Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Blaðsíða 28
36 MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 1997 y -i t ^ 'k Helgidómur en ekki kabaretthús „Hið eina sem ég er „sekur um“ í því máli er að hafa haft þá sannfæringu, að kirkjan væri helgidómur en ekki kabaretthús, og að þjónar hennar ættu að vinna að því að gera Guð dýrðleg- an en ekki sjálfan sig.“ Sr. Flóki Kristinsson um Lang- holtskirkjumálið, í Morgunblað- inu. Samtök á leið út? „Þegar samtök eru komin svona neðarlega, er mjög erfitt að efla tiltrú kjósenda sama hvað við gerum." Guðný Guðbjörnsdóttir alþingis- maður um niðurstöður skoðana- kannana, í Degi-Tímanum. Sósíalisti í hjartanu „Ég er sósíalisti í hjarta þó ég hafi verið svart íhald.“ Steingrímur St. Th. Sigurðsson myndlistarmaður, í Alþýðublað- inu. Ummæli Skjótum okkur í hausinn „Við erum ekki bara að skjóta okkur í löppina, með því að hefja hvalveiðar, við skjótum okkur í hausinn." Magnús H. Skarphéðinsson, í Degi-Tímanum. Drengurinn sem stýrir Hagkaup „Hann var með hótanir í þessa veru, drengurinn sem stýrir Hag- kaup, og það er þá best að hann kynnist því hvar Davíð keypti ölið.“ Jón Karlsson, verkalýðsleiðtogi á Sauðárkróki, um flutning mjólkur á höfuðborgarsvæðið, í Alþýðu- blaðinu. Aö fara í dýragarö er ein helsta skemmtun barna. Dýragarðar Dýragarðar eru til af mörgum gerðum og stærðum. Talið er að hátt í þúsund dýragarðar, sem almenningur getur notið, séu til í heiminum. Fyrsta dýrasafnið, sem vitað er um, er safn sem Shulgi konungur af þriðju kon- ungsættinni í Úr (ríkti 297-294 f. Kr.) setti upp í Puzurish þar sem nú er Suðaustur-írak. Elsti dýra- garðurinn, sem vitað er um, er dýragarðurinn í Schönbrunn í Vínarborg í Austurríki. Hann lét Franz 1. keisari úbúa árið 1752 handa eiginkonu sinni, Maríu Theresu. Elsti dýragarður í einkaeign er dýragarðurinn í London en hann var stofnsettur árið 1826. Eigandi hans er Dýra- fræðifélagið í London. Aðeins hluti dýranna sem garðurinn á er til sýnis í Regents-garði í London, sem er á 14,5 hektara svæði. Hin dýrin eru í Whipsna- de-garði í Bedfordsskíri en sá garður er 219 hektarar. Blessuð veröldin Staersta friðland dýra Stærsta friðland dýra er Etosha-friðlandið i Namibíu sem stofnað var til árið 1907. Stærð þess er 100.000 ferkílómetrar. Stærsta safn vatnadýra er vatna- dýrasafnið Sidney Aquarium í Ástralíu. Heildarrými sýningar- kera þess er 3.315.400 lítrar. í safninu eru meira en 5.000 teg- undir fiska í fjölbreyttu um- hverfi og fjórar tjarnir fyrir krókódíla og skjaldbökur. Hvassviðri eða stormur Við strönd Grænlands vestur af Snæfellsnesi er víðáttumikil 954 mb lægð sem þokast norðaustur og grynnist. Veðrið í dag Suðvestlæg átt, stinningskaldi eða allhvasst verður fram eftir degi en síðan vaxandi, hvassviðri eða stormur undir kvöld og éljagangur sunnan og vestan til á landinu. Norðaustan til verður vindur held- ur hægari og léttskýjað. frost 0 til 5 stig, mildast sunnan til. Á höfuðborgarsvæðinu verður suðvestan stinningskaldi eða all- hvasst fram eftir degi en síðan vax- andi, hvassviðri eða stormur undir kvöld. Éljagangur og vægt frost. Sólarlag í Reykjavík: 18.59 Sólarupprás á morgun: 08.18 Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.34 Árdegisflóð á morgun: 04.09 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri hálfskýjað -1 Akurnes snjóél 0 Bergstaöir hálfskýjaö -3 Bolungarvík snjóél -4 Egilsstaöir Keflavíkurflugv. snjóél -2 Kirkjubkl. snjóél -3 Raufarhöfn alskýjaö -í Reykjavík snjóél á síö. kis. -3 Stórhöföi snjóél -1 Helsinki heiöskírt -1 Kaupmannah. hrímþoka -3 Ósló skýjaö -1 Stokkhólmur skýjaó -2 Þórshöfn rigning 6 Amsterdam þokumóöa 8 Barcelona þokumóða 10 Chicago alskýjað 1 Frankfurt skýjaö 8 Glasgow léttskýjaö 6 Hamborg léttskýjað 3 London súld 8 Lúxemborg rigning 8 Malaga þokumóöa 8 Mallorca þoka 7 Miami París skýjaö 8 Róm þokuruöningur 8 New York þokumóða 3 Orlando heiöskírt 21 Nuuk léttskýjað - -25 Vín hrímþoka -3 Winnipeg heiöskirt - -21 Rósmundur Ingvarsson, fyrrum bóndi: Úr búskapnum yfir í örnefnasöfnun DV, Fljótum: Styrk úr Fræðasjóði Skagfirð- inga var fyrir skömmu úthlutað og hlaut Rósmundur Ingvarsson, fyrrverandi bóndi á Hóli í Tungu- sveit, styrkinn, að upphæð 50 þús- und krónur, vegna þess mikla starfs sem hann hefur innt af hendi undanfarin ár við söfnun ör- nefna i Lýtingsstaðahreppi og skráningu þeirra. Rósmundur hefur fengist við Maður dagsins örnefnasöfnun um árabO en það er þó einkum síðustu þrjú ár, eftir að hann hætti búskap, sem hánn hef- ur einbeitt sér að þessu áhugamáli sínu og með þessari söfnun sinni hefur hann gert mikið gagn og á vinna hans eftir að nýtast mörgum. Það er langt síðan Rósmundur fékk áhuga á ömefnum og hefur sá áhugi síst minnkað með ámnum Rósmundur Ingvarsson fræði- maöur. DV-mynd Örn í umsögn sjóðstjómar með styrkveitingunni segir m.a.: „Ömefnaskrár þær sem þú hef- ur unnið að seinustu ár eru sér- staklega ítarlegar og vel unnar. Með þeim bjargar þú miklum fróö- leik um þær jarðir sem þú fjallar um. Stjóm Fræðasjóðsins þakkar þér og vill votta þér viðurkenn- ingu fyrir framlag þitt til varð- veislu menningarverðmæta og biður þig vel að njóta.“ Fræðasjóður Skagflrðinga var upphaflega stofnaður 1962. Helstu hvatamenn að stofnun hans vora hjónin Jón Sigurðsson og Sigrún Pálmadóttir á Reynistað og lögðu þau fram stofnfé. Hlutverk sjóðs- ins er að stuðla að því að Skagfirð- ingar rannsaki og riti um sem flesta þætti í sögu héraðsins og starf Rósmundar fellur vel undir þá skilgreiningu. Hefur verið út- hlutað úr sjóðnum frá 1964 en þó ekki á hverju ári. Styrkþegar eru allmargir, einkum þeir sem fást við söguritun og margvísleg fræði- störf. Hjalti Pálsson skjalavörður er formaður stjómar. -ÖÞ Myndgátan Meðalgöngumaður Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. slandsmeistarar Hauka, sem hér sjást í leik gegn Stjörnunni, hefja vörn titilsins i kvöld gegn Val. Úrslitakeppn- in hafin hjá konunum Úrslitaképpnin i 1. deild kvenna í hanboltanum er hafin og vora fyrstu tveir leikirnir leiknir í gærkvöldi. í kvöld hefja íslandsmeistarar Hauka vörn tit- ilsins og leika fyrsta leikinn gegn Val. Hefst sá leikur kl. 20.00. Kl. 18.15 leika FH og KR. íþróttir Karlamir í handboltanum standa einnig í stórræðum en í kvöld verður leikin 17. umferðin í 1. deild og em margir spenn- andi leikir á dagskrá. Stórleikur umferðarinnar er í Garðabæ, en þar tekur Stjaman á móti KA. I Kaplakrika keppa FH- Fram, á Selfossi Selfoss-HK, í Valsheim- ilinu Valur-Grótta, í Mosfellsbæ Afturelding-ÍR og í Vestmanna- eyjum leika ÍBV-Haukar. Tveir leikir era í 2. deild karla í kvöld. Á Akureyri leika Þór-Fylkir og í Hafnarfirði ÍH-HM. Bridge Á Forbo-boðsmótinu í Hollandi í síðasta mánuði mættu landslið fjög- urra þjóða til óformlegrar keppni, ítalir, Bandaríkjamenn, Frakkar og Hollendingar. ítalir höfðu öraggan sigur i þeirri keppni. Hollendingar græddu heila 20 impa á þessu spili í leiknum við Bandaríkjamenn. Bæði pörin í NS komust alla leið í 7 hjörtu á spil NS en úrspilið var betra hjá Hollendingunum: é ÁKG5 «» 108764 ♦ 3 * ÁK5 —fj— f D108762 V A v A ♦ D97 S * D106 ♦ 4 * ÁKD53 ♦ Á85 * G932 ♦ 93 «» G2 •f KG10642 * 874 Hollendingurinn Bert Kranen- borg sýndi mikla framsýni þegar hann drap hjartaútspil vesturs á ás og spilaði strax tígulás og trompaði tígul. Nú hafði hann samgang i spil- inu til að trompa síðasta tigulinn, taka háspilin í laufi og spila sig til baka á tromp í þessari stöðu: ♦ ÁKG * 93 -- •f K * 8 f — * 5 f D108 «» -- f -- * D f 4 *» 5 f — * G9 í vöminni voru Hamman (V) og Wolff (A) og þegar Kranenborg spil- aði síðasta trompinu varð Wolff að henda spaða, því laufdrottninguna mátti hann ekki missa. Kranenborg þurfti samt sem áður að lesa i stöð- una og það gerði hann með því að hafna spaðasvíningunni. Á hinu borðinu var Nick Nickell sagnhaf- inn og hann klúðraði samgangnum með því að taka tvisvar hjarta áður en hann trompaði tígul. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.