Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Side 28
48
MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 1997
J ' ~r , j -
i _ .___ _
Verðmunur á hótelum í Þýskalandi:
Storlækkað verð í austurhlutanum
Ferðamenn sem koma til austur-
hluta Þýskalands og gista á góðum
hótelum þar geta lifað eins og kóng-
ar og borgað aðeins hluta af þeirri
upphæð sem þeir myndu borga fyrir
sömu þjónustu í vesturhluta lands-
ins eða öðrum löndum V-Evrópu.
Síðan að Berlínarmúrinn „féll“
árið 1989 hafa margar stórar hótel-
keðjur staðið fyrir byggingu hótela í
austurhlutanum. Skattaívilnanir og
spádómar um uppgang í austur-
hluta landsins hafa dregið að fjár-
magn og framkvæmdir. Mikil vönt-
un var á góðum hótelum í þessum
hluta landsins.
„Það höfðu engin mannsæmandi
hótel verið byggð í austurhluta
Þýskalands í næstum þvi fjóra ára-
tugi, eða frá lokum siðari heims-
styrjaldarinnar," segir Konrad de
Vries, einn forstjóra Holiday Inn
hótelkeðjunnar. Holi-
day Inn hefur byggt
eða er með í byggingu
ein 11 ný hótel í þeim
hluta landsins sem
áður tilheyrði A-
Þýskalandi.
„Öll hótelin í land-
inu voru starfrækt og
í eigu Interhotel, sam-
steypu í eigu ríkisins.
Interhótelin voru ekki
af sama gæðaflokki og
ferðamenn eiga að
venjast á góðum hótel-
um í vesturhluta Evr-
ópu. Algjör nauðsyn
var því að bæta úr því
ástandi sem fyrst,“
segir de Vries.
Úthverfi og kjarnar
Eftir sameiningu Austur- og
Vestur-Þýskalands létu margar hót-
elkeðjurnar byggja nýju hótelin í út-
jaðri stórborganna. Ástæða þess var
óvissa um eignarhlut lands á svæð-
um í miðju borganna. En þegar búið
var að koma þeim málum á hreint
var stefnunni breytt og farið að
byggja hótelin í þeim miðjum.
Nýju hótelin spretta upp eins og
gorkúlur í austurhlutanum, sérstak-
lega svokölluð „business-hótel“ sem
bjóða góða alhliða þjónustu fyrir
viðskiptamenn sína. í borgunum
Dresden, Magdeburg, Chemnitz,
Cottbus, Erfurt, Weimar og Leipzig
eru risinn fjöldi glæsihótela á örfá-
um árum.
Ekkert hefur verið sparað til að
gera þau sem best úr garði og her-
bergin eru öll með nútímaþarfir í
huga, fax-vélar, tvær símalínur,
sjónvarp, kapalstöðvar, geislaspil-
ara og annað það sem fylgir bestu
hótelum nú.
Hótelstjóramir eða hótelhaldar-
amir í þessum nýju hótelum em oft
Austurríkismenn, Hollendingar eða
annarra þjóða úr Evrópu. Ibúar úr
austurhluta landsins vilja ekki fá
stjórnendur frá V-Þýskalandi, segja
slæma reynslu af þeim. V-Þjóðverjar
em ekki vinsælir í austurhlutanum
í þessum geira atvinnulífsins.
Umfram eftirspurn
Nýbyggingar hótelanna hafa ver-
ið umfram eftirspurn ferðamanna
eftir hótelplássi og nýting hótelher-
bergja dottið niður
um tugi prósenta.
Stærstu tölurnar
era frá Leipzig, þar
sem herbergjanýt-
ing var áður 80%,
en hefur nú dottið
niður í 38% á sið-
ustu 5 árum. Ferða-
menn græða á öllu
saman því að hótel-
haldararnir bjóða
sífellt lægra verð
með alls konar
gylliboðum til að
bæta nýtinguna.
Fyrir 5 árum
máttu gestir á
fyrsta flokks hót-
eli (Merkur Hotel)
búast við að þurfa
að greiða 12.500 krónur fyrir eina
nótt í úrvals tveggja manna her-
bergi en nú, fimm árum síðar, fást
þau á tæpar 9.000 krónur. Ef tekið er
gott herbergi á hinu þriggja stjömu
Ramada Gami hóteli fæst það nú á
um 5000 krónur. Svipaða sögu má
segja um Dresden, Chemnitz, Weim-
ar og flestar aðrar stórborgir aust-
urhlutans.
Ferðamönnum sem hyggja á dvöl
í austurhluta Þýskalands er hins
vegar ráðlagt að kunna hrafl í
þýskri tungu. Ekki er langt síðan A-
Þýskaland losnaði undan áhrifa-
valdi Sovétmanna og það tekur tíma
að fá starfsfólkið til að tileinka sér
enskuna. Algengara er að starfsfólk
hótelanna geti talað rússnesku en
ensku.
List- og menningarvið-
burðir
Á hverju ári er mikið um að vera
í austurhluta Þýskalands á menn-
ingar- og listasviðinu. Þann 3. apríl
verður haldin 100 ára afmælishátíð
Johannesar Brahms í Leipzig,
26.-28. september verður 125 ára af-
mælishátíð sporvagna í Dresden, 4.
mánuði stendur yfir Wagner-Schu-
bert-Stravinski tónlistarhátíð í Berl-
ín. Djassistar hafa örugglega áhuga
á dixieland-hátíðinni í Dresden daga
8.-11. maí.
í júlímánuði verður sérstök „tec-
hno og rave-hátíð“ haldin i Berlin
og kvikmyndahátíð í Dresden 4. júlí
til 17. ágúst. Djassinn dunar einnig í
Leipzig í septembermánuði og dag-
ana 16.-26. október verður evrópsk
Feröamenn til Berlínar hafa ef-
laust gaman af því aö skoöa
Charlottenborgarkastala sem
byggöur var á 17. öld.
Síöan járntjaldið féll og Þýskaland sameinaðist áriö 1989 hafa mörg nýtísku
hótel verið byggö í austurhluta landsins.
nóvember 150 ára afmælishátið tón-
skáldsins Mendelssohns, 9. septemb-
er og fram í janúar 1998 verður hald-
in sagnfræðileg sýning í Berlín um
þróun menningar og lista í báðum
hlutum Þýskalands.
Allt árið 1997 verður rokk- og Sha-
kespeare-hátíð í Berlín og í þessum
hátíð grínista og dramatískra sviðs-
leikara. Hér er aðeins fátt eitt tínt
til af því sem ferðamenn geta barið
augum í austurhluta Þýskalands í
ár - og gist í leiðinni á úrvalshótel-
um fyrir lítið verð.
Þýtt og endursagt úr Business
Traveler. -ÍS
Heppinn áskrifandi til Flórída:
Ég á ekki til eitt einasta orð
DV, Akureyri:
„Vann ég ferð til Flórída? Eg á
ekki til eitt einasta orð,“ sagði Auð-
ur Antonsdóttir, flskverkakona hjá
Útgerðarfélagi Akureyringa, þegar
henni vora færð þau tíðindi að hún
hefði dottið í „Sólar-pott“ DV og
ATAK
BÍLALEIGA
554 6040
Flugleiða og hlotið að launum ferð
fyrir tvo til St. Petersburg Beach í
Flórída og uppihald í viku.
Auður hefur um langt árabil ver-
ið áskrifandi að DV og þetta er ekki
í fyrsta skipti sem áskrift hennar
skilar henni vinningi aukalega. „Ég
vann grill í áskriftargetraun í fyrra,
hvað ætli það verði næst?“ spurði
Auður.
„Ég hef farið til útlanda áður,
bæði til Benídorm og Kanaríeyja og
það er alveg yndislegt að fá svona
vinning, ég er nú svo hissa að ég
veit varla hvað ég á að segja. Það
getur vel verið að ég reyni að fara i
sumar, og hugsanlega býð ég dóttur
minni meö mér,“ sagði Auður sem
hefur starfað við fiskvinnslu hjá Út-
gerðarfélagi Akureyringa í 23 ár.
Auöur Antonsdóttir,
heppinn áskrifandi DV,
sem er á leiöinni til
Flórída. DV-mynd, gk
Hætta á ferð
Bent hefur verið á það í dag-
blöðum í Þýskalandi að hættu-
ástand hafi myndast víða á flug-
umferðarsvæðum þýskra flug-
valla. Hættuástandið hefur
myndast vegna síaukinnar um-
ferðar smærri flugvéla sem
trufla flugumferð stórra far-
þegaþotna. Flugmenn minni
flugvéla eru gjamir á aö virða
ekki almennar reglur um flug-
hæð við flugvellina. Bent hefur
verið á að flugmenn á stórum
þotum hafi litla möguleika á að
afstýra árekstri vegna þess hve
stórar vélamar eru.
Opnar á ný
Yosemite-þjóðgarðurinn
frægi í Bandaríkjunum hefur
verið opnaður ferðamönnum á
ný en undanfama mánuði hefur
hann verið lokaður vegna flóða-
skemmda á vegum og mann-
virkjum.
Stár sekt
Yfirvöld í Bandarikjunum
hafa sektað flugfélagið Alaska
Airlines um 50 milljónir króna
fyrir að hafa ekki staðið nægi-
lega vel að viðgerð á lendingar-
búnaði Boeing 737 200 þotu fé-
lagsins og fyi-ir að hafa sett
hana í notkun án þess að hún
fullnægi öryggiskröfum. Banda-
ríkjamenn eru þekktir fyrir
mjög strangt eftirlit i flugmál-
um.
Miami Vice
Miami-borg á Flórída komst i
fréttirnar á árunum 1992-93
þegar sagt var frá síendurtekn-
um ofbeldisárásum misindis-
manna á ferðamenn sem kost-
aði margan ferðamanninn lífið.
Lögreglan tók til hendinni og
tókst að uppræta þetta vanda-
mál aö mestu leyti á sínum
tíma. Nýverið hefur þó farið að
bera á ofbeldisárásum á ferða-
menn á ný, aðallega í námunda
við flugvöll borgarinnar. Lög-
reglan segist gera sitt besta til
að handsama ofbeldismennina.
Grænland í sviðsljósi
Grænland hefur verið tölu-
vert í sviðsljósi fjölmiðla vegna
þess að kvikmyndin „Miss
Smilla’s Feeling for Snow“, sem
að mestu gerist á Grænlandi,
hefur verið tekin til sýninga
víða um lönd. Þetta er sannköll-
uð stórmynd með frægum leik-
urum í aðalhlutverki, Gabriel
Byme og Juliu Ormond. Kvik-
myndin var frumsýnd fyrir
stuttu og er nú til sýninga í ein-
um 25 löndum. Ferðamálayfir-
völd í Grænlandi ætla að fylgja
þessu vel eftir og hafa prentað
auglýsingabæklinga um Græn-
land sem dreift er ókeypis til
kvikmyndagesta.
ék,
Þín vmliiii
Arnarbakka 4-6, Reykjavík • Vesturbergi 76, Reykjavík • Hagamel 39, Reykjavík •
Mjóddinni, Reykjavík • Seljabraut 54, Reykjavík • Suöurveri, Reykjavík • Grímsbæ,
Reykjavík • Hringbraut 92, Keflavík • Miöbæ 3, Akranesi • Grundargötu 35,
Grundarfiröi • Ólafsbraut 55, Ólafsvík • Skeiöi 1, ísafiröi • Silfurgötu 1, ísafiröi •
ísaflaröarvegi 2, Hnífsdal • Vitastíg 1, Bolungarvík • Lækjargötu 2, Siglufiröi •
Aöalgötu 16, Ólafsfiröi • Mýrarveg, Akureyri • Nesjum, Hornafiröi • Breiöumörk 21,
Hverageröi • Tryggvagötu 40, Selfossi.