Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1997, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1997, Blaðsíða 33
41 4 LAUGARDAGUR 16. AGUST 1997 trimm Reykjavíkur maraþon 24. ágúst: i— Nú fer að líða að einum stærsta íþróttaviðburði ársins, Reykjavíkur maraþoninu. Það fer fram sunnu- daginn 24. ágúst og hefst klukkan 11.00 að morgni. Maraþonhlaupið er opið öllum 18 ára og eldri, hálfmara- þonið er opið hlaupurum 16 ára og eldri. 10 km og skemmtiskokkið er öllum opið en þó er ekki æskilegt að 12 ára eða yngri fari 10 km nema með góðum undirbúningi. Maraþon- hlaupið er jafnframt íslandsmeist- ciramót. Verndari hlaupsins er Ingi- björg Sólrún Gisladóttir borgar- stjóri. Umsjón ísak Öm Sigurðsson Ágúst Þorsteinsson er fram- kvæmdastjóri hlaupsins og hann hefur undanfarnar vikur verið önn- um kafínn við undirbúning þess. „Skráning í hlaupið hefst nú á mánudaginn, 18. ágúst, og ástæða er til þess að benda hlaupurum, sem ákveðnir eru í að taka þátt, að skrá sig hið fyrsta því það auðveldar skipulagninguna, auk þess sem keppnisgjald hækkar um 300 krónur í 10 km, hálf- og heilmaraþoni þann 21. ágúst. Við bryddum upp á nýj- ung í ár; þeir sem skrá sig fá afhent- an keppnisbol við skráningu. Þeir sem skrá sig á skráningarstöðum I Reykjavík fá bolinn afhentan við skráningu en þeir sem skrá sig á 24. ágúst. Reykjavíkur í maraþon hefst klukkan 11 í | Lækjargötu. Vegalengdir eru 3 km skemmtiskokk án tíma- töku og flokkaskiptingar, 10 km, hálfmaraþon og maraþon með tímatöku. Þetta er jafn- | framt meistaramót íslands í maraþoni. Flokkaskipting, bæði kyn: 14 ára og yngri, f 15-17 ára (10 km), 16-39 ára (hálfmaraþon), 18-39 ára (10 km og maraþon), 40-49 ára, | 50-59 ára, 50 ára og eldri kon- ur (hálfmaraþon og maraþon), 60 ára og eldri. AOir sem ljúka s hlaupunum fá verðlaunapen- ing og merktan bol. Verðlaun j eru fyrir þrjá fyrstu í hverjum flokki. Útdráttarverðlaun. For- | skráningu lýkur 21. ágúst, eftir ;; þann tíma hækkar skráningar- gjald á öUum vegalengdum um ■ 300 krónur, nema skemmtiskokki. Þar verður ekki hækkun. Upplýsingar um hlaupið á skrifstofu Reykjavík- ur maraþon í Laugardal í síma 588 3399. 30. ágúst. Reykjalundar- | hlaup sem hefst klukkan 11:00 j að Reykjalundi, nema 14 km hlaup sem hefst klukkan 10:40. j Vegalengdir eru 0,5 km, 2 km, 3 km, 6 km og 14 km. Upplýs- ingar í síma 566 6200. 30. ágúst. Dalvíkurhlaup. Upplýsingar hjá VOhjálmi Björnssyni á Dalvík i síma 466 1121. mmgmmmms&mmmmMmmmmmsmæímmmmtm - frír keppnisbolur fyrir alla keppendur landsbyggðinni fá bolinn afhentan í BariUa pastaveislunni sem þátttak- endum er boðið tU í bUageymslu Ráðhúss Reykjavíkur laugardaginn 23. ágúst miUi klukkan 14 og 18,“ segir Ágúst. Skráning í hlaupið í Reykjavik er í íþróttabúðinni íþrótt að Skipholti 50 D og Hinu húsinu, Aðalstræti 2. Skráning á landsbyggðinni fer fram í Sportbúð Óskars í Keflavík, Ozone á Akranesi, Vesturferðum á ísafirði, Sportveri á Akureyri og Sportbæ á Selfossi. Skráning er ekki tekin í gegnum síma og þátttökugjald fæst ekki endurgreitt. Hlaupaleiðin í Reykjavikur mara- þoni er merkt á kortinu hér tU hlið- ar en þeir sem hlaupa heUmaraþon fara tvo hringi. Drykkjarstöðvar verða með um það bil 5 km miUibUi. Þar verður í boði vatn og Aquarius íþróttadrykkur. Læknar og hjúk- Reykjavíkur maraþon verður ræst klukkan 11.00 sunnudaginn 24. ágúst. runarlið verður tU reiðu á meðan á hlaupinu stendur og til aðstoðar er hlauparar koma i mark. „Nyrðri ak- rein Sæbrautarinnar verður lokuð í hlaupinu, alveg frá Geirsgötunni í gamla miðbænum og aUa leið aust- ur að Skeiðarvoginum. Syðri akrein Sæbrautarinnar verður gerð að tví- stefnuakstursgötu á meðan á hlaup- inu stendur." AUir er ljúka hlaupinu hljóta verðlaunapening. Þeir fyrstu í maraþoni, hálftnaraþoni og 10 km hlaupi karla og kvenna fá sérverð- laun. Þrír fyrstu karlar og þrjár fyrstu konur í maraþoni og hálf- maraþoni fá utanlandsflugmiða frá Flugleiðum í verðlaun. Auk þess er greiddur bónus ef brautarmet eru slegin. í skemmtiskokkinu og 10 km er dreginn út flugmiði frá Flugleið- um. „Verðlaunaafhendingin verður á Hótel íslandi sunnudagskvöldið 24. ágúst og hefst klukkan 21.00. Þar verða afhent einstaklings-, aldurs- flokka- og sveitakeppnisverðlaun. Einstaklingskeppnisverðlaunin hafa hingað til verið afhent í Lækj- argötu en nú verða þau flutt inn á Hótel tsland. Það er gert til að skapa meiri stemningu í kringum verð- V launaafhendinguna. Aðgangur verð- ur ókeypis á Hótel íslandi á verð- launaafhendinguna en fólk getur reyndar keypt sér léttar veitingar," segir Ágúst. Samstarfs- og styrktaraðilar Reykjavíkur maraþons eru FRÍ, Reykjavíkurborg, Flugleiðir, DV, ís- landsbanki, Byko, Vífllfell, Brim- borg, Mizuno, SS, Vörumiðstöðin, Ferðaskrifstofa íslands, 66°N, RÚV, Pizza 67, Plastos, Harpa, Miðlun, Visa, Félag fótaaðgerðarfræðinga, Félag íslenskra nuddara og Óháði söfnuðurinn. Reykjavíkurmaraþon Síðasta vikan fyrir Reykjavíkur maraþon Síðustu vikan fyrir Reykjavíkur tíma einu sinni til tvisvar fyrri maraþon á að vera mjög létt. Fara hluta vikunnar en annars skokka upp á keppnishraða í mjög stuttan létt og hvíla. Mjög mikilvægt er að lllfiuiifiáfoilun fyrir Reykjavíkur maraþon 1997 Vikall 10 km 18.til 24.ágúst 21 km 42 km Mánudagur 6 km rólega 6 km rólega 6 km rólega Þríðjudagur 6-8 km vaxandi 8 km vaxandi 8 km vaxandi Miðvikudagur Hvíld Hvild Hvíld Fimmtudagur 4-6 km vaxandi 6 km vaxandi 6 km vaxandi eða hvlld eða hvíld eða hvíld Föstudagur Hvíld Hvíld Hvíld Laugardagur 20 mín. rólegt 20 mín. rólegt 20 mín. rólegt Skokk eða hvlld Skokk eða hvíld skokk eða hvíld Sunnudagur Reykjavíkur maraþon Reykjavíkur maraþon Reykjarvíkur maraþon Vaxandi: Byrja rólega en auka hraöann eftir u.þ.b. 10 mín. og fara upp á keppnishraöa eða rétt yfir. vera ekki þreyttur á keppnisdegi. Athugið því mjög vel allt sem þið takið ykkur fyrir hendur fyrir utan æfingarnar. Sleppa öllum öðrum íþróttum síðustu dagana fyrir keppni og reyna að hvílast eins og hægt er. Kappkostið að borða kol- vetnaríka fæðu síðustu dagana fyr- ir keppni. Klæðið ykkur miðað við veður og munið fingravettlinga ef kalt er í veðri. Setjið upp áætlun um meðalhraða í hlaupinu. Flest mistök verða vegna þess að hraðinn er of mikill í byrjun eða í fyrri hluta hlaupsins. Ef þið finnið ykkur vel í hlaupinu er rétt að bíða þar til 2/3 hlaupsins eru liðnir þar til þið reynið að keyra upp meiri hraða en settur var upp sem áætlaður meðal- hraði. I maraþonhlaupinu er rétt að notfæra sér allar drykjarstöðvamar en taka þá frekar lítið á hverri stöð. Gangi ykkur vel og megið þið eiga góða skemmtun í Reykjavíkur maraþoninu 1997. Gunnar Páll Jóakimsson. er styrktaraðili Reykjavíkurmaraþons tjf ■ ' ■■■:■ ' jtóntM y75izmo hotel edda Jf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.