Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1997, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1997, Page 12
12 MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 1997 Spurningin Á kirkjan að blessa sambúð samkynhneigöra? Vilhjálmur Vilhjálmsson ræsti- tæknir: Að sjálfsögðu, það gildir það sama og um karl og konu. Valgerður Jónsdóttir bensínaf- greiðslumaður: Já, samkynhneigð- ir eru bara venjulegt fólk með sömu tilfmningar og aðrir. Amrún Halla Arnórsdóttir nemi: Já, þetta er bara venjulegt fólk og með sömu tilfinningar. Vilborg Davíðsdóttir rithöfund- ur: Að sjálfsögðu. Baldvin Gunnarsson sjómaður: Já, er ekki komið 1997? Gísli Grétar Bjamason tann- læknir: Tvímælalaust, samkyn- hneigðir eiga sama rétt og aörir. Lesendur Virkar ekkert hjá Reikni- stofu bankanna? Blind stefna Sólveig Kristjánsdóttir skrifar: Vegna niðurskurðar í heilbrigðis- geiranum er nú svo komið að ein- ungis er ein stofa furir bæði kynin á helstu augndeild íslands. Undirrituð hefur verið með annan fótinn á deildinni sl. 17 mánuði og hefur notið þar góðrar umhyggju starfsfólks sem haldið hefur sínum dampi þrátt fyrir stöðuga flutninga, fyrst innan Landakots, en í desem- ber 1996 fluttist deildin svo á Lands- spítalann. Sex mánuðum eftir flutninginn þangað er deildin flutt enn og aftur til og fækkaði þá legurúmum úr átta í fjögur og eru þessi fjögur legurúm öll á sömu stofu og er því um bland- aða stofu að ræða. Mér finnst að önnur eins þjónusta við sjúklinga hljóti að vera vandfundin og samein- ing kynjanna á þessari einu stofu er vafalaust einsdæmi í vestrænum ríkjum, að ekki sé nefnt hve þving- andi þetta er fyrir sjúklinga og sýn- ir mikla lítilsvirðingu að mínu mati. Ég veit fyrir víst að öll starfsað- staða er mun verri í dag en áður og tók það fram við hluta starfsfólksins að ég væri fegin að hafa ekki þurft að upplifa með þeim þessa síðustu og verstu niðurlægingu. Ég hefði aldrei unað því að þurfa að liggja á blandaðri stofu allan þann tíma sem ég hef þurft að dvelja á augndeild- inni og þykist þess fullviss að stjórn- endur og ráðamenn spítalans myndu heldur ekki láta bjóða sér slíkt. í frétt í Mbl. þann 17. júní sl. seg- ist Einar Stefánsson prófessor von- ast til að þessi ráðstöfun sé tíma- bundin. í sömu frétt segir Anna Stef- ánsdóttir hjúkrunarforstjóri að starfsemin verði minnkuð í sumar Niðurskuröurinn í heilbrigðiskerfinu kemur víða niður. en verði aukin aftur í haust en þá verði dagdeildarrýmum fjölgað. Hún nefnir hins vegar ekki hvort aukið verði aftur um fjölda legurúma né er hið bagalega ástand með blandaða stofú orðað. Mér finnst kominn tími til að ráðamenn opni augu sín í þessari blindu stefnu og taki á málunum í réttu ljósi og á þann hátt að skömm okkar sé ekki úthrópuð, ekki bara hérlendis heldur og einnig erlendis því þar sem sérfræðingar deildar- innar starfa töluvert á erlendri grund hljóta fréttir sem þessar að berast á milli innan stéttarinnar. Bergur Haraldsson hringdi: Reiknistofa bankanna er eitt- hvert langfurðulegasta fyrirbrigði sem til er á íslandi. Um hver mán- aðamót er allt stopp hjá þeim og á eftir áætlun. En þá er bara hálf sagan sögð því að um áramótin kemur kornið sem fyllir mælinn. Maður hefur ekki nokkurt gagn af þeim upplýsingum sem þeir senda þá þvi að þær koma ekki fyrr en í lok janúar þegar mað- ur er búinn að loka öllu bókhaldi. Fólk neyðist þess vegna til þess að hafa samband beint við þá stofn- un sem í hlut á til þess að fá upplýs- ingar. Það er sama hversu oft þetta gerist, ailtaf virðist það koma for- svarsmönnum Reiknistofnunar bankanna jafh mikið á óvart. Það er ekki einleikið að tölvu- kerfið sé aldrei í lagi. Ef vandamál- ið tengist tölvukerfinu hljóta tölv- umar þama að vera handsnúnar. Söluæði R-listans Karl Ormsson skrifar: EKki hefði þótt gott hjá Sjálfstæð- ismeirihlutanum sem réði hér borg- inni, það söluæði sem gripið hefur R-listagrúppuna síðan hún komst hér til valda 1994, illu heilli. Að sjálfsögðu eru þessar eignir borgar- innar aðeins seldar til eyðslu og til að sýna betri fjárhagsstöðu borgar- innar. Ömurlegasta söluæðið er salan á þeim perlum, sem ég vil telja svo, en það er salan á starfsmannahús- um sem byggð voru í árdögum. Þessi hús vom byggð af stórhuga mönnum sem virkjuðu þessar virkj- anir fyrr á öldinni fyrir vélstjóra Hitaveitunnar á Reykjum og við varaaflsstöðina við Elliðaár. Eins og mörgum er kunnugt um eru þessar byggingar einstakar, ekki eingöngu þjónusta alian í síma 5000 lli kl. 14 og 16 Greinarhöfundur segir engu eirt, hvort sem það er Miðbæjarskólinn eða Ásmundarsalur. fyrir að vera gamlar heimildir held- ur kannski ekki síður fyrir það að þær standa á nær óborganlegum stöðum sem löngu ætti að vera búið að friðlýsa. R-listagrúppan ætti frekar að sýna sóma sinn í því að borgin eign- aðist allar nærliggjandi byggingar fyrir einstakar náttúruperlur sem eru við Elliðaár. Það virðist vera sama hvort um er að ræða Miðbæjar- skólann eða Ás- mundarsafn; engu er eirt. Það var einhvem tímann sagt: „Betra er illt að gera en ekkert." Miðað við þá hækkun húsaleigu sem R-listinn hefur sett á leiguíbúðir í eigu borgarinnar væri ekki mikill vandi að halda þessum perlum við með því að láta húsaleiguna standa undir kostnaði meðan verið er að gera við þær. Ekki má gleyma sölu síðustu eign- arinnar, „Fæðing- arheimilinu", sem selt var og andvirð- ið sett í bamaheimili, þó Sjúkrahús Reykjavíkur ætti að sjálfsögðu að fá þá peninga. Það verður kannski svo að kjósendur minnast helst þess tíma er R-listinn fór með völd í Reykjavík, „það var þá sem þessi mannvirki voru annað hvort seld eða gerð að engu sem gamla minj- ar“. Fótbolti í Sjónvarpinu Dóri hringdi: Ég verð að segja að ég er mjög ósáttur við það að Sjónvarpið sé búið að glopra frá sér réttinum á fótboltanum. Næsta vetur skilst mér að ekkert verði á boðstóln- um hjá þeim nema þýska knatt- spyrnan sem er sennilega sú leiðinlegasta í heiminum. Núna neyðast menn til að greiða áskrift að Stöð 2 og Sýn til þess að fylgjast með. Em þessar stöðvar vaxnar því verki að sýna frá þessum íþróttaviðburðum? Ég verð að segja að útsending- amar á Sýn eru ekkert augna- konfekt. Myndgæðin em arfa- slök og myndatakan með ólík- indum. Og þó að Keflavík og ÍBV séu efst í deildinni núna hefði átt að sýna þeim sem ekki komust á völlinn leikinn í Frostaskjóli síð- asta miðvikudag því að þar fór hinn raunverulegi stórleikur í deildinni fram það kvöldið. Endalok menningar Bjarni Valdimarsson skrifar: Vitið þér hvað fimm þrepa Suðurlandsskjálfti er? Það er bara upp og niður á höfuðborgarsvæðinu. Átakið kemur frá eystra gosbeltinu og Reykjaneshryggurinn heldur stíft á móti. Richter-kvarðinn slær út. Þetta ferli byijar vonandi með gosi í Kötlu. Öllu verra á vatna- sviði Tungnár. Gos-jökulhlaup sópar um lónin, Sigalda, Hraun- eyjafoss, Sultartangi, Búrfell. Þetta allt sópast í burtu og hvert flóð gerir bylgjima ægilegri, t.d. á Hellu. íslensk menning og menntun á brauðfótum. Indíáni hefur tal- að. Hvenær lækka far- gjöld til útlanda? Gyða skrifar: Það er svo sem gott og blessað að fargjöld innanlands hafi lækkað, en hvenær lækka far- gjöld til útlanda? Ég hef engan sérstakan áhuga á að skella mér til Hafnar en hins vegar langar mig, og eflaust marga fleiri, eitthvað út fyrir landsteinana. Það væri tilvalið að lækka far- gjöld til Evrópu og helstu sólar- staða um ca helming líka. Þetta yrði kærkomin kjarabót fyrir launafólk. Maður gæti þá kannski farið einu sinni til út- landa án þess að kreditkortið væri með í fór. Besta fólkinu sagt upp Þórður hringdi: Ætlar Ríkisútvarpið að losa sig við alla hlustendur sína? Það mætti vissulega halda það miðað við nýjustu fréttir þaðan. Meðal þeirra sem veriö er að reka er hluti af því fáa fólki sem hefur gert efni sem hægt er að hlusta á þar á bæ. Vil ég þá sérstaklega nefna Andreu Jónsdóttur sem er sennilega besti dagskrárgerðar- maðurinn á Rás 2, og býr yfir óþrjótandi fróðleik um allt sem kallast getur rokk. Fólk er neytt til þess að borga fyrir Ríkisútvarpið hvort sem það hlustar á það eður ei. Það hlýtur þess vegna aö vera skylda þeirra að útvarpa sæmilegu efni, sérstaklega gagnvart fólki út á landi sem hefur ekki um annað að velja. Ég tel að með uppsögn Andreu og fleiri í þessum hópi hafi yfir- menn útvarpsins skotið sig illi- lega í fótinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.