Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1997, Side 13
FIMMTUDAGUR 28. AGUST 1997
13
Fréttir
Sæplast hf. á Dalvlk:
Um 9 milljóna
króna tap
á rekstrinum
- fyrstu sex mánuöi ársins
DV, Dalvík:
Sæplast hf. á Dalvík var rekið
með tæplega 9 milljóna króna tapi
fyrstu 6 mánuði ársins, samanborið
við 12,3 milljóna króna hagnað á
sama tímabili í fyrra. Meginástæð-
ur lakari afkomu nú eru að sala á
trollkúlum, vatnsrörum og fiskiker-
um var minni en á sama tímabili í
fyrra, auk þess sem afskriftir jukust
um tæp 60% milli ára.
Rekstrartekjur Sæplasts hf.
fyrstu 6 mánuði ársins námu tæp-
um 177 milljónum króna og lækk-
uðu um 12,3% miðað við sama tíma-
bil í fyrra. Rekstrargjöld voru 164,5
milljónir króna, sem er 6,2% lækk-
un milli ára. Fjármagnsgjöld námu
tæpum 4,6 milljónum króna og juk-
ust um 63,6% milli ára. Sala fyrstu
sex mánuði ársins er 12% minni en
á sama tímabili í fyrra.
Kristján Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Sæplasts, segir að
þessar viðurstöður valdi vissulega
vonbrigðum þar sem áætlanir hafi
gert ráð fyrir veltuaukningu milli
ára og að reksturinn skilaði hagn-
aði. Það hafi sitt að segja að kostn-
aður við flutning á hverfisteypu-
deild og skrifstofum félagsins í nýtt
húsnæði felli allur til á þessu tíma-
bili.
„Hins vegar er ánægjulegt að sjá
hversu mjög Sæplast hefur styrkt
sig í sessi á innanlandsmarkaði.
30% aukning í sölu fiskkerja hér
heima á milli ára bendir ótvírætt til
að sú áhersla sem við höfum lagt á
þróunarstarf og gæðaímynd fram-
leiðsluvara félagsins á undanföm-
um árum sé byrjuð að skila sér,“
segir Kristján.
„Ég geri ráð fyrir að sala á fiskk-
erum aukist milli ára. Þá má vænta
þess að aukin afkastageta hverfis-
steypudeildarinnar fari að skila sér
á síðari hluta ársins. Endurskoðað-
ar áætlanir okkar gera ráð fyrir að
veltan verði um 400 milljónir króna
á árinu og að félagið verði réttum
megin við strikið í árslok.
-HÍÁ
Sláturhúsum fækkar á Vestfjörðum:
Ekkert slátrað á
Þingeyri í haust
Flest bendir nú til að ekki verði
slátrað í sláturhúsinu á Þingeyri í
haust. Sem kunnugt er varð siátur-
húsið Barði gjaldþrota um síðustu
áramót og viðleitni til að setja í
gang rekstur í húsinu, t.d. með leigu
á búnaði, hefur ekki borið árangur.
Þar með er enginn slátnrhúsrekstur
á öllu svæðinu frá Patreksfirði
norður um og til Hólmavíkur.
Bændur á norðanverðum Vest-
{jörðum verða þvi að aka með allt
sitt sláturfé á annað og jafnvel
þriðja hundrað kilómetra leið eftir
því hvort heldur verður slátrað á
Hólmavík eða á Patreksfirði. Slátur-
húsið á Patreksfirði, sem rekið var í
fyrra undir nafninu Napi, er nú í
eigu Odda hf. sem keypti húsið á
uppboði. Að sögn Hauks Más Sig-
urðarsonar hjá Odda mun það ráð-
ast nú í vikunni hvernig að slátrun
verði staðið. Hann staðfesti að við-
ræður hafi farið fram við Norðvest-
ur- bandalagið og eins við Borgnes-
inga.
Norðvestur-bandalagið svokall-
aða varð til við samruna sláturhúsa
í Búðardal á Hólmavík, Óspakseyri
og Hvammstanga fyrr á þessu ári.
Sagði Haukur að verið væri að ræða
um verktöku við þessa aðila. Slátr-
un mun að öllum líkindum hefjast í
sláturhúsi Odda í haust hvort sem
samningar við áðumefnda sláturað-
ila takast eða ekki. Að sögn Hauks
er ráðgert að slátra um 6000 til 8000
fjár sem er veruleg aukning frá því
sem verið hefur.
-HKr.
Hver er
Damon Albarn?
Ef þú veist það gætir
þú unnið miða á
BLUR tónleikana
31. ágúst.
Leikurinn stendur til 29. ágúst.
DV birtir lista yfir 100 vinningshafa
í blaðinu 29. ágúst.
mm
SlA^V
Innlausnarverð vaxtamiða
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
Hinn 10. september 1997 er 24. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í 2. fl. B 1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 24 verður frá og með 10. september nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 4.749,00
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. mars 1997 til 10. september 1997 að viðbættum verðbótunr sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 10. september 1997.
Reykjavík, 28. ágúst 1997
SEÐLABANKIÍSLANDS
______________________________
ffi'
*\o
Áskrift að
daglegum
fréttum frá íslandi
er auðveld og
þægileg leið til þess
að vera í beinu
sambandi við ísland.
Tilboð til námsmanna erlendis
er aðeins kr. 995 á mánuði
í þrjá mánuði
mmm
JU 'f9íX-r
****&%&
Uf) >
FRETTIR UR
FJÖLMIÐLUM
Þverholt 11. Sími 550 5000. Fax 550 5999. Netfang: faxfréttir@ff.is
Faxfréttir úr fjölmiðlum
eru fréttir frá íslandi og
færa tesandanum á stuttu og
aðgengilegu formi þær fréttir
sem eru efst á baugi hverju sinni.
Faxfréttir koma út 5 daga vikunnar
á tveim síðum, mánudaga til föstudaga,
kl. 13 að íslenskum tíma. Sendingartími
fer annars eftir samkomulagi.
Dreifileiðir eru í
gegn um fax
og tölvupóst.