Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1997, Side 16
16
25
íþróttir
„Sá besti í sumar“
- Breiöablik eftir sigur á Grindavík
John Toschak var í gær ráðinn
þjálfari hjá tyrkneska félaginu
Besiktas. Hann var síðast
þjálfari hjá spænska liðinu
Deportivo Coruna en sagði þar
upp störfum í febrúar sl.
Roberto Baggio sagði í gær að
hann væri á förum frá AC. Hann
sagði þetta við komuna úr fríi
frá Argentínu. Fabio Capello
telur sig ekki þurfa á kröftum
hans að halda. Sögusagnir hafa
veriö á kreiki um að hann langi
til að leika á Bretlandseyjum.
Nigeríski knattspymumaðurinn
Taribo West er á leiðinni til
Inter Milan. Samningar þar að
lútandi eru á lokastigi og hefur
kappinn samþykkt nú þegar
uppkast að samningi sem gildir
til 2001.
Jan Sörensen, fyrrverandi
landsliðsþjálfari Dana, verður
næsti framkvæmdasijóri enska
2. deildar liðsins Walsall.
Sörensen, sem ekki hefur komið
nálægt fótbolta i átta ár, vonast
til aö koma liðinu upp í 1. deild
á samningstímanum sem er tvö
ár.
Spamska liðið Celta Vigo vék í
gær Femando Castro úr starfi
sem þjálfara aðeins þremur
dögum eftir sigur liðsins á Real
Madrid. Celta slapp með
naumindum viö fall.
San Antonio, sem átti fyrsta
valréttinn í háskólavalinu valdi
Tim Duncan frá Wake Forest en
stráksi þykir mikið efni og
bindur San Antonio miklar
vonir við hann.
-JKS
íkvöld
Coca-Cola bikar karla
KA-ÍBV ....................20.00
FH-Skallagrimur ...........20.00
Keflavík-Fram .............20.00
Stjaman-KR ................20.00
2. deild karla
KVA-Þróttur N..............20.00
Ægir-Leiknir R.............20.00
3. deild karla C
Emir 1-Bolungarvik ........20.00
DV, Suðurnesjum:
Breiðablik, sem leikur í 1. deild,
gerði sér lítið fyrir og sló út Grind-
víkinga í 16-liöa úrslitunum bikar-
keppninnar í Grindavík í gærkvöld.
Eina mark leiksins gerði Þórhallur
Hinriksson með hörkuskoti úr víta-
teignum þegar tólf mínútur voru
liðnar af síðari hálfleik.
Grindvíkingar voru daprir og
sköpuðu sér fá tækifæri og vora allt
of seinir í öllum sínum aðgerðum
fyrir framan mark Breiðabliks.
Gestimir þurftu engan stórleik til
að leggja Grindvíkinga að velli.
Blikarnir fóru langt á baráttimni
sem leikmenn Grindavíkur skorti
og hugur þeirra til að leika knatt-
spymu var víðs fjarri. Það var áfall
fyrir Grindvikinga að falla svona
snemma út út bikamum.
Leikmenn náðu sér einfaldlega
ekki á strik í leiknum og ollu stuðn-
ingsmönnum sínum miklum von-
1- 0 Einar Öm Birgisson (69.), skoraði
af öryggi úr vítaspymu.
2- 0 Heiðar Sigurjónsson (75.), fékk góða
sendingu frá Einari Emi inn fyrir vöm
Þórsara og skoraði af öryggi.
Það var svo sem ekki sérstakur
bolti sem sýndur var í Laugardaln-
um i gærkvöld í leik Þróttar og Þórs
frá Akureyri en færin létu samt
ekki á sér standa og leikurinn var í
heild sinni nokkuð fjöragur.
Heimamenn í Þrótti byrjuðu af
meiri krafti en gustirnir komu meir
inn í leikinn sem á leið. Fyrstu fær-
in féllu Þrótturam í skaut en Þórs-
arar fengu þó líka sín færi en með
ótrúlegum klaufaskap fóru þau öll í
súginn hjá báðum liðum og því var
markalaust í hálfleik.
í síðari hálfleik héldu færin
áfram að koma á færibandi og held-
brigðum. Það var greinileg dagskip-
un Sigurðar Halldórssonar, þjálfara
Breiðabliks, að leika sterka vöm og
beita síðan skyndisóknum. Þetta
herbragð heppnaðist mjög vel og
komust Grindvíkingar lítið áleiðis
gegn sterkri vörn Blika.
„Þetta var áfangasigur. Við vor-
um að leika mjög vel og þá sérstak-
lega í fyrri hálfleik. Það var komin
ákveðin pressa á okkur þegar við
skoraðum markið. Vömin vann vel
og á henni forum við langt. Þetta
var einn besti leikur okkar í sum-
ar,“ sagði Sigurður Halldórsson,
þjálfari Breiðabliks, viö DV eftir
leikinn.
„Það er ekki gaman að detta
svona út úr bikarnum. Við vorum
að leika ágætlega en það kom lítið
út úr því. Markið sem við fáum á
okkur er óheppni. Heppnin var hins
vegar með þeim,“ sagði Albert Sæv-
arsson, markvörður Grindvíkinga,
við DV i leikslok. -ÆMK
ur meiri harka færðist í leikinn.
Þórsarar fengu sannkölluð dauöa-
færi til að komast yfir og fékk
Hreinn Hringsson líklega það besta
þegar hann komst einn inn fyrir
vörn Þróttar en skot hans yfír Axel
í markinu fór naumlega fram hjá. í
stað þess að gestimir nýttu sín færi
vora það Þróttarar sem komust yfir
með marki úr vítaspyrnu eftir að
brotið var á Heiðari Sigurjónssyni.
Þeir bættu skömmu seinna við öðru
marki og gulltryggðu þar með sigur
sinn. Þegar hér var komið við sögu
datt leikurinn nokkuð niður en það
verða því Þróttarar úr Reykjavík
sem verða með í 8-liða úrslitunum.
-BB
Barátta í Laugardalnum:
Þróttarar höfðu betur
gegn Þórsurum
- Þórsarar klaufar aö skora ekki
Stjarnan fær góðan liöstyrk:
„Bibercic verður með
okkur gegn KR“
Það gengur mikið á í herbúðum
knattspymuliðs Stjömunnar í
Garðabæ þessa dagana. Liðið sem
nýlega rak þjálfara sinn hefur nú
gert samning við framherjann
Mihaljo Bibercic sem áður hefur
gert það gott með Skagamönnum.
„Viö höfum gert samning við
Bibercic um að hann spili með
okkur að minnsta kosti út þetta
tímabil. Hann er þegar orðinn lög-
legur og verður i liðinu í kvöld
gegn KR í bikamum. Við vitum
hvaö hann getur og vonandi getur
hann hjálpað okkur í því að koma
liðinu aftur á beinu brautina,“
sagði Lúðvík Öm Steinarsson, for-
maður knattspymudeildar Stjöm-
unnar, viö DV í gærkvöld.
„Við eram hins vegar enn að
leita fyrir okkur meö nýjan þjálf-
ara og ekki tímabært aö gefa út
neitt nánara um það mál eins og
stendur," bætti Lúðvik við. -ÖB
„ Markalaust hjá
Örebro og Örgryte
DV, Sviþjóö:
Örgryte og Örebro geröu
markalaust jafntefli í sænsku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu í
gærkvöldi. Rúnar Kristinsson
lék allan leikinn hjá Örgryte og
þeir Sigui’ður Jónsson og Hlynur
Birgisson vora með Örebro. Am-
ór Guðjohnsen var í leikbanni.
Úrslit í öðrum leikjum urðu þau
að Norrköping sigraði Öster, 1-0,
og Halmstad sigraði Vesterás,
2-1.
-EH
Winter hjá Chicago
heldur námskeið
Einn frægasti körfuknattleiks-
þjálfari allra tíma, Tex Winter,
sóknarþjálfari Chicago Bulls,
mun koma til íslands 9. júli og
halda námskeið í Keflavik. Það
stendur yfir 11.-13. júlí í veit-
ingahúsinu Glóðinni. Nám-
skeiðsgjaldiö er 6000 kr. en allar
nánari upplýsingar veitir Tómas
Tómasson í síma 421-5530 og 899-
0525.
-JKS
Sigur gegn Finnum
íslenska kvennalandsliðið í
knattspymu, skipað stúlkum 17
ára og yngri, sigraði Finna, 2-1,
á Norðurlandamótinu. Hrefna
Jóhannesdóttir skoraði bæði
mörk íslenska liðsins í leiknum.
-JKS
SJÓVÁ-ALMENNAR
OPIÐ
verður haldið á Hamarsvelli,
Borgarnesi, laugard. 28. júní nk.
Leikinn verður 18 holu höggleikur með og án forgjafar.
Mjög vegleg verðlaun verða veitt fyrir 3 fyrstu sætin
með og án forgjafar, nándarverðlaun á 2 brautum og
dregið úr skorkortum. Mótagjald er kr. 2000,-
Ræst verður út frá kl. 9.00 og hefst
skráning fimmtudaginn 26. júní í síma
437-1663, fax 447-2063 eöa e-mail
gb@aknet.is
FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1997 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1997
DV DV
íþróttir
Höröur Magnússon kom Valsmönnum á bragöiö gegn Fylki í gærkvöld aö Hlíöarenda. Hér hefur Höröur betur í skallaeinvígi en á morgun kemur í ijós hverjir veröa
mótherjar Valsmanna í 8-liöa úrslitum en þaö veröur dregiö í keppninni. DV-mynd Brynjar Gauti
Skaginn ver
ekki bikarinn
DV, Ólafsfirði:
1-0 Amar Grétarsson (9.)
Bikarmeistarar Skagamanna eru
úr leik í bikarkeppninni. Þeir sóttu
Leiftursmenn norður á Ólafsfjörð í
gærkvöldi og töpuðu á marki sem
skorað var í byrjun leiks. Markið
skoraði Arnar Grétarsson og var
val að því staðið, þramaði boltanum
glæsilega í vinstra homið.
Það var reyndar enginn meistara-
bragur á meisturunum og verður að
segjast eins og er að sigur Leifturs-
manna var sanngjam. Heimamenn
voru grimmari lengst af og sóknir
Skagamanna langt frá því að vera
sannfærandi.
Leikurinn var ekki sérlega
áferðarfallegur, enda ef til vill ekki
til þess ætlast. Hann var fyrst og
fremst baráttuleikur tveggja öflugra
liða. Og það var ekkert gefið eftir.
Leiftur byrjaöi betur og skoraði
markið snemma. Heimamenn vora
miklu ákveðnari í fyrri hálfleik og
áttu nokkur þokkaleg færi og hefðu
hæglega getað bætt við tveim-þrem
mörkum ef heppnin hefði verið
með.
Skagamenn voru mun beittari í
síðari hálfleik, enda bökkuðu Leift-
ursmenn og beittu skyndisóknum.
Skagamenn fengu fjölmargar auka-
spymur, sumar á stórhættulegum
stað rétt utan vitateigs, en ekkert
varð úr þeim. Haraldur Ingólfsson
tók þær flestar en hann var lang-
bestur Skagamanna. Gestimir náðu
upp mikilli pressu um miðjan síðari
hálfleik og Leiftursmenn lentu í
nokkrum sinnum í nauðvörn.
Hættulegasta sóknin var þegar Al-
exander Högnason náði hörkuskoti
sem fór í vömina og Steinar Adolfs-
son fylgdi vel á eftir með annað skot
en vörnin hreinsaði á síðustu
stundu. En vörn Leifturs stóðst
ásóknina.
Leikurinn var fast spilaður, án
þess að vera grófur. Mikið var í húfi
og menn lögðu sig alla í leikinn.
Bragi Bergmann dómari hafði í
nógu að snúast og spjaldaði menn
hiklaust fyrir nöldur. Og eins og
alltaf þegar Leiftur og ÍA spila fer
leikurinn langt fram yfir. Fyrri hálf-
leikur var 50 mínútur og sá síðari 52
mínútur, enda margir taugaveiklað-
ir utan vallar sem innan.
Kristinn Bjömsson, þjálfari Leift-
urs, var að vonum kampakátur í
leikslok. Hann sagðist hafa búist við
hörkuleik, sem kom á daginn. Hann
var ánægður með baráttuna í sínum
mönnum.
Ólafur Þórðarson, fyrirliði ÍA,
var hins vegar ákaflega óhress í
leikslok, ekki bara út í eigið lið,
heldur líka Braga Bergmann dóm-
ara.
„Við fengum á okkur klaufamark
strax í byrjun, sem þeim tókst að
hanga á út leikinn. Mér finnst að
dómarinn ætti að fara í endurhæf-
ingu. Hann var ótrúlegur. Lét mig
hafa gult spjald fyrir að segja Jesus
Christ eftir að ég hafði verið dreg-
inn niður í bullandi sókn.“
-HJ
föj) ENOLANP
Howard Kendall, sem sagður er
vera að taka við liði Everton, er þeg-
ar farinn aö leggja á ráðin um að
styrkja liðiö og er sagður þar efstur á
blaði enginn annar en Paul Ince.
Juninho og Ravanelli, leikmenn
Middlesbrough, hafa verið boðaðir á
æfmgu hjá liðinu en undirbúnings-
tímabil enskra fer nú brátt að hefjast.
Þeir félagar hafa sagst vilja fara frá
liðinu eftir að það féll úr úrvalsdeild-
inni en Steve Gibson, stjómarfonnað-
ur félagsins, segir þá eins og hverja
aöra leikmenn sem veröi að standa
við gerða samninga.
Peter Beardsley, leikmaður
Newcastle, viil nú fá fund með fram-
kvæmdastjóranum, Kenny Dalglish,
þar sem hann ætlar að óska eftir nýj-
um samningi viö félagið. Beardsley,
sem orðinn er 36 ára gamall, hefur af-
þakkað öll tilboð frá öðrum liðum og
vill vera áfram á St. Jame's Park þar
sem hann á eftir 12 mánuði af núver-
andi samningi sínum.
Sheffield Wednesday hefur
keypt franska leikmanninn Patrick
Blondeau. Blondeau þessi var áður
hjá Monaco þaðan sem hann var rek-
inn af þáverandi þjálfara liðsins,
Arsene Wenger.
Blacburn Rovers heldur áfram að
styrkja lið sitt fyrir komandi tímabil.
Roy Hodgson, nýr framkvæmdastjóri
liösins, hefur nú gert samning við 27
ára gamlan Frakka sem heitir Pat-
rick Valery og kemur frá Bastia.
Forráöamönnum Arsenal hefur
verið skipaö að mæta fyrir aganefhd
úrvalsdeildarinnar i næsta mánuði
vegna fjölda rauöra- og gulra spjalda
sem liöið fékk á síðustu leiktíö sem
og vegna agavandamála Ians Wright
leikmanns liðsins. Lið Middles-
brough hefur einnig verið sektað um
2,9 milljónir vegna agaleysis i liðinu
við upphaf síðustu leiktíðar.
-ÖB
Valsmenn komnir áfram:
Bragðdauft að
Hlíðarenda
1- 0 Hörður Magnússon (60.), fékk
boltann einn og óvaldaður í markteig
Fylkis eftir aukaspymu og afgreiddi
boltann auðveldlega í netið.
2- 0 Arnar Hrafn Jóhannsson (68.),
fékk góða sendingu frá Ólafi
Brynjólfssyni inn fyrir vöm gestanna og
skoraði af miklu öryggi.
Leikur úrvalsdeildarliðs Vals og
1. deildarliðs Fylkis í 16-liða úrslit-
um bikarkeppninnar í gærkvöld var
ekki upp á marga fiska. Mikið var
um ónákvæmar sendingar, liðunum
hélst illa á boltanum og því fór ekki
mikið fyrir fallegum samleik en bar-
áttan var því meiri.
Fyrri hálfleikur verður sennilega
að teljast með því lélegra sem sést
hefur lengi. Boltinn barst fram og
aftur um miðjan völlinn með litlum
sem engum árangri beggja liða og
má í raun segja að það hafi ná-
kvæmlega ekkert markvert gerst í
fyrri hálfleik og því markalaust þeg-
ar Eyjólfur Ólafsson, ágætur dómari
leiksins, flautaði til leikhlés.
Bæði lið höfðu greinilega gert sér
það fyllilega ljóst í leikhléinu að
þau næðu litlum árangri með spila-
mennsku sem þessari og mættu til
síðari hálfleiks að mun meiri
ákveðni og skynsemi. Skömmu eftir
að Fylkismenn höfðu fengið dauða-
færi settu Valsmenn tvö mörk sem
tryggði þeim sigurinn og sýndu loks
hvort liðið er í efstu deild. Fylkis-
menn gerðu þó sitt ýtrasta til að
minnka muninn allt til síðustu min-
útu en höfðu ekki erindi sem erfiði.
„Þetta var dauft allan tímann, við
spiluðum illa en höfðum þó yfir-
burði og unnum leikinn," sagði Sig-
urður Grétarsson, þjálfari Vals, við
DV eftir leikinn.
„Mínir menn voru að sýna sitt
besta hingað til. Valsmenn óðu ekk-
ert í færum en þegar maður gefur
svona mörk þá er alltaf á brattann
að sækja. Með svona leik er bjart
fram undan í deildinni og ég hef séð
það miklu svartara,“ sagði Atli Eð-
valdsson, þjálfari Fylkis, ánægður
með sína menn þrátt fyrir tap að
Hlíðarenda. -ÖB
Evrópumót landsliða í golfi:
íslendingar í 10. sæti
eftir fyrsta keppnisdag
í gær hófst á írlandi Evrópu- inn Bjamason og Þórður Ólafsson
keppni landsliða í golfi en í mótinu
taka þátt 22 þjóðir. Eftir fyrr
keppnisdag í höggleik eru íslend-
ingar í 10. sæti og veröur það að
teljast bara góður árangur en vind-
ur var allnokkur á mótinu í gær.
Eftir keppni í dag ræðst í hvaða
riðli íslenska liðið lendir en skor
fimm efstu manna telur.
Björgvin Sigurbergsson lék best
í gær eða alls á 75 höggum. Krist-
léku á 78 höggum, Öm Ævar Hjart-
arson á 82 höggum og Þorsteinn
Hallgrímsson á 83 höggum. Björg-
vin Þorsteinsson lék á 88 höggum.
Skor fimm efstu er alls 396 högg.
Veðurspáin var ekki glæsileg
fyrir daginn í dag en hún hljóðaði
upp á rigningu og tíu vindstig.
Sannkallað íslenskt verðurfar sem
landsliðsmennirnir kannast vel
við.
Opna LANDLISTAR 3olfmotið
verður haldið að Hlíðarvelli,
Mosfellsbæ, lau3arda3inn
28. júní. Skránin3 er hafin
í síma 566 7415.
Glæsileg verðlaun:
1.-2.-3. verðlaun án for3jafar
1.-2.-3. verðlaun með for3jöf
Næstur holu á 9/18
Aukaverðlaun fyrir konur
Allir fá LANDLISTARBOL
t