Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Side 29
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997 lausu að engar fréttastofur eða ritstjómir 1 landinu hafi jafn mikið traust meðal almennings og fréttastofur Ríkisútvarpsins. Það hafi ótal kannanir sýnt. Þyngri á bárunni Undirritaður vill verjast fyrir hinna hönd og spyr því hvort ekki geti verið að traustið komi til vegna þess" að ríkisfréttastofurn- ar sigli lygnari sjó en aðr- ar - segi átakaminni fréttir sem kalli siður á hörð viðbrögð úti í þjóð- félaginu. Þannig hafi al- menningur í raun lítið upp á þær að klaga. „Það er alveg af og frá. Við endum alla daga á því að bera sam- an fréttatíma beggja stöðvanna, hvað gerðu þeir vel og hvað við? Stundum eigum við góðan dag, stundum þeir en við forðumst síður en svo átaka- fréttir. Við forðumst hins vegar að fara með eitthvað í loftið sem við erum ekki 100 prósent viss um að geta staðið við,“ segir Helgi og hann heldur áfram að- spurður um mun- inn á fréttum stöðvanna. „Við erum kannski heldur þyngri á bárunni. Sumir segja of þungir og ég get að vissu marki fallist á það. Það er enda hlutur sem ég vil gjarna taka á en þó þannig að engu verði fórnað í sam- bandi við vönd- un vinnubragða. Ég er sammála því að, við megum brosa meira og er sannfærður um að við getum alveg sagt alvörufréttir án þess að hátíð- leikinn leki af okkur.“ Helgi nefnir að hann vilji létta andrúmsloft fréttanna og því liggur beinast við að spyrja hvað hann ætli að gera. Hann vill fyrst fá að ræða hugmyndir sínar við samstarfsfólkið en segist ekki ætla sér að sitja í fréttastjórastól og gefa skipanir. Þeg- ar um hægist eftir þessa hrinu nú verði haldnir fundnir með öllu fólk- inu sem kemur að fréttunum þar sem þessi mál og önnur verði rædd. nætt. Það heföi gert ýmsa DV-myndir Pjetur Vil fjölga konum „Ég get nefnt eitt sem dæmi og það er að ég tel að tveir þulir séu heppilegri kostur en einn. Það er engin tilviljun að í aðalfréttatímum stöðva vítt og breitt um heiminn eru þulirnir yfirleitt tveir, karl og kona, og það eitt gefur fréttatím- anum léttara og skemmtilegra yfir- bragð.“ Helgi er ekki sammála undirrit- uðum þegar spurt er hvort ekki sé nauðsynlegt að yngja upp í frétta- mannahópnum og fá inn ferskt blóð. Hann segir að sífellt sé að koma inn nýtt fóik og að nauðsynlegt sé að hafa hópinn sem blandaðastan. Hann vill þó gjama fá fleiri konur í fréttahópinn. „Stærsta vandamál okkar hér er aðstöðuleysið og ég ætti kannski að „Það stefndi fljótt í aö valið myndi standa á milli mín og Elínar Hirst og eftir að það varð Ijóst fullyröi ég að ég hafi haft eindreginn stuðning manna hér innanhúss." DV-mynd BG bjóða útvarpsráðsfólki að koma hingað í skoðunarferð. Vinnueftir- litið hefur ítrekað gert athugasemd- ir en engar úrbætur hafa verið gerð- ar,“ segir Helgi og bætir við að eng- inn vafi leiki á því að aðstöðuleysið standi fréttastofunni fyrir þrifum. Helgi efast um að fólkið fyrir framan skjáinn verði almennt eitt- hvað vart við það að nýr fréttastjóri sé kominn til starfa. Breytingar ger- ist hægt aðstæðnanna vegna. Búið sé að skipuleggja starfið að minnsta kosti fram að áramótum og síðan snúist þessir hlutir meira og minna um peninga sem erfitt sé að fá. Á ryksugunni „Hlutur fréttadeildarinnar er allt of rýr og ég mun gera hvað ég get til þess gera hann meiri. Ég vil sjá meiri þáttagerð í deildinni, bæði af innlendum og erlendum vettvangi. Ég vil halda ellefufréttunum enda er áhorfið slíkt að það réttlætir þær algerlega." Aðspurður hvað Helgi H. Jónsson geri þegar hann er ekki vinnunni segist fréttastjórinn leggja mikla áherslu á að rækta fjölskyldubönd- in. Eins og áður segir er hann kvæntur Helgu Jónsdóttur borgar- ritara og saman eiga þau þrjú börn, Oddnýju, 16 ára, Sólveigu, 12 ára, og Gunnlaug, 10 ára. Helgi á að auki tvo syni, Jóhann Áma, 26 ára, og Jón Ara, 24 ára. „Fyrir fáeinum árum bjuggum við í Bandaríkjunum um þriggja ára skeið vegna þess að konan mín fékk vinnu við Alþjóðabankann í Washington. Ég var þá heima á ryksugunni, eins og hver önnur út- hverfishúsmóðir þar vestra, og það var afar dýrmætur tími fyrir mig til þess að nálgast börnin þrjú og tengj- ast þeim meir en ég hefði kannski haft tækifæri til að gera hér heima. Nýtt tungumál og framandi aðstæð- ur kölluðu á að ég sinnti þeim mik- ið og ég held að við búum öll að því enn í dag. Við hjónin vinnum bæði mikið en ég reyni sem sagt að vera góður pabbi þegar ég á frí. Mér líð- ur best í faðmi fjölskyldunnar." I allt öðru Helgi segist vera mikill bókakarl og segist kannski ekki eiga að segja frá því en bókin sé eiginlega sá fjöl- miðill sem hann noti hvað mest. Hann taki t.d. frekar bók með sér í rúmið á kvöldin en að horfa á sjón- varpið. Aðspurður hvar hann væri ef ekki í fréttamennsku segist Helgi vel geta séð sig í einhverju allt öðru starfi. „Stundum er fólk spurt að því hvað það myndi velja ef það fengi tækifæri til að kjósa sér starf aftur og mér finnst það lýsa ósköp tak- mörkuðu hugarflugi þegar það seg- ist líklega myndu velja það sama aftur. Ég myndi velja eitthvað allt annað án þess að vita hvað,“ segir Helgi og hann hlær þegar hann er að lokum spurður hvort hann sjái sjálfan sig í fréttaharkinu næstu tíu til tuttugu árin. „Nei, alveg áreiðanlega ekki. Ég er svo lukkulegur að eiga sumarbú- stað í Mosfellsdal og vonast til þess að geta verið þar sem mest og rækt- að skóg þegar fram líða stundir," segir Helgi H. Jónsson. -sv helgarviðtalið Um Helga Vilhelm G. Kristinsson: Hlýr og góður „Helgi er hlýr og góður félagi, jafht í vinnunni sem utan henn- ’> ar. Þeim sem þekkja hann ekki kann aö virðast hann þungur á bár- unni en það er stutt í húmor- inn og léttleikann. Helgi er fag- maður og ég efast ekki um að fréttastjórn hans muni ein- kennast af því. Við erum á önd- verðum meiði í pólitík en vegna þess að ég þekki mann- inn vel veit ég að allt tal um að hann sé handbendi einhverra flokkpólitískra afla er út i hött. Helgi mundi aldrei fórna fag- mennskunni og heiðarlegum vinnubrögðum með þjónkun við slík öfl,“ sagði Vilhelm G. Kristinsson, vinur Helga og fyrrverandi samstarfsmaður. Ingvi Hrafn Jónsson: Nýtt hljóð í strokkinn „Ég held að Helgi muni leysa þetta verk- efni vel af hendi,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson, fyrr- verandi sam- starfsmaður Helga hjá ríkissjónvarpmu. Ingvi Hrafn fór ófógrum orð- um um Helga í bók sinni, Og þá flaug hrafnmn. Aðspurður um þetta sagðist Ingvi Hrafn ekki vilja tjá sig að öðru leyti en „að það væri löngu liðin tíö“. Guðjón Arngrímsson: Á eftir að koma á óvart „Helgi veit aö fæstir búast við því að hann sem „gamall hund- ur“ á fréttastof- unni geri þar miklar breyting- ar. En hann er lika nægilega klókur og sjóaður til að vita að til að ná tökum á verkefninu, að stýra stórri fréttastofu, verð- ur nýr yfirmaður að hrista upp í bæði framsetningu fréttanna og vinnufyrirkomulagi. Að öðr- um kosti lognast áhorfendur og starfsmenn smám saman út af. Helgi er afar viðkunnanlegur maður, léttur í skapi og marg- fróður, og, að ég held, vel lið- inn meðal samstarfsmanna. Ég tel að hann eigi eftir að koma mörgum á óvart í fréttastjóra- starfinu," segir Guðjón Arn- grímsson, fyrrverandi frétta- maður Stöðvar 2 og núverandi starfsmaður fjölmiðlafyrirtæk- isins Athygli. Svilkonan - - sótti um Kristín Þorsteinsdóttir fréttamaður, sem einnig sótti um starf fréttastjóra Sjónvarps, tengist Helga á fleiri vegu en í gegnum fréttastofuna. Hún er gift Skafta Jónssyni, bróður helgu, eiginkonu Helga. Hún er því svilkona hins nýja fréttastjóra. Þeir hafa lengi staðið saman í eldlínunni, nafnarnir H. Jónsson og E. Helgason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.