Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1997, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1997, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 1997 Fréttir Tveir karlmenn dæmdir í fangelsi 1 hellusteinsmálinu: Þrjú og hálft ár fyrir stórfellda líkamsárás - tilefnislaus árás, segir í niðurstöðu dómsins - fórnarlambið hlaut taltruflanir Guðni Tómasson, 22 ára, og Jón Óskar Magnússon, 20 ára, hafa verið dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur til fangelsisvistar fyrir stórfellda líkams- árás í svokölluðu hellusteinsmáli. Guðni var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að kasta hellu- steini í höfuð 43 ára karlmanns á mót- um Pósthússtrætis og Austurstrætis 27. apríl síðastliðinn. Jón Óskar Magnússson, félagi Guðna, var dæmd- ur í 18 mánaða fangelsi fyrir sinn þátt í árásinni. Báðir spörkuðu þeir itrek- að af miklu afli í fómarlambið þar sem það lá ósjálfbjarga á götunni. Fórnarlambinu veitt eftirför Niðurstaða dómsins var sú að lík- amsárásin hefði verið stórfelld og til- Hinir dæmdu í hinu svokallaða hellusteinsmáli sjást hér mæta í Héraðsdóm Reykjavíkur. DV-mynd Pjetur efnislaus. Jón Óskar hefði gengið að manninum og rekið öxlina í hann í þeim tilgangi einum að fá hann til að slást við sig. Maðurinn reyndi að losna frá Jón Óskari og tókust þeir þá á. Guðni fór þá einnig að kljást við manninn sem hörfaði inn Pósthús- stræti í átt að Austurvelli. Ákærðu veittu fómarlambinu eftirfor og hafði Guðni þá tekið sér hellustein í hönd. Hann kastaði hellusteininum af miklu afli í höfuð fórnarlambins, sem féll við það í götuna utan við veitingahús- ið Café París. Ákærðu spörkuðu þá ít- rekað báðir af miklu afli í manninn, m.a. í höfuð hans, þar sem hann lá ósjáifsbjarga í götunni. Alvariegir áverkar Við árásina hlaut fómarlambið 4 sentímetra langan stjörnulaga skurð með tættum brúnum vinstra megin á höfuð og 5 sentímetra fyrir ofan vinstra eyra. Fyrir innan höfúðleðrið var innkýlt stjömulaga brot í höfuð- kúpunni og hluti af beinbrotum gekk 3 sentímetra inn. Við þettá rofhuðu heilahimnur, sár kom í heilann og blæðing undir og kringum brotið. Sár- ið og blæðingin, sem maðurinn fékk í heilabörkinn á þessu svæði, ollu því að hann missti mál og hefur síðan haft miklar taltruflanir. Kraftur hans og tiifinning minnkaði einnig í hægri hluta líkamans. Hinir dæmdu hafa báðir setið inni frá því árásin átti sér stað. -RR Um 3000 manns í Þórsmörk um helgina: Skemmtu sér í bleytunni - mikið um slagsmál í Húsadal Glatt var á hjalla á tjaldstæöunum í Húsadal. DV-mynd Jonas Pór Jónasson Fjölmenni var í Þórsmörk um helg- ina eins og jafhan fyrstu helgina í júlí. Að vanda skiptist Mörkin mjög í tvennt. í Langadal voru hópar úr há- skólanum, Vaka, féíag verkfræðinema og fleiri. Þar réð létt og skemmtileg gítarstemning ríkjum þar sem hold- votir háskólanemar buðu regnguðun- um birginn í skjóli stórra hefla. Ekki fréttist af einum einustu slagsmálum á því svæði. Öðru máli gegnir um Húsadal þar sem menntaskólanemarnir voru sam- ankomnir á berangrinu. Þar var subbulegt um að litast og talsvert um líkamsmeiðingar. Einn piltur var kinnbeinsbrotinn, annar braut hönd- ina á sér á þessu sama kinnbeini og margir aðrir hlutu skrámur og skein- ur. Blaðamaður DV, sem var í Húsa- dal að mynda slagsmál og ofurölvaða táninga, var krafinn um filmur sínar af nokkrum alblóðugum og vígalegum ungum mönnum með hótunum um barsmíðar eftir að hafa náö myndum af sérlega harkalegum átökum. Úrhelli Það rigndi meira og minna sam- fleytt alla helgina og það var vinsælt að gera grín að veðurspáni sem sagði að það myndi ganga á með skúrum. Þetta þótti einhver samfefldasta skúraruna sögunnar. Það stóðst svo á endum að þegar þeir allra frískustu voru að skríða út úr tjöldum sínum í gærmorgun braust sólin fram og veðrið lék við Þórsmerkurfarana. Túnfiskurinn Menn koma misvel undirbún- ir í Mörkina og töluvert um létt- klædda og svanga ferðalanga. Fáir voru samt verr útbúnir en Atli og félagi hans sem aðeins hlýðir nafninu Mr. Profiler. „Við ákváðum að fara í Mörkina klukkan átta á fóstu- dagskvöldið. Við vorum orðnir allt of seinir svo ég óð af stað og pakkaði linsuvökvanum. Mr. Profiler fór á stúfana og pakk- aði tveimur túnfiskdollum. Þegar við vorum komnir í Mörkina rakst ég svo á Mr. Profiler þar sem hann stóð og stappaði á annarri túnfisksdoll- unni, dúndraði henni í steina og var orðinn alveg brjálaður yfir að dós- in skyldi ekki opnast. Hann stóð þarna með dolluna, alveg kengbeyglaða, djöflaðist á henni með tjaldsúlu og öslu-aði: „Helvítis fram- leiðendur. Þeir gera þetta bara til þess að pirra mann.“ Svo sá hann ein- hverja Englendinga og kallaði á þá: „Hey, let’s stúd the fókking túna“. Þeir slógust í hópinn og þama stóðum við fjórir, ég, Mr. Profiler og tveir Englendingar, og stöppuðum á dósinni og öskruðum. „Fökking pród- úsers. Stúd the túna fish.“ “ Þórs- merkurferð í hnotskum. -vix Togarinn Ottó N. Þorláksson bjargaði Qórum breskum sjómönnum: Mjög fegnir að sjá skipið - segir skipstjóri gúmbátsins sem varð olíulaus 25 mílur frá landi „Við urðum olíulausir eftir erfiða siglingu frá Grænlandi. Við settum út neyðarbauju um miðnætti og sið- an biðum við í óvissu. Við voram vel klæddir og veðrið var ágætt. Það var samt orðið dálítið kalt og þreyta komin í mannskapinn. Við urðum að sjálfsögðu mjög fegnir þegar við sáum skipiö koma í áttina til okk- ar,“ sagði Alan Priddy, skipstjóri á breska gúmbátnum Still Never En- ough sem varð olíulaus um 25 sjó- mílur frá Reykjanesi um miðnætti aðfaranótt sunnudags. Fjögurra manna bresk áhöfn gúmbátsins var bjargað um borð í togarann Ottó N. Þorláksson vun klukkan 2 um nóttina. Áhöfn báts- ins setti í gang neyðarbauju á neyð- artíðni sem gervihöttur nam 11 mínútur yfir miðnætti. Gervihnött- urinn nam nákvæma staðsetningu baujunnar nokkram mínútum síð- ar. Send var tilkynning til allra skipa og báta á svæðinu. Togarinn Ottó N. Þorláksson var næstur slys- staðnum og var sendur á vettvang. Híföum þá um borö „Við fengum upplýsingar um að báturinn væri í neyð og fengum staðsetningu hans uppgefna. Við voram 12 mílur frá þeim þegar neyðarkaflið barst. Þegar við nálg- uðumst sáum við neyðarblysi skotið á loft og skömmu síðar sáum við þá. Við hifðum þá upp á dekk í krana. Þeir vora allir við góða heilsu en orðnir dálítið kaldir. Það er afltaf ánægjulegt að geta komið svona til hjálpar. Aðalhjálpartækið er þessi neyðarhauja. Það er stórkostlegt tæki,“ sagði Sigurður Steindórsson, skipstjóri á Ottó N. Þorlákssyni, um björgunina. Löng sigling Gúmbáturinn var að sigla frá Grænlandi til íslands. Áhöfn báts- ins hefur verið á langri ferð en bátn- um var upphaflega siglt frá Portsmouth í Bandaríkjunum til Grænlands. Síðan lá leið þeirra til Reykjavíkur, þaðan til Norður- ír- lands og lokaáfanginn er Portsmo- uth á suðurströnd Englands. „Viö höfum siglt um 3 þúsund mílur á einni viku. Við lentum í miklum erfiðleikum við Grænland. Þar var mikill ís og við urðum að eyða mikilli olíu, mun meiri en við áttum von á. Siglingin frá Græn- landi tók 60 klukkustundir og reyndi mikið á mannskapinn. Ég tel okkur þó aldrei hafa verið í mikilli hættu þama úti. Þaö er samt aldrei að vita hvað getur gerst langt úti á hafi og eflaust hefðum við orðið kvíðnir ef hjálp hefði ekki borist svona fljóttsagði Alan Priddy. Einn úr áhöfninni var alveg bú- inn að vera líkamlega eftir erfiða siglinguna. Hann verður sendur heim til Englands með flugi i dag. Hinir þrír í áhöfninni ætla að halda áfram siglinunni til Norður-írlands í kvöld. „Við eram ákveðnir að halda ferðinni áfram. Við teljum það erfið- asta vera að baki,“ sagði Alan. -RR Þingvellir: Maður brenndist í tjaldi Maður á fertugsaldri brenndist illa í tjaldi á Þingvöflum um helg- ina. Maðurinn var einn í tjaldinu að morgni laugardags þegar eldurinn kviknaði út frá einnota gashylki. Honum tókst að komast út úr al- elda tjaldinu og bankaði upp á nærliggjandi húsvagn. Hann var síðan fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar og lagður inn á Landspítalann. Hann mun vera með annars til þriðja stig branasár víða á líkamanum. Tjaldið brann og aflt dót sem í því var. „Þessi einnota gashylki virðast vera mjög hættuleg. Það verða allt of mörg slys í kringum þau,“ sagði varðstjóri lögreglunnar á Selfossi, aðspurður um slysið. Stuttar fréttir 17 flóttamenn til Hornafjarðar Fimm flölskyldur, afls 17 manna flóttamannahópur frá Króatíu, koma á næstunni til Hornaflarðar. Þegar er búið að útvega flölskyld- unum húsnæði að sögn RÚV. Göng gegnum Sandafell Nú í sumar verða boruð 3,4 km jarðgöng gegnum Sandafell, frá Sultartangastiflu að stöðvarhúsi nýrrar Sultartangavirkjunar. Rúmmál ganganna verður meira en Hvalfjarðarganganna að sögn RUV. Skattar ekki lækkaöir Skattar verða ekki lækkaðir þrátt fyrir stórbætta afkomu ríkis- sjóðs, að því er segir í frétt Stöðv- ar 2. Samkvæmt fréttinni verður L5 mifljarða tekjuafgangur hjá rikissjóði á fjárlagaárinu. Aðför með PIN-númeri Eftir morgundaginn verður ekki hægt að kaupa bensín út á VISA- kort í sjálfsölum nema slá inn PIN- númer eða öryggisnúmer kort- hafa. Framkvæmdastjóri bensín- sölufyrirtækisins Orkunnar segir við Stöð 2 að þetta sé aðfor sem muni stórlega draga úr viðskipt- um við Orkuna þar sem fæstir muni PIN-númerið sitt. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.