni við aðild Tyrkja að Evrópusambandinu. Krónprins í yfiriið Krónprinsinn af Kúveit og forsætisráðherra landsins, Saad al-Abdulla al-Sabah, er við góða heilsu eftir að hafa fallið í yfirlið í gær. Vinnur að aðild Michael Rúmeníukonungur, sem var í út- legð en hefur nú fengið rík- isborgararétt- indi í Rúmen- íu, ætlar að notfæra sér það góða álit sem hann hefur til þess að vinna að því að Rúmenía fá skjótt aðild að Atlantshafsbandalaginu. Hjálparstarf Norðmenn og Rússar undir- rituðu í gær samkomulag um samvinnu við hjálparstörf. Barnaklámhringur Þýska lögreglan hefur hand- tekið þrjá menn grunaða um að hafa misnotað böm og not- að þau við gerð 2 þúsund klám- myndbanda og 50 þúsund klámmynda. Karadzic gefst upp Radovan Karadzic, fyrrum leiðtogi Bosníu- Serba, hefur ákveðið að hætta að berjast gegn lögsókn nokkurra fómarlamba voðaver- kanna sem framin voru í borg- arastríðinu í Bosníu, að sögn lögmanna sóknaraðilanna. Sniðgangið franskt Vinsælt dagblað í Belgíu hvatti til þess í gær að ákveðn- ar franskar vömr yrðu snið- gengnar vegna ákvörðunar Renault verksmiðjanna um að loka verksmiðju einni í Belgíu. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.