Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1997, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1997
5
Sandkorn
Fréttir
Ó, Ólöf
Jens í Kaldalóni skrifaði kostuleg-
an greinarstúf í Mogga á dögunum
sem bar hina frumlegu fyrirsögn
„Ólöf Rún Skúladóttir fyrrverandi
P-»——r———■* sjónvarpsþulur".
t <£^01 '
Greinin er upp-
full af þvílíku
~í lofi um Ólöfu aö
minningargrein-
ar komast flest-
ar ekki í hálf-
kvisti við, en
grein Jens byrj-
ar þannig: „Það
var eins og eitt
stórkostiegasta
skýfall heföi
komið úr heið-
skírum himni þegar þaö allt í einu
fréttist að þú yrðir ekki lengur í
fréttunum á sjónvarpsskjánum. Þar
með væri þetta elskulega andlit,
bliði, hreini og himinljómandi svipur
þinn, látlaus og einlægur horfmn...“
Engir skraut-
koppar
Jens upplýsir síðan að hann hafi
litiö vitaö um fjölskylduhagi Ólafar
Rúnar þar til hann sá myndir af
henni ásamt börnum hennar og eig-
inmanni. Reynd-
ar segist Jens
tæplega hafa
trúað að nokkr-
um manni gæti
áskotnast svona
einlæg og elsku-
leg kona. Síðan
kom smávegis
meira um ööl-
skylduáa og
hestamennsku
frúarinnar áður
en til frekari tið-
inda dró: „Er ekki nóg með það, en
aðdáunarveröast í öllu þínu elsku-
lega útliti hefur svo alltaf verið að
þú sjaldan eða aldrei hefir hengt
neina skrautkoppa neöan í eyrna-
sneplana heldur haft þá í þeim guð-
lega friði sem fagurlegastir blika i
sinni réttu og fegurstu sköpun."
A-flokkarnir
Tilburðir forsvarsmanna A-flokk-
anna vegna hugsanlegrar samvinnu
eða sameiningar gerast sífellt bros-
legri. Aðallega hafa þessir tilburðir
verið á þann
hátt að einhver
foringjanna læt-
ur i ljósi vonir
og væntingar
um samvinnu
eða sameiningu,
en síðan kemur
annar foringi og
gerir lítið úr
orðum hins.
Svona hefur
þetta gengið
fram og aftur,
og það nýjasta var er Margrét Fri-
mannsdóttir, formaður Alþýðubanda-
lagsins, sagði Sighvat Björgvinsson,
formann Alþýöuflokksins, hafa verið
í „fjöbniðlaleik" norður á Ákweyri
er hann var að ræða um sameigin-
legt framboð A-flokkanna viö kosn-
ingamar 1998. Þannig gengur þaö, ef
einhver hinna svokölluðu „foringja“
tjáir sig um málið rjúka hinir upp og
reyna að gera málið tortryggilegt um
leið og þeir lýsa áhuga sinum á sam-
einingu eða samvinnu. Trúverðugt?
Hrokinn
Á heimasíðu KA á Intemetinu
hefur mátt lesa um óánægju KA-
manna með að aðeins tveir leik-
menn félagsins skuli hafa verið
valdir i lands-
liðshópinn fyrir
HM. Þar segir
einnig að þegar
Sigurður Gunn-
arsson, þjálfari
Hauka, hafl
valið úrvalslið
til að leika
gegn landslið-
inu hafi nú
fyrst tekið
steininn úr en í
því liði var
enginn KA-maður. „Þetta er enn
eitt dæmið um hroka sunnanmanna
í garð KA-manna sem áfram eru
greinilega mun iægra metnir hjá
þessum sjálfskipuðu handboltasér-
fræðingum á Reykjavíkursvæðinu
þrátt fyrir að hafa verið eitt besta
lið íslands um árabil. Þeir ættu aö
muna að eftir hrakfarir og aum-
ingjaskap landsliðsins í síðustu HM-
keppni var það stemningin i kring-
um KA sem aftur náði að rifa þessa
stórkostlegu íþrótt upp úr
öskustónni og það kæmi mér ekki á
óvart þó það yrði hlutskipti KA á
nýjan leik,“ segir á heimasíðu KA.
Umsjón: Gylfi Kristjánsson
Skunk Anansie í Höllinni:
Frábærar undirtektir
Andrúmsloftið í Laugardalshöll-
inni var rafmagnað sl. laugardags-
kvöld þegar breska rokkhljómsveit-
in Skunk Anansie steig á stokk og
spilaði fyrir tæplega 6000 öskrandi
aðdáendur. Áheyrendur voru
greinilega vel með á nótunum, döns-
uðu og sungu með en mest var
stemningin þegar sveitin tók lög
sem hafa náð gífurlegum vinsæld-
um hér á landi, lög á borð við Weak,
Brazen og Hedonism.
Hitinn var mikill í Höllinni, svit-
inn rann af hverjum manni og
þurfti að sinna nokkrum einstak-
lingum sem urðu hita og þrengslum
að bráð rétt við sviðið. Ekki kom þó
til neinna alvarlegra meiðsla. Skin,
Tónleikagestir voru vel meö á nótunum og skemmtu sér vel. Gæslumenn
voru ánægöir með framkomu gestanna. DV-myndir Hari
söngkona sveitarinnar, hafði tölu-
verðar áhyggjur af þrengslunum,
spurði áhorfendur hvort allt væri í
lagi og gaf ungri stúlku vatnsflösku
sína en að sögn meðlima sveitarinn-
ar er Laugardalshöllin með stærstu
tónleikastöðum sem hún hefur kom-
ið fram í.
Hljómsveitin var á sviði í einn og
hálfan klukkutíma við gríðarlega
góðar undirtektir enda fóru hljóm-
sveitarmeðlimir á kostum. Má segja
að langt sé orðið síðan íslendingar
urðu vitni að jafn líflegri sviðsfram-
komu.
Að sögn starfsmanna í öryggis-
gæslu og dyravörslu fór allt vel
fram, leit fór fram á tónleikagestum
og var töluvert magn af áfengi gert
upptækt, þó ekki meira en vant er á
tónleikum hér á landi að sögn
starfsmanna. Sögðust gæslumenn
ánægðir með framkomu tónleika-
gesta sem flestir hverjir voru á aldr-
inum 14 til 18 ára.
Nánar veröur sagt frá tónleikun-
um í DV á morgun, þriðjudag.
-ggá
Reiðvegardeilan:
Lætur sýslu-
maður opna
veginn?
DV, Aknreyri:
„Við höfum heimildir fyrir því
að Vegagerðin hafi farið fram á það
að vegurinn verði opnaður, enda er
vegurinn í umsjá Vegagerðarinnar
og við höfum þeirra orð fyrir því að
okkur séu heimil afnot af veginum,"
segir Sigfús Ólafur Helgason, for-
maður Hestamannafélagsins Léttis
á Akureyri, vegna deilunnar um
reiðveginn á milli Akureyrar og
Hrafnagils.
Sigfús Ólafur Helgason, formaöur
Léttis, viö giröingu bóndans á Ytra-
giii sem lokar reiðveginum milli Ak-
ureyrar og Hrafnagils. „Hér fer eng-
inn um nema meö tilfæringum,"
segir Sigfús. DV-mynd gk
Eins og DV skýrði frá fyrir helgi
lokaði bóndinn á Ytragili reiðvegin-
um með girðingum við landareign
sína og hestamenn hafa ákveðið að
lögsækja bóndann. Svo gæti farið að
sýslumaðurinn á Akureyri beitti
sér i málinu.
Björn Jósef Arnviðarson sýslu-
maður sagði að formleg beiðni hefði
ekki borist embætti hans um að
opna veginn. Vegagerðin hefði haft
samband símleiðis við embættið
vegna þessa máls, en fyrr en form-
leg beiðni bærist myndi hann ekki
aðhafast neitt í málinu. -gk
^rAFMÆUSTILBOD
anua
LCX-300
afmælistilboð kr.
VK) EIGUMAFMÆU, ÞIÐ FAIÐ PAKKANN I
Tónjafnari m/Rock-Popp-Jazz
Super T-bassi
Fullkomin fjarstýring
Gengur fyrir 220 og 12v
FM-MB og LB útvarp m. 32
stöðva minni
Auto reverse segulband
Fullkominn 1-bit D/A geislaspilari
Segulvarðir hátalarar
I tilefnl 25 ára afmælis Radíóbæjar
bjóðum við nú 25 stlc af þessum
k glæsilegu hljómtækjum með
1 10.000 kr. afislætti.