Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1997, Side 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 1997
Neytendur
Vort daglega
brauð hækkar
„Eg hélt aö menn væru að gera
samninga sem ekki ættu að leiða til
hækkana. Því finnst mér útskýring
brauðframleiðenda um launahækk-
anir ekki standast," segir Jóhannes
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Neytendasamtakanna, um 10%
hækkanir á brauðum.
Jóhannes segir að Neytendasam-
tökin og verkalýðsfélögin hafi rætt
saman um sameiginlegt verðlagseft-
irlit í kjölfar kjarasamninga. Enn
hafi ekki unnist tími til að fullmóta
það samstarf vegna samningavið-
ræðnanna.
Aðföng og laun hækka
Myllan og Samsölubrauð riðu á
vaðið með hækkanir en aðrir eru að
sigla í kjölfarið.
„Það vekur athygli að þessi tvö
fyrirtæki, Samsölubrauð og Myllan,
koma samtímis með sömu hækkan-
ir,“ segir Jóhannes.
Georg Hauksson, sölustjóri Sam-
sölubrauða, segir að verðhækkunin
sé tilkomin vegna samverkandi
þátta, aðallega vegna hækkunar á
aðfóngum erlendis.
„Samkeppnin hefur verið mjög
grimm síðustu tvö ár og ekki geng-
ið að hagræða samkvæmt því.
Raunverulegt verð til neytenda var
of lágt. Vö höfum fengið tilkynningu
um hækkun á plasti og frakt, auk
þess sem heimsmarkaösverð á
hveiti hefur hækkað. Kauphækkan-
ir í samningi Iðju og VR koma mjög
illa við okkur og þýða á ári um 30
milljóna króna kostnaðarauka," seg-
ir Kolbeinn Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Myllunnar.
Hækkun í bígerö hjá KEA
Hjá Brauðgerð KEA fengust þær
upplýsingar að hækkun á brauð-
verði væri í skoðun en ekki komin
til framkvæmda.
„Við erum að fara yfir kostnaðar-
liði hjá okkur og ljóst að hækkanir
eru á döfinni. Þær eru aðallega
vegna hækkunar á hráefni en
launahækkanir koma þar inn í líka.
Launaliðurinn vegur mjög þungt í
framleiðslu á brauðum. Ég býst
ekki við að hækkunin verði 10% flöt
hækkun heldur mismunandi eftir
brauðgerðum," segir Jörundur
Traustason, brauðgerðarstjóri hjá
KEA. -jáhj
Nýlegar veröhækkanir á brauðum eru um 10%. Myllan og Samsölubrauð
riðu á vaðiö en aðrir fylgja í kjölfarið.
P Fkrtt virtar KU MH Utm
lUpftrtuiiMtMÍanltS HMMM
09 ckift ftulki
SNlOarirtani {u. 9sQ9 frá
barafanun akofiil oq aeiag
mwftm
á skciðararsandi
AKSTUR íf tcc' LANcreBC'ABirnciC' rn.Á GuC'I.iunci Tvnrincobyni)
L.E tC' saciM
Þuf-il G Ci I Im RCTTm MMLTIC ll VCIDLUOAL HÖTCLO liÖrC'A.CRCKKU)
t3 ISTINC (ATH . VCfJC' MIC'ABT VIC' TVQ I HenBenci)
M ORGUN I ImTUR
AöGANGUR OG KAFFI i FERC'mMmNNmFJOSINU.
Allt þetta fyrir Aðeins lcr.
TRYBGie TKKUR 5ÆT I 5TRAX
Aliax upplysingar ogpantanir hjá f Íj
E\Tavegi 1 800 Selfossi
Sani 482 3444 Fax 482 3443
Ingi Þór Jóhannsson, verslunarstjóri í varahlutadeild Heklu, vigtar brettin á
Pajero. DV-mynd Pjetur.
Gæðin
kosta meira
- segir Finnbogi Eyjólfsson hjá Heklu
„Verð og gæði fylgjast oftast aö.
Það er ekki nóg aö vísa bara á verð-
ið þegar tveir varahlutir eru bornir
saman,“ segir Finnbogi Eyjólfsson
hjá Heklu vegna verðkönnunar sem
DV birti síðastliðinn þriðjudag á
varahlutum í Pajero-jeppa. Borið var
saman verð hjá Heklu annars vegar
og Fjöðrinni hins vegar og var niður-
staðan sú að varahlutir í Heklu voru
mun dýrari. Meðal annars var verð á
hægra frambretti mun hærra hjá
Heklu. Verðið er 23.959 en ranglega
var sagt að það kostaði 30.668 kr. en
það verð gaf Hekla upp.
Finnbogi serir að Hekla selji að-
eins varahluú frá' framleiðanda í
Japan en varahlutirnir sem Fjöðrin
selur eru frá Tævan. Hann bendir á
að eftirlíkingin sé í öllum tilfellum
lakari en varan frá framleiðanda.
Þykkara stál
Finnbogi og Ingi Þór Jóhannsson,
verslunarstjóri í varahlutadeild
Heklu, vigtuðu meðal annars bretti í
vitna viðurvist og kom í ijós að eftir-
líkingin er 600 g léttari.
„Stálið er betra og þykkara í þeim
brettum sem við seljum. Þykkt stáls-
ins er mikið öryggisatriði en einnig
endist það betur og ryðgar síöur.
Einnig er grunnurinn betri en bíla-
málarar hafa fullyrt að það þurfi að
vinna eftirlíkinguna alveg ofan í járn
fyrir málun,“ segir Ingi Þór og bend-
ir á að frágangur eftirlíkingarinnar
sé mun verri en á þeim brettum sem
Hekla selur. Hann segir að eftirlík-
ingarnar séu ekki nægilega vel unn-
ar og oft muni töluverðu á stærð. Það
geri viðgerðarmönnum erfitt fyrir og
því taki vinnan fleiri daga sem auð-
vitað eykur kostnaö bíleigandans.
Viðgerðarmenn Heklu settu bretti
frá Fjöðrinni á bíl hjá sér og kom í
ljós að það passaði mjög illa.
Munur á Ijósum
Einnig var borið saman verð á
hægra framljósi og segir Ingi að Ijós-
ið sem Fjöðrin selji hafi ekki E-merk-
ingu en slík merking er ákveðinn
gæðastaðall.
„Það þarf ekki annað en að bera
þessi tvö ljós saman til að sjá aö
frumgerðin frá framleiðanda er mun
betri og sama er að segja um alla
varahluti. Frumgerðin er betri,“ seg-
ir Ingi Þór Jóhannsson. -jáhj
Verðkönnun á lyíjum:
Samkeppnin
hefur skilað
verðlækkun
Samkeppnin á lyfjamarkaðnum
hefur skilað verðlækkun á lyfjum,
samkvæmt könnun Samkeppnis-
stofnunar á lyfjaverði. Könnunin
var gerö 17. mars í 30 lyfjaverslun-
um á höfuðborgarsvæðinu. Kannað
var verð á 32 algengum lyfjum, bæði
lyfjum sem eru seld í lausasölu og
lyfjum sem seld eru samkvæmt lyf-
seðli. Könnunin var tvískipt, það er
verð til almennra sjúklinga annars
vegar og elli- og örorkulífeyrisþega
hins vegar.
Verðmismunur var lægstur 35%
á Hýdramíl til almenns sjúklings en
hæstur var verðmunurinn 354% á
Ventoline, innúðalyfi til elli- og
örorkulífeyrisþega. Algengur verð-
munur er 50-80%. Breiðholtsapótek
og Apótekið Smiðjuvegi 2 voru oft-
ast með lægsta verðið.
-jáhj