Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1997, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1997, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 1997 13 Fréttir V élstj ór askortur inn: Of langt nám - segir Guöfinnur Johnsen hjá LÍÚ „Við vitum af þessum yfirborg- unum til vélstjóra sem okkur þykir ekki vera mál til að stæra sig af. Þetta er ekki tilkomið vegna þess að einhverjir menn séu svona eftirsótt- ir. Ástæðan er einfaldlega skortur á vélstjórum. Útgerðarmenn verða því nauðugir viljugir að greiða nán- ast það sem vélstjórar setja upp ef þeim á að takast að manna skipin með löglegum hætti,“ sagði Guð- finnur Johnsen hjá Landssambandi íslenskra útvegsmanna vegna frétta og viðtals við Helga Laxdal í DV um gríðarlegar yfirborganir til vélstjóra á fiskiskipaflotanum. Hann segir að Helgi ætti að vita betur en hann segir í DV um mennt- unarmálin þar sem hann er formað- ur Norræna vélstjórasambandsins. Guðflnnur segir að það sé regin- munur á reglugerðum íslendinga og annarra Norðurlandaþjóða um menntun vélstjóra. Til að ná fullum réttindum á 1500 kgw vélar og yfir taki það 7 ár á íslandi en ekki nema þrjú og hálft ár í Danmörku. „Yfír höfuð tekur það íslendinga um helmingi lengri tíma aö afla sér vélstjóraréttinda en aðra Norður- landabúa," segir Guðfinnur. Hann segir að þetta langa nám á íslandi sé helsta ástæðan fyrir þeim mikla vélstjóraskorti sem er hér á landi og öllum þeim fjölda af undan- þágum til þess að hægt sé að gera skipin út. Guðfinnur telur að ef vél- gæsluréttinda mætti afla með nám- skeiðum í auknum mæli og að þau yrðu haldin úti um land myndi það miklu bjarga. -S.dór Borgnesingar hafa nýft veöurblíöuna undanfarna daga til alis kyns verka. Asgeir Asgeirsson var aö dytta aö hliðinu viö heimili sitt í bænum. DV-mynd Hilmar Þór Stærsti gullpottsvinningurinn: Varla búinn að ná áttum - segir vinninghafinn sem fékk tæpar 16 miljónir „Ég er auðvitað mjög ánægður að hafa fengið þennan stóra vinning. Þetta kom manni algerlega í opna skjöldu og ég er varla búinn að ná almennilega áttum enn þá,“ segir Guðjón Haraldsson, vinningshafi í stærsta gullpotti sem unnist hefur á íslandi. Vinningurinn, sem er tæpar 16 milljónir króna, kom upp í kassa á Rauða ljóninu á Seltjarnamesi á þriðjudagskvöldið. „Ég spila nú ekki mikið í þessum kössum og það gerir þetta enn þá ánægjulegra. Ég er ekki búinn að ákveða hvað ég ætla að gera við pen- ingana en þeir koma sér óneitanlega miög vel,“ sagði Guðión. -RR Björk á Tíbet- geisladisk DV, Akranesi: í haust eru væntanlegir þrír geisladiskar með upptökum á Tí- bet-tónleikunum sem haldnir voru í Randalls Island i New York 7.-8. júní. Á diskunum verða einnig upptökur með nokkrum lögum af Tíbet- tónleikunum í fyrra. Geisladiskarnir munu inni- halda bæði lög og viðtöl við lista- mennina. Þeir sem eiga lög á geisladiskun- um eru meðal ann- ars Björk Guðmundsdóttir sem kom fram á tónleikunum á þessu ári og í fyrra, Blur, Noel Gallag- her, Foo Fighters, Sonic Youth, Beastie Boys, Eddie Vedder og fleiri. Allir ágóði af diskunum rennur I sjóð sem að standa bar- áttumenn fyrir frelsi Tíbet. DVÓ Reykjanesbær: Skipakví úr stáli DV, Suðurnesjum: Hafnarstjóm Hafnasamlags Suð- urnesja hefur ákveðið að kaupa eignarland - fimm þúsund fermetra - í eigu Skipasmíðastöðvar Njarð- víkur á tvær milljónir króna. Þá var gerður nýr lóðarleigu- samningur þar sem skipasmíðastöö- in leigir 29.050 fermetra af Hafna- samlaginu. Bygginganefnd Reykja- nesbæjar hefur samþykkt leyfi til handa skipasmíðastöðinni til að byggja skipakví úr stáli. -ÆMK 40% 30% OPPARAf/ö ” BARNAFATAVERSLUN ~ HVERAFOLD1-3 ÚTSALA BYRJAR 4. JÚLÍ 20% rS.'SSu 60% Opið: Sunnudaginn 6. júlí frá kl. 12.00 - 16.00 Opnunartímar: Alla virka daga frá kl. 10.00 - 18.30 Laugardaga frá kl. 10.00 - 16.00 Spékopparnir, Hverafold 1-3, Grafarvogi, sími 567 6511 Þú færb alltaf örbylgjuofn frá vib hæfi R-4G17 24 lítra • 900w • Grill B:52 H:31 D:4Ism Kr. 24.900,- stgr. o UMBODSMENN Reykjavík: Byggt og Búið. Byko verslanirnar. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi. Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði. Ásubúð, Búðardal. Vestfiröir: Geirseyjarbúðin, Patreksfirði. Rafverk, Bolunarvík. Straumur, ísafiröi. Noróurland: Kf. Steingrlmsfjarðar, Hólmavik. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Verslunin Hegri, Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA, Daivík. KEA, Siglufiröi. KEA Ólafsfirði. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urð Raufarhöfn, Lónið Þórshöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Verslunin Vík, Neskaupstaö. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. KASK, Höfn. Suðurland: Mosfeli, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Ljósboginn, Keflavík. Rafborg, Grindavik. BRÆÐURNIR OKMSSONHF Lágmúla 8. Sími 533 2800 R-2V18 16 lítra • 700w B:45 H:30 D:36sm Einfaldur og góbur Kr. 15.900,- stgr. R-4P58 24 lítra • 900w Grill uppi og ni&ri Fjölmörg eldunarkerfi Sérstök Pizza stilling B:52 H:31 D:44sm Kr. 29.900,- stgr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.