Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1997, Page 32
36
MIÐVIKUDAGUR 18. JUNI 1997
„Þetta nemur einum karfa og
við hefðum betur borðað hann á
heimleiðinni."
Gylfi Traustason útgerðarnað-
ur, sem er hótað sviptingu
veiðileyfis fyrir að fara 2 kíló
fram yfir kvóta, í DV.
Samhjálp og sósíalismi
„Samhjálp hefur verið tekin í
misgripum fyrir sósíalisma.
Bændum, mjölverkendum, sæ-
greifum og fleiri greifum hefur
verið afhentur stór hluti af ís-
lenska þjóðfélaginu, ýmist án
endurgjalds eða á tombólu-
verði.“
Ásgeir Hannes Eiríksson, í
Degi-Tímanum.
List og ekki list
„Þeir kalla það list, það sem
ekkert er, en þegja í hel listsköp-
un sem höfðar til hjartans og til-
finninganna."
Grímur M. Steindórsson lista-
maður, í Morgunblaðinu.
Ummæli
Býð mig fram í alvöru
„Ég heyri presta segja að ég sé
ekki að bjóða mig fram til bisk-
ups í alvöru, heldur til að kynna
skoðanir mínar í alvöruleysi og
svo til að gera mig fræga.“
Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, í
DV.
Aíbrot Og
ótímabær dauði
„Annars get ég viðurkennt að
það sem raunverulega fær á mig
er yfirleitt ekki rannsókn á
venjulegum afbrotum. Ótímabær
dauði barna og ekki síst ung-
linga sem fyrirfara sér eftir að
hafa lent í ógöngum sem oft
tengjast áfengi eða fíkniefnum er
miklu skelfilegra."
Gunnlaugur Geirsson réttar-
læknir, í Morgunblaðinu.
Betur boröað
karfann
Bílbeltin voru lengi að þróast í það
öryggistæki sem það er í dag.
Bílbelti
Sá sem fyrstur sótti um einka-
leyfi á nýtilegu bílbelti (rúllubelti)
var Sviinn Hans Karlsson. Sótti
hann um leyfið 1962. Framleiðsla
öryggisbelta í bílum hafði þó haf-
ist mörgum árum áður. Fyrstar til
að setja öryggisbelti í bíla voru
Volvo-verksmiðjurnar sem það
gerðu árið 1959. Eldri gerðir af bíl-
beltum voru hengdar upp í bifreið-
unum og þóttu óþjálli í notkun.
Ýmsan vanda þurfti að leysa áður
en góð rúllubelti komu á markað-
inn. Fjöðrin, sem vafði beltið upp,
> var of veik og linaðist með tíman-
um, læsingin var ekki altrygg og
beltin þóttu safna á sig óhreinind-
um, svo eitthvað sé nefnt.
Blessuð veröldin
Öryggisgler og ör-
yggispúði
Volvo var ekki aðeins fyrsti
framleiðandinn sem setti bílbelti í
bíla heldur einnig þeir fyrstu til að
setja öryggisgler í framrúður. Slíkt
gler var sett í PV 444 og þótti það
sæta miklum tíðindum. Það voru
hins vegar Daimler-Benz-verk-
smiðjurnar sem fyrst komu með
hugmynd að öryggispúða. Nefndu
þeir hann Airbag og var hugmynd-
in að tryggja öryggi ökumanns ef
árekstur yrði. Loftbelgur er inn-
byggður í stýrisstöngina og blæs
upp á sekúndubroti ef högg kemur
framan á bílinn.
Lengst af rigning
990 mb lægð er um 500 km suð-
suðaustur af Vestmannaeyjum og
þokast austsuðaustur. Frá henni er
lægðardrag sem teygir sig norður
Veðrið í dag
undir ísland.
í dag verður austan- og norðaust-
anstinningskaldi en lægir heldur
um og eftir hádegi. Á Austur- og
Suðausturlandi verður lengst af
rigning og eins allvíða annars stað-
ar á landinu. Á Vesturlandi og eins
sums staðar í innsveitum Norðan-
lands styttir upp síðar í dag. Hiti
verður frá þremur til fjórum stigum
við norðurströndina upp í 11 til 14
stig suðvestanlands.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
norðaustankaldi, skýjað með köfl-
um og úrkomulaust. Austangola
verður og léttir heldur til í nótt. Hiti
verður 8 til 12 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 0.03
Sólarupprás á morgun: 2.55
Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.01
Árdegisflóð á morgun: 4.30
Veðriö kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjaö
Akurnes rigning og súld
Bergsstaöir skýjaö
Bolungarvik súld
Keflavíkurflugv. rigning
Kirkjubkl. alskýjaö
Raufarhöfn þokumóöa
Reykjavík rigning
Stórhöfói rign. á siö. klst.
Helsinki skýjaö
Kaupmannah. léttskýjað
Ósló rigning og súld
Stokkhólmur skýjað
Þórshöfn rigning
Amsterdam léttskýjaö
Barcelona skýjaö
Chicago alskýjaö
Frankfurt rigning
Glasgow rigning
Hamborg léttskýjaö
London mistur
Lúxemborg skýjaö
Malaga léttskýjað
Mallorca skýjaö
París léttskýjaö
New York alskýjaö
Orlando skýjaó
Nuuk hálfskýjað
Vín rign. á síö. klst.
Washington alskýjað
Winnipeg léttskýjaö
5
8
5
3
7
8
4
7
7
15
14
10
11
10
13
19
12
11
11
12
13
11
21
22
13
18
23
6
15
23
8
Ólafur Þór Erlendsson, iðnhönnuður og húsgagna- og innanhússarkitekt:
Erfitt að koma hlutunum í framleiðslu
DV, Suðurnesjum:
„Sýningin gekk mjög vel og það
voru mjög margir sem sóttu hana.
íslenski básinn fékk mjög góða
einkunn. Ég fékk margar áhuga-
verðar fyrirspurnir um mína hluti
en mig vantar framleiðanda, sem
er erfiðast af þessu öllu saman, að
koma hlutunum í framleiðslu. Ég
er að vísu með fyrirtæki í dag sem
er að framleiða hluta af mínum
húsgögnum," sagði Ólafur Þór Er-
lendsson, iðnhönnuður og hús-
gagna- og innanhússarkitekt, en
hann tók nýlega þátt í stórri hús-
gagnasýningu í Danmörku ásamt
hópi, sem er í félagi húsgagna- og
innanhússarkitekta, frá íslandi.
Maður dagsins
Hópurinn sýndi húsgögn, frum-
gerðir, í sameiginlegum bási, en
hver fyrir sig. Ólafur hefur starfað
sem verktaki hjá Teiknitofunni
Örk í Keflavík frá því hann fluttist
til íslands í maí í fyrra eftir tæp-
lega 8 ára dvöl í Kaupmannahöfn
en þar stundaði hann nám. Loka-
verkefni Ólafs vakti mikla athygli
við skólann og var valið fyrir sam-
norræna hönnunarsýningu og fór
til fjögurra stórborga í Evrópu og
Ólafur Þór Erlendsson.
DV mynd Ægir Már
einnig til minni staða. ÓMur var
einnig valinn í framkvæmd sýn-
ingarinnar fyrir hönd skólans sem
hann stundaði sitt nám í. Þá hefur
Ólafur tekið þátt í fjölmörgum
sýningum og hafa hugmyndir
hans, sem hann fékk þegar hann
stundaði nám, verið framleiddar
án þess að hann fengi umbun fýr-
ir.
Aðalvinna Ólafs hjá Teiknistof-
unni Örk er hins vegar ekki að
teikna og hanna húsgögn. „Starfið
er mjög fjölbreytt og felst meðal
annars í húsahönnun, innanhúss-
arktektúr og allt þar á milli. Ég
hef ekki getaö lifað af því að
hanna húsgögn en það er hluti af
því sem ég hef áhuga á og mun
gera i framtiðinni. Það er gífurleg
samkeppni og það hörð á þessu
sviði. Maður þarf aö fá reynslu og
skapa sér nafn, láta sjá sig á sýn-
ingum. Fjarlægðin frá íslandi er
erfið, langt í markaðinn, en þá
þarf að hafa tengslin í lagi. Maður
gerir sér alltaf vonir um að hlut-
irnir geti gengið upp. Viðbrögðin
eru ávallt eins og að taka þátt í
lottóinu, maður spilar og spilar og
það getur komið vinningur, hann
getur verið lítill og hann getur
verið stór.“
Ólafur er einnig lærður húsa-
smiður og vann viö greinina í 7 ár
áður en hann fór til Danmerkur.
Ólafur á sér nokkur áhugamál.„Ég
hef gaman af því að fljúga og hef
einkaflugmannspróf og flaug
nokkur ár áður en ég fór út. Ég hef
mikinn áhuga á að komast aftur í
loftið. Þá er útiveran ofarlega hjá
mér.“ Ólafur hefur verið í sambúð
með Gíslínu Hákonai’dóttur í 13
ár. Þau eiga þrjú böm, Sindra, 5
ára, Telmu, 3 ára, og Bjarka, 3
mánaða. -ÆMK
Lyklaborð Myndgátan hér aö ofan lýsir orötaki.
DV
KR-ingar fagna marki í leik gegn
Skallgrími.
KR-Keflavík
Boltin byrjar aftur að rúlla í
úrvalsdeildinni í knattspyrnu í
dag og er sjötta umferðin öll spil-
uð í kvöld. Mikið hefur gengið á
í herbúðum KR-inga frá því þeir
léku síðast, þjálfaraskipti hafa
orðið sem fóru ekki friðsamlega
fram en nú hefur öldumar lægt.
í kvöld taka KR-ingar á móti
efsta liði deildarinnar, Keflvík-
ingum og er það aðalleikur um-
ferðarinnar. Keflvíkingar hafa
unnið alla leiki sína hingað til
og eru ömgglega ekki á þeim
buxunum að gefa eftir í toppbar-
áttunni. KR-ingar hafa aftur á
móti ekki halað inn mörg stig
hingað til og eigi þeir að komast
í toppslaginn þá verða þeir að
vinna í kvöld. Það má þvi fast-
lega búast við miklum baráttu-
leik í Frostaskjóli í kvöld.
íþróttir
íslandsmeistarar Akraness
heimsækja nágrannabæinn
Borgarnes og leika gegn Skalla-
grímsmönnum í kvöld. Grind-
víkingar fá Framara í heimsókn,
á Ólafsfirði munu Leiftursmenn
leika sinn fyrsta heimaleik á eig-
in velli gegn Stjömunni og á
Valsvelli leika Valur og ÍBV. AU-
ir leikir kvöldsins hefjast kl.
20.00.
Bridge
Hér kemur varnarþraut fyrir suð-
ur en vestur er sagnhafi í fjórum
hjörtum dobluðum. Þeir sem vilja
spreyta sig á vöminni skoði aðeins
hendur suðurs og austurs (blinds).
NS eru á hættu í spilinu, vestur
opnar á einu hjarta, félagi í norður
passar, austur segir 2 tígla, suður
læðir inn 2 spöðum sem vestur og
norðm- passa. Austur segir síðan 4
hjörtu sem þú doblar. Félagi þinn í
norður spilar út spaða og þú drepur
drottningu austurs á kóng. Hvernig
viltu haga vörninni?
4 -
w -
4 -
* -
4 D
«4 KD94
♦ K8743
* G65
4 ÁKG106
•» 7
♦ ÁG10
4 Á872
Ljóst er að félagi á sennilega eng-
an punkt og því virðist eini mögu-
leiki varnarinnar sá að norður eigi
tvíspil í tígli. En til þess að hnekkja
samningnum, verður að spila tígul-
gosanum (eða tíunni)! Spilin eru
svona:
4 8542
«4 653
4 95
4 10943
4 D
4* KD94
4 K8743
4 G65
4 ÁKG106
«4 7
4 ÁG10
4 Á872
4 973
44 ÁG1082
4 D62
4 KD
Til að koma í veg fyrir að norður
fái trompun í tígli verður vestur að
taka þrisvar tromp. Alveg sama er
hvaða láglit sagnhafi spilar næst,
suður drepur, spilar spaða og fær
síðar slag á spaðalitinn.
ísak Örn Sigurðsson