Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Page 32
L«TT« a§vínna s... FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFIIR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Launatil- boö í dag Fastlega er búist við gagntilboði Í! * vinnuveitenda í dag hvað launalið kjarasamninganna varðar. Sam- kvæmt heimildum DV verður til- boðið upp á tvisvar sinnum 5 þús- und króna hækkun á alla taxta og samninga til tveggja ára. Þeir aðilar innan verkalýðshreyf- ingarinnar sem DV hefur rætt við segja þetta tilboð ekki aðgengilegt. Og það sem fer verst í menn er sú krafa vinnuveitenda að álagspró- sentan í yfirvinnu lækki frá því sem nú er. Sú krafa er tilkomin vegna þess að hluti af bónusi og öðrum kaupauka hefur verið færður inn í dagvinnutaxta. í morgun var ríkjandi ótti um að þegar launatilboð VSÍ kemur fram 3 muni mjög fljótlega slitna upp úr samningaviðræðum. -S.dór Kjarasamningar: Samið við Stöð 2 og Bylgjuna í gærkvöldi var gengið frá nýjum kjarasamningum milli íslenska út- varpsfélagsins annars vegar og VR, Rafiðnaðarsambandsins og Blaða- s^mannafélagsins hins vegar. Samið var um 14 prósenta launahækkun sem er það sama og VR samdi um við stórkaupmenn. Hafnarverkamenn hafa greitt at- kvæði um verkfallsboðun hjá Eim- skip, Samskipum og Löndun. Verk- fallsboðunin var samþykkt með 89,8 prósentum atkvæða. -S.dór Hvalveiðar: Kemur ekki á óvart DV, Akureyri: „Mér finnst sjálfsagt að við hefj- um hvalveiðar en ekki við þær að- stæður sem eru til staðar í dag. Við eigum ekki að fara í viðskiptastríð til þess eins að þjóna einhverjum þjóðrembusjónarmiðum," segir Hörður Sigurbjamarson sem á og stýrir fyrirtækinu Norðursiglingu á Húsavík, öflugasta fyrirtæki lands- ins þegar hvaiaskoðun er annars vegar. Hörður segir að tölurnar í skoð- anakönnum DV komi sér ekki á óvart. „Ef hringt hefði verið til mín hefði ég getað svarað þeirri spum- ingu játandi hvort við ættum að hefja hvalveiðar en ég hefði bætt við að til þess þyrftu ákveðnar for- ýjgendur að fyrir fyrir hendi. Eins og staðan er í dag er það hins vegar óskynsamlegt," segir Hörður. -gk Drög að innleggi ríkisstjórnarinnar í kjarasamningana tilbúin: Taliö að pakkinn muni kosta 4 til 5 milljarða - rætt um hækkun persónuafsláttar og barnabóta og lækkun jaðarskatta Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði, eftir fund sem hann og Páll Pétursson félagsmálaráðherra áttu með fulltrúum Alþýðusambands íslands í gær, að sá pakki sem rík- isstjórnin ætlaði að leggja til lausnar kjarasamningum væri til- búinn. Hann vildi hins vegar ekki gefa upp hvað i honum fælist fyrr en séð væri um hvað aðilar vinnu- markaðarins semdu. DV hefur fyrir því heimildir að drög að þessum pakka ríkis- stjórnarinnar liggi fyrir en ná- kvæm útfærsla ekki. Samkvæmt sömu heimildum er talið að pakkinn kosti ríkissjóð um 4 milljarða króna á ári en geti far- ið upp í fimm milljarða eftir því hvernig endanleg útfærsla verð- ur. Helstu atriðin sem um er að ræða í þessum pakka eru lækkun svokallaðra jaðarskatta. Það þýðir aö tekjutenging bóta verður miðuð við mun hærri tekjur en verið hef- ur til þessa. Þá er gert ráð fyrir að barna- bætur og bamabótaauki hækki frá því sem nú er. Einnig er gert ráð fyrir hækkun persónuafsláttar til skatts. Sú hækkun mun ráðast af því hvað samið verður um miklar launa- hækkanir. Verkalýðshreyfíngin mun vilja miða við lágmarkslaun sem hún hefur krafist að verði 70 þúsund krónur. Talið er að þessi hækkun persónuafsláttar muni kosta rnn einn milljarð króna. Á dögunum lögðu talsmenn verkalýðshreyfingarinnar til að tekin yrðu upp tvö skattþrep í tekjuskatti, það er að við núver- andi skattþrep bætist 37 prósenta skattþrep sem gildi fyrir laun sem eru 150 þúsund krónur á mánuði eða lægri. Forsætisráðherra lagðist gegn þessari hugmynd en sagði að til greina gæti komið að skoða lækk- un tekjuskatts niður í 40 prósent. Hæpið er talið aö bæði lækkun tekjuskattsþreps og hækkun per- sónuafsláttar verði í pakka ríkis- stjómarinnar. -S.dór Arleg stefna prófasta hófst meö messu í Dómkirkjunni í gær. Á þessu ári verða miklar breytingar í stétt prófasta þar sem fimm þeirra láta af embætti. Dr. Gunnar Kristjánsson hefur veriö skipaður prófastur í Kjalarnesprófastsdæmi í staö séra Braga Friðrikssonar. Hér skrýöist biskup, herra Ólafur Skúlason, fyrir messuna í gær. DV-mynd ÞÖK Válisti VR: Hagfræöi andskotans - segja Bónusmenn „Ég segi að það sé hagfræði and- skotans ef hægt er að núa mönnum því um nasir að hafa rangt við. Þetta er rógburður af verstu gerð því hér getur fólk haft ágætar tekj- ur því það má vinna mikið. Það hefur aldrei drepið neinn að vinna en okkur er velt upp úr þess af því að almenningur kaus okkur vin- sælasta fýrirtæki ársins í Frjálsri verslun. Þetta fer illa í mig en ég veit ekki með viðskiptavininn,“ segir Jóhannes Jónsson í Bónusi en fyrirtæki hans var eitt af 50 neðstu fyrirtækjunum á válista Verslunarmannafélags Reykjavík- ur, með háan veltuhraða en greiða lág laun. Af 170 fyrirtækjum á lista VR má nefna að þau 10 neðstu eru Bónusvídeó, Kvikmyndahúsið, Aktu - Taktu, bakarí Harðar Krist- jánssonar, tískuvöruverslunin Eva, Neisti, Kjöthöllin og Stjömu- bíó. Meðal 50 neðstu eru síðan t.d. Bónus, Nóatún, Hagkaup, Myllan- Brauð o.fl. Meðal efstu fyrirtækjanna eru Sjóvá-Almemnar og Tæknival. „Það eru engin tíðindi að fólk stoppi stutt við i stéttinni og ég held að nær væri fyrir VR að að einbeita sér að því að gera þetta að fagi svo fólk nyti þess að vinna við það sem það kann,“ segir Jóhannes. -sv L O K I Veðrið á morgun: Léttskýjað norðaust- anlands Á morgun er gert ráð fyrir suð- vestanátt á landinu og éljagangi sunnan- og vestanlands. Léttskýj- að verður norðaustanlands. Vægt frost. Veðrið í dag er á bls. 36 Kvöld- og helgarþjónusta MERKILEGA MERKIVELIN brother PT-2pa íslenskir stafir 5 leturstærðir 8 leturgerðir 6, 9 og 12 mm prentborðar Prentar í tvær linur Verð kr. 6.995 ■ Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.