Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 1997 gur í lífi *• Dagur í lífi Sigurðar Helgasonar hjá Umferðarráði og fjölskyldu sem undirbýr fermingu 2. í páskum: Sagan endurtekur sig með mjólkurskortinn „Þennan dag eins og alla aðra virka daga fara allir á heimilinu á sína vinnustaði. Bömin í skólann og foreldrarnir til sinna verka. Verkefni mín hjá Umferðarráði eru margvísleg og dagamir geta því orðiö hver öörum ólíkir. Að þessu sinni var ég ekki í útsend- ingum í útvarpi Umferðarráðs en það er hluti af mínu starfi. Að undanfömu hafa hlutimir að talsveröu leyti snúist um stóran dag hjá Sigríði dóttur okkar, sem er annar í páskum, en þá verður hún fermd í Áskirkju. Þar er ekki í kot vísað hjá sóknarprestinum Árna Bergi Sigurbjörnssyni og hans samstarfsfólki. Skortur á nauðsynjum Sagan viröist endurtaka sig því að verkfallsástand og skortur á margvíslegum nauðsynjum þegar veisla af þessu tagi er annars veg- ar var einnig á fermingardegi mín- um fyrir þó nokkuð mörgum árum. Segja má að þá hafi tilveran snúist um hvort hægt væri að fá rjóma. Hann er nefnilega aldrei nauðsynlegri en þegar hann fæst ekki. Þá var líka verkfall í Reykja- vík og er haft í minnum í fjölskyld- unni þegar móðursystir mín ágæt kom meö ijómann vestan af Snæ- fellsnesi. Það var hins vegar ekki heiglum hent því að mikið snjóaði í marsmánuði árið 1968 og tók það hana hátt í tvo sólarhringa að komast frá Hellissandi til Reykja- víkur. En það tókst. Njósnarar úr vinahópi Miklar áætlanir hafa verið í gangi um hvemig hægt sé að nálg- ast rjóma og um allan bæ eru njósnarar úr vinahópi okkar að huga að því hvort hann sé ein- hvers staðar á boðstólum. Ein sam- verður að vera í lagi þegar mikið stendur til og stundum heldur maður þegar málin eru hugsuð í þaula að athyglin hljóti fyrst og fremst að beinast að manni sjálf- um. Slíka alúð leggur fólk í að vera fint og flott. Hárgreiðslumeistari á heimsmælikvarða er í fjölskyld- unni og fórum við til hans eftir að rjóminn komst í höfn og erum klippt samkvæmt nýjustu línum. Oft vill það vera þannig að fólk álítur að börn nútímans fermist fyrst og fremst af hagsýnisástæð- um. Nýleg könnun bendir til ann- ars og hef ég ríka ástæðu til að ætla að of oft sé því ranglega hald- ið fram. Mestu máli skiptir auðvit- að að börnin fái tækifæri til að vega og meta hvort þau vilja ferm- ast og til þess þurfa þau að hafa fengið að kynnast þeim grundvelli sem kristin trú er reist á. Fyrir Sigríði var ákvörðunin enginn vandi. Eftir að hafa sótt bama- messur og tekið virkan þátt í fé- lagsstarfi í kirkjunni lá beint við að fermast. Og ekki sakar að mikil alúð er lögð í allan undirbúning og að sérhvert fermingarbarn fékk gefins bókina einu sönnu, Biblí- una, frá Safnaðarfélagi Áskirkju um það leyti sem fermingarundir- búningurinn hófst. Stór dagur Fermingardagurinn er stór dag- ur í lífi hvers manns og því er mik- il áhersla lögð á að gera hann ánægjulegan, enda er þetta eins konar fjölskylduhátíð. Líklega fylg- ir því viss léttir þegar þetta verður yfirstaðið en þó jafnframt söknuð- ur að vita að þessum þætti í fól- skyldulífi okkar er lokið því að Sigríður er yngsta bamið á heimil- inu. En við huggum okkur við að eitthvað annað hlýtur að koma í staöinn." Fjölskyldan t önnum f eldhúsinu á Kleppsveginum viö undirbúning fermingar Sigríöar annan í páskum. Siguröur Helgason og Anna Stefánsdóttir meö tilvonandi fermingarbarn á milli sín. DV-mynd S starfskona frúarinnar hringdi um kvöldmatarleytið og sagði að í verslun einni í Kópavogi væri til rjómi og var þá ekki til setunnar boðið heldur ekið af stað og viti menn; það er til rjómi og við fór- um aftur heim, alsæl. Ekki eru famar neinar óþarfar ferðir á bíln- um til að bensínið á tanknum dugi sem lengst. En maður veltir fyrir sér hvað valdi því að menn þurfi að fara í verkfall til að fá 70 þús- und í mánaðarlaun. í raun og veru geta slík laun ekki talist vera nein ofrausn. Verið er að leggja línur um fermingardaginn. Strax í haust var fenginn salur til veisluhalda og frúin ber hita og þunga af gerð veislufanga og nýtur þar vel þeg- innar aðstoðar margra vinkvenna sem eru boðnar og búnar að hjálpa. Fermingarkjóllinn var keyptur á útsölu í janúar, enda er rík áhersla lögð á hagsýni vegna fermingarinnar. Hugað að útlitinu Svo þarf að huga að útlitinu. Það Finnur þú fimm breytingar? 404 svt? Ég hef miklar áhyggjur af heilbrigöl konunnar minnar, læknir! Þaö er nánast ómögulegt aö losna viö hana. Nafn:. Heimili: Vinningshafar fyrir fjögur hundruðustu og aðra getraun reyndust vera: Stefania Ásgeirsdóttir Túngötu 18 101 Reykjavík Halldóra Ólafsdóttir Yrsufelli 11 109 Reykjavík Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kem- ur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfh sigurvegar- anna. 1. verðlaun: SHARP-vasadiskó með útvarpi, aö verðmæti kr. 3.950, frá Bræðmnum Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur, að verömæti kr. 1790 - Ógnarást eftir Lindu Randall Wisdon og Sinnaskipti eftir Lyndu Kay Carpenter. Vinningarnir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 404 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.