Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997 unglingar ÖV Geysilega gaman í leikfélaginu - segir Gustav Helgi Haraldsson, 16 ár leikari úr Keflavík DV, Suðumesjum: „Það er alveg geysilega gam- an í leikfélaginu. Þetta er mjög góður félagsskapur og allir mjög hressir. Það er enginn minni en aðrir í félaginu - allir eru jafningjar," sagði Gustav Helgi Haraldsson sem hefur verið í Leikfélagi Keflavíkur frá 10 ára aldri. Gustav er 15 ára unglingur úr Keflavík. Hann er á fyrsta ári í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja. Það fer ekki á milli mála að þar er mjög hress strákur á ferð. Gustav hefur leikið í Stræti eftir Jim Cartwright, lék þar ungan götustrák sem bjargar sér sjálfur. Hann er vinur aðal- leikarans og var alltaf með hon- um og stal fyrir hann í leikrit- inu. Þá söng Gustav í Keflavik- urrevíunni. Gustav hefur einnig samið leikrit, leikið og leikstýrt fjölmörgum skólaleik- ritum. Hlutverk í kettinum „Þetta byrjaði þannig að ég fór á Línu langsokk í Keflavík og þá sá ég fólk sem ég þekkti í leikritinu. Mér fannst þetta mjög sniðugt og fór á fund hjá Leikfélagi Keflavíkur. Ég var 10 ára og allir meira en helm- ingi eldri en ég. Ég skráði mig og 2 árum síðar sá ég auglýs- ingu þar sem var óskað eftir krökkum í Stígvélaða köttinn. Ég fékk hlutverk og lék vörð fyrir sjáifan kónginn. Ég hef verið í félag- inu síðan. Það sem heillaði mig strax var að sýna og leika á sviði,“ sagði Gustav sem vill einnig leika í auglýsingum og hefur látið skrá sig. Stofnaði fyrirtæki Þrátt fyrir ungan aldur er Gustav búinn að stofna fyrirtæki sem heit- m Gustav Helga Haraldssyni finnst geysilega gaman í leikfélaginu og segir að þar sé góður félagsskapur. DV-mynd Ægir Már ir Iceweb. Hann stofnaði það í júní í sumar. Fyrirtækið sérhæfir sig í heimasíðugerð. „Ég stofnaði fyrir- tækið til að geta boðið fyrirtækjum upp á ódýrar heimasíður. Þetta er allt að fara í gang. Ég er með heima- síðu fyrir mitt fyrirtæki og einnig hef ég gert nokkrar fyrir aðra. Ég gerði heimasíðu fyrir unglinga- hljómsveit hér í bæ sem heitir Drá- kon. Ég gerði hana í sjálfboðavinnu til að koma strákunum á framfæri. Þá er ég að fara að gera heimasiðu fyrir fóður minn sem á Teiknistof- una Örk í Keflavík. Ég var búinn að vera á Netinu á annað ár áður en ég fór út í heimasíðugerð sem er mjög spennandi og alltaf eitthvað nýtt að gerast í þeim efnum. Ég get alveg verið frá viku upp í mánuð að gera eina heimasíðu. Það fer alveg eftir því hvernig hún á að vera. Þá er ég einnig i forritun. Ég er þekktur á Netinu sem gusto og tölvupósturinn minn er gusto@ok.is,“ segir Gustav Helgi sem er einnig töluvert á spjallrásinni. I knattspyrnu Gustav spilaði knattspymu með Keflavík í 7 ár og var íslandsmeist- ari með liðinu í yngri flokkum. í dag segist hann vera nýfarinn að æfa líkamsrækt hjá Lífsstíl í Kefla- vík. Gustav er fæddur og uppalinn í Keflavík. Hann bjó 4 ár í Danmörku, frá 3-7 ára, þar sem faðir hans menntaði sig. Hann er sonur Har- alds Valbergssonar og Þóru Bjargar Einisdóttur. Fyrir 3 mánuðum kom systir Gustavs I heiminn. „Hún heitir Rita Kristín. Það var alveg yndislegt að fá hana í fjölskylduna og skemmtilegt að eignast systkini. Það er undir henni komið hvort hún vil læra á tölvu. En ég kem henni ör- ugglega í leikfélagið,“ segir Gustav. Gustav var 4 ára þegar hann fékk sina fyrstu tölvu. „Frændi minn, ívar, bróðir pabba, gaf mér þá tölvu. Þar fékk ég bakt- eríuna. Pabbi minn gaf mér síð- an fyrstu PC-tölvuna sem ég eignaðist. Ég vann síðan í loðnu í vetur og keypti mér nýja og öfluga tölvu,“ sagði Gustav. Stefnir til útlanda En á Gustav sér einhver framtíðaráform? „Ég er í dag á almennri braut. Ég er að bíða eftir að fá bílpróf en þá ætla ég í Iðnskólann í Reykjavík, á tölvufræðibraut. Ég stefni aðþví að fara til útlanda og læra kerfísfræði. En áður lang- ar mig að fara i leiklistarskól- ann,“ sagði Gustav sem hefur mikinn áhuga á að fá vinnu hjá Internetfyrirtækinu OK í Kefla- vik. En hvað gerir unglingurinn Gustav annað en að vera fyrir framan tölvuna sína og vera í leikfélaginu? „Ég á mjög góða vini og erum við oft saman. Mér finnst gaman að horfa á góðar bíómyndir og fara í bíó með vinum mínum. Ég fer mjög sjaldan í unglingapartí. Ég drekk ekki áfengi og reyki ekki. Ég get al- veg skemmt mér án áfengis og skemmti mér jafn vel og þeir sem nota áfengi. Þá hef ég gaman af öllu sem viðkemur x-files og yflrnáttúr- legum hlutum. Ég á átta tveggja klukkustunda spólur með x-files. Ég hef horft á alla þættina. Þá hef ég gaman af að hlusta á tónlist og í uppáhaldi er unglingahljómsveitin Botnleðja," segir Gustav Helgi Har- aldsson. hliðin Eva María Jónsdóttir í Dagsljósi: Líður vel í sjónvarpi „Þessu starfi fylgja vitaskuld bæði kostir og gallar. Gallarnir eru kannski helst þeir að vinnu- dagurinn er langur og síðan verð- ur maður vitaskuld sem opinber persóna að þola gagnrýni. Ég er ánægð í þessu og stefni að því að vinna í sjónvarpi á meðan ég þoli það og áhorfendur þola mig,“ segir Eva María Jónsdóttir sem er að hefja sitt fyrsta ár sem stjórnandi Dagsljóss. Hún hefur unnið við þættina frá upphafi. Eva María sýnir á sér hina hliðina að þessu sinni. -sv. Fullt nafn: Eva María Jónsdótt- ir. Fæðingadagur og ár: 26.04. 1971. Maki: Óskar Jónsson. Börn: Ekki til. Bifreið: Er að reyna að skipta. Starf: Umsjónarmaður í Dags- ljósi. Laun: Meira en nóg. Hvað finnst þér skemmtileg- ast að gera? Dansa samkvæmis- dansa með kærastanum. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Þrifa ísskápinn. Uppáhaldsmatur: Reyktur sil- ungur og avókadó. Uppáhaldsdrykkur: Volgt vatn. Hvaða iþróttamaður stendur fremstur í dag? Litlu samkvæm- isdansararnir. Uppáhaldstímarit: Heimilis- pósturinn. Hver er fallegasta kona/karl sem þú hefur séð (fyrir utan maka)? Jón Leví. Ertu hlynnt eða andvig ríkis- stjórninni? Dagamunur á því. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Ömmu Rögnu heitinna. Uppáhaldsleikari: Daníel Þ. Magnússon. Uppáhaldsleikkona: Gréta Garbo í The Two Faced Women og Ólafla Hrönn Jónsdóttir. Uppáhaldssöngvari: Hallbjörg Bjarnadóttir. Uppáhaldsstjómmálamaður: Guðrún Helgadóttir. Uppáhaldsteiknimyndaper- sóna: Ég er ekki spennt fyrir teiknimyndum. Uppáhaldssjónvarpsefni: Pakkinn frá 19-21 fyrst á Stöö 2 svo á RÚV og svo dýralífsmyndir. Uppáhaldsmatsölustað- ur/veitingahús: Argentína. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Öldina okkar, Öldina sem leið og Öldina siðustu. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Rás 1. Uppáhaldsútvarpsmaður: Sig- valdi Júlíusson. Hverja sjónvarpsstöðina horf- ir þú mest á? Sjónvarpið. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ég held svolítið upp á félaga mína í augnablikinu. Uppáhaldsskemmtistað- ur/krá: Vitabarinn er ágætur á milli 17 og 19. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Púttfélag vistmanna Gmndar. Stefnir þú að einhverju sér- stöku í framtíðinni? Safna hári niður að rassi. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Keyrði um Vesthrði og svaf í bíln- um.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.