Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1997, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1997, Blaðsíða 43
U"V LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1997 51 bHdge Heimsmeistaramót yngri spilara 1997: Danir unnu Norðmenn í úrslitaleik Danir eru heimsmeistarar yngri spilara eftir að hafa unnið Norð- menn með miklum yfirburðum í úr- slitaleik um heimsmeistaratitilinn. Danirnir fluttu meö sér 13,7 impa í úrslitaleikinn og tóku strax forystu Umsjón Stefán Guðjohnsen eftir fyrstu 16 spilin 44,7-19. í næstu 16 spilum jöfnuðu Norðmenn leik- inn 72,7-71 en í þriðju 16 spilunum náðu Danir góðri forystu, 132,7- 114. 1 næstu 16 spilum juku þeir á for- skotið 158,7-127 og fimmta lota end- aði 200,7-146. Úrslitin voru þá ráðin og enn bættu Danimir við í síðustu lotunni, 247,7-178. Þótt Danir væru ávallt við topp- inn í undankeppninni gáfu þeir eft- ir í síðustu umferðunum en náðu samt inn í úrslitin með því að ná fjórða sæti á eftir Kanada, Noregi og Rússlandi. Rússamir töpuðu síðan naumlega fyrir Dönum í undanúr- slitum meðan Noregur vann Kanada örugglega. í keppni um bronsið vora Rússarnir sterkari Kanadamönnum og sigruðu öragglega, með 41 impa. Nýir heimsmeistarar Dana eru Fred Brondum, Mik Kristensen, Lars Lund Madsen, Morten Lund Madsen, Mikkel Nohr, Jacob Ron, Kirsten Steen Moller og Nicolai Kampman þjálfari. Þetta er sama lið og reyndi við Norðurlandatitil yngri spilara sem ísland vann glæsi- lega á dögunum. Við skulum skoða eitt spil frá úr- slitaleiknum . N/N-S 4 D10 V D93 ♦ 1042 4 ÁG1063 4 62 * ÁG7542 •4 K7 4 975 4 ÁK987 V 8 ♦ G98 4 KD84 í lokaða salnum, þar sem Madsen- bræðurnir voru a-v gegn Mathiesen og Kristofersen, gengu sagnir á þessa leið : Noröur Austur Suöur Vestur pass pass 14 2m pass 3-f pass 3m pass pass pass Með átján samanlögð tromp í hjarta og laufi virðast báðar áttir eiga að stoppa í þremur. Samt er hægt að vinna fjögur hjörtu ef mað- ur sér öll spilin en í praxís tapast oftast trompslagur og þrír á svörtu litina. í opna salnum sátu n-s Ron og Brondum, en a-v Charlsen og Erich- sen. Nú opnaði austur í annarri hendi og blandaði sér ekki meir í sagnir: Noröur Austur Suður Vestur pass 14 14 dobl redobl pass pass 2* pass pass 34 pass pass pass Danir fengu því töluna á báðum borðum og græddu 6 impa. f leiknum um bronsið var þetta eitt af fáum spilum sem Kanada- menn græddu á. Þeir komust í þrjú grönd á n-s spilin með norður sem sagnhafa. A-v gátu nú tekið 11 fyrstu slagina og reyndar spilaði austa’ út hjartasexi. Vestur las ekki útspilið rétt og lét hjartagosa. Þar með var sagnhafi kominn með niu slagi. skák 4 U543 44 K106 ♦ ÁD653 4 2 Heimsmeistara stúlkna boðið á Hellismótið - Bragi Halldórsson sigraði á helgarskákmóti TR Á sumrin leggjast íslenskir skák- menn gjarnan í víking til annarra landa en þegar haustar snúa þeir heim á vit innlendra viðburða. Útlit er fyrir að alþjóðleg mót muni setja svip sinn á skákvertíðina innan- lands í vetur. í október fer úrslita- keppni norrænu VISA-bikarkeppn- innar fram í Reykjavík þar sem stigahæstu skákmennirnir úr und- anrásunum leiða saman hesta sína. Strax að keppninni lokinni mun Taflfélagið Hellir standa fyrir opnu alþjóðlegu skákmóti og hugsanlegt er að alþjóðamót Gumundar Ara- sonar fari fram í þriðja sinn þegar nær dregur jólum. Alþjóðamót Hellis fer fram dagana 24. október til 1. nóvember og er öll- um opið. Reiknað er með að a.m.k. sex stórmeistarar verði meðal þátt- takenda og 6-8 alþjóðlegir meistar- ar. Gott tækifæri ætti því að vera á mótinu fyrir efnilega skákmenn (unga sem aldna) að krækja sér í áfanga að alþjóðlegum titli, eða að fá nöfn sín skráð á alþjóðastigalista FIDE. Þegar hafa allmargir erlendir stórmeistarar lýst yfir áhuga á að tefla á mótinu og meðal þeirra sem Hellir hefur boðið til mótsins er enska skákdrottningin Harriet Hunt, sem á dögunum hampaði heimsmeistaratitli stúlkna, 20 ára og yngri. Umsjón Jón L. Árnason Á opnu mótunum fá stigalágir skákmenn tækifæri til þess að tefla við sér stigahærri meistara og (ef vel gengur) að krækja um leið í brot af stigunum þeirra. Til þess að hvetja sterka skákmenn til keppni fara þátttökugjöldin lækkandi eftir þvi sem stigunum fjölgar. Þetta fyr- irkomulag verður einnig á Hellis- mótinu, auk þess sem félagsmenn Hellis fá sérstakan afslátt. Hellisbú- ar með yfir 2300 stig þurfa engin þátttökugjöld að greiða en utanfé- lagsmenn kr. 5000; félagsmenn Hell- is með stig á bilinu 2205-2300 þurfa að greiða kr. 3.000 en utanfélags- menn kr. 8.000; Hellisbúar með 2105-2200 stig greiða kr. 6.000, aðrir kr. 12.000; félagsmenn Hellis á bil- inu 2000-2100 stig greiða kr. 9.000 en aðrir kr. 15.000 og loks greiða félags- menn Hellis með minna en 2000 stig kr. 12.000 í þátttökugjöld en utanfé- lagsmenn kr. 20.000. íslenskir skák- menn ættu ekki að láta þátttöku- gjöldin vaxa sér i augum en rétt er að benda á að kostnaður við tafl- mennsku í mótinu er að sjálfsögðu mun minni en kostnaður við þátt- töku í sambærilegu móti erlendis. Því má búast við að taflfélögin á höfuðborgarsvæðinu sjái sér hag í því að styrkja sína efnÚegustu skák- menn til keppninnar. Eins og fyrr segir hefur skákdrottn- ingunni Harriet Hunt verið boðið til mótsins. Hún er aðeins 19 ára göm- ul og er búsett í Oxford, þar sem for- eldrar hennar annast kennslu. Hún hefur vakið gríðarlega athygli í Englandi undanfarin ár og hefur notið tilsagnar þekktra meistara. Þeim sem vel þekktu til kom ekki á óvart að hún skyldi verða heims- meistari. Á heimsmeistaramótinu, sem fram fór í Zagan í Póllandi, sigraði hún af öryggi, hlaut 10,5 vinninga úr 13 skákum og varð vinningi fyrir ofan pólsku stúlkuna Dvorakovsku og Vasiljevits frá Úkraínu. í piltaflokki varð Bandaríkjamaðurinn Shaked Tal heimsmeistari með 9,5 vinninga og betri stigatölu en Mirumjan frá Armeníu. Næstir komu Grikkinn Banikas, Tékkinn Movsesjan og Zhang Zhong frá Kína með 9 vinn- inga. íslendingar áttu því miður ekki þátttakendur á heimsmeistara- móti unglinga að þessu sinni en skemmst er að minnast þess er Helgi Áss Grétarsson varð heims- meistari fyrir þremur árum. Lítum á fjöruga skák frá hendi Harriet Hunt, sem íslenskir skák- áhugamenn fá vonandi að fylgjast með á alþjóðamóti HeOis í vetur. Skákin er tefld á HM-stúlkna í Pól- landi. Hvítt: Harriet Hunt (Englandi) Svart: J. Danieljan (Armeníu) Caro-Kann vörn. 1. e4 c6 2. d4 d5 3. exd5 cxd5 4. c4 Rf6 5. Rc3 e6 6. Rf3 Be7 7. cxd5 Rxd5 8. Bd3 0-0 9. 0-0 Rc6 10. Hel Bf6 11. Be4 Rce7 12. Re5 g6 13. Bh6 Bg7 14. Dd2 Rf6 15. Hadl Rxe4 16. Rxe4 Rf5 17. Bxg7 Kxg7 18. Rg4 b6? 19. Dc3 f6 20. Rgxf6! Hxf6 21. Rxf6 Kxf6 Ef 21. - DxfB 22. Dc6 Hb8 23. Dc7+ og hrókurinn fellur. 22. d5+ e5 Eða 22. - Kg5 23. dxe6 De7 24. Dd2+ Kf6 25. Dd5 Bb7 26. De5+ Kg5 27. Hd7 og vinnur. 23. Dc6+ - og svartur gafst upp. Bragi efstur á helgarmóti Bragi Halldórsson sigraði glæsi- lega á helgarskákmóti Taflfélags Reykjavíkur, sem fram fór um síð- ustu helgi. Bragi hlaut 6,5 vinninga úr 7 skákum, leyfði aðeins jafntefli við Arnar E. Gunnarsson. Sævar Bjarnason varð í 2. sæti með 5,5 v. og síðan komu Amar E. Gunnars- son og Einar Hjalti Jensson með 5 v. Á mótinu voru fyrst tefldar 3 at- skákir og siðan 4 kappskákir og voru þátttakendur 30 talsins. Nú stendur yfir helgarskákmót timaritsins Skákar á Mjóafirði og lýkur því á morgun, sunnudag. Þetta er 47. mótið í röðinni sem tímaritið Skák stendur fyrir í sam- vinnu við heimamenn. Á þriðjudag hefst síðan „millihelgamót“ í Skjöld- ólfsstaðaskóla, Jökuldal, þar sem teflt verður fram á fimmtudag. Föstudaginn 22. ágúst til sunnu- dagsins 24. ágúst lýkur síðan aust- firsku skákveislunni með 49. helgar- mótinu, sem fram fer í Borgarfirði eystri. Þröstur þriðji í Gausdal Minningarmóti um Amold J. Eikrem í Gausdal lauk með sigri Einars Gausel og Nigel Davies, sem fengu 7 vinninga úr 9 skákum. Þröstur Þórhallsson stórmeistari var í hópi þeirra skákmanna sem deildu 3. sæti, en þeir voru auk SVAR f • 903 j 5670 •• Aðeins 25 kr. mínútan. Sama verð fyrir alla landsmenn. Þrastar Rausis, Tisdall, M. Ivanov, Bjarke Kristensen, M. Kozakov, Bergström, Bjerke og Behrhorst. Allir fengu þeir 6 v. Arnar Þor- steinsson og Ágúst Sindri Karlsson fengu 5 vinninga á mótinu en þátt- takendur voru alls 50 talsins. Auk þeirra félaga í Gausdal hafa fleiri íslenskir skákmenn verið á faraldsfæti í sumar. Helgi Ólafsson var efstur ásamt Lettanum Rytsa- gov með 7 vinninga af 9 mögulegum er tveimur umferðum var ólokið á lokuðu móti í Stokkhólmi, af 8. styrkleikaflokki FIDE. Þá tekur Áskell Örn Kárason nú þátt í opnu móti í Gautaborg og Guöfríður Lilja Grétarsdóttir teflir á Berlín Open. Norræna Afríkustofnunin auglýsir hér með ferðastyrki til rannsóknarstarfa í Afríku. Síðasti umsóknardagur er 16.9.1997. Námsstyrkir til náms við bóka- safn stofnunarinnar tímabilið jan- úar tiljúní 1998. Síðasti umsóknardagur 1.11.1997. Sótt skal um á sérstökum um- sóknareyðublöðum sem fást hjá Norrænu Afríkustofnuninni. Sími (+46) 18 56 22 00 Box 1703, SE-751 47 UPPSALA _ jjPÚQjíEC.. SSrjjimjui VÖRN GEGN FOKI - !32i?á s»lv«v i*f uéu l*ms þMwiq tMM xmiui «ikl. • Mv nuin i LEKUR ÞAKIÐ? AFTUR!!! I Ertu þreyttur á aö endurtaka lekaviðgerö annaö hvert ár eða svo!! Nú gerir þú þakið vatnshelt meö einni umferð af Roof-Kote. Taktu á málinu og kynntu þér möguleikana á viögeröum meö Roof-Kote, Tuff-Kote og Tuff-Glass viögeröarefnunum. Efnin voru þróuö áriö 1954 og hafa staðist tímans raun. Heildsala: G.K. Vilhjálmsson Smyrlahrauni 60 |Z?565 1297
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.