Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Qupperneq 30
38
Heimildarrit um
Þórisdal
Ferðafélag íslands sendi nýlega frá sér
fræðsluritið Þórisdalur og ferð prestanna
1664.1 ritinu er að finna ferðasögur prest-
anna Helga Grímssonar og Bjöms Stef-
ánssonar ffá því 1664. Dr. Eysteinn Sig-
urðarson skrifar inngang um svæðið og
þær þjóðsögur sem
tengjast þvi. Þóris-
dalur, sem liggur
sunnan undir
Geitlandsjökli
syðst í Langjökli,
varð í þjóðtrúnni
heimkynni útilegu-
manna og vætta
sem byggðamenn
þekktu ekki.
Ritið er alls 40
blaðsíður, prýtt
mörgum litmynd-
um af svæðinu og
litprentuðu yfirlit-
skorti.
Óstundvísi í
Evrópuflugi
Seinkun í flugi innan Evrópu hefur
aldrei verið meiri en nú í sumar. Sam-
kvæmt nýjum tölum ffá Samtökum evr-
ópskra flugfélaga kemur í ljós að fjórða
hver brottfór var meira en fimmtán mín-
útum á eftir áætlun.
Rútuferðir aflagðar
Frá og með 27. október næstkomandi
munu Flugleiðir leggja af þjónustu lang-
ferðabifreiða á milli Lúxemborgar og
þýsku borganna Dússeldorf og Stuttgart.
Flugleiöir hyggja hins vegar á samstarf
við ferðaskrifstofur á svæðinu og munu
bjóða upp á rútuferðir fyrir stærri hópa á
svæðinu næst Lúxemborg.
Hjólað til móts
við nýja öld
Hjólreiðamenn víða í heiminum búa
sig nú undir að hjóla yflr norðurhluta
Nýja-Sjálands á tímabilinu frá 18. desem-
ber 1999 til 6. janúar árið 2000. Mikill
flöldi hjólreiðamanna hefur þegar til-
kynnt þátttöku og er áætlað að þeir verði
ekki færri en um tvö þúsund talsins. Leið-
in er um þúsund kíiómetrar en hver dag-
leið á bilinu 60-110 kílómetrar. Hjólreiða-
menn verða staddir í bænum Gisbome
við Poverty Bay þegar aldamótaárið geng-
ur í garð en þar verður mikið um dýrðir.
Októberhátíðin
hafin
Hin árlega októ-
berhátíð í
Múnchen er nú í
hámarki en þetta
er í 164. skipti sem
efnt er til hennar.
Mikill flöldi mun
sækja hátíðina í ár
en ekki er enn Ijóst
hvort aðsóknar-
metið frá því í
fyrra verður slegið
þegar um sjö millj-
ónir manna sóttu hátíðina.
Gestir hátíðarinnar stunda að sjálf-
sögðu bjórdrykkju stíft og er áætlað að
þeir muni í það minnsta skola niður sex
milljónum litra af bjór. Hátíðinni lýkur 5.
október.
Allar flugleiðir SAS
reyklausar
Frá og með síðustu mánaðamótum eru
reykingar bannaðar á öllum flugleiðum
SAS. Reykingabann hefur ríkt um nokk-
urt skeiö í innanlands- og Evrópuflugi fé-
lagsins.
Samkvæmt könnun sem flugfélagið
gerði meðal farþega sagðist mikill meiri-
hluti þeirra fagna því að skrefið yrði nú
stigið til fulls og reykingar alfarið bann-
aðar. Aðframkomnir reykingamenn þurfa
þó ekki aö örvænta því í öllum flugvélum
SAS verður boðið upp á nikótíntyggjó án
endurgjalds.
16 íslendingar á
leið til Nepals:
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997
Eitt fegursta land heims
Ferð fyrir
venjulegt
fólk
Fyrirhuguð
gönguferð mun
taka 15 daga en
alls stendur
ferðin í 23 daga.
Fyrir og eftir
gönguna gefst
mönnum kost-
ur á að dvelja í
Katmandu.
Helgi segir
þessa ferð alls Hópur göngumanna hvílir
ekki hugsaða iúin bein.
fyrir þrau-
treynda flallamenn. „Það er auðvitað nauð-
synlegt að fólk sé í góðu formi og heilbrigt.
Gangan sjálf er í meðallagi erfið en þetta er
ekki fiallganga í bókstaflegum skilningi því
öll leiðin er eftir göngustígum.
Helgi segir að þynning loftsins sé það
helsta sem geti valdið mönnum erfiðleikum
en hópurinn fer hæst í um 5.500 metra hæð.
„Við fórum okkur hægar þegar ofar er kom-
ið og erum viðbúnir því að menn fái hæða-
veiki.“ Ef slíkt hendir þá er tvennt til ráða;
annars vegar að taka lyf eða einfaldlega fara
neðar í flallið.
Ferðin til Nepals
var hvergi auglýst
en Helgi sagðist
hafa látið orð
ganga í helstu út-
vistarbúðum í
Reykjavík og
meira hafi ekki
Innfæddir Nepalar. Ef
vel er að gáð má
greina ungbarn í körf-
unni sem konan ber á
höfðinu
Náttúrufegurð í Nepal á sér fáa líka.
Ævintýraþrá íslendinga hafa
aldrei verið takmörk sett en þann
8. október nk. heldur 16 manna
hópur íslendinga til Nepals sem
gjama er lýst sem draumastað
útivistarfólks. Það er breska
ferðaskrifstofan David Oswin Ex-
peditións sem skipuleggur ferð-
ina en fararstjórinn er íslenskur
og heitir Helgi Benediktsson. ís-
lensku ferðalangarnir, sem eru á
aldrinum 35-67 ára, munu ganga
um fáfarnar slóðir í Norðaustur-
Nepal, nánar tiltekið að rótum
Kanchenjunga, sem er þriðja
stærsta fiall í heimi, 8.598 metra
yfir sjávarmál.
Fararstjórinn, Helgi Benedikts-
son, er enginn nýgræðingur í
flallamennsku, hann hefur klifið
öll helstu flöll Evrópu og ferðast
um Indland og Afriku, svo að eitt-
hvað sé nefnt. Þetta er þriðja ferð
Helga til Nepals og langt frá því
að vera sú síðasta.
„Það er líklega satt sem sagt er
að það fer enginn einu sinni til
Nepals. Hafirðu farið einu sinni
gerirðu allt til þess að komast aft-
ur. Landið býr yfir ótrúlegu að-
dráttarafli og
töfrum sem ég
hef ekki fundið
annars staðar í
heiminum.
þurft til. Þótt haustferðin til Nepals sé ekki
afstaðin þá hefur Helgi þegar lagt drög að
annarri ferð þangað en í mars á næsta ári
hyggst hann leiða hóp göngumanna að
grunnbúðum Everest-flalls.
Ólýsanlegir töfrar
Þegar Helgi er spurður hvað sé svo eftir-
sóknarvert við Nepal segist hann eiga erfitt
með að útskýra það með orðum. „Það eru
ólýsanlegir töfrar í Nepal og þetta er vafa-
laust eitt fegursta land heims. Fólkið sem
byggir landið er stórkostlegt, ég hef aldrei
áður hitt brosmildara né vinsamlegra fólk.
Náttúrufegurðin er einstök og i göngu eins
og þessari er fiölbreytnin gríðarleg. Við
göngum úr frumskógi og upp að snælinu í
5.000 metra hæð. Á leiðinni upp er maður sí-
fellt að upplifa eitthvað nýtt og það má segja
að maður ferðist
úr einum menn-
ingarheimi í ann-
an. Á niðurleið-
inni sér maður
svo allt með öðr-
um augum.
Fyrir áhuga-
menn um Nepal
má geta þess að
næsta þriðju-
dagskvöld, 30.
september, mun
Helgi Benedikts-
son halda fyrir-
lestur og sýna
myndir frá
Nepal. Fyrirlest-
urinn verður í
húsi Ferðafélags
íslands, Mörk-
inni 6, og eru all-
ir velkomnir. -aþ
Evrópusambandið stendur fast við ákvörðun sína
Endalok fríhafna í Evrópu
DulýFree
Liquor&Tobacco
'r-
Á ,
- ierc;
WWm'P
Verði af ákvörðun Evrópusam-
bandsins að leggja niður allar toll-
ftjálsar verslanir innan sambands-
ins í júní 1999 má gera ráð fyrir að
það hafi viðtæk áhrif á almennan
rekstur flugstöðva og væntanlega
leiða til hækkunar fargjalda.
Árið 1988 tók Evrópusambandið
fyrst þá ákvörðun aö tolifrjáls
verslun samrýmdist ekki mark-
miðum þess um einn markað í
Evrópu. Allir skyldu sitja við
sama borð þegar kænii að verslun
í sambandslöndunum. Breyting-
unni, sem átti að taka gildi árið
1992, var hins vegar frestaö til
júnímánaðar ársins 1999.
Þrátt fyrir þessa staðreynd er
ekki að sjá að fríhafnir í Evrópu
hafi setið með hendur I skauti og
beðið þess sem verða vildi. Mikil
aukning hefur orðið í fláifesting-
um og velta hinnar tollfrjálsu
verslunar hefur farið vaxandi hin
síðustu ár, var um 500 milljarðar í
Evrópu einni í fyrra.
Afleiðingar þess að leggja niður
tolifljálsa verslun geta orðið víð-
tækar. Meðal þeirra sem harðast
verða úti eru flugstöðvamar sem
hingað til hafa haft góðar tekjur af
rekstri slíkra verslana. Flugstöðv-
ar munu síst minnka í framtíðinni
og óvíst hvemig evrópskar flug-
stöðvar mæta auknum flugsam-
göngum og auknum kröfum.
Þá er því spáð að smærri flug-
vellir leggist einfaldlega af og
sama mun gilda um ferjuleiðir til
fámennari staða. Alls er áætlað að
um 50 þúsund manns verði af at-
vinnu vegna þessa.
Hvað leiguflugfélögin varðar
verður um tvennt að velja: annars
vegar að hækka fargjöldin eða
fljúga til landa utan Evrópu. Flest
leiguflugfélaganna hafa nefhflega
jafnar tekjur af farmiðasölu og
sölu vamings um
borð. Því er ljóst
að sumarleyfisferð-
ir munu hækka í
verði, auk þess
sem gert er ráð fyr-
ir um 15% af aukn-
um kostnaði flugfé-
laga vegna lending-
argjalda muni
lenda á farþegum.
Þá era þeir vafa-
laust ófáir sem koma til með að
sakna þess að spássera um glæsi-
legar fríhafnarverslanir.
Þrátt fyrir mikinn þrýsting frá
Sambandi evrópskra flugstöðva
gaf Evrópusambandið nýlega út
tilkynningu þess efnis að það
stæði fast við þá ákvörðun sína að
leggja af tollfijálsa verslun árið
1999.
Byggt á Reuter/Condé Nast