Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1997, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1997, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 1997 Spurningin Feröu í fermingarveislu í ár? Birgir Stéfánsson sjómaöur: Já, ég fer í eina. Þorsteinn Kjartansson, atvinnu- laus: Nei, ekki þetta árið. Margrét Bjömsdóttir húsmóðir: Nei. Birgir Engilbertsson múrari: Já, eina. Baldur Hreinsson trésmiður: Já, ég fer í eina fermingarveislu í ár. Páll Pálsson trésmiður: Nei. Lesendur Allt hækkar: skattar, skuldir og vextir Skuldir heimila - hlutfall skulda og ráöstöfunartekna - '90 '91 '92 '93 '94 '95 '96 Nauðungaruppboð 700 íbúöir - á íbhúsn. einstaklinga aö kröfu Húsnæöisstofnunar - 600 500 Kaupmáttur dagvinnulauna F5T»I Er mjög farinn aö efast um kannanir sem ganga þvert á staö reyndir úr daglegu lífi og afkomu aimennings, segir m.a. bréfinu. Sveinbjörn Sigurðss. skrifar: Það er verið að upp- lýsa okkur um að kaup- máttur launa hafi auk- ist á einhverju nýliðnu árabili, og vitnað m.a. í rannsóknir Kjararann- sóknamefhdar. Mestur hafi kaupmátturinn aukist hjá skrifstofu- fólki, og það meira að segja mest hjá konum, hvemig sem það á nú að hafa gerst. Ég er mjög farinn að efast um svona kannananir sem ganga í berhögg við staðreyndir úr daglegu lífi og afkomu almenn- ings. Staðreyndin er sú, að skattar hafa aukist ár frá ári, vextir hafa ekki lækkað að neinu marki og hafa verið mjög óstöðugir síðustu ár. Skuldir heimila og einstaklinga hafa hækkað gífúrlega á síð- ustu tveimur ámnum eða svo og hlutur sjúk- linga í lyíja- og sjúkra- kostnaði hækkað hægt en örugglega. Um síð- ustu áramót hækkaði t.d. svokallað stofngjald lyíja og munar talsverðu fyrir sjúklinga sem nota lyf að staðaldri. Samfara þessu eru bætur hvers konar og líf- eyrir aldraðra og öryrkja að lækka. Á síðustu sex árum hækkuðu skuldir heimila og einstaklinga um hvorki meira né minna en 110 millj- arða króna! Nauðungaruppboðum og gjaldþrotum fer líka fjölgandi, vom t.d. 414 árið 1993 en orðin 871 árið 1995. Hvað segir þetta okkur? Einfaldlega það, að hér er allt í farvegi hækk- unar: skattar, skuldir og vextir, en launin hafa staðið í stað. Allir finna fyrir þessu, jafnvel þeir sem hafa laun sem talin era í hærri kantinum; þetta frá 250 til 350, 400 þús- und kr. og þar yfir á mánuði. Þessir aðilar era gjaman þeir sem halda uppi eyðslunni og em þar með í mestri hættu að verða fyrr gjaldþrota. Dæmi eru sögð um þekkta einstak- linga í þjóðfélaginu í fyrmefhdum launastig- um, sem eru ýmist á barmi gjaldþrots eða nánast á sokkaleistun- um sökum ofeyðslu eða óvarkámi og vanþekk- ingu á því að lifa sam- kvæmt efnum og ástæð- um. Þetta er þjóðfélagið sem blasir við okkur á tíma- bili kjarasamninga og úrræðaleysis ráða- manna til að sætta þjóð- félagið við það hlut- skipti að ekki sé meira til skiptanna en aflað hefur verið. Að ógleymdum sífellt hækkandi erlendum lánum sem enginn veit hvenær verða greidd eða hvort þau verða nokkru sinni greidd. Leið til lausnar í samningamálunum - rauö strik, afturvirkur samningur og eingreiösla Sigurþór skrifar: Það er ekki einleikið hvernig for- ystumenn VR og Rafiðnaðarsam- bandsins gátu leikiö af sér í samn- ingum fyrir umbjóðendur sína. Maður hallast að þvt að þeir séu báðir beintengdir við forystumenn ríkisstjómarinnar eins og Sigmund lýsir því í skopmynd sinni í Morg- unblaðinu sl. helgi. Besta leiðin til lausnar í yfir- standandi kjaraviðræðum var auð- vitað sú að ríkisstjórnin nýtti sér það tækiifæri sem hún fær aldrei aftur: að afnema tekjuskattinn að fullu og láta svo aðilum vinnumark- aðarins eftir að beijast um afgang- inn. Þá heföu vinnuveitendur ekki átt annars úrkosti en semja um 90 eða 100 þús. kr. lægstu laun. Leiðin til lausnar nú er að samþykkja rauðu strikin sem vamagla fyrir launþega, að samningar gildi frá síðustu áramótum og nokkur ein- greiðsla komi til við undirritun samnings. Á fyrstu þáttunum tveim- ur á að standa föstum fótum. Ein- greiðslunnar er ekki hægt að krefj- ast, en hún gæti verið drengskapar- boð af háifu vinnuveitenda til að bæta launþegum upp að nokkm það tap sem þeir hafa orðið fyrir í tveimur þjóðarsáttum sem engir aðrir en atvinnurekendur nutu góðs af. Hættir Kattholt starfsemi? þjónusta allan Jón Sigurðsson skrifar: Ég og fjölskylda mín höfum verið viðskiptavinir við Kattholt, hús Kattavinafélags íslands, gegnum tíð- ina og átt aldeilis prýðileg sam- skipti við þennan indæla samastað hinna ferfættu vina okkar. Við höf- um ávallt haft kött á heimilinu frá því að við hjónin stofnuðum heim- ili. Sennilega vani sem okkur hjón- unum báðum entist frá uppeldisár- unum. Við höfum átt marga ketti gegnum árin og ekkert það komið upp sem raskað hefur ró heimilis eða nágranna. Stöku sinnum hefur þurft að end- urnýja heimilisköttinn því viö höf- um ávallt fress, sem okkur þykir hentugra. Viö höfum leitað til Katt- í sfma 5000 kl. 14 og 16 Margir myndu harma ef Kattholt hætti starfsemi sem er oröin gróin og þekkt f borginni. - Á heimili kattanna, Kattholti. holts þegar við höfum þurft að yfir- gefa heimilið um stundarsakir eink- um nú síðari árin og þar hefur kisa okkar verið geymd í góðu yfirlæti. Kattholt hefur því verið heimsótt nokkuð oft á undanförnum árum. Nú þykir okkur hins vegar bregða til hins verra, því við höfum hlerað að svo kunni að fara að Katt- holt hætti starfsemi sinni. Ég vildi fá eitthvað meira að vita um þetta og því hringdi ég í Kattholt til að fá frekari upplýsingar. Þar var mér sagt aö þetta væri ekki alls kostar rétt, reksturinn væri sífellt þungur en ekki væri neitt afráðið um hvort loka þyrfti starfseminni, það væri undir ýmsu komið. Ég veit að margir myndu harma það ef Kattholt hyrfi því þessi starf- semi er orðin gróin og þekkt í borg- inni. Fróðlegt væri að fá meira að heyra um málið, og treysti ég DV til að kanna þetta frekar, þótt ekki sé nema vegna hinna mörgu sem eiga viðskipti við þetta rómaða aðsetur okkar ferfættu vina í meðlæti þeirra og mótlæti. H>V Þrir ættliðir á sjó Magnús Guðjónsson hringdi: í Morgunblaðinu í síðustu viku birtist frétt ásamt mynd af mönnum, föður syni og barna- bami, sem höfðu verið á vélar- vana bát við Vestmannaeyjar. Mér finnst þetta ekki vera nema til að fordæma. Viija íslending- ar ekki læra neitt? Eru þessir menn að storka örlögunum, eða eru þeir bara svona heimskir eins og allir aörir sem eru að taka með sér syni sína eða barnaböm á flskifleytumar? Hefðu mennirnir farist hefði samúðin ekki mælst mikil með ættingjunum sem gerðu ekkert til að stöðva ósómann. Til þín og strax í veskið! Ambjöm skrifar: Henni ætlar ekki að linna vit- leysunni í þessu þjóffélagi okkar. Nú skal sent heim til okkar allra, 18 ára og eldri, umslag í pósti og í því kort sem „þú skalt setja strax í veskið" eins og segir í auglýsing- unni. Það kort á maður svo að sýna reglulega hjá „völdum" fyrir- tækjum. Allt er þetta umstang til að gera viðkomandi korthafa kleift að fara í fri. Vilt þú fljúga frítt? segir í bæklingi sem kynnti dýrð- ina. Fargjöldin auðvitað upp úr öllu valdi, þannig aö þetta er allt ein samfeUd della og dónaskapur um leið. - Nú hafa „traust og fram- sækin fyrirtæki" gengið einum of langt gagnvart almenningi sem hefur heldur enga peninga í vit- leysuna. Blóð og innyfli fyrir valinu Sveindis hringdi: Ég er hissa á að Sjónvarpið og ráðamenn þar skuli vera farið að láta fámennan hóp innhringjenda velja laugardagsmyndimar. Sl. laugardagskvöld var þama um að ræða eina mestu ofbeldismynd sem sögur fara af í íslensku sjón- varpi. Ég horföi reyndar ekki nema á svo sem fyrstu 15 mínút- umar og gafst svo upp. Þetta var bara blóð og innytli sem flutu um aUan skerminn. Hvað er svona mikið að í stjómun Ríkisútvarps- ins að það hyUist tíl aö sýna okk- ur heimasiijandi svona laugar- dagsmyndir? Nóg er tíl af góðum kvikmyndum. Vogiö ykkur ekki að bjóða okkur svona framvegis. Ritf Bjerregaard enn á ferðinni Siguijón Jónsson hringdi: Þar sem mikið hefur verið rætt og ritað um dagpeninga ráðherra, þingmanna og opinberra embætt- ismanna á ferðalögum erlendis riflaðist upp fyrir mér vegna frétt- ar um hingaðkomu Ritt Bjer- regaard, umhverfisstjóra ESB, þegar kona þessi var danskur ráð- herra á feröalagi í París fyrir ein- hveijum árum og var látin víkja úr ráðherraembætti fyrir að leigja lúxusíbúð og aka um í leigubUum á kostnað danskra borgara. Nú er þessi sama Ritt á ferð hér á landi tU að forvitnast um stefhu íslend- inga 1 umhverfismálum og setja okkur fyrir í þeim málum. Eigum við að taka mark á þessum fyrr- verandi danska brottvUoia ráð- herra sem nú er kominn í feitt í Brússel? Verkalýðsleiðtog- ar og VSÍ Ómar hringdi: Það er óhugnanlegt hversu sam- mála þeir em, verkalýðs- leiðtogamir og forystumenn VSÍ, um að halda lífeyrissjóðamálun- um í spennitreyju. Fróðlegt var að hlýða á þá Sigmund Gunnlaugs- son og Agúst Einarsson í útvarps- umræðum sl. sunnudag. Sigmund- ur sagöi sannleikann um þetta samspU; sagði þeim liða bara vel á meðan ekkert breyttist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.