Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1997, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1997, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 1997 útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aöstoöarritstjóri: EUAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deiidir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreiflng: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerö: (SAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuöi 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblaö 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Auknar verðkannanir Samkomulag Neytendasamtakanna viö fjölmennustu samtök launafólks í landinu, Alþýðusambandið og bandalag opinberra starfsmanna, getur markað tímamót í neytendamálum, ef vel er á spöðum haldið. Það ætti einkum að geta leitt til fleiri og betri verðkannana. Með samningnum fá Neytendasamtökin nokkuð af peningunum, sem ríkið hefur ekki viljað veita þeim. Á Norðurlöndum leggur ríkið neytendasamtökum til mikið fé, meðal annars af því að það veit, að verðkann- anir eru ein bezta leiðin til að halda verðlagi í skeQum. Mikilvægt er, að verðlag haldist stöðugt hér á landi í kjölfar kjarasamninganna, sem gerðir voru síðla vetrar. Þeir fela í sér árvissar kjarabætur, svo framarlega sem þær fara ekki út í verðlagið. Af því stafar áhugi stéttar- samtakanna á þáttöku í óbeinu verðlagseftirliti. Ekki eru síðri hagsmunir ríkisins, sem stóð fyrir þjóð- arsátt um kjarasamningana. Ef verðlag helzt stöðugt í landinu á næstu misserum, hefur ríkið meira svigrúm en ella til að fylgja skynsamlegri hagsteöiu. Fjárveitinga- valdið vill ekki átta sig á þessu augljósa samhengi. Enginn vafi er á, að verðkannanir halda verðlagi í skeQum. Viðskipti færast frá aðilum, sem halda verðlagi uppi, til hinna, sem halda því niðri. Þessi tilfærsla eyk- ur hagkvæmni í rekstri og bætir lífskjör alfra þeirra, sem vilja notfæra sér upplýsingamar og nenna því. Dagblaðið var fyrst til að gera verðkannanir að föstum þætti daglega lífsins fyrir um hálfum öðrum áratug. Síð- an hafa fleiri aðilar komið til skjalanna, svo sem Sam- keppnisstofnun. Og nú fá Neytendasamtökin fé til að verða umsvifamikill aðili á þessu mikilvæga sviði. Gott er að nokkrir aðilar stundi verðkannanir, hver með sínum hætti. Meiri íjölbreytni eykur líkur á, að vel sé að könnunum staðið, auk þess sem heildarfjöldi verðkannana verður miklu meiri en ella. Allt eflir þetta hin beinu og óbeinu áhrif á verðlagið í landinu. Verðkannanir eru ekki aðeins gagnlegar á sviðum, þar sem margir aðilar eru í samkeppni og bjóða misjafht verð. Þær koma líka að gagni með því að sýna fólki, á hvaða sviðum fákeppni lýsir sér í svipuðu verði allra þeirra, sem er að bjóða sömu vöru eða þjónustu. Vegna fámennis þjóðarinnar og langvinnrar þjónustu stjómvalda við gæludýr sín í atvinnulífinu er fáokun of útbreidd hér á landi. Verðkannanir einar megna ekki að rífa niður fáokunina, en þær geta virkjað almenningsálit og leitt til pólitískra aðgerða til að opna markaðinn. Þess vegna er mikilvægt, að verðkannanir feli einnig í sér fjölþjóðlegan samanburð, svo að fólk geti séð, hvemig íslenzka samkeppnisástandið er í samanburði við önnur lönd. Þannig verður óbein samkeppni meiri en væri á fámennum markaði einum og lokuðum sér. Þetta er sérstaklega mikilvægt í verðkönnunum á bú- vöm, sem nýtur sérstakrar náðar stjómvalda. Nauðsyn- legt er að vekja athygli almennings og um leið kjósenda á, hver er kostnaður hans af verðmun á landbúnaðaraf- urðum hér á landi og til dæmis í Bandaríkjunum. Þá þurfa verðkannanir einnig stuðning af gæðakönn- unum, þar sem sérfróðir menn eru kvaddir til að meta vöm og þjónustu til gæða. Verðið eitt er ekki algildur mælikvarði á hagsmuni neytenda, því að stundum em í verðkönnunum bornar saman misgóðar vörur. Á öllum þessum sviðum bíða ótal verkefni eftir ávöxt- um hins nýja samstarfs Neytendasamtakanna og helztu samtaka launafólks. Það er einmitt í svona málum, sem í ljós kemur, hvort opna þjóðfélagið virkar eða ekki. Jónas Kristjánsson Það er alltaf grafalvarlegt mál þegar 15 íslendingar eru sviptir frelsi sínu og fluttir nauðugir yfir opið haf til annars ríkis. Slíkt er vé- fenging á yfírráðum íslendinga og sjálfstæði þeirra. Alvarlegt þótt sekir væru, hvað þá saklausir menn. Aðeins einn af áhöfn Sigurðar, skipstjórinn, var ábyrgur. Hvað gefur Norðmönnum vald til slíkra aðgerða? Venjuleg lög- regluaðgerð segja þeir. Hvaðan kem- ur norskri lögreglu vald fyrir norð- an landhelgi íslands? Þeir tala um þetta svæði á sama hátt og maður sem sé staddur í Noregi... Erum við strax komin til Noregs ef við siglum norður úr íslenskri landhelgi? Norskt varöskip viö gæslu í síldarsmugunni. Jan Mayen: Hvað ætlast Norð- menn fyrir? fram. „Gætið ykkar landhelgi betur, og við gætum okkar land- helgi betur.“ Islenskum stjóm- málamönnum er afar illa við íslensk utan- ríkismál (að þorska- stríðinu við Breta undanskildu) vegna þess að þau trufla inn- byrðis deilur þeirra, gætu jafnvel sameinað þjóöina. Hvað verður þá um samstarfið á vinstra væng stjórn- málanna og verkföllin okkar? Þeir vilja helst fá deilur við erlenda aðila sem allra fyrst út af borðinu svo þeir „Sá sem segir gagnaðilanum að hann verði að ná samningi við hann er búinn að gefast upp fyr■ irfam og gefa viðsemjandanum sjálfdæmi um skiimáia.u Kjallarinn Jóhann J. Ólafsson stórkaupmaöur Getur norsk lögregla tekið ís- lendinga fasta úti á rúmsjó vegna meintrar bókhaldsóreiðu? Ef svo er þá krefst ég þess að íslensk stjóm- völd geri grein fyrir réttindum ís- lendinga eða réttleysi öllu heldur og hvort íslensk stjómvöld hafi gróflega framselt réttindi íslenskra borgara til Norðmanna. Á alþjóölegri siglingaleiö Nú er það svo að íslenskt skip sem siglir á þessu svæði til veiða er á siglingu á alþjóðlegri siglingar- leið og því ekki undir lögsögu ann- arra þjóða. Skip undir íslenskum fána em undir íslenskri lögsögu á úthöfunum. Áhöfh þess lýtur is- lenskum lögum. Þegar Norðmenn fullyrða að hér sé aðeins um lög- reglumál að ræða eru þeir einfald- lega að segja : „Yfírráð okkar yflr Jan Mayen og landhelgi hennar eru algjör og óvéfengjanleg. Það sem þar gerist er norskt innanríkismál og kemur ykkur einfaldlega ekki viö.“ Þetta er kjami málsins. Það er aukaatriði hvort Norðmenn hafi farið offari. Líklega munu norskir dómstólar sýkna útgerð Sigurðar VE í málinu. íslendingar munu verða mjög glað- ir og hrósa Norðmönnum fyrir rétt- sýni þeirra og velvild og gleyma öllu. En frá sjónarmiði Norðmanna er aðalatriðið, að það era Norð- menn sem era að sýkna íslendinga og þar með að undirstrika yfirráð sín yfir Jan Mayen, 200 mílna fisk- veiðilögsögu hennar og samsvar- andi hluta íslenska landgrunnsins. Þetta er nauðsynlegur undanfari næsta skrefs.Norðmanna að þeir eigni sér sfídarsmuguna, sem með þessu er að verða norskt innhaf að þeirra áliti. í þessu mikla hagsmunamáli láta Norðmenn ergelsi og skammaryrði íslendinga sér í léttu rúmi liggja. Þeir líta á þau sem fjörbrot fjár sem verið er að skera. Best sé að espa ís- lendinga ekki meira upp en orðið er og róa þá niður. Þeir hafa jafnvel boðist tU að halda okkur upp á snakki um þessi mál. Strangara eftirlit með norskum skipum í íslenskri landhelgi er ein- mitt viðbrögð sem þeir vUja kalla geti haldið deUum sínum innbyrðis áfram ótruflaðir. Margrét Frí- mannsdóttir, formaður Alþýðu- bandalagsins, hefur sagt í útvarpi og í Alþýðublaðinu að við verðum að ná samkomulagi við Norðmenn. Sá sem segir gagnaðUanum að hann verði að ná samningi við hann er búinn að gefast upp fyrir- fram og gefa viðsemjandanum sjálf- dæmi um skilmála. Menn sjá af þessu að það liggur mikið á -að losna við þetta óþægUega mál sem fyrst og gleyma því. Léleg bíti Lögregluaðgerðir Norðmanna eru grafalvarlegt mál. 30. október 1979 skrifar Eyjólfur Konráð Jóns- son í Morgunblaðið: „1. töluliður Jan Mayen er á okkar landgranni. 2. töluliður. Svæðið heitir íslenska hásléttan. 11 töluliður. Norðmenn yrðu fýrstir þjóða tU að ryðjast inn á landgrann annars ríkis vegna óbyggðar smáeyjar, með þeim hætti, sem þeir hafa nú tilkynnt að þeir ætla sér.“ Stein- grímur Hermannsson, þáverandi sjávarút- vegsráðherra, sagði í þingræðu að sér hafi aUtaf fundist eyjan Jan Mayen eiga að vera íslensk. Hvernig stendur á því að mál era komin í þessar ógöngur? HaUdór Ásgrímsson utanrfkisráðherra sagði í tUefai af núver- andi deUu að samn- ingur okkar við Norð- rnenn frá 1980 um Jan Mayen byggðist á drengskap Norð- manna. Ef sá dreng- skapur brygðist þyrfti að taka samnmga við Norðmenn upp aftur eða segja þeim upp.Viðm'kenning á „prinsippum" fýrir drengskap era léleg bíti. Prinsippið blíf- ur, en drengskapur- inn vUl fljótt gleym- ast, enda erfiður í túlkun. Það er lífsnauðsyn fyrir okkur að fá aðra lausn á þessum málum því núverandi fyrirkomulag verður aldrei tU friðs. Ég hefi þann Ula grun að með lögregluaðgerðum sínum séu Norð- menn að gæla við þá hugsun að láta á það reyna í annað sinn á þessu ár- þúsundi hvort sjálfstætt þjóðríki á íslandi fái staðist. Við Islendingar þurfum að fara að ýta frá okkur. Það er óþolandi að Norðmenn stöðvi eðlUegan aðgang okkar að landgranni okkar, sem al- þjóðleg þróun gefur okkur tilkaU tU, aðgang að og áhrif á umhverfi, sem hefur verið okkar í eUefuhund- rað ár. Við beitum ekki vopnum né valdi. Við verðum að beita öðrum aðferðum tU þess að fá viðunandi ástand og réttindi á þessu svæði. Þjóðin mun aldrei sætta sig við nú- verandi ástand. Það veröur ávaUt stór skuggi á samvisku hennar og óveðursský yfir samskiptum íslend- inga og Norðmanna. Jóhann J. Ólafsson Skoðanir annarra Framtíðarsýn í fyrirtækjum „Flestir eru því sammála að léleg stjómun feUi fýrirtæki fremur en óheppni. Einhver kynni þó að halda því fram að það flokkist undir óheppni ef framleiðsluvara fyrirtækis verður gjörsamlega úrelt í einu vetfangi vegna nýrrar tækni. Framtíðarsýn er nauðsynleg til að fyrirtæki hafi trygga yfirburði á hverjum tíma ... Helsta verk stjómanda er að tryggja fyrirtækinu stöðuga yfirburði á sínu sviði. Það er erfitt og mikið verk að ná yfirburðum - og halda þeim!“ Jón G. Hauksson í leiðara 4. tbl. Frjálsrar verslunar. Umferðin frá Reykjavík „Vori og sumri fylgir aukin umferð um vegi. AU- ir æða úr og í bæinn á sama tíma. Þarf svo sem ekki sumar tU að ómöguleg verði umferðin út úr þessu ólánlega höfúðborgamesi, þar sem aðeins er hægt að komast út og inn í borgina úr einni átt... Ein renna tekm- við allri umferð frá Seltjamamesi og vel inn fýrir EUiðaár. Virðast framkvæmdaaðUar og umferðamefndir Ula hafa skynjað þessa klemmu höfuðborgarinnar ... Sú von að bílarnir hverfi bara á leið út úr Reykjavík minnir á Bakkabræður með lík foður síns á Brúnku." Elin Pálmadóttir í Gárum Mbl. 15. júní Sígilt dæmi um sósíalisma „Skemmst er að mfanast þegar ríkisvaldið tók miUjarðatugi frá samhjálpinni tU að greiða bændum fyrir nýjan búvörusamning og er hann aðefas hluti af samfeUdum niðurgreiðslum og uppbótum tU land- búnaðarins í áratugi. Sala ríkisfyrirtækja er annað sorglegt dæmi um þróun sósíalismans hér á landi. Enn þá hefúr fslenskum stjómmálamönnum ekki tekist að selja eignir ríkisfas á öðru verði en tombóluverði og ekki fundið aðra kaupendur en vini og vandamenn." Ásgeir Hannes í Degi-Tímanum 14. júni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.