Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1997, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1997, Side 5
MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 1997 5 Fréttir Skipstjóri norska loðnuskipsins ákærður: Viðurkennir en krefst samt sýknu DV, Vestmannaeyjum: Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum gaf um helgina út ákæru á hendur Reidar Hövroy, skipstjóra norska loðnuskipsins Kristian Ryggefjord sem landaði í Eyjum á föstudaginn. í ákærunni er skipstjóranum gefið að sök að hafa ritað rangar breiddar- tölur í afladagbók skipsins og síðar að hafa fært inn réttar tölur í ótölusetta afladagbók sem hann framvísaði við komuna til Eyja. Um leið hafi hann reynt að leyna upphaflegu afladagbók- inni í þeim tilgangi að reyna að fela brot sitt. Einnig er honum geflð að sök að hafa gefið ófullnægjandi til- kynningu um komu sína í íslenska landhelgi og um afla skipsins. Að lok- um er skipstjórinn ákærður fyrir að hafa vísvitandi sent út ranga og ófull- nægjandi tilkynningu um lok veiða þar sem gefið var i skyn að hluti afl- ans væri veiddur í lögsögu Jan Mayen. Málið verður tekið fyrir í Héraðs- dómi Suðurlands á Selfossi á fimmtu- daginn og er dóms að vænta eftir tvær tO þrjár vikur, samkvæmt heimildum DV. Helga Hauksdóttir, sýslufulltrúi í Vestmannaeyjum, sagði í samtali við DV að skipstjórinn viðurkenndi verknaðinn sem slíkan. Friðrik Arn- grimsson er lögmaður skipstjórans. Hann sagði í samtali við DV í gær- kvöld að hann myndi krefjast sýknu Þær Katrín Alda Rafnsdóttir og Hrefna Friöriksdóttir eru starfs- menn Þórshafnarhrepps. Þær nutu veöurblíðu á Þórshöfn og snyrtu byggðarlagiö sitt í leið- inni. Þær eru báðar 14 ára og stunda nám í Grunnskóla Þórs- hafnar. DV-mynd HAH Georg Kr. Lárusson, sýslumaður í Vestmannaeyjum, talar Ryggefjord í Vestamannaeyjahöfn. Skipið var enn í höfninni í stað aftur á miöin. enda þótt skjólstæðingurinn hefði við- urkennt brot sitt. -ÓG/SÁ í farsíma um borð í norska loðnuskipinu Kristian gærkvöld og beið betra veðurs áður en það legði af DV-mynd Ómar Garðarsson Kolbrún Sverrisdóttir: Hollendingar nái Æsu upp „Ég skrifaði hollensku skipa- smíðastöðinni bréf þar sem ég fer fram á að þeir leggi fjármagn til þess að ná upp flaki Æsunnar. Ég tel að þeim ætti að vera jafn annt um það og mér að komast að orsökum slyssins,“ segir Kol- brún Sverrisdóttir vegna bréfs sem hún lét rita til hollensku skipasmíðastöðvarinnar Dammen Shipyards sem hún skorar á leggja sitt af mörkum til að ná skipinu upp. „Þetta varðar heiður þeirra sem smíðuðu skipið svo ekki falli skuggi á stöðina vegna hönnunar, byggingar eða stöðug- leikaútreikninga þeirra. Ég á von á svari þeirra fljótlega,“ seg- ir Kolbrún. -rt Útskrifaöist sjö sinnum: Hef alltaf átt auð- velt með að læra - segir Muggur Matthíasson DV, Akureyri: „Eg hef alltaf átt fremar auðvelt með að læra, það hefur ekkert vafist fyrir mér til þessa,“ segir Muggur Matthíasson á Akureyri. Muggur sem er 26 ára var að útskrifast sem vélfræðingur frá Verkmenntaskólan- um á Akureyri á dögunum sem væri eitt og sér varla fréttnæmt. En Mugg- ur var að útskrifast í 7. skipti frá skólanum sem er óneitanlega ekki neitt venjulegt. Muggur Matthíasson meö vélfræð- ingshúfuna. í fanginu heldur hann á útskriftarskírteinum sínum frá Verk- menntaskólanum sem eru 7 talsins. DV-mynd gk „Ég byijaði á því að læra vélsmíði eða vélvirkjun eins og það hét þá. Það var fjögurra ára iðnnám. Siðan vann ég í tvö ár og fór þá á tækni- braut. Það er tveggja ára nám fyrir menn með sveinspróf og ég varð síð- an stúdent af tæknibraut. Með því tók ég vélavörðinn í kvöldskóla. Seinna árið í stúdentinum var kom- inn meistaraskóli og ég fór í hann því að allir sem fóru í sveinspróf eft- ir 1988 þurfa að fara i meistaraskól- ann til að fá bréf, en áður þurfti að vinna í tvö ár til þess. Ég tók þrjár annir í meistaraskólanum. Ég ákvað líka eftir stúdentsprófið að taka tvö stig til viðbótar i vélskólanum og gerði það og tók svo fjórða stigið síð- ar. Þetta er nú í fljótu máli það sem ég hef verið að gera.“ Ekki er vitað til þess að aðrir en Muggur hafi lokið 330 einingum í framhaldsskóla hér á landi, en það nám er á við tæplega þrjú stúdents- próf. En ætlar Muggur að halda áfram að læra? „Maður segist aldrei vera hættur. Það sem er efst á dagskránni núna er hins vegar að koma sér á sjóinn og ná sér í siglingartíma. Mér finnst gaman að læra og einhverjir eru e.t.v. hissa á að ég hafi ekki farið í háskóla enn þá. Ég ákvað á sínum tima að veðja ffekar á vélffæðinginn heldur en tækniffæðinginn. En hver veit, það getur alveg verið að ég eigi eftir að fara i háskólann. Ef maður kemst í vinnu og hefur góðar tekjur yfir sumarið er hægt að fara í skóla yfir vetrarmánuðina," segir Muggur. Þess má geta að faðir Muggs, Matt- hías Gestsson, er íþróttakennari, smíðakennari og ökukennari, en hann er einnig lærður húsgagna- smiöur og hefur unnið við skógerð auk þess að vera kvikmyndatöku- maður og ljósmyndari. Þetta virðist því „vera í ættinni". -gk rúmteppi • púöar • baðmottur • dúkar • aa Dagana 7-18 júlí júlí seljum i/y'ð og fefar á hreint frábæru verdi. * (§](0) (CJ](!B)[P(§] (Í}](0)(q) , o/7 po ffltfl motxur • "Q C Snyrtibuddur - Allar garöir Bíldshöfða 20-112 Reykjavík - Sími 510 8020 Sj bakpokar • snyrtibuddur • ullarteppi • mottur • rúmteppi • púðar • baðmottur • | bakpokar • snyrtibuddur • ullai

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.