Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1997, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1997, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 21. MAI 1997 Viðskipti íslenski hlutabréfamarkaðurinn: Enginn skyndigróði Þingvísit. hlutabr. „ Það eru 2-3 vikur síðan við sáum fyrir endann á mjög stöðugu hækk- unarferli. Þau fyrirtæki sem hafa verið í veiðum og vinnslu uppsjávar- fiska hafa keyrt lestina áfram og um leið og fréttist af því að síldin gæfi sig ekki eins vel og áður linnti þess- ari samfelldu hækkunarhrinu. Verð- ið er í einstaka tilvikum eitthvað að síga, einhver dæmi eru vissulega um hækkun en heilt yfir stendur verðið nokkuð í stað. Flestir spá því að eng- ar sérstakar forsendur séu til frekari hækkunar að svo stöddu," segir Dav- íð Björnsson, deildarstjóri fyrir- tækja- og stofnanasviðs Landsbréfa, í samtali við DV í gær. Ákveöið æöi Skagstrendingur vinsælastur Skagstrendingur var langvin- sælasta fyrirtækið á hlutabréfa- mörkuðum Verðbréfaþings og Opna tilboðsmarkaðnum í síðustu viku. í heild seldust hlutabréf fyrir um 673 milljónir. Þar af seldust bréf í Skagstrend- ingi fyrir um 115 milljónir. Bréf í Flugleiðum og SR-mjöli voru einnig vinsæl, seldust fyrir um 63 milljón- ir kr. í hvoru fyrirtæki. Bréf í Þor- móði ramma seldust fyrir rúmar 60 milljónir og í Búlandstindi fyrir um 40 milljónir. Bréf í Marel seldust fyrir 45 milljónir króna. Bréf í Eimskip seldust í síðustu viku fyrir um 11 milljónir króna, í Olís fyrir rúma milljón og bréf í Sjó- vá-Almennum seldust fyrir tæpar 20 milljónir. Mestu viöskipti með hlutabréf á árinu hafa verið í SR-mjöli, fyrir um 745 milljónir króna, í íslands- banka, fyrir um 662 milljónir, og í Þormóöi ramma, fyrir 446 milljónir króna. Verðið á áli hefur hækkað örlítið á milli vikna, tonnið fékkst á 1.656 dollara á föstudag. Dollar hefur lækkað örlítið en pundið hækkað frá því í síðustu viku. Það er þó lægra en það hefur verið um nokkra hríð, fæst fyrir 115,50 kr. Japanska jenið heldur áfram að hækka en þýska markið er enn á niðurleið. -sv Davíð segir að alger sprenging hafi orðið á á hlutabréfamarkaðn- um fyrri hluta ársins. Áður hafi fyr- irtæki og vanir hlutabréfakaupend- ur einokað markaðinn en nú hafi allir komið inn. Fjöldi dæma er til um ungt háskólafólk sem sá sér hag í því að taka sér bankalán til þess að kaupa hlutabréf. Þingvisitala hlutabréfa hafði fyrstu vikuna í mai hækkað um rúm 40% frá áramót- um. Hækkunin er nú rúm 36%. „Þetta var ákveðið æði meðan hlutabréfin héldu áfram að hækka um allt að þrjú prósent á hverjum degi. Toppnum er náð og viðskiptin hafa dregist saman,“ Davíð segir að ekkert bendi samt til verðhruns. Væri slíkt hugsanlegt stafaði það af því að menn horfðu fram á slakari afkomu fyrirtækja en þeir höfðu vænst. Milliuppgjör fyr- irtækja liggi fyrir í júlí eða ágúst og ef einhver óvænt tíðindi komi fram þar geti hlutimir breyst. Fjárfest til lengri tíma Sem dæmi um það sem var að gerast á hlutabréfamarkaðnum fyrri hluta ársins hefur sala Eski- fjarðarbæjar í Hraðfrystihúsi Eski- ijarðar í janúar verið nefnd. Þá Hlutabréfamarkaður: Sala Eskifjaröarbæjar í í Hraöfrystihúsi Eskifjaröar hefur veriö tekiö sem dæmi um uppganginn á hlutabréfamark- aönum í vetur. Skynsamlegra hefði veriö aö selja síöar. DV-mynd Emil seldi bærinn bréfin fyrir um 10 milljónir að nafnverði, um 85 millj- ónir króna, en ef hann hefði beðið í fjóra mánuði til viðbótar hefði verið hægt að tvöfalda fjárhæðina, slíkur var uppgangurinn. „Þrátt fyrir jafnvægi nú er engin ástæða til þess að setja einhver rauð strik. Menn þurfa að fara inn á markaðinn nú með því hugarfari að skyndigróði er ekki í farvatninu. Þeir sem ætla inn á markaðinn til örfárra vikna eiga ekki erindi inn á hann nú. Ætli menn sér hins vegar að fjárfesta til tveggja til þriggja ára úr því með góðri áhættudreifingu," gætu þeir haft sæmilega ávöxtun út segir Davíð Björnsson. -sv m HHR8H MMB ■HHB 3000 3020,55 Þingvísit. hlutabr. DV INTIS: Lægri gjöld INTIS rekur Internetsamband til útlanda og selur fyrirtækjum og stofnunum á íslandi samband við Internetið. Fyrirtækið hefur nú lækkað bandvíddargjöld um 18-21 prósent. Fastagjöld fyrir fyrstu 15 kílóbita á sekúndu í smásölu og önnur gjöld haldast óbreytt. Lækkunin gildir frá 1. apríl. Þrátt fyrir þessa lækkun gjaldskrár er stefnt að tvöfoldun sambandsins til N-Ameríku á næstunni, úr tveimur megabit- um á sekúndu í fjóra. Jafnframt rekur INTIS tveggja megabita samband til Evrópu sem fyrr. Gjaldskrá INTIS er að finna á Internetinu (http: //www.is- net.is/is/gj aldskra.html). SÍF: Gæðakerfi vottað Gæðakerfi SÍF hf., Sölusam- bands íslenskra fiskframleið- enda hf.) hefur veri vottað sam- kvæmt ISO 9001 staðlinum. Gæðakerfið nær til þróunar, framleiðslueftirlits, sölu og út- flutnings á söltuðum og hertum sjávarafurðum framleiddum samkvæmt framleiðsluleiðbein- ingum SÍF hjá íslenskum fram- leiðendum. Vottun hf. vottaði gæðakerfið en ráðgjafarfyrir- tækiö Hagvangur annaðist ráð- gjöf við vinnuna. Tryggingamiðstöðin: Aldrei meiri hagnaður Árið 1996 var Tryggingamið- stöðinni afar hagstætt. Hagnað- ur nam 237 milljónum og er sá mesti í sögu félagsins. Athygli vekur að afkoma ökutækjatrygg- inga batnaði verulega frá fyrra ári. Ástæðan er færri slysatjón í umferðinni. Hagnaður af fjár- málarekstri er nú 178 milljónir króna á móti 58 milljónum árið áður. Þar munar mestu að nú er gert upp með hlutdeildaraðferð en hagnaður félagsins er 68 milljónum hærri fyrir bragðið. Olís 70 ára: Veisluhöld og vinningar Olís verður 70 ára á árinu. Eiginlegur afmælisdagur er 3. október og fram að honum verð- ur ýmislegt gert til hátíðabrigða. Afmælisleikur Olís, Veisluhöld og vinningar, byggist á því að allir viöskiptavinir Olis, 15 ára og eldri, sem kaupa fyrir meira en 500 kr., fá afhentan númerað- an miða. Viðkomandi fyllir hann út með nafni og heimils- fangi og siðan veröur dregið úr innsendum miðum. í hverjum mánuði verða dregnir út 70 ferðavinningar til og frá ákveðn- um borgum í Evrópu. Aö auki verður dreginn út einn Toyota Carina skutbíil úr heildarpottin- um þann 3. október. Silfurtún í Garðabæ: Markaössókn til Kina Útflutningsráð íslands og Silf- urtún ehf. í Garðabæ hafa gert með sér samkomulag um sam- starf á sviði þjónustu og mark- aðssetningar í Kína. Tilgangur- inn er að opna fyrir og auka þjónustu við íslensk fyrirtæki í sambandi við markaðsupplýs- ingar og gera þeim auðveldara að hefja markaðssetningu af- urða og þjónustu í Kína. Silfur- tún hefur undanfarið rekið sölu- skrifstofu í Peking og hefur því yfir aö ráða reynslu, staðarþekk- ingu og starfskröftum til að vinna að verkefnum á sviði markaðssóknar inn á þennan stóra markað. -sv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.