Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Qupperneq 12
i2 fyrir 15 árum LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997 Notuðu þorskalýsi sem eldsneyti á vörubíl: Lesendur ráku upp stór augu 1 september 1982 þegar DV sagði fréttir af vörubíl Lýsis hf. sem knúinn var áfram með hjálp þorskalýsis. Fyrirsögnin „Lyktin eins og verið sé að steikja kleinur" vakti eðlilega kátínu en þar var Erlendur Egilsson verkstjóri að lýsa þefn- um úr púströri bílsins. „Bílinn gengur mjög vel á lýsinu. Það fæst hins vegar ekki eins mikili kraftur úr vél- inni,“ hafði DV eftir Benjamín Jóhannessyni bílstjóra. Það þóttu hins vegar ekki eins góð tíðindi og kleinulyktin. Einhverjir hafa sjálfsgt haldið að þarna væri komið eldsneyti framtíðarinnar, að Is- land yrði nýtt „olíuveldi" í heiminum. Baldur Hjaltason, forstjóri Lýsis, var nýbyrjaður hjá fyrirtækinu þegar til- raunirnar með lýs- iseldsneytið hófust „Við notuðum vörubíla til að sækja lifur á Suðurnesjum. Tryggva Ólafssyni, forstjóra og stofnanda Lýsis, datt i hug hvort ekki mætti keyra bíl- ana á lýsi en því hafði áður verið brennt á kyndikötlum. Ákveðið var að prófa lýsi á elsta vörubílinn, Scania Vabis. Komumst við að því að ef lýsið fór heitt inn á vélina gat bíll- inn gengið á þvi,“ segir Baldur við DV. Barst um allan heim Lýsi þarf að hita upp til að það haldist þunnt, það storknar í kulda. Því var smíðað- ur sérstakur eldsneytisgeymir með hitaspíral en kælivatn frá vélinni notað til að hita upp lýsið. Baldur segir að frétt um lýsisbílinn hafi verið send út um allan heim af fréttastofu Reuters. „Sama dag og fréttin birtist í DV hitti Vig- dis Finnbogadóttir, forseti íslands, Ronald Reagan Bandarikjaforseta í Washington en hún var þá í opinberri heimsókn til Banda- ríkjanna. ísland fékk því töluverða umfjöllun þar vestra. Kom lýsisbíllinn til umræðu í fjöl- miðlum og fór svo að Lýsi hf. fékk fyrirspurn- ir frá nokkrum áhugasömum bandarískum þingmönnum. Það var mjög gaman að þeirri athygli sem þessi tilraun fékk og gaman að taka þátt í þessum tilraunum." Menn þyrsti auðvitað í að vita hvernig lýsi mundi reyn- ast sem eldsneyti á nýrri bíl- um. En þá kom babb í bátinn. Nýrri vélarnar voru með mun flóknara olíukerfi en þær eldri og stífluðust spiss- arnir því fljótt og vélamar urðu ógangfærar. En Bald- ur segir þetta mál hafa hrundið af stað annarri og ekki síður merkilegri umræðu. „Þarna sáu menn að hægt væri að ganga í eldsneytisforða ef til styrjaldar kæmi. Þá ætt- um við brennsluefni á einfaldar dísilvélar og togara sem notuðu svartolíu. Þá er alkunna að lýsi má blanda við ákveðnar tegundir svartolíu. Við framleiðum á annað hundrað þúsund tonn af síldar- og loðnulýsi á ári og því nægur eldsneytisforði út frá öryggissjón- armiði." - En hvað varð um gamla vörubilinn? „Við létum hann frá okkur og ég veit ekki hvar hann er niðurkominn í dag,“ segir Bald- ur. -hlh bókaormurinn____________________________ Hef vart eirð í már til lesturs - segir Kjartan Guðjónsson leikari „Ég les frekar lítið, hef vart eirð í mér til lesturs. En þegar ég tek mig til er ég um það bil sex mánuði með hverja bók. Nú vill þó svo skemmti- lega til að ég er með tvær bækur í takinu," segir Kjartan Guðjónsson leikari, bókaormur vikunnar sam- kvæmt áskorun Eggerts Þorleifsson- ar, starfsbróður hans. Kjartan er að lesa bók eftir bandaríska saksóknarann Vincent Bugliosi sem íjallar um hvernig ákæruvaldið klúðraði morðmálinu gegn ruðningshetjunni og leikaran- um O.J. Simpson. Bókin heitir Five Reasons Why O.J. Simpson Got Away With Murder. „Ég er búinn með um það bil fjórðung bókarinnar og hef haft mjög gaman af henni. Bugliosi er einn harðasti saksóknari Bandaríkj- anna, sótti meðal annars málið gegn fjöldamorðingjanum Charles Man- son. Hin bókin er eftir Tom Claricy Kjartan Guðjónsson er meö tvær bækur í takinu en segist þó ekki lesa mikiö. og nefnist Executive Order. Þar er Jack Ryan, sá sem Harrison Ford er alltaf að leika, orðinn forseti Banda- ríkjanna. Bókina tileinkar Clancy Ronald Reagan, fyrrum Bandarik- forseta, með orðunum The man who won the war“. Þó Kjartan lesi ekki mikið sér til afþreyingar les hann ógrynni af handritum vegn starfs- ins. Segist hann kunna meiri texta utan að en margir lesa á einu ári. „Annars veit ég heilmikið um höfunda, titla, söguþræði bóka og svoleiðis. Ég gæti alveg eins hafa skrifað bók eins og How to Fake Your Way through Literature," seg- ir Kjartan og bætir við: „Þetta með lesturinn á rætur að rekja til barns- og unglingsáranna. Meðan félagar mínir lágu í bókum var ég í byssu- og leynilögguleik langt fram eftir kvöldi alveg fram undir fullorðins- ár. Þannig fékk ég útrás fyrir ímyndunaraflið. Foreldrar minir héldu á tímabili að ég væri mis- þroska. En kannski verð ég alvöru- bókaormur þegar ég verð eldri,“ segir Kjartan. Hann skorar á Sæmund Norð- fjörð kvikmyndagerðarmann að vera bókaorm næstu viku. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.