Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1997, Side 40
Vinningótölut ¥2 JTc 1 (24 | 1 V. Fjöldi Vinningar \ vinninga laugardaginn 5. o7.’97 _ 18 Vinnins&upphœð /
1- sats ^ ° I / t »■ / M,j/ )
2. 4 at 5*^53» 2
3-tats 73
4-3ats 2.148 2.181.980
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
LTD
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ1997
Hjón með tvö börn:
Sluppu
naumlega
úr eldi
Hjón með tvö börn sluppu
naumlega þegar kviknaði í tjaldi
þeirra á tjaldstæðinu á Akureyri í
fyrrinótt.
Fólkið vaknaði við að eldur var
laus. Það komst strax út en tjald-
ið varð alelda örskömmu siðar.
Að sögn lögreglunnar á Akureyri
er talið að kviknað hafi í gashit-
unartæki sem ætlað er til eldun-
ar. Fólkið fékk engin brunasár en
kvartaði undan svima. Tjaldið og
allt dót fólksins brann.
-RR
Fimm mönnum bjargað við Bjarnarey:
Orstutt GSM
símtal varð
til biargar
DV, Vestmannaeyjum:
Litlum hraðbát hvolfdi undan
flmm Vestmannaeyingum við Bjarn-
arey síðdegis í gær. Þeir komust á
kjöl og varð það þeim til lífs að einn
þeirra var með GSM-síma og tókst
að hringja í Vestmannaeyjaradíó
sem þegar sendi báta á staðinn.
Björgunarbáturinn Þór fór þegar
á staðinn og fóru fjórir af mönnun-
um um borð í hann. Einum var
bjargað um borð í hraðbátinn Bravó
sem kom líka á vettvang ásamt
fleiri bátum. Greiðlega gekk að ná
þeim um borð en greinilega hefur
ekki mátt miklu muna því allir
lentu þeir i sjónum og voru ýmist
komnir á kjöl eða voru á sundi í
sjónum þegar að var komið.
Jens Karl Jóhannesson, einn
fimmmenninganna, segir að bátur-
inn hafi farið í Bjarnarey til að
sækja lunda og þrjá menn. Voru
þeir búnir að taka lundann og
mennina um borð og voru að leggja
frá eynni þegar óhappið varð. Þegar
þetta gerðist voru norðvestan 5 tii 6
vindstig og stóð vindurinn upp á
bjargið þar sem þeir voru.
„Þegar við vorum að leggja frá
berginu kom allt í einu frákast og
fyllti bátinn að aftan. Sökk báturinn
og hvolfdi. Lentum við allir í sjón-
um og varð fátt til bjargar,“ segir
Jens Karl sem segist fyrir einhverja
tilviljun hafa tekið með sér GSM-
síma. „Ég hringdi strax í Vest-
mannaeyjaradíó sem sendi báta á
staðinn og var okkur bjargað eftir
fremur stuttan tíma.“
Síminn blotnaði fljótt en þær sek-
úndur sem hann var inni dugðu til
að Jens kæmi skilaboðum á fram-
færi. Aður en starfsmaður Radíós-
ins náði að spyrja hann nánar út í
aðstoð hafði sambandið rofnað.
Hann hafði þó náð því hvað var um
að vera.
Allir voru heilir á húfi en nokkuð
hrakth þegar þeh komu í land.
Björgunarbáturinn Þór var staddur
á Klettsvíkinni þegar óhappið varð
og gat því shax farið á slysstað. Átti
það sinn þátt í því að ekki fór verr.
Þór er mjög hraðskreiður og var
ekki nema nokkrar mínútur á vett-
vang. Þór kom með hraðbátinn í
land og var hann hífður upp á
bryggju.
Samkvæmt upplýsingum á Loft-
skeytastöðinni hringdi Jens Karl
klukkan 18.08 og 7 til 8 mínúhun síð-
ar var Þór að taka síðasta manninn
um borð. Þór kom til hafnar í Vest-
mannaeyjum um kl. 18.30.
„Vi& uröum olíulausir eftir erfi&a siglingu frá Grænlandi. Við náðum aö setja út ney&arbauju og síöan biöum viö í
óvissu. Viö ur&um mjög fegnir þegar við sáum skipið koma í áttina til okkar,“ sagöi breski skipstjórinn Alan Priddy,
en honum og þremur öörum Bretum í áhöfn gúmbáts var bjargaö um borð í togarann Ottó N. Þorláksson í fyrrinótt.
Gúmbáturinn var staddur um 25 sjómílur frá Reykjanesi þegar hann varö olíulaus. Hér sjást þrír af bresku
sjómönnunum, þeir Jan Fallowski, Alan Priddy skipstjóri og Steve Lloyd. Sjá nánari umfjöllun bls. 2. DV-mynd ÞÖK
L O K I
Veðriö á morgun:
Skýjað meö
köflum
Hæg norðlæg eða breytileg átt.
Skýjað verður með köflum og
sums staðar smáskúrir, einkum
norðaustanlands. Hiti verður á
bilinu 5 til 15 stig.
Veörið í dag er á bls. 45
Bílaumboðið Jöfur:
Ekki að hætta
en óvissa
um Skoda
- segir Guðjón Jónsson
Guðjón Ármann Jónsson, for-
stjóri Jöfurs, vísar á bug sögusögn-
um um að fyrirtækið sé að hætta
bifreiðainnflutningi. Öllum starfs-
mönnum fyrirtækisins var nýlega
sagt upp störfum en ástæða þeirra
uppsagna er að sögn Guðjóns Ár-
manns sú að verið er að endur-
skipuleggja fyrirtækið og vilji menn
hafa óbundnar hendur.
Guðjón Ármann Jónsson segh að
Peugeot-bifreiðar, sem fyrirtækið
flytur inn, hafi selst betur en áður
og salan riflega tvöfaldast milli ára.
Hann segir að óljóst sé enn með
hvort fyrirtækið verði áfram með
umboð fyrir Skoda. Skodaverk-
smiðjurnar í Tékklandi eru nú í
eigu Volkswagen- samsteypunnar
Þýskalandi sem hefur þá stefnu að
sami umboðsaðili sé fyrh allar teg-
undh samsteypunnar. -SÁ
Ölvaðir gestir
Helgin var annasöm hjá lögregl-
unni í Borgarnesi. Þrjár minni hátt-
ar líkamsárásir voru kærðar efth
slagsmál á tjaldstæði landsmótsins
að Kárastöðum og á dansleik, sem
haldinn var í flugskýlinu við Kára-
staðaflugvöll. Alls voru 26 teknir
fyrir ölvun á almannafæri á tjald-
stæði landsmótsins og í Borgamesi,
þar af þurftu fimm að gista fanga-
geymslur lögreglunnar. -VÁ
Piltur illa
brenndur
- kveikti í bensíni
15 ára piltur liggur með alvarleg
brunasár á Landspítalanum efth að
kviknaði í fótum hans í Kópavogi í
fyrrakvöld.
Pilturinn var ásamt 14 ára félaga
sínum að kveikja í bensíni við Engi-
hjalla. Þeir höfðu keypt bensín á
brúsa í sjálfsala á bensínstöðinni við
Stórahjalla.
„Það slettist bensín á föt piltsins.
Eldur læstist síðan í fót hans. Drengj-
unum tókst að slökkva eldinn en hann
hlaut slæm brunasár, aðallega á fót-
um,“ sagði Þröstur Hjörleifsson, varð-
stjóri hjá lögreglunni í Kópavogi, að-
spurður um málið.
Pilturinn komst við illan leik heim
til sín. Þaðan var hann fluttur á Land-
spítalann. Hinn pilturinn hlaut minni
háttar brunasár á höndum.
„Þetta er mjög alvarlegt mál. Það er
mjög hættulegt að leika sér svona með
bensín.,“ sagði Þröstur.
Að sögn lækna á Landspítalanum
eru 2-3 stigs brunasár á 30 prósentum
af líkama piltsins. -RR
Pantið t tíma?
25
dagar til þjóðhátíðar
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Bókanir t síma 570 3030
...í leiðinn heim um land allt,
ávextir og grænmeti,
ávallt nýtt og ferskt
á stórmarkaðsverði.