Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Side 22
22 sérstæð sakamál LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997 JjV Wemer Vock var sextíu og f]ög- urra ára. Hann stóð fyrir framan spegilinn í anddyrinu og lagfærði á sér slifsið. Skammt frá honum, frammi í eldhúsinu, stóð sambýlis- kona hans, María Schultz. Hún var fjórum árum eldri en hann. Hún var að afhýða kartöflur. Allt í einu var dyrabjöllunni hringt. Werner opnaði. Fyrir fram- an dyrnai' stóð hár og mjög grann- vaxinn maður með dökkt yfirvara- skegg. Hann var í hvítum jakka og sagðist vera eftirlitsmaður. Hann sagði að eitthvað væri að niðurfóll- um þakrennanna í ijölbýlishúsinu og hann þyrfti að komast í síma til að ná í eigandann. Gæti hann feng- ið að hringja? Auðvitað var svarið jákvætt. Wemer sneri sér til að sýna honum hvar síminn væri. En hann tók ekki nema eitt skref því komumaður greip þungan öskubakka sem stóð á borði undir spegli i anddyrinu ög sló Wemer með honum í hnakkann af öllu afli. Hann féll á hnén og svo endilangur á gólfið. Átökin María heyrði að eitthvað var að gerast í anddyrinu og gekk fram úr eldhúsinu. Þá sá hún ókunnugan mann standa boginn yfir sambýlis- manni sínum þar sem hann lá hreyfingarlaus á gólfinu. Sekúndu- broti síðar heyrði hún hálfkæft hljóð og sá höfuð hans kastast til. Svo heyrðist sama hljóð á ný og þá spýttist blóð úr honum út á gólfið. María hafði ekki tíma til að átta sig á því sem var að gerast áður en komumaður vék sér að henni og gaf henni hnefahögg í andlitið. Hún rið- aði á fótunum en þá greip maðurinn harkalega í hana og hrinti henni fram á gólfið. Enn heyrðist hálfkæft hljóð og um leið fann hún fyrir miklum sársauka í annarri öxlinni. Þrátt fyrir það hve mikið henni hafði brugðið skýrðist hugsun hennar og henni varð ljóst hvað var að gerast. Maðurinn var í þann veg- inn að myrða hana, skjóta hana til bana með hljóðdeyfðri skamm- byssu. Hún æpti af öllum kröftum, barði frá sér og reyndi að sparka í manninn. Á hverju augnabliki beið hún eftir því að fá aðra kúlu í sig, í þetta sinn með banvænum afleið- ingum. Skjót og skýr hugsun En ókunni maðurinn skaut ekki aftur. Þess 1 stað greip hann um hlaup skammbyssunnar og fór að berja Maríu í höfuðiö með skeftinu. Hómn særði hana og blóð slettist á veggi anddyrisins, spegil og gólf. En meðan þetta stóð yfir fór hún allt í einu að hugsa að eina leiðin til að Mieth með síöari konu sinni. María í anddyrinu þar sem atburöurinn geröist. verða ekki barin til dauða kynni að vera að þykjast dáin. „Hann ætlar að drepa þig með skeftinu,“ hugsaði hún. Hún hætti því að æpa og lét sig detta á gólfið, þar sem hún lá síðan hreyfingarlaus. Hún fann að maðurinn beygði sig yfir hana. Svo tók hann í hár hennar og rykkti höfðinu upp. Maríu tókst að láta sem hún fyndi ekkert til og lést mátt- laus. Þá lét maðurinn höfuðið detta á gólfið. Nokkrum augnablikum síðar heyrði María að dyrnar fram á gang- inn opnuðust og svo var þeim lokað. Hún var orðin ein. En nú náði ekki að risa á fætur. Hún missti meðvitund. Milli lífs og dauða Kunningjafólk þeirra Maríu og Wemers kom í heimsókn en enginn var heima. Það reyndi síðar að hafa samband við þau en það tókst ekki. Nokkru síðar komst María til með- vitundar og gat gert vart við sig. Sjúkrabíll kom von bráðar á staðinn og hún var flutt á spítala en rann- sóknarlögreglan tók málið í sínar hendur. í fyrstu gat hún lítið gert, þvi hún var ófær um að tala og vís- bendingar fáar ef nokkrar. í viku lá María miUi heims og helju og þann tíma miðaði rann- sókn málsins ekkert. Svo komst hún til meðvitundar stutta stund og við rúm hennar sátu þá hjúkrunarkona og lögreglumaður. Við þau sagði hún, lágri röddu: „Heinz Mieth stendur á bak við þetta. Ég þekkti mállýsku morðingjans. Hann er frá austurhluta Þýskalands." Þessi yfirlýsing kom lögreglunni á óvart. Hinn myrti, Wemer Vock, hafði ekki staðið í neinu sambandi við neinn í þeim landshluta svo að vitað væri. Og hvemig gat Heinz og Werner á góöri stundu. Mieth, maður sem María hafði'skil- ið við fyrir tuttugu árum, komio þessu máli nokkuð við? Hann bjó langt frá morðstaðnum, í Griesheim í Hessen, og þau María höfðu aðeins nokkrum sinnum haft samband þessa tvo áratugi sem liðnir vom frá skilnaðinum. Ummæli Maríu voru því í fyrst Volker Hoche. talin mgl eftir mikinn áverka og meðvitunarleysi í heila viku. Og þar eð hún hafði misst meðvitund á ný var ekki hægt að spyrja hana frekar að sinni. Rannsóknarlögreglan taldi sig ekki geta borið sakir á Mieth að svo komnu máli. Og eftir að María komst aftur til meðvitundar leið nokkur tími þar til hreyfing komst á málið og þá var það fyrir hennar til- verknað. Hún gerði boð fyrir rannsóknarlögreglumann og bað hann um að láta teiknara koma svo gera mætti teikn- ingu af morðingjanum eftir lýsingu hennar því útliti hans kvaðst hún ekki gleyma. Beiðni hennar var tekið með nokkurri vantrú því dregið væri í efa að treysta mætti minni hennar. Engu að síður var gert eins og hún bað um, og brátt hafði teikn- ari lögreglunnar gert mynd. Maður- inn á henni var með hvasst nef og kinnfiskasoginn. Myndinni var dreift á allar lögreglustöðvar í Þýskalandi og mörgum til undrunar bar það skjótan árangur. Handtaka í Thúringen í austurhluta lands- ins þótti lögreglumönnum sem þeir bæru kennsl á manninn sem lýst var eftir fyrir morðið á Wemer Vock og hina lífhættulegu árás á Maríu Schulz. Vai' talið að þar hefði verið á ferð fjörutíu og eins árs gamall smiður sem sérhæfði sig í viðgerðum á gömlum húsum. Hann hét Raimund Reichert. Var nú hafin leit að honum, og ekki leið á löngu þar til hann fannst og var tekinn til yfirheyrslu. Reichert kvaðst i fyrstu ekkert vita um þann atburð sem honum var gefið að sök að bera ábyrgð á. En þegar honum var bent á að hann hefði fundist vegna myndar sem teiknuð hefði verið eftir fyrirsögn konunnar sem hann hefði talið sig hafa drepið, en hefði haldið lífi og gæti borið kennsl á hann, sá hann sitt óvænna og játaði að hafa ruðst inn á heimili þeirra Maríu og Wem- ers. „En hvers vegna?“ spurðu lög- reglumennirnir. „Þekktirðu þetta fólk?“ „Nei, ég þekkti það ekki,“ svaraði Reichert. „Hvers vegna fórstu þá alla þessa leið til þess að myrða þau?“ „Ég var fenginn til þess,“ svaraði Reichert. „Mér var borgað fyrir það.“ Hringurinn þrengist „Hver vildi þau feig?“ „Heinz Mieth. María Schulz var gift honum, en þau skildu." í ljós var að koma að María hafði ekki verið með óráð þegar hún gaf lögreglunni fyrsti visbendinguna þá stuttu stund sem hún fékk fyrst meðvitund á sjúkrahúsinu. En hver var skýringin? Reichert svaraði nú þeim spum- ingum sem fyrir hann voru lagðar. Jú, hann hafði verið fenginn til að ráða Maríu af dögum, ekki Werner Vock. Hann hafði aðeins verið svo óheppinn að koma til dyra og standa þannig í vegi fyrir að Reichert gæti gengið rakleiðis til þess verks sem hann hafði verið fenginn til. Og Maríu hafði átt að ráða af dögum til þess að koma í veg fyrir að hún gæti haldið fast við þá kröfu sína að fá í sinn hlut helming andvirðis húss sem þau hjón, hún og Mieth, höfðu átt á sínum tíma. Hann hafði selt það og viljað halda fénu en hún gert kröfu til þess. Frekari athugun sýndi að Maria hafði skjöl sem sýndu fram á rétt’ hennar til hluta eignarinnar. Sömu- leiðis bám vitni, fólk sem þekkti til Mieths, að hann hefði sagt um kröfu konu sinnar fyrrverandi: „Þessi leiðindakerling fær ekki einn eyri.“ Reichert gerði fulla játningu. Þar kom fram að það var ekki Mieth sjálfur sem réð hann til verksins. Mieth hafði leitað til annars manns, vinar Reicherts frá gamalli tíð, Vol- kers Hoche, og beðið hann að finna mann sem vildi ráða Maríu af dög- um gegn greiðslu. Og þegar Hoche bauð Reichert jafnvirði um hálfrar milljónar króna fyrir að koma henni úr þessum heimi féllst hann á að gera það. En allt fór á annan veg en ætlað var. Reichert fékk ævilangt fangelsi fyrir morð og morðtilraun og það fengu þeir Mieth og Hoche líka. Raimund Reichert.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.