Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1997, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 1997
25
Fréttir
Keflavíkurflugvöllur:
Mikil aukning
í maí
DV, Suðurnesjum:
Spá kunnugra í íluginu að met
verði sett í farþegafjölda um Kefla-
víkurflugöll í sumar ætlar að rætast
sé tekið mið af maímánuði. Farþeg-
um um Leifsstöð hefur fjölgað um
tæplega 10 þúsund í maí samborið
við maímánuð í fyrra.
Alls komu 92.256 farþegar í Leifs-
stöð í mánuðinum. Héðan fóru
31.605 farþgar, 29.386 farþegar komu
til landsins og 31.265 farþegar milli-
lentu eða skiptu um flugvél. Hækk-
un var á öllum tölum miðað við
sama mánuð í fyrra.
Hins vegar var minna magn af
vörum í flugvélum. Héðan fóru 1062
tonn í maí miðað við 1281 tonn í
sama mánuði i fyrra, 675 tonn af
vörum komu hingað til lands á móti w
671 tonn í maí 1996. Pósturinn stóð
nánast í stað, 157 tonn komu til
landsins á móti 153 tonni í maí í
fyrra. 704 lendingar áttu sér stað á
Keflavíkurflugvelli í maí og voru
Flugleiðir með langflestar, 390.
Einkavélar með 80 lendingar, Flug-
félag Norðurlands 7 og Atlanta 6 svo
eitthvað sé nefnt.
-ÆMK
I
I
f
I
I
I
I
I
I
I
I
I
JARÐVEGS
ÞJAPPA
VONDUÐ OG TRAUST
HAGKVÆM 1 REKSTRI
AUÐVELD í MEÐFÖRUM
LÁG BILANATÍÐNI
HEKLA
VELADEILD
Laugavegi 170-174, slmi 569 5500
Skemmtiferðaskipið Vistamar við bryggju á Seyðisfiröi.
DV-myndir Jóhann
INGERSOLL-RAND
DV, Seyöisfirði:
Veðrið var mjög fagurt á dögun-
um þegar Norræna kom að bryggju
í annarri ferð sinni á þessu vori.
Fyrsta komudaginn í júnibyrjun
var dæmigert vorhret um allt land,
kuldalegt og miskunnarlítið.
Nú var allt annað uppi á teningn-
um, enda voru stórtíðindi að gerast
Akranes:
Kratinn gaf
rauðar rósir
DV, Akranesi:
Á bæjarstjómarfundi á Akranesi
nýverið afhenti Ingvar Ingvarsson,
fulltrúi Alþýðuflokksins í bæjar-
stjóm og bæjarráði, öllum bæjar-
stjómarmönnum og bæjarstjóra
rauðar rósir vegna samkomulags,
sem Akraneskaupstaður hefur gert
við starfsfólk í hlutastörfum vegna
uppgjörs á vinnutíma. Aðspurður
sagði Ingvar.
„Það hefúr verið ágreiningur um
hvort greiða ætti yfirvinnukaup fyr-
ir tilfallandi forfallavinnu hjá
starfsmönnum leikskóla bæjarins.
Að mínu mati er það mjög skýrt í
samningum að svo skuli vera. Nú
hefur sem sagt náðst samkomulag
við starfsfólkið og ég fagna því inni-
lega. Ég lagði fram bókun á fundin-
um um leið og ég færði þeim hverj-
um og einum rauða rós. Þetta var í
sjálfsögðu í gamni og alvöru.“-DVÓ
Ingvar Ingvarsson með rós.
DV-mynd Daníel
DV, Norðurl. vestra:
Eigendaskipti hafa orðið á sauma-
stofunni Evu á Blönduósi. Guðbjart-
ur Á. Ólafsson og C. Madsen hafa
keypt lager og vélar af Zophaníasi
Zophaníassyni og tekið við starf-
semi fyrirtækisins. Blönduósbær
keypti húsnæði saumastofunnar af
Zophaníasi en leigir það áfram und-
ir starfsemina.
Guðbjartur er með 70% eignarað-
ild í saumastofunni og Madsen,
danskur umbóðsaðili, á 30%. Mad-
sen hefur annast sölu 70-80% af
framleiðslu Saumastofunnar Evu
um árabil.
Guðbjartur segir að ekki sé að
vænta mikilla breytinga á starfsem-
inni. Lítils háttar fjölgun verður þó á
starfsfólki og koma tvær nýjar sauma-
konur til starfa. Eva er einnig prjóna-
stofa, prjónar sina voð í framleiðsluna.
Vegna kaupanna mun Guðbjartur
láta af starfl bæjartæknifræðings á
Blönduósi í haust, en áfram sirrna
tækniþjónustu og annast byggingaeft-
irlit i sveitum sýslunnar. -ÞÁ
í ferjusiglingunum til Seyðisfjarðar.
Ný tollstöð i myndarlegu afgreiðslu-
húsi á hafharbakkanum var tekin í
notkun. Allt frá því að ferjusigling-
ar hófust fyrir 22 árum hefur að-
staðan til tollafgreiðslu verið bág-
borin og óviðunandi og nánast til
vansæmdar.
Með skipinu komu að þessu sinni
400 farþegar og tæplega 100 öku-
tæki. 200 farþegar fóru með skipinu
ásamt 70 ökutækjum. Farmiðasala
nú gefur ekki tilefni til annars en að
lita björtum augum til sumarsins.
Svo skemmtilega vildi til að á sama
tíma og Norræna, var hér fallegt,
þýskt skemmtiferðaskip á öðrum
stað í höfninni og skoðuðu Þjóðverj-
ar gamla hefðarbæinn þessa morg-
unstund.
Dansflokkur skemmti Þjóðverjum á Seyðisfirði.
Höfrung-
ur efstur
í úthafs-
karfanum
DV, Akranesi:
íslensku skipin veiddu lítið af
úthafskarfastofhinum á Reykja-
neshrygg 26. maí til 2. júní, sam-
kvæmt tölum frá Fiskistofú. Á al-
þjóðlega hafsvæðinu veiddust 835
tonn og innan lögsögu íslands
veiddust 406 tonn. Því hafa verið
veidd 16175 tonn af 45000 tonna
afla sem íslandi var úthlutað af
NEAFC.
Skýringin á þessum litla afla
kann að vera sú að sjómannadag-
urinn kemur inn í og þá voru
mörg skip í landi. Höfrungur AK
III250, í eigu HB hf. á Akranesi, er
enn aflahæstur með 1246 tonn.
Hann veiddi 172 tonn á áður-
nefndu tímabili. Baldur Þorsteins-
son EA er annar með 1048 tonn en
var ekki á veiðum á þessu tíma-
bili. -DVÓ
SeyðisQörður:
Tvo storskip sam-
tímis í höfninni
Blönduós:
Eigenda-
skipti á
Evu