Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1997, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1997, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997 5 > w I > > > i > i k w i i i i Fréttir „Draugahúsiö“ rifiö: Umfjöllun DV hafði áhrif - segir skrifstofustjóri borgarverkfræöings „Það var búið að vera lengi í gildi skipulag um að rifa húsið. Af ýms- um ástæðum tafðist það. Er óhætt að segja að umfjöllun DV um húsið hafi haft áhrif og ákveðið ferli fór í gang eftir að greinin birtist. Þetta var kannað nánar og í ljós kom að ekkert var því til fyrirstöðu að rífa það,“ sagði Ágúst Jónsson, skrif- stofustjóri borgarverkfræðings, að- spurður um ákvörðun borgarinnar að rífa loks „draugahúsið" á horni Bakkastígs og Mýrargötu. í gær var hafist handa við að rífa húsið sem hefur verið í eigu borgar- innar. DV greindi ítarlega frá máli hússins í síðustu viku og kvörtun- um íbúa hverfisins vegna þess. Hús- ið hefur staðið autt í rúmt ár. Það var orðið mjög ljótt og illa farið að mati íbúa í hverfinu. Þá var það einnig stórhættuleg slysagildra fyr- ir börn í hverfinu sem oft sáust að leik í því. Orðið mjög tímabært „Ég geri ráð fyrir að húsið verði rifið til grunna á næstu dögum. Samkvæmt skipulaginu er þama lít- il lóð sem er hugsuð annaðhvort fyr- ir aðflutt hús eða jafnvel nýbygg- ingu. Sú bygging yrði þá minni en húsið sem hefur staðið þarna,“ sagði Ágúst. íbúar í hverfinu voru mjög ánægðir í gær að sjá framkvæmdir hafnar við að rífa húsið. „Þetta var orðið mjög tímabært. Hverfið verð- ur allt annað og betra þegar við losnum við þetta hús,“ sagði einn íbúanna við DV. -RR I gær var byrjaö að rífa „draugahúsiö" á horni Bakkastígs og Mýrargötu. Umfjöllun DV um húsiö hafði þau áhrif að ákveöiö var að hefjast handa við niðurrifiö. DV-mynd S Metur meðferð við offitu „Um þessar mundir er ég að vinna úr niðurstöðum rannsókn- arinnar og allt bendir til að þær séu mjög góðar. Ég hef borið þær saman við erlendar rannsóknir og þetta eru bestu niðurstöður sem ég hef séð hingað til og miklu betri en við þorðum að vona,“ segir Eiríkur Orri Guð- mundsson læknanemi sem vinn- ur að rannsókn á árangri í hóp- meðferð offitusjúklinga. Rann- sóknina vinnur hann við Rann- sóknarstofnun Jónasar Krist- jánssonar undir leiðsögn Sig- urbjöms Birgissonar, sérfræð- ings i meltingarsjúkdómum. Rannsókn Eiríks Orra nær til allra sem tekið hafa þátt í hóp- meðferð offitusjúklinga við Heilsustofnun NLFÍ frá haustinu 1992 til ársloka 1995. Alls em það 150 manns og hefur hann metið bæði skammtíma- og langtímaár- angur af meðferðinni ,-VÁ Heitavatns- laust í Garðabæ Hluti Garðabæjar, nánar tiltekið nokkur hús við Hæðarbraut og nær- liggjandi götur, hafði ekkert heitt vatn frá hádegi í gær. Að sögn Sigur- þórs Þorgrímssonar, verkstjóra hjá Hitaveitu Reykjavíkur, sem sér Garð- bæingum fyrir heitu vatni, olli skemmd af völdum vinnuvéla bilun í heitavatnspipu. Búist var við að heitt vatn yrði aftur komið í þessi hús um kvöldmatarleytið í gær. -glm Þátturá CBS um bakteríur á almenningsstöðum: , Banvænar bakteríur - engin hætta, segir Haraldur Briem Bandaríska sjónvarpsstöðin CBS f sýndi á dögunum sjónvarpsþátt um f bakteríur á almenningsstöðum. Þar | kom fram að bakteríur grassera í al- gengum tækjum og tólum úr hvers- dagslífinu sem fjöldi fólks umgengst dag hvern. Tekin voru sýni af al- menningssímum, hraðbönkum, handfóngum almenningsvagna og öðru slíku. í þeim mátti finna gríðar- legan fjölda baktería og sumar stór- hættulegar. Mikið uppistand hefur orðið i > Bandaríkjunum vegna fregna af ) hættulegum bakteríum á almenn- k ingsstöðum. Bakteríueyðandi efni af " ýmsu tagi hafa runnið út eins og heitar lummur. í fyrrnefndum sjón- varpsþætti kom hins vegar fram að bakteríurnar geta myndað mótefni gegn slíkum sótthreinsunarefnum og kunna því að eflast við notkun þeirra. DV lék forvitni á að vita hvort hér væri veruleg hætta á ferðum. Hvort i ) um peningana eða lifið væri að tefla þegar við færum í hraðbankann. „Þá er ég nú hræddur um að illa væri komið fyrir okkur," segir Haraldur Briem smitsjúkdómafræðingur. „Ég get nú ekki séð stóra hættu í þessu efhi. Ef við fylgjum almennum hreinlætisreglum eins og að setja finguma ekki beint upp í okkur eft- ir að hafa snert á flötum sem margir koma við, þvo okkur um hendur og svoleiðis eigum við að geta komið í veg fyrir að verða fyrir alvarlegu smiti. Auðvitað er fræðilegur mögu- leiki að við tökum á einhverju sem inniheldur hættulegar bakteríur en ef við þvoum okkur sæmilega reglu- lega er engin hætta á ferðum. Lan- goftast eru bakteríurnar sem við er- um með á höndunum skaðlausar og meira verndandi en hitt. Ég held að reynsla okkar staðfesti það nú. Ann- ars værum við meira eða minna fár- veik,“ segir Haraldur. -VÁ Mikil umræða hefur skapast í Bandaríkjunum um hættulegar bakteríur á almenningsstöðum. Gæti endaö með því aö fólk taki Michael Jackson sér til fyrirmyndar og setji upp grímu og hanska þegar þaö hringir úr almenningssíma notar hraðbanka? DV-mynd Hilmar Þór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.