Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1997, Qupperneq 9
MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ1997
9
Utlönd
Marsjeppinn Sojourner fór í fyrsta könnunarleiðangur sinn um reikistjörnuna Mars f gær. Jeppinn safnar upplýs-
ingum um lendingarstaöinn og sendir myndir til jaröar. Sfmamynd Reutei
Marsjeppinn í
fyrstu ökuferöina
Nýr áfangi í könnun
reikistjömunnar Mars hófst í gær
þegar farartækið Sojoumer, sem er
11 kíló að þyngd og á stærð við
örbylgjuofn, fór í sinn fyrsta
leiðangur.
Sojoumer ók af geimfarinu
Pathfmder á laugardaginn rétt fyrir
myrkur. Samband við Marsjeppann,
sem er á sex hjólum, rofnaði um
hríð á laugardaginn en var komið á
fljótt aftur. Greinileg slóð sást eftir
örjeppann þar sem hann hafði ekið
frá geimfarinu.
Jeppinn átti í gær að hefja
rannsóknir á bergi og ryki á
yfirborði Mars. Farartækið kemst í
35 metra hraða á klukkustund og
hefur orku til vikurannsókna.
Sojoumer sendir tölvugögn og
myndir til geimfarsins Pathfínder.
Þaðan berast þær til vísindamanna
á jörðu niðri.
Vísindamennimir sögðu í gær að
allt gengi að óskum. „Við eram
spenntari en hægt er að ímynda
sér,“ sögðu þeir.
Af fyrstu myndunum sem hafa
borist má sjá að Mars er ryðrauð
pláneta með hommynduðum og
kringlóttum grjóthnullungum.
Vísindamennimir telja sig hafa séð
ummerki um að vatn hafi eitt sinn
verið á Mars. Þeir vona að frekari
rannsóknir gefi til kynna hvort líf
hafi verið á plánetunni.
Óvinsældir
Görans Perssons
aukast stöðugt
Aðeins 17 prósent Svía vilja að
forsætisráðherra Svíþjóðar, Göran
Persson, sitji áfram í embætti eftir
kosningarnar á næsta ári. Carl
Bildt, leiðtogi hægri manna, nýtur
stuðnings 40 prósenta kjósenda,
samkvæmt niöurstöðum skoðana-
könnunar sem birtar vom í gær.
Persson sætir gagnrýni fyrir stefhu-
leysi og hroka. Fylgi hans hefur
minnkað um 6 prósent frá því í maí.
Það þykir kaldhæðnislegt að 11
prósent af stuðningsmönnum jafii-
aðarmanna viija heldur fá Bildt í
embætti forsætisráðherra. Hann
gegndi því embætti á árunum 1991
til 1994.
Leynileg áætlun
um handtöku
Karadzics
Bandarískar sérsveitir og leyni-
þjónusta Bandaríkjanna hafa undir-
búið leynilega áætlun um handtöku
fyrrum forseta Bosníuserba,
Radovans Karadzics. Dagblaöið Los
Angeles Times greindi frá þessu í
gær.
Blaðið vitnar í heimildarmenn
innan leyniþjónustunnar sem segja
að bandarísk yfirvöld líti svo á að
Karadzic komi í veg fyrir að friður
komist á í fyrrum Júgóslavíu.
Embættismenn eiga að hafa
greint frá því að Clinton Banda-
ríkjaforseti hafi enn ekki samþykkt
áætlunina. Hann vonist til að hægt
verði að fá stjóm Bosníuserba til að
framselja Karadzic. Reuter
Franski hönnuöurinn Torrente á heiöurinn af þessum biáa og purpuralita
kvöldkjól sem sýndur var í París í gær. Þar eru nú hafnar sýningar á næst.u
haust- og vetrartísku. Sfmamynd Reuter
Camilla Bowles
íhugaði sjálfsvíg
Camilla Parker Bowles, ástkona
Karls Bretaprins, íhugaði að stytta
sér aldur þegar hann játaði í sjón-
varpsviðtali að hafa staðið í ástar-
sambandi við hana. Breska blaðið
Sunday Mirror greindi frá þessu í
gær.
Að því er segir í blaðinu taldi
Camilla að Karl hefði yfirgefið sig
er hann játaði á sig hjúskaparbrot
árið 1994. Hún óttaðist jafnframt að
hún væri orðin mest hataða konan í
Bretlandi.
í gær sýndi bresk sjónvarpsstöð
heimildarþátt um Camillu. Það hef-
ur orðið til vangaveltna um að Bret-
ar séu reiðubúnir að sjá hana gegna
opinberu hlutverki við hlið Karls.
Sunday Mirror sagði að Karl
hefði tjáð Camillu að hann hefði
ekki þorað að hafa samband við
hana eftir sjónvarpsviðtalið forðum
þar sem heimili hennar hefði verið
mnkringt ljósmyndurum. Hann var
einnig hræddur um að sími hennar
kynni að vera hleraður.
Blaðið hafði það eftir heimildar-
manni að CamUla hefði sagst vera
niðurbrotin og hrædd. Hún hefði
oftar en einu sinni velt því fyrir sér
hvort hún ætti ekki að binda enda á
líf sitt. Breska blaðiö Mail on
Sunday sagði í gær að Karl hefði
frestað sumarfríi með Camillu við
Miðjarðarhafið. Hann óttaðist gagn-
rýni almennings í kjölfar sjónvarps-
þáttarins.
Reuter
^fJtsala
Sumarúlpur - Heilsársúlpur
Stuttar og sföar kápur
\0<S
HI/I5Ð
Mörkinni 6 - sími 588 5818
F.h. Hitaveitu Reykjavlkur Gatnamálastjóra, Rafmagnsveitu
Reykajvíkur, Vatnsveitu Reykjavfkur og Pósti og sfma h.f. er
óskað eftir tilboðum I verkið: „Endurnýjun veitukerfa - 4. áfangi
1997, Langholtsvegur o.fl.“ Endurnýja skal dreifikerfi hitaveitu og
annast jarðvinnu fyrir veitustofnanir í Langholtsvegi, Rauðagerði og
Skálageröi.
Helstu magntölur:
- Lengd hitaveitulagna í plastkápu alls 3.000 m
- Skurðlengd 3.400m
- Steyptar stéttar 2.200 m2
- Hellulögn 140 mz
- Þökulögn 300 m
- Malbikun 600 m*
Verklok: 15. október 1997.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn 15.000 kr.
skilatryggingu.
Opnun tilboöa: miövikudaginn 9. júlf 1997, kl. 11.00 á sama staö.
hvr 104/7
F.h. Gatnamálastjórans f Reykjavfk er óskað eftir tilboðum í ýmis
smáverk í austurhluta borgarinnar: „Austurborg, ýmis smáverk II
1997“.
Helstu magntölur eru:
Gröftur: 6.500 m3
Holræsalagnir: 380 m
Grúsarfylling: 6.100 m3
Malbik: 7.700 m2
Hellulögn: 160 m2
Steypt stétt: 340 m2
Verkinu skal aö fullu lokiö 15. okt. 1997.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri frá þriöjudeginum 8. júlf
1997 gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: mlövikudaginn 16. júlí 1997, kl. 11.00 á sama staö.
gat 105/7
INNKA UPASTOFNUN
REYKJA VÍKURBORGAR
Frikirkjuvegl 3 - Slmi 552 58 00 - Fax 562 26 16
Netfang: isr@rvk.is