Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1997, Page 19
FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997
Sviðsljós
27
DV
Leikarinn Laurence Fishburne gerir það gott:
Við Jackson erum
ekki sami maðurinn
Laurence Fishburne er þessa dagana að leika í kvikmynd-
inni Hoodlum sem fjallar um braskara í Harlem.
„Það er sífellt verið að
rugla okkur Samuel
Jackson saman. Við erum
ekki einn og sami maður-
inn,“ segir Laurence Fish-
burne í nýlegu viðtali.
Fishbume gerði grín að
þessum ruglingi við verð-
launaafhendingu á síðasta
ári. Þeir stigu báðir upp á
svið og sögðu: „Sjáið þið
bara, við erum ekki einn
og sami maðurinn." Þó er
það nánast daglegt brauð
að þeim sé ruglað saman.
„Ég var í flugvél fyrir
nokkrum vikum. Ein flug-
freyjan kom til mín og
sagði: „Þú og Travolta
eruð frábærir saman,“ en
Travolta og Jackson léku
saman í Pulp Fiction. Fyr-
ir nokkrum dögum kom
svo maður til min og bað
mig um eiginhandarárit-
un. Hann sagðist hafa séð
mig í myndinni Men in
Black og líkað vel.“
Laurence Fishburne, sem breytti
nafni sínu í Larry þegar hann hóf
leik í kvikmyndum, breytti nafni
sínu aftur fyrir nokkrum árum.
„Ég ákvað að breyta því aftur því
Laurence er skírnarnafh mitt. Síðan
árið 1992 hef ég kosið að nota það
frekar, svo einfalt er það. Larry
heyrir því sögunni til,“ segir
Fishburne.
Laurence var aðeins 14 ára þegar
hann lék í sinni fyrstu kvikmynd.
Það var ekki ómerkari mynd en
Apocalypse now sem
Francis Ford Coppola
leikstýrði. Hann segir að
reynslan sem hann hlaut
þá hafi breytt lífi hans
algjörlega.
„Ég uppgötvaði að ég
var listamaður eftir að ég
lék í þeirri mynd.“ Hann
segist minnast þess helst
að vera í félagi með þeim
Marlon Brando, Martin
Sheen og Dennis Hopper.
Hann segir að sem
betur fer geti svartir
leikarar nú náð langt án
þess að vera
gamanleikarar og tekur
sem dæmi Richard Pryor
og Eddie Murphy. „Það
breyttist allt þegar Spike
Lee kom til sögunnar. í
kjölfarið fylgdu Bill
Duke, Hughes bræður,
John Singleton, Sam
Jackson, Denzel
Washington, Morgan
Freeman og ég.“
Fishburne er þessa dagana að
leika í nýrri kvikmynd sem heitir
Hoodlum. Myndin fjallar um
braskara í Harlem og leikur hann
einn þeirra.
m
Hagstœð kjör
'é
’ -4
m
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
dag er ^0^/c ofsláttur
af annarri auglýsingunni.
&
o\\l miHI hirrynt
Smáauglýslngar
550 5000
Hollywood-leikkonan Geena Davis er búin að fá nóg af eiginmanni númer
þrjú, finnska leikstjóranum Renny Harlin. Hún hefur sótt um lögskilnað eftir
aðeins tæpra fjögurra ára hjónaband.
Stallone kennir leik-
list hjá Clinton forseta
Stórleikarinn Sylvester Stallone
er ekki vanur að ráðast á garðinn
þar sem hann er lægstur. Það sann-
aðist best þegar hann sótti veislu til
heiðurs Bill Clinton Bandaríkjafor-
seta í fínum golfklúbbi á Vínekru
Mörtu I Massachusetts, sumarleyfis-
eyju rika fólksins.
Þegar gleðin stóð sem hæst var
Stallone fenginn til að gefa Vernon
Jordan, golflelaga Clintons, smá
kennslustaid í leiklist, frammi fyr-
ir forsetanum og öðrum gestum.
„Mér skilst að samtalið hafi verið
eitthvað í líkingu við það sem heyra
má í nýjustu myndinni hans,“ sagði
Barry Toiv, talsmaður Hvíta húss-
ins, að kennslustundinni lokinni.
Það var frú Clinton sem stakk
upp á því að Vernon fengi kennslu í upp á afmælið sitt í síðustu viku,
leiklist í afmælisgjöf. Jordan hélt rétt eins og sjálfur forsetinn.
6DTT ÚTHRH
YLGJUNNI
DVMfl flflNN
I Fjorkalfmum í DV a föstudögum
smcjflNmuflNN
A Bylgjunm a fimmtudögum kl. 20
og endurfluttur a
laugardogum kl. 16
(Ofl-E (j-EfUfl I0NINN
f £ ^
w.
Æ