Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1997, Side 11
FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997
11
Fréttir
Sameining sveitarfélaga 1 Skagafirði:
Fyrsta kynningar-
blaðið kemur út
Erum að taka upp haustvörurnar \
Allir í fjölskyldunni eru glæsilegir í skóm
frá Glæsiskónum
Sendum í póstkröfu samdægurs
DV, Fljótum:
Byrjað er að kynna tillögur
nefndar um sameiningu sveitarfé-
laga í Skagafirði fyrir almenningi.
Fyrsta kynningarblað af þremur,
sem áformað er að gefa út, fór í
dreifingu í vikunni. Verður það
sent inn á öll heimili í þeim ellefu
sveitarfélögum sem þátt hafa tekið i
sameiningarviðræðum undanfama
mánuði.
í biaðinu eru kynntar tillögur
sameiningamefndar í flestum mála-
flokkum sem sveitarfélög snerta en
nokkur málefni eru þó enn til um-
fjöllunar í nefnd. í tillögum nefndar
er m.a. gert ráð fyrir að sveitar-
stjórn í nýju sameinuðu sveitarfé-
lagi verði skipuð ellefu fulltrúum en
fimm verði í svokölluðu byggðaráði.
Sveitarfélagið skiptist í ellefu
hverfi, þ.e. að hvert gamla sveitarfé-
lagið verði hverfi og í því starfi
hverfanefnd óski íbúar þess. 1
hverju hverfi munu, til að byrja
með, starfa þjónustufulltrúar sem
ætlað er að vera tengiliðir íbúanna
við sveitarstjórn.
Eins og áður sagði er fyrirhugað
að gefa út tvö dreifiblöð til viðbótar.
Þá er áformað að halda kynningar-
fundi i hverju sveitarfélagi í haust.
Áætlað er að kosningar um samein-
inguna fari fram um miðjan nóv-
ember. Starfsmaður sameiningar-
nefndar er Bjami Jónsson á Hólum
í Hjaltadal.
-ÖÞ
%y
Útvegssvið VMA á Dalvík:
Metaðsókn í vetur
DV, Dalvík:
Yfir 70 nemendur hafa sótt um
nám á útvegssviði VMA á Dalvík
fyrir næsta skólaár en áætlað er að
skólinn verði settur 1. sept. nk.
Að sögn Guðbjartar E. Jónssonar
kennslustjóra era daglega að bætast
við umsækjendur. Hann sagði að
skipting umsókna væri þannig að 25
nemendur hefðu sótt um nám á
fyrsta stigi skipstjórnarnáms og 12 á
annað stig. Alls hafa 39 sótt um ann-
að nám, þ.e. 13 nemendur á fyrsta
ári á almennri braut, 16 á annað ár
og 8 á þriðja ár fiskvinnslubrautar
og 2 á nýstofnaða sjávarútvegs-
braut.
Taldi Guðbjartur að skýringuna á
hluta þessarar aukningar mætti
rekja til áætlana um breytingar á
skipstjórnamámi sem taka eigi
gildi á næsta ári. Eigi að síður sé
mjög ánægjulegt að sjá þá aukningu
sem verður í umsóknum um nám á
fiskvinnslubraut og að fiskvinnslu-
fyrirtæki geri nú oftar kröfur um
slikt nám í atvinnuauglýsingum um
t.d. vinnslusfjórnendur.
Kennaramál era, að sögn Guð-
bjarts, i þokkalegu ástandi. „Nú ný-
verið misstum við einn kennara
sem áætlaði að kenna við skólann í
vetur en það horfir vel með ráðn-
ingu í hans stað. Að öðru leyti er
skólinn fullmannaður."
Hvað varðar húsnæðismál skól-
ans og breytingar á heimavist er
ætlunin að þeim verði lokið fyrir 1.
sept. nk. og þar með verði öll
kennsla í vetur í húsnæði heima-
vistarinnar. Húsnæðismál nem-
enda, sem koma að, gætu orðið erf-
ið í framtíðinni vegna breytinga á
heimavistinni og aðsóknar að skól-
anum en í ár hafa 30 nemendur sótt
um heimavist og er það mesti fjöldi
sem hægt er að koma þar fyrir, með
tveimur í herbergi. Á heimavist era
15 tveggja manna herbergi en þau
hefur á undanfómum áram verið
hægt að bjóða fyrir einstaklinga.
-HÍÁ
1992, ekinn 37 þús. km, svartur, sjálfskiptur 4 g., ABS, spólvörn, leöur, rafmagn, sóllúga, hiti í framrúðu, o.fl. o.fl. Tilboö óskast. JR bílasala, Bíldshöföa 3, sími 567 0333 J
í Krakkaklúbbi DV og Kjörís
Isveisla í Kjörís-ísbúö fyrír fjölskylduna
Jóhannes Stefánsson nr. 11434
Linda Jónsdóttir nr. 5813
Jóhann P. Harðarson nr. 11334
Grétar Stefánsson nr. 6008
íris B. Björnsdóttir nr. 9548
Krakkaklúbbur DV og Kjörís
þakka öllum sem tóku
þátt kærlega fýrir
frábæra þátttöku.
Vinningshafar fá
gjafabréfið sent í pósti
næstu daga.
Verið er að byggja nýtt anddyri í Keflavíkurkirkju sem verður í stíl kirkjunn-
ar sem var byggð 1914. DV- mynd Ægir Már
Keflavíkurkirkj a:
Anddyrið stækkað
DV, Suðurnesjum:
Að undanfómu hafa staðið yfir
framkvæmdir við Keflavíkurkirkju.
Verið er að stækka anddyrið i kirkj-
unni um tæplega 20 fermetra. Mikil
ánægja er með þessar framkvæmdir
énda var aðstaðan í gamla anddyr-
inu mjög þröng. Einnig verður
rýmra á loftinu fyrir söngfólkið.
Kirkjan verður máluð og verður
mjög erfitt að sjá utan frá að and-
dyrið hafi verið stækkað enda falla
framkvæmdir mjög vel að stíl kirkj-
unnar sem var byggð 1914. Þeim á
að vera lokið þegar kirkjustarfið
hefst á haustdögum.
-ÆMK
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ ÁKR. 10.000,00
1985-2.fl.B 10.09.97 - 10.03.98 kr. 28.781,30
* Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
* Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi í, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 28. ágúst 1997
SEÐLABANKIÍSLANDS