Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1997, Qupperneq 33
MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 1997
41 m
Myndasögur
^ EC5 FEKK e i
LAUNA- HÆKKUN, X 1
BIMMI! í JP
. I f 1 j
-I n—l\
...EN EF HANN HELDUR AD ÉG
HALDI AD HANN MUNI SKIPTA
YFIRTIL VINSTRI OG PESS
VEGNA...
Veiðivon
Anton Helgason meö fimm punda lax úr Korpu.
DV-mynd Sveinn
Laxá á Ásum:
80 laxar á land
„Við urðum að hafa fyrir þessari
veiði í Laxá og laxana níu fengum
við uppi í á. Við sáum enga nýja
laxa,“ sagði Jón Þorsteinn Jónsson
en hann var í Laxá á Ásum um helg-
ina. Veiðin í Laxá hefur ekki verið
mikil það sem af er veiðitímanum.
„Stærsti laxinn hjá okkur var 14
pund en áin hefur gefið 80 laxa og
þetta er róleg byrjun í Laxá,“ sagði
Jón Þorsteinn enn fremur.
Helgi Eyjólfsson var við veiðar í
Brennunni í Borgarfirði á fostudag-
inn og veiddi þá 6 laxa, stærsti fisk-
urinn var 21 pund. Veiðin hefur ver-
ið ágæt í Brennunni.
Mikiö af fiski í Laxá
„Það er allt í fínu lagi héma á
bökkum Laxár í Kjós og fískur kom-
inn viða um ána. í morgun veiddust
lúsugir laxar i Stekkjarfljóti," sagði
Ásgeir Heiðar við Laxá í Kjós er við
spurðum frétta af veiðiskapnum.
„í fyrramálið kemur lax númer
220 á land, en í gærmorgun veiddust
15 laxar. Það sáust tveir rígvænir
laxar í Króarhamri en þeir tóku
ekki. En 11 punda fiskur tók og
hann var lítill. Það eru komnir lax-
ar í marga staði og veiðimaður sem
var áðan í Bugðu veiddi tvo laxa en
missti fjóra. í fossinn í Bugðu er
komið mikið af fiski. Við kvíðum
ekki sumrinu héma við Laxá með
netin uppi,“ sagði Ásgeir Heiðar
enn fremur og óð út í til að segja
veiðimanni til. En bæði íslendingar
og útlendingar eru við veiðar í ánni
þessa dagana.
Veiðimaðurinn sem glímdi við
stórfiskinn í Stóru-Laxá í Hreppum
og við sögðum frá fyrir helgi notaði
flugu. En fiskurinn braut öngulinn
og kvaddi. Stóra-Laxá í Hreppum
hefur gefið 60 laxa og svæði fjögur
hefur gefið besta veiði. Svæði eitt og
tvö hefur gefið lökustu veiðina enn.
Norðurá á toppnum
„Norðurá í Borgarfirði er komin
yfir 500 laxa og við emm að fá fiska
á hverjum flóði,“ sagði Bergur
Steingrímsson, framkvæmdastjóri
Stangaveiðifélags Reykjavíkur, en
Norðurá gefur bestu veiðina núna
af laxveiðiánum. Næst kemur Þverá
í Borgarfirði en hún er komin yfir
350 laxa. Það hefur verið veitt í
þessum veiðiám i ríflega mánuð.
Fræðingar telja að þessar laxveið-
iár muni slást um veiðitoppinn með
Rangánum en hvorki meira né ■
minna en 300 þúsund seiðum var
sleppt í ána. Rangámar hafa gefið
80 laxa á þessari stundu.
„Ég held að þetta sé allt að koma
en ég er héma á neðsta svæðinu og
veiðimenn voru að landa 8 löxum á
stuttum tíma hérna í Línustreng.
Það eru stórar göngur að hellast
upp í ána,“ sagði Þröstur Elliðason
við Rangámar í gærmorgun.
„Ég tók þrjú köst og það var fisk-
ur í hverju kasti, þetta er nokkuð
stór ganga. Rangárnar hafa gefið 80
laxa og næstu klukkutímar gætu
orðið spennandi," sagði Þröstur enn
fremur.
Hvar er smálaxinn?
„Auðvitað spyr maður sjálfan sig -c
þeirrar spurningar hvar smálaxinn
sé. Annaðhvort kemur hann núna á
næstunni eða ekki, sagði veiðimað-
urinn sem mikið hefur spáð í stöð-
una í laxveiðinni. Smálaxinn hefur
að minnsta kosti ekki látið sjá sig í
neinum mæli fyrir norðan, eins og
veiðimenn áttu von á. Ef litið er á
Víðidalsá, Vatnsdalsá og Laxá á
Ásum hefur einn og einn eins árs
fiskur komið á einhverjum flóðum.
En engar kröftugar göngur em enn
þá.
„Þetta gerist núna á næstu vikum
eða við getum gleymt þessu. Það
þarf stórgöngur og það strax," sagði
veiðimaðurinn enn fremur. Úr Laxá
í Aðaldal eru komnir 100 laxar á ,
land. Þessi drottning veiðiánna má
muna sinn fifil fegri. Þetta er miklu
minni veiði en á sama tíma í fyrra.
-G.Bender
Seíjum veiðiCeyfi í ‘Jíópið
- góð veiði -
maðkur — makrííC — hrogn — sancCsííi
^^UHjgavegHL78^ímai^5^677^0£^8^445^^y