Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Qupperneq 24
32 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 1997 Sviðsljós Emily Watson. Emily vantar pláss fyrir öll verðlaunin Breska kvikmyndastjaman Emily Watson hefur fengiö fjölda verðlauna fyrir leik sinn í kvikmyndinni Breaking the Wa- ves sem Lars von Trier leik- stýröi. Verðlaunin eru orðin svo mörg að Emily á nú í vandræð- um með að koma þeim fyrir. Á Evening Standard kvik- myndahátíðinni í London var Emily kjörin besti nýgræðingur- inn. Viö það tilfelli sagði leik- konan aö verðlaunagripurinn yrði líklega að standa á gólfinu úti í homi í íbúð hennar og eig- inmannsins Jacks. „Heimilið okkar er svo fullt af ýmsum hlutum og gripum að það er ekki rúm fyrir meira. Við erum núna að leita að stærri íbúð.“ r>v Ekki eru allir á einu máli um ástamálin í Hollywood: Demi Moore bálskotin í unglingnum DiCaprio - segir æsitímarit en leikkonan þrætir staðfastlega fyrir það Skyldi glansmyndin vera farin að krumpast? Er nema von að menn spyiji eftir frásagnir bandaríska æsi- blaðsins National Enquirer um meint ástarævintýri Demi Moore og hins komunga Leonardos DiCaprios. Allir vita að Demi er gift harðjaxlin- um Brace Willis og flestir töldu að hjónaband þeirra væri svo sterkt og gott að það ætti fremur heima í æv- intýri en bláköldum raunveruleikan- um. Dlar tungur vestur í Hollywood herma að Demi, sem er á fertugs- aldri, hafi kolfallið fyrir hinum rúm- lega tvítuga og snoppufríða og við- kvæmnislega Leonardo eftir að hún sá hann í hlutverki hins ógæfúsama Rómeós í mynd sem gerð var eftir hinu fræga leikriti Shakespeares um Rómeó og Júlíu. Bandaríska æsiblaðið, sem birti myndir af skötuhjúunum, sagði að DiCaprio hefði farið heim með Demi og eytt nóttinni í strandhýsi hennar og Brúsa eiginmanns í Malibu. Því er haldiö fram að Demi hafi strokið hár hins unga manns á meðan hann sat undir stýri í jeppabifreið sinni á leið heim til hennar. Þau höfðu hist á Demi Moore er fönguleg en Leonardo DiCaprio er sætur. veitingahúsi og snætt saman. Ef rétt reynist að Demi og Leon- ardo hafi átt ástarfund saman þykir það mikið áfall vestur í Hollywood þar sem allir hafa álitið þau Demi og Bruce vera fyrirmyndir annarra hjóna. Þau eiga þijár dætur en ný- lega missti Demi fóstur fjórða bams- ins. Hjónin eiga búgarð í Idaho þar sem þau vilja ala dætur sinar upp í nokkuð svo heilsusamlegu umhverfi, fjarri ys og þys stórborgarlífsins. Þau eiga líka þakhýsi í New York og áð- umefht strandhús við Kyrrahafið. Demi ku vera öskuill yfir myndun- um sem Enquirer birti af henni og Leonardo. Á annarri leiðast þau en á hinni yfirgefa þau strandhúsið sam- an. „Leonardo er Demi eins og yngri bróðir hennar. En hann gisti ekki hjá henni,“ segir talsmaður Demi. Hann segir að þau hafi vissulega hist en að- eins til að ræða fyrirhugaða kvik- mynd. Annað fólk hafi einnig verið í húsinu. „Hún er ekki skotin í honum," seg- ir talsmaðurinn. Ekkert hefúr heyrst í Brace og heldur ekkert í Leonardo litla. I Fjörkáifinum í DV á föstudögum A Bylgjunni á fimmtudögum kl. 20 og endurfluttur á laugardögum kl. 16 mgL W -4 jg. IijU?*. ■ Jí í, -í i ÍSÍMí MÍ e ■ \m i .Tpgafra zls' 1 19 ■X /j,4 i / A \ \ ii •ft \ ’ l [ú ■'t-^^Æ . Æ m Bft ' j r > i ■v y 1" i \ w m f.-\ ly Gljáandi silki var áberandi í kvöldfatnaöinum sem tískuhönnuðir sýndu í Mílanó núna í vikunni. Þar er nú verið að kynna tískuna fyrir næsta haust og vetur. Sfmamynd Reuter Winona Ryder reið út í Elísabetu Bretadrottningu Leikkonan Winona Ryder er sögð reið út í Elísabetu Englands- drottningu þar sem hennar há- tign var mótfallin því að haldin væri konungleg frumsýning á myndinni The Crucible í London. Kvikmyndin fjallar meöal annars um ótryggð en drottningin þarf víst ekki að fara í kvikmyndahús til þess að kynnast slíku háttemi. Nánustu ættingjar hafa séð til þess.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.