Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1997, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 1997 Utlönd Fergie er einn dyggasti aðdá- andi Tigers Sara Ferguson, hertogaynja af Jórvík, betur þekkt sem Fergie með logagyllta háriö, er einn dyggasti aðdá- andi nýjasta undrabarnsins í Bandaríkjun- um, kylfmgsins Tigers Woods. Fergie lagði lykkju á leið sína um síðustu helgi til að fylgj- ast með Tiger í Texas og rak hon- um rembingskoss þegar hann lauk keppni. Ekki þarf að taka fram að Tiger sigraði. „Þetta var fyrsta golfmótið mitt og ég skemmti mér virkilega vel,“ sagði Fergie. Reuter Til sölu Þúsundir misstu af nýja þjóðhöfðingjanum á flugvellinum: Kabila kominn til að taka völdin í Kinshasa Laurent Kabila, nýr þjóðhöfðingi Saírs, kom til höfuðborgarinnar Kinshasa í gærkvöldi til að taka við völdum eftir að skæruliðar hans veltu Mobutu Sese Seko einræðis- herra úr sessi. Kabila hefur endur- skírt landið og heitir það nú lýðveld- ið Kongó. Búist er við að Kabila tilkynni um nýja bráðabirgðastjórn sína á hverri stundu. Vesturveldin vilja að það verði breiðfylking sem hafi það Chevrolet Camaro Z-28 árg. ‘95 dökkblár, ek. aðeins 6 þús. km. ssk., rafm. í öllu. V-8 (350 cc), 275 hö. Verð 3.250 þús. Ath. Skipti á ódýrari Bílamarkaöurinrt Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut. Kopavogi, sími " 567-1800 Löggitd bílasala helsta markmið að undirbúa kosn- ingar í landinu. Komið var myrkur þegar Kabila kom loks á flugvöllinn í Kinshasa frá höfuðstöðvum uppreisnarmanna í borginni Lubumbashi. Þúsundir höf- uðborgarbúa höfðu safnast fyrir á veginum út á flugvöll til að taka á móti nýja þjóðhöfðingjanum. Þar sem dráttur var á komu hans voru flestir hins vegar farnir aftur til síns heima. Mjög ströng öryggisgæsla var á flugvellinum þegar Kabila kom og fluttu hermenn hann rakleiðis til heimilis síðasta forsætisráðherrans í stjórn Mobutus. Um svipað leyti og Kabila kom til Kinshasa skutu vopnaðir menn í ein- kennisbúningum tvo franska rikis- borgara til bana, að því er franskur stjórnarerindreki skýrði frá. Ekki er ljóst hverjir árásarmennirnir voru né heldur hvað þeim gekk til. Frakk- arnir tveir höfðu búið lengi í Sair. Frönsk stjórnvöld voru nánir bandamenn Mobutus. íbúar Kins- hasa segja að síðustu daga 32 ára valdaferils Mobutus hafl borið á an- dúð almennings í garð Frakka. Tals- menn uppreisnarmanna höfðu varað við samsæri dyggustu stuðnings- manna Mobutus um að myrða út- lendinga til að knýja fram íhlutun erlendra ríkja. Mobutu Kongolo höfuðsmaður, sonur Mobutus einræðisherra, vís- nuglýsendur othugið! Miðvikudaginn 28. maí n.k mun aukablað fylgja I þar sem f jallað verður m.a um hesta- mennsku, golf og stangaveiði. þessu blaði er bent á að hafa sam- band við Gústaf Kristinsson, auglýs- ingadeild DV, í síma 550 5731 Athugið að síðasti skilafrestur auglýsinga er fyrir kl. 12 föstudaginn 23. mai. aði í gær á bug öllum tengslum við morðið á yfirmanni herráðsins og landvarnaráðherra landsins, Mahele Lieko Bokungo, í síðustu viku. „Ég átti engan þátt í þessu. Hend- ur minar eru hreinar," sagði Kon- golo. Hann er nú staddur i Lomé, höfuðborg Tógós. Kongolo segist nú vera kaupsýslu- maður, hann hafl sagt af sér embætti í hernum þann 17. maí, daginn sem hann yflrgaf Sair. Flóttamannastofnun SÞ tilkynnti í gær að búið væri að tæma síðustu stóru flóttamannabúðirnar fyrir rú- andíska flóttamenn af ættbálki hút- úa fyrir sunnan Kisangani i Saír. Rúmlega 34 þúsund flóttamenn hafa verið fluttir til síns heima flugleiðis. Reuter Þessi ungi maður beið við vegkantinn eftir að Laurent Kabila, nýr þjóðhöfð- ingi lýöveldisins Kongós, eins og Saír heitir nú, sýndi sig á flugvellinum í höfuðborginni Kinshasa. Símamynd Reuter Rússnesk yfirvöld: Hóta endurskoðun NATO-samnings - fái Eystrasaltslöndin aöild Rússnesk yfirvöld tilkynntu i gær að þau myndu endurskoða nýtt sam- komulag sitt við Atlantshafsbanda- lagið, NATO, byði bandalagið Eystrasaltslöndunum aðild. Tals- maður rússneska utanríkisráðu- neytisins, Valery Nesterushkin, ít- rekaði athugasemdir Borís Jeltsíns Rússlandsforseta frá því á mánudag- inn. Forsetinn lýsti því þá yfir að yf- irvöld í Moskvu myndu ekki líða til- raun til að veita fýrrum lýðveldum Sovétríkjanna aðild að NATO. Gert er ráð fyrir að Jeltsín undir- riti samkomulag Rússlands við NATO mn öryggismál og framtíð- arsamskipti á fundi með vestrænum leiðtogum þann 27. maí næstkom- andi. Rússar eru enn andvígir stækkun NATO. Leiðtogar bandalagsins hafa lýst því yfir að ekkert utanaðkom- andi land geti beitt neitunarvaldi gegn því hvaða ríki fái aðild í fram- tiðinni. Eystrasaltslöndin ítrekuðu í gær ósk sína um að fá aðild að Atlants- hafsbandalaginu. „Afstaða okkar hefur ekki breyst. Litháen var inn- limað í Sovétríkin með valdi. Við lítum ekki á land okkar sem fyrrum sovéskt lýðveldi,“ sagði Algirdas Brazauskas, forseti Litháens, í gær. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.