Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1997, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1997, Qupperneq 30
38 LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1997 - í fjölskrúðugri náttúru og fuglalífi DV, Vík: Ferðamönnum, sem koma til Vík- ur í Mýrdal og líta hina hafnlausu strönd, dettur ef til vill síst í hug að hægt sé að komast út á sjó og sjá stórbrotna fegurð Reynisdranga, Reynisfjalls og Dyrhólaeyjar í ná- vígi, líta fagrar sveitir Mýrdalsins af hafi og Mýrdalsjökul, sem er lík- astur hvítum hjálmi, yfir öllu sam- an. Frá Vík eru gerðir út tveir hjóla- bátar, Fengsæll og Farsæll, sem í seinni tíð hafa eingöngu verið gerð- ir út á útsýnissiglingar fyrir ferða- fólk. Þó að í upphafi væri róið til fiskjar á þeim hefur það vikið fyrir útsýnissiglingum með tímanum. Vekur undrun ferðamanna „Það reka margir erlendir ferða- menn upp stór augu þegar þeir sjá bátana. íslendingar eru aftur á móti farnir að þekkja þá það vel að þeim kemur fæstum á óvart að sjá þá,“ sagði Gísli Daníel Reynisson, skip- stjóri og útgerðarmaður hjólabá- tanna. Útsýnissiglingar með þeim eru alltaf að verða vinsælli meðal ferða- fólks og eru þær orðnar meðal þess sem ferðamönnum er kynnt erlend- is sem „áhugaverð afþreying á is- landi“. „Stærstur hluti farþeganna eru útlendingar en íslendingamir eru að sækja á og nú eru þeir orðn- Útsýnissiglingar meö hjólabátum Ævintýraferöa njóta stööugt vaxandi vinsælda meöal ferðamanna sem koma tii Víkur í Mýrdal. DV-myndir NH Arneshreppur á Ströndum Líklegt er að hvem þann sem eitt sinn hefur lagt leið sína norður í Ár- neshrepp á Ströndum langi þangað aftur. Á fógmm sumarkvöldum er auðvelt að heillast af stórbrotinni og dulúðugri náttúrunni þar sem hvert undrið tekur við af öðru. Rekaviður liggur víða í hrúgum í fjöruborðinu og fjallasýnin er fögur. Haft er fyrir satt að þar norður frá líði tíminn hægar en annars staðar í veröldinni og víst er að streita og þreyta á enga samleið með kyrrðinni og friðsældinni í Árnes- hreppi. Útivistarfólk hefur nægt rými til að vera eitt með sjálfu sér, hvort sem það em þaulvanir íjalla- prílarar eða nýgræðingar í göngu- ferðum. Náttúruperlurnar finnast við hvert fótmál. Fjölskyldufólk fær að auki einstakt færi til að kynna börnum sínum náið sambýli manns og náttúru, minjar frá liðinni tíð og sögu genginna kynslóða. Af síldinni öll erum orðin rík... I Djúpavík liggur verksmiðju- skrímslið fram á lappir sínar, leifar frá gullöld síldaráranna. Yfirgefin verksmiðjuhúsin standa líkt og minnisvarði um fallvaltleika mann- lífsins, þá tíð er Árneshreppur var eitt auðugasta sveitarfélag landsins. Nú hefur aðeins ein fjölskylda aðset- ur þar allt árið, sú sem rekur Hótel Djúpavík. Staðarhaldarar bjóða meðal annars upp á leiðsögn um verksmiðjubygginguna. I grenndinni em frábærar göngu- leiðir. Stutt frá veginum um Veiði- leysuháls eru Kúvíkur við Reykjar- fjörð, einn sögufrægasti staður Strandasýslu og verslunarstaður um aldir. Þar eru nú rústir einar. Sex tíma tekur meðalmann að ganga í rólegheitum fyrir Kamb milli Veiði- leysufjarðar og Reykjarijarðar. Þar em víða grónar götur og rétt að fara hægt yfir. Margt er að skoða á leið- inni, sérkennilegar steinmyndanir, eyðibýlið Kamb, Spánverjadys sem kasta verður steini í, uppsprettu vígða af Guðmundi biskupi góða og að lokum rústirnar í Kúvíkum. Áður en komið er í Trékyllisvík liggur akvegurinn hjá Gjögri, þorpi sem man tímana tvenna. Fyrrum var þar frægasta hákarlaveiðistöð landsins og á 19. öld flykktust Strandamenn þangað á vertíð. Frá Gjögri voru stundum gerð út 18 skip í einu á hákarl, svo nægt væri ljós- metið í götulýsinguna í Köben og öðrum stórborgum Evrópu. Litlu norðar er Reykjarneshyma sem ferðamenn ganga gjaman á til að njóta útsýnis. Síðan tekur við Trékyllisvík, búsældarleg á að líta. Þar em menn komnir á galdraslóð- ir, því á 17. öld voru þrír Stranda- menn brenndir á báli í Kistuvogi fyrir að bera ábyrgð á hneykslan- legri hegðun kvenna við tíðagjörð í Ámeskirkju og fleiri smásyndir. í Trékyllisvík eru myndefni næg. Til dæmis standa nú þar tvær kirkjur - sín hvorum megin við veginn. Prest- urinn er þó aðeins einn. Ef menn vilja staldra við má fá svefnpokagistingu I herbergjum í Finnbogastaðaskóla í Trékyllisvík. Og að Ámesi hefur bóndinn og hag- leiksmaðurinn Valgeir Benedikts- son reist sér hús - að mestu úr reka- viði. Þar eru til sýnis og sölu hand- verk heimamanna, meðal annars munir sem Valgeir hefur rennt úr rekaviði eða skorið út. Einnig eru þar fjölmargar minjar frá liðinni tíð sem hann hefur viðað að sér. Gönguparadís í Norðurfirði er verslun og út með ströndinni er Krossneslaug í fjöm- borðinu, vinsæl og vinaleg sund- laug. Ekki er amalegt að hafa það notalegt i lauginni með Atlantshafið ólgandi á aðra hönd en Krossnesfjall í öllu sínu veldi á hina. Skammt þar frá er Þrjátíudalastapi í fjörunni. Nyrsti bærinn í byggð er Munaðar- nes við Ingólfsfjörð og þaðan blasa Mjög hrífandi er að koma út á sjóinn fyrir utan Reynisfjall og Dyrhólaey þar sem meðal annars má sjá stórbrotna fegurð Reynisdranga. ir um þriðjungur farþega sem fara í útsýnissiglingar með okkur. Hluti af þeim aukna fjölda íslendinga sem kemur hingað er í starfsmannaferð- um og þá er oft eitthvað annað í boði, s.s. hákarl og brennivín, hlað- borð með sjávarréttum og oft er varðeldur á eftir.“ Nafnið Ævintýraferðir hefur fest við fyrirtæki Gísla. „Það er til kom- ið vegna þess að þegar fólk kom hugfangið í land eftir ferð á hjóla- bátnum sagði það oft að þetta hefði verið ævintýri líkast. Fyrirtækið, sem gerir hjólabátana út, heitir Mýrdælingur og auk hjólabátanna erum við með jeppaferðir hvert á land sem er.“ Það er margt sem fyrir augu ber í ferðum á hjólabátnum. Ef veður er gott er fjallasýnin stórfengleg og það sem er næst fólki vekur ekki minni athygli. „Mesta athygli vekur fugla- lífið og fjöllin, sjófuglar eru flestum framandi nema þeim sem eru frá sjávarsíðunni, þeir hafa þó ekki nærri allir séð fugla eins og langvíu og álku fyrr en þeir koma hér út að Reynisdröngum. Það kemur mörg- um á óvart og hrífur marga sem koma út á sjóinn fyrir utan Reynis- fjall og Dyrhólaey hversu stórt og mikilfenglegt þetta allt saman er. Jarðfræðin er mörgum mikið áhugamál; Reynisijall, Reynisdrang- ar og Dyrhólaey með öllum sínum skerjum og dröngum eru leifar eld- stöðva sem mynduðust við gos und- ir jökli, sambærilegt sem gerðist i Vatnajökli í vetur. Þarna sjá menn mjög margar bergmyndanir og jarð- saga þessara myndana nær yfir milljónir ára þannig að það eru fjöl- breytilegir hlutir sem menn geta séð.“ Hulduskip Ýmislegt hefur komið upp í sam- bandi við það þegar menn sjá hjóla- bátana hér uppi í harða landi í fyrsta sinn og engin höfn er hér fyr- ir þá að leggjast við. „Mér var einu sinni sögð saga af hópi sem kom hingað til Víkur, þetta voru erlend- ir ferðamenn, flestir á efri árum. Meðal þeirra var maður sem hafði verið í skipaútgerð í mörg ár en var kominn á eftirlaun og hafði al- veg brennandi áhuga á öllum fleyt- um og dró hópinn með sér niður á allar hafnir sem hann sá. Þegar hópurinn kom til Víkur var enga höfn að sjá og því engin skip að skoða. Þegar hann fór til hvílu um kvöldið og konan hans fór og dró fyrir gluggann á herbergi þeirra hjóna rak hún upp stór augu þegar hún sá skip koma siglandi inn með fullum siglingaljósum og kallaði á bónda sinn og sýndi honum dýrð- ina. Hann brást snöggt við og kall- aði saman fólkið til að koma nú niður á höfn og skoða skipið. Fólk- ið þusti út með ferðafélaga sínum til að sjá skipið i höfninni, hópur- inn hélt af stað sem leið liggur nið- ur að sjó og hefur líklega í leiðinni gengið fram hjá hjólabátnum þar sem hann stóð en enginn hefur átt- að sig á því að það væri skipið sem þau sáu enda það ekki vant að sjá skip á hjólum. Nú, þau leituðu góða stund að höfninni og voru margir famir að líta hjónin tortryggnum augum en þau sóru og sárt við lögðu að þau hefðu séð skip leggjast að. Að lokum fóru allir heim á hót- el, misánægðir með útkall skipaá- hugamannsins. Þetta skýrðist þó allt morguninn eftir þegar ferðafé- lagarnir fóru á fætur og sáu hjóla- bátinn þar sem hann stóð hjá Vík- urskála, langt frá sjó, í morgunbir- tunni. Þarna var þá skipið sem hjónin sáu kvöldið áður og eftir morgunmatinn fóru allir og skoð- uðu gripinn og komu síðan í sigl- ingu með mér á eftir.“ -NH í fjörum Strandasýslu má víöa finna rekaviö. DV-mynd VÁ Drangaskörð við í fjarska, einhver hrikalegasta náttúrusmíð á íslandi. Bílfært er að eyðiþorpinu Eyri við Ingólfsfjörð sem einnig átti sitt blómaskeið á síldarárunum. Jeppar geta komist enn norðar, alla leið í Ófeigsfjörö þar sem hlunninda- bændur búa, veiða selinn og nýta rekann. Norðan við Ófeigsfjörð taka óbyggðir við en á síðustu árum hef- ur því útivistar- og göngufólki fjölg- að sem leggur land undir fót og rölt- ir Strandaveginn norður eftir, áleið- is í Reykjarfjörð nyrðri. Eins má fljúga eða fá siglingu í Reykjarfjörð og ganga síðan suður Strandir, hjá Geirólfsgnúpi, um Skjaldarbjamar- vík og Bjarnarfjörö. Þaðan liggrn- leiðin framhjá stórbýlinu Dröngum þar sem hlunnindabændur og nátt- úruböm hafa sumardvöl. Síðan geta menn gengið um Drangaháls eða Drangaskörðin suður á bóginn. Eng- inn verður svikinn af gönguferð á þessum slóðum. -Jón Jónsson, þjóðfræðingur frá Steinadal/VÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.