Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Side 50
70
kvikmyndir
MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 1997
>
/ I 41| Tht' CR0W
ti 23 ■ c i t y o í a n j e I s
Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og
11.15. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9. B.i. 16 ára.
*** 1/2 Ó.F. X-ið
*★* S.V. Mbl.
★** Ó.H.T. Rás 2
★*** J.G.G. FM 957
Sýndkl. 4,30, 6.45, 9 og 11.30. B.i. 16 ára.
GULLBRÁ OG
BIRNIRNIR ÞRIR
Sýnd kl. 4.30,6.45,9 og 11.30. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 2.40.
MATTHILDUR
Sýnd kl. 2.40.
Sími 551 9000
R0ME0 JULIET
íjfonætursyning kT Ó0?0
á föstudaginn langa og
páskadag
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.20.
B.i. 12 ára.
SMOKE
Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 11.15
I dag, miövikudag.
Sýnd kl. 6.50, 9 og 11.15 yfir
hátíöirnar.
Siöustu sýningar.
TILBOÐ KR. 300
Forsýnd kl. 00.30 e. miönætti á
föstudaginn langa og
páskadag. Miöasala hefst á
miönætti. Stranglega bönnuö
innan 16 ára.
SVANAPRINSESSAN
Sýnd kl. 3 og 5 yfir hátíðarnar.
SCJAUIHS
SSf i
Star Wars
Aðdráttaraílið er enn fyrir hendi, og enn er Star Wars serían mesta
geimævintýri sem kvikmyndað hefur verið. Glöggir Stjömustriðsað-
dáendur taka eftir atriðum sem urðu skærum að bráð en hefur nú
veriö bætt við og þar sem tölvugrafik hefUr komið í staö módela. Mik-
il skemmtun fyrir alla aldurshópa. -HK
Innrásin frá Mars
Tim Burton sérhæfir sig í endursköpun timabila og vinnur hér með
geim og skrímslaæði það sem gekk yftr Bandaríkin á 6. áratugnum.
Handbragð meistarans leynir sér ekki, og hápunkturinn er Lisa
Maria sem Marsbúi í ekta kynbombu-drag-i, sem smyglar sér inn í
Hvita húsið til að ganga frá forsetahjónunum. -ÚD
Kolya ★★★*
Hlý, vel leikin og mannleg kvikmynd sem blandast stjómmálaá-
standinu í Tékkóslóvakíu stuttu áður en landið slapp úr jámgreipum
sovéska hrammsins. Leikur drengsins, Andrej Chalimon, í titilhlut-
verkinu er einstakur og á hann hug áhorfenda frá því hann birtist
fyrst í myndinni. -HK
Englendingurinn irki
Stórbrotm epísk kvikmynd sent minnir um margt á best heppnuðu
stórmyndir fyrri tíma. Anthony Mingella á hrós skilið bæði fyrir inni-
haldsmikið handrit og leikstjóm þar sem skiptingar í tíma em mjög
vel útfærðar. Útgeislun leikaranna er mjög miki HK
Undrið irkkrk
Frábær áströlsk kvikmynd sem lýsir á áhrifamikinn hátt falli og
endurkomu píanósnillings, sem brotnar undan álaginu og eyðir mörg-
um árum á geðsjúkrahúsi. Leikur er mjög góður en enginn er betri
en Geofrey Rush, sem er einkar sannfærandi í túlkun sinni á manni,
sem er algjört flak tilfmningalega s -HK
Leyndarmál og lygar ★★★*
Mike Leigh hefúr með Leyndarmálum og lygum skapað sína bestu
kvikmynd og er þá af góðu að taka, kvikmynd sem fyrst og fremst er
um persónur og tilfmningar, ákailega lifandi og skýrar persónur sem
eru túlkaðar af frábærum leikhópi. -HK
Rerce Creatures ★★★★
Barátta dýragarðsstarfsmanna um tilverurétt dýragarðs. Dýralífs-
brandarar eru í hverju búri. Dýraverðimir líkjast dýrunum sinum og
allir misskiija alla að hætti góðra grfnmynda. Dýrin eru dýrslega sæt,
leikurinn góður og húmorinn góður ÚD
Evita kkk
Ópera Andrew Lloyds Webber nýtur sín vel í meðfórum Alans
Parkers, hvort sem það eru fámenn söngatriði eða stór kóratriði og
hin glæsilega tónlist og útsjónarsamir textar eru í frábærum flutningi
leikhóps sem í fyrstu hefði mátt ætla að ætti lítið sameiginl-HK
Málið gegn Larry Rynt kkk
Myndin segir frá klámkóngnum Larry Flynt og baráttu hans fyrir
réttinum til að klæmast. Woody Harrelson leikur kónginn sjálfan og
Courtney Love Altheu konu hans og eru bæði frábær. Það sem upp úr
stendur er lokasenan, þar sem allar fegurstu og hátíðlegustu hug-
myndfr Bandaríkjamanna um freisi og réttlæti eru dregnar niður á
plan klámsins. -ÚD
Múgsefjun ★★★
Meitlaður texti í einu þekktasta leikriti á þessari öld, í deiglunni,
nýtar sín vel í öruggri leikstjóm Nicholas Hytner. Hann fer aldrei út
í nein ævintýri í kvikmyndatöku til að dreifa athyglinni frá textanum
heldur sníður á skynsaman hátt stakk utan um dramað sem mest er
í töluðu máli. Leikmyndin er drungaleg eins og tilefni er til og lýsing
í takt við efhið. -HK
Star Trek: Fyrstu kynni kkrk
Skemmtileg ævintýramynd þar sem tæknibrellur era sérlega góð-
ar og leikur allur til fyrirmyndar. Sagan sem slik skilur ekki mikið
eftir sig nema fyrir harða Star Trek aðdánedur, sem era víst orðnir
nokkuð margir hér á landi. -HK
Bound *-**
Skemmtileg útfærsla á film noir um þríhyming, tvær lesbískar
stúlkur og einn mafióisa sem reyna á þolrifín hvert í öðra. Gina Gers-
hon og Jennifer Tilly ná góðum tökum á persónunum og eru sannfær-
andi í erfiðum hlutverkum. Joe Pantoliano er ekki siðri í hlutverki
mafiósa sem á ebmi nóttu pressar tvö þúsund 100 dollaraseðla. -HK
T0PP 0
f Bandaríkjunum
I- aösókn dagana 21.-23.mais.
Tekjur í mllljónum dollara
og helldartekjur.
■pmi
_______ 'jf3GSfM»-ætJ®W
Jim Carrey i hlutverkl sinu i Llar, Liar. Meö honum á myndlnnl er Jennlfer Tilly.
Lygari
segir sannleikann í 24 tíma
Ef einhverjir hafa verið farnir að afskrifa Jim Carrey eftir frammistööu hans í siðustu mynd-
um sínum þá veröa þeir að gjöra svo vel að endurskoöa hug sinn þar sem hann þykir fara
á kostum í nýjustu kvikmynd sinni, Liar, Liar, og aðdáendur hans létu sig ekki vanta um
síöustu helgi og útkoman var rúmar 31 milljón dollarar sem er mesta helgarinnkoma i
marsmánuöi. Þar meö hafa framleiðendur réttlætt þá ákvöröun að borga Carrey 20 millj-
ón dollara fýrir leik sinn í myndinni. Liar, Liar stöövaöi sigurgöngu Star Wars-trílógíunnar.
Þaö varekki bara Liar, Liar, sem gerði þaö gott. Mun ódýrari kvikmynd, Selena, sem byggö
er á ævi mexíkönsku poppsöngkonunnar Selenu, sem myrt var í fýrra færöi aðstandend-
um myndarinnar rúmar ellefu milljónir yfir helgina. Það er Jennifer Lopez, sem leikur titil-
hlutverkiö. Af öörum myndum er það helst að Tim Allen-myndin, Jungle 2 Jungle er aö
gera þaö gott og einnig mafíumyndin Donnie Brasco. Vert er aö benda á mynd númer 20,
Crash, sem fær góða aðsókn í fáum kvikmyndahúsum, er þar um aö ræöa mjög svo um-
talaöa mynd David Cronenbergs, sem fariö hefur fyrir brjóstiö á mörgum. Sigurvegari á
nýliöinni Óskarsverölaunahátíö, The English patient, heldur sínu striki og hækkaöi sig um
tvö sæti. Einnig hækka sig aörar kvikmyndir sem eru á listanum og fengu tilnefningar.
-HK
Tekjur Heildartekjur
1. (-) Liar, Liar 31.423 31.423
2. (-) Selena 11.615 11.615
3. (1) Return of the Jedl 7.517 291.235
4. (2) Jungle 2 Jungle 6.016 35.591
5. (3) Private Parts 4.403 34,448
6. (4) Donnle Brasco 3.316 36.259
7.(7) Sllng Blade 3.017 12.524
8. (6) Love Jones 2.551 7.511
9- (5) Empire Strikes Back 2.427 286.030
10. (12) The Engllsh Patient 2.015 63.154
11. (13) Jerry Magulre 1.820 143.039
12. (20) Mlchael 1.270 91.006 T
13. (8) Absolute Power 1.219 47.474
14. (17) Shlne 1.060 32.410
15. (11) Dante’s Peak 0.956 61.335
16. (10) Booty Call 0.926 18.589
17 (9) Star Wars 0.896 458.275
18. (14) Vegas Vacation 0.773 34.107
19. (16) Fools Rush In 0.752 28.010
20. (-) Crash 0.738 2.038
HVERNIG VAR
MYNDIN?
Spurt á kvikmynd-
inni Fierce Creat-
ures.
Hörður Bjamason: Mér
fannst hún ekki nógu góð, ég
er ekki ánægður með hana.
A Fish Called Wanda var
miklu betri mynd.
Ku -
Þorsteinn Berg: Mér fannst
hún bara noltkuð góð og gef-
ur forvera sínum, A Fish
Called Wanda, ekkert eftir.
Þröstur Berg: Mér fannst
myndin mjög skemmtileg og
hún er ekkert síðri en A Fish
Called Wanda sem ég sá
einnig á sínum tima.
Sigurbjörg Bragadóttir: Mér
líkaði myndin ágætlega en ég
hef reyndar engan samanburð
því ég sá ekki fyrri myndina.